Morgunblaðið - 29.10.1974, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1974
„VIÐ vorum mjög ánægð með
aðsóknina um helgina," sagði
Indriði G. Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Þjóðhátíðarnefnd-
ar 1974, þegar Mbl. spurði hann
um Sögusýninguna í gær. „Að-
sóknin var óvenjumikil á laugar-
daginn, þrátt fyrir slæmt veður
og á sunnudögum er hún alltaf
góð,“ bætti Indriði við.
Indriði sagði, að mjög erfitt
væri að gera sér grein fyrir því
hve margir hefðu nú þegar sótt
sýninguna, því skólanemendur
eru ekki taldir, þar eð þeir fá
ókeypis inn. Sagði Indriði, að hóp-
ar skólafólks kæmu á degi hverj-
um, bæði heilir skólar, og einstak-
ar bekkjardeildir í fylgd kennara.
Sú breyting verður á áður aug-
lýstri dagskrá sýningarinnar, að
fyrirlestur Vilhjálms Þ. Gíslason-
ar, sem átti að vera í kvöld, verð-
ur n.k. sunnudag 3. nóv. kl. 15. I
dag sýnir og útskýrir Gunnar
Gunnar Hannesson.
Hannesson litmyndir sínar af ís-
lenzkri náttúru. Dagskráin verður
endurtekin á morgun og föstudag-
inn. Á fimmtudaginn verður
mynd Ósvalds Knudsen um Vest-
mannaeyjagosið sýnd á Sögusýn-
ingunni á Kjarvalsstöðum, og
hefst sýningin klukkan 20.30.
„Gamli góði stíll-
inn aftur f sam-
einuðu alþingi.*'
Néðsti pallurinn
undir forseta-
borðinu nemur
hækkuninni.
Gylfi Þ. Gfslason
forseti sameinaðs
alþingis er við
gamla ræðustól-
inn, lengst til
vinstri er Gils
Guðmundsson
forseti neðri
deildar og lengst
til hægri er
Friðjón Sigurðs-
son ásamt Herði
Bjarnasyni húsa-
meistara. Ljós-
mynd Mbl.
ól.K.M.
Brennuvargar í Smáíbúðahverfi:
Kveiktu 14 bílum
og geymsluskúr
BRENNUVARGAR voru á ferð í svæði, og er talið fullvíst, að sömu
Smáfbúðahverfi aðfararnótt s.l.
mánudags. Kveiktu þeir f þremur
bflum og gerðu auk þess tilraun
til að kveikja í fjórða bflnum og
geymsluskúr. Tjónið skiptir
hundruðum þúsunda, og verða
eigendurnir að bera það sjálfir,
nema takist að hafa uppi á þrjót-
unum. Ikveikjurnar áttu sér stað
með stuttu millibili á afmörkuðu
Sálarrann-
sóknarmenn
Hafsteinshús
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt fréttatilkynning frá
samtökum áhugamanna um
sálarrannsóknir, sem hafa það
markmið að bjóða öflu áhuga-
fólki um þetta efni til sam-
starfs um byggingu húss og að
boðað verði til stofnfundar f
næsta mánuði. Einnig fylgja
drög að lögum félagsins þar
sem kemur fram, að ætlunin
er að efla vísindalega rann-
sókn þessara mála og að leitað
verði samstarfs við Heimspeki-
deild Háskóla Islands.
I fréttatilkynningunni segir,
að lengi hafi verið Ijóst, að
hentugt húsnæði skortir fyrir
sálarrannsóknir, og því hafi
nokkrir áhugamenn bundizt
samtökum um að bæta hér úr
og „ákveðið að kalla til alla
hvar sem þeir eru búsettir á
landinu, bjóða þeim til sam-
starfs um byggingu húss, er
leysi þennan vanda“.
Framhald á bls. 35
aðilar hafi verið f öll skiptin.
Þegar Mbl. hafði samband við
rannsóknarlögregluna f gær,
hafði ekki tekizt að hafa uppi á
brennuvörgunum, og varþað ósk
hennar, að allir þeir, sem ein-
hverjar upplýsingar gætu gefið,
hefði strax samband við lög-
regluna.
Það var klukkan rúmlega 2,30 í
fyrrinótt, að slökkviliðinu barst
tilkynning um fyrsta brunann.
Var það í porti við verzlunina
Litaver, sem stendur við Grensás-
veg. Bíll fyrirtækisins stóð í
björtu báli. Gekk erfiðlega að
ráða niðurlögum eldsins, því
mikið drasl var í bílnum, sem átti
að henda daginn eftir. Er bfllinn
mikið skemmdur ef ekki ónýtur.
Um það leyti, sem slökkvistarfi
var að ljúka þar, kom tilkynning
um, að bíll stæði í logum við húsið
Hvammsgerði 8, sem er skammt
frá. Reyndist það vera nýr Austin
Mini, og brann hann allur að
innan og málning sviðnaði af.
Skömmu sfðar var enn tilkynnt,
að bíll stæði i björtu báli, nú við
hús númer 24 við Heiðargerði,
sem er einnig á sömu slóðum. Þar
Framhald á bls. 35
100 lestir til
Siglufjarðar
Siglufirði 28. okt.
AFLI línubátahérísíðustu viku
var þessi: Dagur 4 sjóferðir, 28
lestir, Tjaldur, 5 sjóferðir, 24 lest-
ir, Sæunn, 3 sjóferðir, 14 lestir og
smærri bátar með 34 lestir, sam-
tals 100 lestir.
Ms.Vega (áður ms.Laxá) lestaði
hér fiskimjöl í síðustu viku og
Eldvík lestaði saltfisk. Hér er
veðrið eins og það getur bezt orðið
á hausti. — Matthfas.
Fyrirspurn
um NTB í
norska stór-
þinginu
ENN berast engar fréttir frá
norsku fréttastofunni NTB. Norð-
menn hafa farið fram á frekari
peningagreiðslur og eru þau mál
nú f athugun, svo og hvort hægt er
að fá fréttir NTB á einhvern ódýr-
ari máta hingað til lands en verið
hefur.
Norski stórþingsmaðurinn
Tönnes M. Andersen hefur borið
fram fyrirspurn f norska stór-
þinginu vegna málsins. Er hún
svohljóðandi: „Sendir símastjórn-
arinnar á Jelöy, sem miðlar norsk-
um fréttum til margra norrænna
fjölmiðla, hefur hætt sendingum.
Er þetta til frambúðar?“ Fyrir-
spurninni er beint til norska
utanrikisráðherrans.
Kandidat tekur við prófskfrteini sfnu úr hendi rektors. — Ljósm.: Ól.
K. M.
Um 2700 stúdentar í
Háskólanum í vetur
HASKÓLAHÁTIÐIN var sfðast-
liðinn laugardag og hófst f Há-
skólabfói klukkan 14. t ræðu
rektors, Guðlaugs Þorvaldssonar,
kom m.a. fram, að áætlaður
stúdentaf jöldi f vetur verður
2.600 til 2.700, en af þeim höfðu
2.439 verið skrásettir fyrir nokkr-
um dögum. Nýskráningar og þar
með taldar endurinnritanir eru
orðnar 1.025. Þar af eru 18 f guð-
fræði, 102 f læknisfræði, 69 f
lögfræði, 117 f viðskiptafræði, 430
f námi f heimspekideild, 200 við
nám í verkfræði- og raunvfsinda-
deild, 22 f tannlæknisfræði, 29 í
lyfjafræði lyfsala, 22 f hjúkrunar-
fræði og 15 f almenn þjóðfélags-
fræði. Fjöldi fastra kennara verð-
Gamli stíllinn aftur
í sameinuðu alþingi
Sérsmíðuð
gömul húsgögn
aftur í sviðsljós
Eftir breytinguna á áheyrenda-
pöllum.
1 GÆR var lokið við að ganga
frá breytingunni, sem gerð hef-
ur verið á þingsal sameinaðs
alþingis og neðri deildar til
þess, sem upphaflega var, áður
en kjördæmabreytingin gekk f
gildi 1959, en þá voru gerðar
nokkrar breytingar á húsbún-
aði f salnum. Með kjördæma-
breytingunni fjölgaði þing-
mönnum úr 52 f 60 og komu þá
jafnframt upp hugmyndir um
að breyta algjörlega húsbúnaði
f þingsölum. Var Sveinn
Kjarval arkitekt fenginn til að
gera tillögur þar að lútandi og
var byrjað á að breyta forseta-
borði f sameinuðu alþingi,
skrifaraborðum ogræðupúlti.
Gylfi Þ. Gfslason forseti sam-
einaðs alþingis kynnti blaða-
mönnum þessa breytingu f gær
ásamt Friðjóni Sigurðssyni
skrifstofustjóra Alþingis, Herði
Bjarnasyni húsameistara ríkis-
ins og Gils Guðmundssyni for-
seta neðri deildar.
Gylfi sagði, að nú fengi salur-
inn aftur þann gamla svip, sem
hann hafði fyrir 1959, en þá var
Bjarni Benediktsson forseti
sameinaðs Alþingis og taldi
Gylfi liklegt, að Bjarni hefði
Framhald á bls. 35
ur yfir 130 en tala stundakennara
er yfir 300, þar af nær helmingur
f verkfræði- og raunvfsindadeild.
A haustinu luku 55 prófi frá
Háskóla Islands, 2 frá guðfræði-
deild, 5 frá lagadeild, 8 frá við-
skiptadeild, 18 frá heimspeki-
deild, 15 frá verkfræði- og raun-
vfsindadeild og 7 frá námsbraut í
þjóðfélagsfræðum.
Dagskrá Háskólahátfðarinnar
Sex fengu orður
FORSETI Islands sæmdi f gær
eftirtalda Islendinga heiðurs-
merki hinnar fslenzku fálkaorðu:
Birgi Isleif Gunnarsson, borgar-
stjóra, stórriddarakrossi, fyrir
störf að byggðamálum Reykja-
víkurborgar.
Björn Olafsson, konsert-
meistara, stórriddarakrossi, fyrir
störf að tónlistarmálum. Gísla
Halldórsson, fyrrverandi forseta
borgarstjórnar, stórriddarakrossi,
fyrir félagsmálastörf. Magnús
Jónsson, fyrrverandi ráðherra,
stórriddarakrossi, fyrir embættis-
störf. Prófessor Sigurð Þórarins-
son, jarðfræðing, stórriddara-
krossi, fyrir vísindastörf. Johan
Rönning, forstjóra, riddarakrossi,
fyrir störf að rafmagnsmálum á
Islandi.
var að öðru leyti sú, að hún hófst
með því, að Háskólakórinn söng
undir stjórn Rutar Magnússon, en
að því loknu voru brautskráðum
stúdentum afhent prófskírteini
sín. Þá flutti Guðlaugur Þorvalds-
son, rektor, yfirlitsræðu yfir
starfsemi skólans, sem hér hefur
verið skýrt frá, en að henni lok-
inni lýsti Sigurjón Björnsson, for-
seti heimspekideildar, kjöri
tveggja heiðursdoktora, prófess-
oranna Einars Ólafs Sveinssonar
og Jóns Helgasonar. Að lokum
ávarpaði rektor nýstúdenta.
Ók á bíl - stakk af
FÖSTUDAGINN 11. október var
ekið á rauðan Volkswagen, R
23300, þar sem hann stóð á Báru-
götu við Garðastræti. Vitað er, að
blár Scoutjeppi ók á bílinn. Ein-
hverjir urðu vitni að þessu, og eru
þeir beðnir að hafa samband við
rannsóknarlögregluna, svo og bif-
reiðarstjórinn, sem tjóninu olli.
INNBROT
INNBROT voru framin á nokkr-
um stöðum f Reykjavfk um helg-
ina. Litlu sem engu var stolið f
þessum innbrotum, en mikið rót-
að og skemmdir unnar.
GOÐ AÐSÓKN AÐ
SÖGUSÝNINGUNNI
Litmyndasýn-
ing verður í dag