Morgunblaðið - 29.10.1974, Page 14

Morgunblaðið - 29.10.1974, Page 14
J4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1974 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavfk. Framkvæmdastjóri Haratdur Sveinsson. _ Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn GuSmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni GarSar Kristinsson. Ritstjóm og afgreiSsla Aðalstræti 6, sfmi 10 100. Auglýsingar ASalstræti 6. sfmi 22 4 80. Askriftargjald 600,00 kr. á mánuSi innanlands. i lausasölu 35.00 kr. eintakiS egar núverandi rík- isstjórn kom til valda, eftir þingrof, kosningar og samstarfsslit vinstri afl- anna, var margþættur vandi fyrir dyrum. óða- verðbólga, sem stefndi í allt að 50% hækkun á árs- grundvelli, rekstrarstöðv- un atvinnuveganna við- blasandi, gjaldeyrisvara- sjóðurinn uppurinn, við- skiptahalli gagnvart út- löndum ógnvekjandi og fjármál ríkissjóðs og ríkis- stofnana í kaldakoli. — Fyrstu viðbrögð ríkis- stjómarinnar voru aðgerð- ir í efnahagsmálum, sem miðuðu að því að tryggja rekstrargrundvöll atvinnu- veganna, forða vá atvinnu- leysis frá dyrum almenn- ings og treysta á ný fjár- hagsstöðu ríkissjóðs og opinberra stofnana. Öllum var ljóst að óhjá- kvæmilegar úrbætur, eftir óráðsíu vinstri stjórnarinn* ar, hlytu að skerða í bili hag allra starfsstétta þjóð- félagsins. Af þeim sökum voru samráð við verkalýðs- hreyfinguna talin eðlileg, um framkvæmd aðgerð- anna og sérstakar hliðar- ráðstafanir, er miðuðu að því að vernda hagsmuni hinna lægst launuðu. Þessu samráði og þessum hliðarráðstöfunum, sem fólust í láglaunabótum, hækkuðum bótum al- mannatrygginga og áfram- haldandi niðurgreiðslum á landbúnaðarafurðum, var m.a. ætlað að tryggja vinnufrið, sem var algjör forsenda þess, að tilætlað- ur árangur næðist með að- gerðum stjórnvalda í efna- hagsmálum. Það gefur auga leið, að það Alþingi, sem kemur saman í dag, hlýtur að miða störf sín að verulegu leyti við aðsteðjandi vanda í efnahagsmálum, í fram- haldi af fyrstu viðbrögðum stjórnvalda á þessum vett- vangi. Eitt stærsta við- fangsefni þingsins verður vafalaust verðbólguvand- inn, sem löngum hefur reynst erfiður viðureignar. Gengislækkunin og skatt- breytingar í september- mánuði sl. hlutu að leiða af sér örar verðbreytingar á síðustu mánuðum þessa árs, en að því er stefnt að draga fari úr verðbólgu- vextinum á fyrsta fjórð- ungi næsta árs og að hann verði á því ári ekki meiri en gengur og gerist í nágrannalöndum, þ.e. um 15%. Störf Alþingis í þessu efni hljóta að miðast við þá frambúðarstefnu, að treysta grundvöll atvinnu- lífsins, skapa jafnvægi og atvinnuöryggi. Þau störf taka væntanlega mið af tvennu fyrst og fremst, umbótum í sjálfu efnahags- kerfinu, sem stefna að meiri hagkvæmni í rekstri og félagslegu réttlæti, og að skapa atvinnuvegunum nýja vaxtarmöguleika, jafnframt því að stuðla að tilurð nýrra atvinnu- greina. í samræmi við stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar hljóta aðgerðir í efnahagsmálum, efling hefðbundinna og nýrra at- vinnuvega, að tengjast fyrirhugðu stórátaki í mál- um dreifbýlisins. Efling byggðasjóðs, sem á að hafa til ráðstöfunar fjármagn, sem svarar 2% af útgjöld- um fjárlaga, gerir honum kleift að fjármagna fram- kvæmdir í samgöngu- og atvinnumálum strjálbýlis- ins, sem tryggja ættu jafn- vægi í byggð landsins. Þetta Alþingi fjallar óhjákvæmilega um þá stefnumörkun ríkis- stjórnarinnar að færa fisk- veiðilögsögu íslands út í 200 sjómílur fyrir árslok 1975. Útfærsla fiskveiðilög- sögunnar krefst mikils sér- fræðilegsundirbúnings. Að mörgu er að hyggja í þessu efni og væntanlega liggja framkvæmdaatriði ekki skýr fyrir fyrr en eftir framhaldsfund hafréttar- ráðstefnunnar í Genf, sem hefst 17. marz nk. Þá renn- ur bráðabirgðasamkomu- lag við Breta og Belga, um veiðiheimildir þessara þjóða innan 50 mflna mark- anna, út síðla árs 1975 og verða þau mál og í brenni- depli á næsta ári. Gera má ráð fyrir að öryggismálin komi til um- ræðu á Alþingi, e.t.v. í framhaldi af stefnuræðu forsætisráðherra, sem væntanlega verður flutt fljótlega eftir að Alþingi kemur saman. öryggismál okkar eru með þeim hætti að þau hljóta að verða í stöðugri athugun og endur- skoðun. Það er því mjög eðlilegt, að þau komi til umræðu á Alþingi með ein- um eða öðrum hætti. Mörg brýn verkefni bíða þess þings, sem kemur saman í dag. Höfuðvið- fangsefni þess verður að líkum á vettvangi efna- hags- og atvinnumála, með sérstakri hliðsjón af verð- bólguvextinum í þjóðfélag- inu. (Jtfærsla fiskveiðilög- sögunnar og stórátak í landsbyggðarmálum munu og móta störf þess. Örygg- ismál munu væntanlega koma á dagskrá þess. Fjár- lög næsta árs verða sem áður viðamikið og vanda- samt verkefni. Mestu máli skiptir þó, eins og nú hátt- ar til í þjóðfélaginu, að vinnufriður haldist og að þær aðgerðir fái að bera ávöxt, sem ætlað er að treysta rekstrargrundvöll atvinnuveganna og stuðla að raunverulegum kjara- bótum alls almennings fyr- ir tilverknað aukinnar verðmætasköpunar í þjóðarbúinu. Alþingi kemur saman í dag Glistrup Mogens Frá fréttaritara Mbl. f Kaupmannahöfn, Jörgen Harboe. MOGENS Glistrup, foringja næst stærsta stjórnmála- flokks Danmerkur, hefur ekki tekizt að fá bæjarþing Kaupmannahafnar til að kalla sem vitni hóp þekktra stjórnmálamanna og fyrrverandi ráðherra í máli því, sem hefur verið höfðað á hendur honum fyrir skatt- svlk. Preben Kistrup, dómari, neitaði þeirri kröfu Glistrups. Þrátt fyrir það er enginn vafi á því, að Glistrup- málið mun fá sinn sess f danskri réttarsögu. - píslarvottur í pólitísku spili eða ófyrirleitinn skattsvikari? Það var upphaf þessa máls, að Glistrup lýsti því yfir í sjón- varpi árið 1971, að hver einasti Dani gæti ákveðið hvað hann vildí greiða í skatta. Það fannst mörgum fýsilegt til fróðleiks. Því að nær þvi öllum Dönum finnst þeir greiða of háa skatta til ríkisins. Það kom því næst fram, að Glistrup stofnaði hlutafélög á færibandi. Hann seldi sfðan hlutafélögin. Eigendurnir áttu þess kost — með hugvitssam- legum viðskiptum — að draga háar upphæðir frá skattskyld- umtekjum ár eftir ár. Tveimur vikum eftir að þessi sjónvarpsþáttur var fluttur var Glistrup orðinn þjóðhetja hinna skattpíndu Dana. Hann lýsti þvf yfír í útvarpinu í þætti, sem fjölda margir hlýddu á, að hann hefði alls engan tekju- skatt greítt til ríkisins. I Dan- mörku er eignaskattur og Glist- rup færði sönnur á skattleysi sitt með því að leggja fram framtal sitt, sem sýndi, að skattaprósenta hans var núll. Um þær mundir bjó Glistrup i geysilega stóru einbýlishúsi með sundlaug í garðinum. Þetta var upphafið að réttar- höldunum, einn fjármálaráð- herra sagði af sér, frávita yfir því að geta ekki náð tangar- haldi á Glistrup, og þetta var einnig kveikjan að nýjum flokki hrifinna borgara, sem neituðu að borga skatt. Og þeir gerðu Glistrup að hetju sinni. Rannsókn á skattamálum Glistrups hófst þegar Poul Möller var fjármálaráðherra. Poul Möller hefur síðar sagt, að þegar hann hætti störfum eftir að hafa gegnt ráðherraembætti um skamma hríð, hafi það ekki hvað sízt stafað af því, að hann fann sig vanmegnugan gagn- vart þvi, sem hann sagði vera harðsvíraða misnotkun Glistr- ups á danska skattakerfinu. Rannsóknin hófst fyrir þremur árum en henni lauk ekki fyrr en í maí s.l. Þá hafði Glistrup fyrir löngu stofnað Framfaraflokk sinn og hafði verið kjörinn á þing ásamt 27 öðrum skattaaf- neiturum. Framfaraflokkurinn telst lengst til hægri. Hann vill skera niður skattana um helm- ing með þvf að leggja niður nánast allt danska stjórnunar- kerfið. Flokkurinn hefur sfðan misst frá sér tvo menn og marg- sinnis rambað á barmi upp- lausnar vegna innbyrðis ósam- komulags. Staða Mogens Glistrups í þinginu hafði það i för með sér, að ekki var unnt að leiða hann fyrir dómstól, þegar kæran var fram komin. Það var ekki hægt að gera fyrr en þingið hafði afnumið þinghelgi hans. Glist- rup hefur allar stundir stað- hæft, að málatilbúnaður allur sé af pólitískum rótum runninn og segir sig saklausan af öllum ákæruatriðum. Glistrup-málið verður sjálf- sagt fyrir dönskum dómstólum mörg næstu ár. Dómskjölin fylla mörg bindi og ákæruskjal- ið, sem lesið var við upphaf málsins þann 8. október, var upp á 120 þéttvélritaðar sfður. Akærandinn og aðstoðarmaður hans urðu að skiptast á um að lesa plaggið. Hlutur Glistrups við upphaf réttarhaldanna var ekki stórbrotinn. Hann svaraði einu „neii“ þegar hann var spurður, hvort hann væri sekur eða saklaus. Vitað er fyrir, að málið á eftir að ganga fyrir hæstarétt. A þeim vikum, sem liðnar eru, hafa menn ekki einu sinni komizt að kjarna málsins: hvort Glistrup hefur gerzt brot- legur við skattalöggjöfina. Nú er einvörðungu rætt um þá spurningu hvort málið sé af pólitískum toga spunnið. Ef sú verður niðurstaðan verður kviðdómur látinn taka til starfa. Ef til vill verður reyndin sú, að þeirri spurningu verði að svara fyrir bæjarþingi, lands- rétti og hæstarétti. A meðan málið er í gangi er Glistrup tilneyddur að mæta í réttinum mörgum sinnum í viku og marga klukkutíma f senn. Hann staðhæfir, að þann- ig sé komið í veg fyrir, að hann sitji þingfundi til að binda á þann veg enda á hans pólitíska feril. Sennilegt er, að niður- stöðurnar hafi þveröfug áhrif. Mjög margt manna — einnig þeir, sem standa utan við Fram- faraflokkinn, er á þeirri skoð- un, að málið sé pólitiskt. 1 aug- um þessa fólks er hann orðinn pfslarvottur. Dönsk blöó gera málinu rækileg skil dag eftir dag. Ogþví lengursem málið stendur því ákveðnara verður þetta fólk i þvf, að Glistrup sé saklaus. Sú skoðun er að minnsta kosti ríkjandi. Ef píslarvottakenningin er rétt mun Framfaraflokkur Mogens Glistrup ef til vill tvö- falda þingmannatölu sína við næstu kosningar og verða stærsti flokkur Danmerkur, þó svo að flokkurinn hafi engu málið komið f gegnum þingið ennþá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.