Morgunblaðið - 29.10.1974, Síða 16

Morgunblaðið - 29.10.1974, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKT0BER 1974 Lítil breyting á stöðu efstu og neðstu liðanna ENGIN stórröskun varð á stöðu efstu og neðstu liðanna í 1. og 2. deild ensku knattspyrnukeppn- innar eftir leikina s.l. laugardag. Liverpool hefur enn forystu í 1. deildinni, sigraði Englandsmeist- arana Leeds United, með einu marki gegn engu. Manchester City heldur öðru sætinu í keppn- inni og á botninum í deildinni eru sem fyrr Luton Town, Arsenal og Tottenham. Luton reyndar komið í neðsta sætið. 1 2. deild hefur svo Manchester United yfirburða- stöðu, vann enn einn sigur sinn á laugardaginn var, en þar er hins vegar meiri barátta um annað og þriðja sætið, en þau skipa núna Norwich og Aston Villa, en þeim tókst að skjóta Sunderlandliðinu aftur fyrir sig, eftir nokkuð óvænt tap Sunderland fyrir Hull City. Liverpool — Leeds 1-0 Gífurleg barátta var í leik þessara gömlu „erfðafjenda" í ensku knattspyrnunni. Ekki þar fyrir að annað liðið var áberandi betra i leiknum: Liverpool, sem sótti nær stanzlaust í fyrri hálf- leik, en gekk illa að komast í gegnum varnarvegg Leeds-liðsins sem greinilega lagði á það höfuð- áherzlu að ná markalausu jafn- tefli í leiknum. Fremstir f flokki sóknarmanna Liverpool-liðsins voru þeir Kevin Keegan og Steve Heighway, en að margra dómi eru þetta hættulegustu sóknarleik- menn ensku knattspyrnunnar um þessar mundir. En á móti þeim í Leeds vörninni voru þeir Norman Hunter og Gordon McQueen sem þarna sýndu sannkallaðan stjörnuleik. Hvorki gekk né rak í leiknum fyrr en á 77. mínútu, en þá var dæmd aukaspyrna á Leeds skammt utan teigsins. Tommy Smith tók spyrnuna, sendi beint á kollinn á Ray Kennedy, sem síðan skallaði knöttin til Steve Heigh- way sem skaust á milli varnar- manna Leeds á fullri ferð og skor- aði. Eftir þetta tóku Leeds-leik- mennirnir að reyna sóknarleik og fengu þeir sína fyrstu horn- spyrnu I leiknum á 80. mínútu. 54.996 áhorfendur voru að leikn- um. Burnley — Everton 1-1 Martin Dobson átti mestan heið- ur að fyrra marki leiksins, en hann lék þarna I fyrsta sinn með Everton gegn sínum gömlu félög- um í Burnley. Dobson lék skemmtilega í gegnum vörn Burn- ley á 35. mínútu og sendi siðan knöttinn á John Conolly, sem af- greiddi hann til Garry Jones, sem sfðan skoraði með skalla. Forysta Everton i leiknum stóð þó ekki lengi, þar sem Burnley hafði jafn- Norman Hunter — átti mjög góðan leik með Leedsliðinu og stöðvaði margar sóknir Liverpool. að þremur minútum síðar. Ray Hankin skoraði markið með skalla. Everton sótti síðan af mikl- um krafti, einkum þegar líða tók á leikinn og fékk þá Mike Lyons upplagt tækifæri til að skora, en Peter Noble tókst að bjarga á síðustu stundu. Áhorfendur voru. 22.515. Newcastle — Leicester 0-1 Aðstæðurnar voru ekki sem beztar í þessum leik, hávaðarok og rigning um tfma, og mótaðist leikurinn völuvert af veðrinu. Newcastle lék undan vindi í fyrri hálfleik og sótti á meira, án þes að skora, en i seinni hálfleik hafði Leicester betur, en það var þó ekki fyrr en á 85 mínútu að mark- ið kom, og var það Steve Earle sem það gerði, — skallaði yfir Iam McFaul, markvörð New- castle. 34.195 áhorfendur voru á leiknum. Chelsea — Stoke 3-3 Mikill hraði var í þessum leik og þóttu bæði liðin leika alldjarf- an sóknarleik á kostnað varnar- innar enda urðu mörkin alls sex i leiknum. Fyrsta markið kom á 13. minútu, er Geoff Hurst skoraði fyrir Stoke. Micky Droy jafnaði fyrir Chelsea á 27. minútu, með skalla, en Stoke náði síðan aftur forystu með skallamarki Sean Haselgrave, en þremur mínútum síðar var Droy aftur á ferðinni og jafnaði 2-2 fyrir Chelsea. í þriðja sinn náði svo Stoke forystu i leiknum er Jimmy Robertsson skoraði, en á sfðustu sekúndum leiksins skoraði Hutchinson jöfn- unarmark Chelsea, eftir mikil mistök John Farmers, markvarð- ar Stoke. 24.718 áhorfendur voru að leiknum. Coventry — Carlisle 2-1 Þarna var um frekar jafnan leik að ræða, en að sama skapi ekki vel leikinn. Bill Loyd skoraði bæði mörk Coventry á nákvæm- lega sama hátt, á 1. og 65. mínútu. Eftir hornspyrnu hljóp hann inn í vörn Carlisle og skallaði knöttinn í netið. Frank Clarke skoraði mark Carlisle á 6. minútu, og sýndi hann mikið harðfylgi er hann brautzt í gegnum vörn Cov- entry. Áhorfendur voru 17.070. Ipswich — Manchester City 1-1 Aðdáendur Ipswichs voru orðn- ir langeygðir eftir að lið þeirra skoraði mark er leikurinn við Manchester City hófst. Og þeir þurftu heldur ekki lengi að bíða þar sem Bryan Hamilton skoraði þegar á 16. minútu leiksins eftir hornspyrnu. Voru þá liðnar 480 minútur frá þvi að Ipswich hafði síðast skorað í leik. Mark þetta virtist gefa liðinu byr undir báða vængi og lék það afbragðsgóða knattspyrnu það sem eftir var hálfleiksins, og mátti Manchester- liðið sannarlega þakka fyrir að fá ekki á sig fleiri mörk. í seinni hálfleik var hins vegar sama deyfð yfir Ipswich og verið hefur undanfarna leiki og Manchester City átti allt eins mikið í leiknum. Á 66. minútu tókst þvi að jafna eftir að Rodney Marsch og Colin Bell höfðu spunnið sig i gegnum vörn Ipswich. Var það Bell sem markið gerði. 25.171 áhorfandi var á leiknum. Derby — Middlesbrough 2- 3 Liðið hans Jackie Charltons ætlai heldur betur að spjara sig í I. deildar keppninni í vetur, en sem flestir muna vann það 2. deildar keppnina í fyrra með miklum yfirburðum. John Hick- ton skoraði fyrsta mark leiksins á II. mínútu eftir að Colin Boulton, markvörður Derby, hafði bókstaf- lega slegið knöttinn beint fyrir fætur hans inni í vítateignum. Hickton átti einnig mestan þátt- inn að því að Middlesbrough náði 2-0 forystu, en það var þó Alan Foggon sem markið skoraði eftir að Hickton hafði leikið vörn Der- by grátt og dregið til sín þrjá varnarleikmenn. Fyrir hálfleik tókst Derby nokkuð að rétta hlut sinn með marki sem Francis Lee skoraði, en á þriðju mínútu seinni hálfleiks skoraði Middlesbrough þriðja mark sitt. Það gerði David Mills. Stóð þannig 3-1 fyrir Middl- esbrough allt fram á síðustu sek- úndu leiksins að Alan Hinton skoraði fyrir Derby. Áhorfendur voru 24.036. Framhald á bls. 21. Steve Heighway — hinn sókndjarfi og duglegi ieikmaður Liverpool- liðsins. Skoraði sigurmark þess í leiknum við Leeds, mark sem tryggði stöðu Liverpool á toppnum 11. deildinni. I 1. DEILD 1 HEIMA Uti Liverpool 14 6 0 1 15:4 4 12 7:4 21 Manchester City 15 7 1 0 14:3 13 3 6:13 20 Ipswich Town 15 5 2 0 12:2 3 0 5 7:8 18 Middlesbrough 14 2 2 1 11:9 5 12 10:8 18 Everton 15 3 5 0 10:7 15 1 10:10 18 Stoke City 14 4 3 0 13:5 2 2 3 10:13 17 Derby County 15 3 2 1 15:9 14 3 8:13 16 Burnley 15 4 1 3 14:12 3 13 10:12 16 Sheffield United 15 5 2 1 14:9 12 4 8:17 16 Newcastle United 14 4 3 1 11:7 12 3 8:13 15 West Ham United 15 4 1 3 17:12 13 3 8:13 14 Birmingham City 15 4 1 3 15:13 2 1 4 7:10 14 Wolverhampton Wanderes 15 2 3 2 11:9 2 3 3 5:8 14 Coventry City 14 2 4 1 10:10 2 2 3 10:14 14 Carlisle United 15 3 1 3 5:4 2 2 4 8:10 13 Leicester City 13 2 3 2 8:5 2 13 9:13 12 Chelsea 14 1 3 3 7:12 2 3 2 9:11 12 Leeds United 14 4 1 1 11:3 0 2 6 5:13 11 Queens Park Rangers 14 1 2 4 5:8 2 3 2 8:9 11 Tottenham Hotspur 14 3 1 4 11:10 1 1 4 6:11 10 Arsenal 14 2 2 2 11:6 116 4:13 9 Luton Town 15 1 3 3 9:7 0 4 3 5:9 9 1 2. DEILD I HEIMA UTI Manchester United 15 6 1 0 15:3 5 2 1 10:4 25 Norwich City 14 6 1 0 13:2 2 4 1 8:7 21 Aston Villa 14 6 1 0 20:3 14 2 4:6 19 Sunderland 14 4 3 0 13:2 3 2 2 10:7 19 Hull City 15 3 4 0 9:4 2 2 4 10:21 16 West Bromwich Albion 14 3 2 2 9:5 2 3 2 8:6 15 York City 15 3 3 2 12:8 2 2 3 9:11 15 Notthingham Forest 15 4 4 0 11:9 3 13 7:12 15 Oxford United 14 5 0 2 10:8 1 3 3 5:12 15 Briston City 13 3 3 0 8:2 1 3 3 3:7 14 Blackpool 15 3 2 1 9:4 14 4 5:9 14 Bristol Rovers 14 5 2 1 11:15 0 2 3 2:12 14 Fulham 14 3 2 2 13:5 1 3 3 3:6 13 Bolton Wanderes 13 4 2 2 9:3 1 1 4 5:10 13 Notts County 15 3 4 0 11:6 0 3 5 4:13 13 Oldham Athletic 13 5 0 2 10:6 0 2 4 4:10 12 Orient 14 3 3 2 9:7 0 3 3 2:11 12 Millwall 15 4 2 2 13:7 0 16 2:15 11 Portsmouth 15 4 5 1 6:6 12 5 6:15 11 Southampton 14 2 4 1 11:9 1 0 6 7:14 10 Sheffield Wednesday 15 1 3 3 7:10 1 2 5 5:12 9 Cardiff City 14 2 1 4 8:10 1 1 5 5:15 8 ENGLAND 1. DEILD: Arsenal — West Ham 3-0 Burnley — Everton 1-1 Coventry Carlisle 2-1 Chelsea — Stoke 3-3 Derby — Middlesbrough 2-3 Ipswich — Manchester City 1-1 Liverpool — Leeds Utd. 1-0 Luton — Tottenham 1-1 Newcastle — Leicester 0-1 Sheffield Utd. — Birmingh. 3-2 Wolves — Queens Park 1-2 ENGLAND 2. DEILD: Aston Villa — Sheff. Wed 3-1 Birstol C. — Notts County 3-0 Oardiff — Oldham 3-1 Hull City — Sunderl. 3-1 Manch. Utd. Southampton 1-0 Millwall — W.B.A. 2-2 Nottingh. — Bristol Rovers 1-0 Orient — Norwich 0-3 Oxford — Fulham 2-1 Portsmouth — Blackpool 0-0 York City — Bolton 1-3 ENGLAND 3. DEILD: Bournemouth — Carlton 1-2 Burny — Plymouth 0-1 tírslit getrauna Chesterfield — Watford 4-4 Gillingh. — Brighton 2-1 Halifax — Colchester l-l Huddersfield — Swindon 2-2 Peterborought — Aldershot 1-1 PortVale — Crystal Pal. 2-1 Preston — Grimsby 2-0 Walsall — Blackburn 1-3 Wrexham — Tranmere 1-0 SKOTLAND 1. DEILD: Aberdeen — Arboath 5-1 Airdrie — Ayr United 1-2 Clyde — St. Johnstone 2-2 Dundee Utd. — Dumbarton 3-3 Dunfermline — Dundee 3-1 Hearts — Rangers 1-1 Morton Motherwell 0-3 Leikjum Kilmarnock við Hiber- nian og Partick Thistle við Celtic var frestað. SKOTLAND 2. DEILD: Alloa — East Fife 0-1 Berwich — Cowdenbeath 4-1 Brechin — Stirling 1-2 Clydebank — St. Mirren 0-0 Falkirk — Montrose 3-2 Forfar-East Stirling 2-3 Hamilt. — Queen of the South 0-2 RaitRowers — Stenhosem. 2-0 Strangraer — Albion R. 1-1 Leik Queens Park og Meadow- bank var frestað. A-ÞYZKALAND 1. DEILD: Dynamo Dresd. — FV Magdeb.3-3 Carl Zeiss Jena — FC Un. Berlin 1-0 ^^Thg^^Fooiba^M-ej^ue^ L«Hcir. 26. okt. 1974 1 1 X 2 Arsen-I - West Ham / Burnley - Everton X Chelsea - Stoke X Coventry - Carlisle / Derbý - Middlosbro 'JL Ipswich - Mjnch. City X Liverpool - Loeds 1 Luton - Tottenham X Newcastle - Leicester 2 Sheff. Utd. - Birrrjinghaai i • Wolves - O P.R X Oxford - Fuiham 1 Dynamo Berl. — Sachsenr. Zwickau 2-3 Stahl Riesa — Mot. Nordhaus. 1-0 Vorwaerts Frankf. — FC Hansa Rost. 1-5 Rot Weiss Erf. — Lok. Leipzig 1-1 Wismut — ChemieHalle 4-0 AUSTURRlKI 1. DEILD: Rapid — Swarovski Innsbruck 1-1 Austria Salzburg — Sturm Graz j-o Einsenstadt — Austr. Klagen- furt 1-0 Lask — VoeestLinz 1-2 Rapid hefur forystu f deildinni með 17 stig en Voeest og Austria Sazlburg eru bæði með 15 stig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.