Morgunblaðið - 29.10.1974, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1974
AUÐVELT HJÁ ÍH GEGN VAL
VALSLIÐIÐ hefur verið mjög
óhcppið I Reykjavfkurmótinu I
körfuknattleik. Þórir Magnússon
hefur ekkert getað leikið með, og
Jóhannes bróðir hans slasaðist f
fyrri viku og gat ekki leikið tvo
sfðustu leiki liðsins. Guðmundur
Þorsteinsson, þjálfari liðsins, hef-
ur Ifka notað yngri menn liðsins
mikið f leikjum þess, greinilega
ekki stefnt hátt f Reykjavfkur-
mótinu.
iR-ingar mættu til leiksins gegn
Val með Kristinn Jörundsson og
þrátt fyrir að hann hafi ekki æft
mikið þá styrkir hann liðið greini-
lega. ÍR hafði ávallt yfirhöndina í
leiknum, og staðan í hálfleik var
38:26. Um miðjan s.h. var munur-
inn hinsvegar aðeins tvö stig, en
iR-ingar sigu fram úr lokakaflann
enda þurftu þá 5 Valsmenn að
fara af velli með 5 villur. Kristiml
og Kolbeinn voru beztu menn ÍR,
en Kári bar af í Valsliðinu og átti
stórleik. Kristinn skoraði 25 stig
fyrir IR, Kári 21 fyrir Val,
Yfirburðasigur KR yfir
2. deildar liði Fram
KR hafði algjöra yfirburði yfir 2.
deildar lið Fram á föstudagskvöld
f Reykjavfkurmótinu í körfu-
knattleik. Allt frá fyrstu mín. til
hinnar sfðustu léku KR-ingar sér
að Frömurum og unnu yfirburða-
sigur í leiknum 90:50.
Framarar töpuðu því öllum
leikjum sínum í mótinu, fyrir IS
með 3 stigum,en stórt fyrir hin-
um Iiðunum.
Nokkrar tölur úr leik Fram og
,KR gefa glögglega til kynna yfir-
burðiKR, t.d. 17:6 — 31:1^36:21 í
hálfleik, 58:32, 70:41 og loka-
tölurnar 90:50.
Kristinn Stefánsson skoraði 17
stig fyrir KR, Birgir Guðbjörns-
son 16 og Bragi Jónsson 14.
Fyrir Fram skoraði Helgi
Sumarliðason mest, 12 stig, Reyn-
ir Óskarsson 8 stig.
' smmmz
Wœam MM. M ; »
'Vf- — : m ,, 1
— Hleypur . .
Framhald af bls. 18
hugmyndum Arthurs Lydiard,
frægasta hlaupaþjálfara heims.
— Æfingaprógrammið er í
stuttu máli á þann veg, sagði
Ágúst, — að á mánudögum
hleyp ég 8 km fyrir hádegi og
13 km eftir hádegi. Á þriðju-
dögum hleyp ég 8 km fyrir há-
degi og 18 km eftir hádegi. Á
miðvikudögum hleyp ég 8 km
fyrir hádegi og 10 km eftir
hádegi. Á fimmtudögum hleyp
ég 25 km eftir hádegi. Á föstu-
dögum 8 km fyrir hádebi og 13
km eftir hádegi. Á iaugardög-
um hleyp ég 28 km og á sunnu-
dögum 22—24 km. Samtals ger-
ir þetta því um 160 km á viku.
Morgunæfingarnar tek ég milli
klukkan 7 og 8 en síðdegis-
æfingarnar frá kl. 4.30 — 6.30.
Ágúst sagði að skóla sfnum
hefði nú bætzt góður liðsauki
þar sem væri hlaupari að nafni
Phil Dunn, en hann hefði
hlaupið 1500 metra hlaup á
3:45,6 mín. og Ian Beuch sem
ætti mjög góðan árangur í löng-
um hlaupum. — Þegar Sigfús
kemur ættum við að eiga á að
skipa einni af sterkustu sveit-
um í boðhlaupunum, sagði
Ágúst, — meira að segja ættum
við að eiga möguleika til sigurs
í Hyde Park boðhlaupinu.
Kristinn Jorundsson i baráttu við varnarleikmenn Vals.
Brottrekstur og bókun
í síðasta leik ársins
ÞÁ ER íslandsmótinu ( knatt-
spyrnu 1974 lokið, eða hvað?
Sfðasti leikurinn fór fram á Mela-
vellinum sl. laugardag. Var þar
um að ræða leikinn fræga milli
Fram og Vals, sem dómstólar
K.S.Í. dæmdu að skyldi leikinn að
nýju, vegna þess að f fyrri leik
liðanna, sem lauk með sigri
Fram, lék ólöglegur leikmaður,
Elmar Geirsson. Annars er óþarfi
að rekja Elmarsmálið einu sinni
enn, svo ýtarlega sem um það
hefir verið f jallað. En eitt er víst,
að þetta Islandsmót mun seint
Ifða þeim úr minni sem með
fslenzkri knattspyrnu fylgjast og
um hana fjalla, vegna sffelldra
leiðinda- og klögumála, sem ef til
vill eiga eftir að draga dilk á eftir
sér.
En snúum okkur þá að gangi
leiksins. Leikurinn fór fram við
hinar verstu aðstæður f hífandi
roki og rigningu. Auk þess virtist
áhugi leikmanna, einkum Vals-
ara, afar takmarkaður, sem ef til
vill er skiljanlegt þar sem úrslit
leiksins skiptu engu máli og
aðstæður allar voru afleitar. Lið
.4*
v..#'
• *
V.#'
*
V 4
SIGRA POLVERJAR?
EFTIR keppni sunnudagsins f
heimsmeistaramótinu f blaki sem
nú stendur yfir f Mexfkó stóðu
Pólverjar bezt að vfgi f bar-
áttunni um heimsmeistaratitil-
inn. Hafa þeir komið mjög óvart f
keppninni, og beitt nýrri út-
færslu á svokölluðu hlaupara-
kerfi f leik sfnum, sem hinar
þjóðirnar hafa átt f erfiðleikum
með að finna svar við.
Alls taka 24 þjóðir þátt í karla-
keppninni í Mexíkó og 23 þjóðir f
kvennakeppninni. Hefur það blak
sem liðin hafa yfirleitt sýnt í
keppninni verið betra en nokkru
sinni hefur sézt í keppni og þykir
það athyglisvert að nú virðist
miklu minna lagt upp úr þvf að
keppendurnir séu hávaxnir en
áður.
Fyrirkomulag keppninnar f
Mexikó er þannig að þar er um
deildaskiptingu að ræða. Keppa 6
lið í 1. deild og leika þau um sæti
1—6 í keppninni, sex lið leika f
annarri deild og keppa um sæti
7—12 o.s.frv.
Eftir leikina á sunnudaginn var
staðan þannig:
KARLAR:
1. DEILD:
Pólland
Sovétr.
Japan
Tékkóslóv.
A-Þýzkal.
Rúmenía
Búlgaría
Mexikó
Kúba
Brasilía
Belgía
Holland
S-Kórea
Bandaríkin
Kína
Frakkland
Egyptaland
Túnis
4. DEILD (19
Italía
Kanada
Venezúela
Dóminík. 1.
Panama
Portó Ríkó
KONUR:
1. DEILD (1,—6. sætið).
4 4 4 12:6 254:183 Sovétríkin 4 4 0 12:0 189:128
4 3 1 11:4 209:180 Japan 4 4 0 12:1 194: 94
4 3 1 9:7 229:196 S-Kórea 4 2 2 7:8 192:190
4 1 3 8:10 226:236 A-Þýzkal. 4 1 3 4:9 140:169
4 1 3 6:11 200:240 Rúmenfa 4 1 3 3:9 115:153
4 0 4 4:12 149:232 Ungverjal. 4 0 4 1:12 92:188
.—12. sætið). 2. DEILD (7,—12. sætið).
440 12: 181:107 Kúba 4 4 0 12:1 189:117
4 3 1 9:5 178:153 Perú 4 3 1 9:5 180:147
4 3 1 9:7 209:184 Pólland 4 2 2 8:8 207:197
4 2 2 7:7 176:151 Mexikó 4 2 2 8:9 213:209
4 0 4 5:12 174:237 Kanada 4 1 3 6:10 183:188
4 0 4 1:12 108:194 Bandaríkin 4 0 4 2:12 90:204
3. — 18. sætið). 3 3 0 9:0 135:82 3. DEILD (13,—18. sætið)
3 3 0 9:1 152:98 Bulgaría 4 4 0 12:2 205:124
4 3 1 9:4 170:129 Kína 4 3 1 10:5 202:153
3 1 3 4:6 116:123 Brasilfa 4 1 3 9:5 185:142
3 0 3 1:9 106:152 Tékkósl. 4 13 9:9 234:223
4 0 4 0:12 85:180 Holland 4 1 3 3:11 123:198
Filipps. 4 0 4 1:12 84:193
9.—24. sætið)
4 4 0 12:1 193:89 4. DEILD (19.—23. sætið)
4 4 0 12:4 214:157 V-Þýzkal. 3 3 0 9:1 148: 73
4 2 2 8:8 200:179 Frakkland 3 3 0 9:1 147: 79
4 2 2 7:9 175:203 Dóminik. 1. 3 1 2 4:7 116:137
4 0 4 5:12 158:229 Portó Ríkó 3 1 2 4:7 112:137
4 0 4 2:12 120:203 Bahama 4 0 4 2:12 106:203
Fram hafði sfnum sterkustu
mönnum á að skipa, nema hvað
Sigurbergur var ekki með. I Vals-
liðið vantaði þá Hörð Hilmarsson,
Hermann Gunnarsson og Jón
Gfslason.
I fyrri hálfleik höfðu Framarar
vindinn heldur í bakið, og voru
mun atkvæðameiri heldur en
Valsmenn. Þegar á tíundu mín.
kom fyrsta markið. Ásgeir átti
góða sendingu út á kantinn til
Guðgeirs, sem sendi fallega fyrir
til Kristins Jörundssonar, sem af-
greiddi boltann viðstöðulaust f
netið. Að þessu marki var sérlega
fallega staðið. Það sem eftir lifði
hálfleiksins skall hurð oft nærri
hælum við Valsmarkið. T.d. átti
Kristinn gott skot á mark Vals-
manna á 25. mfn. Sigurður hélt
ekki boltanum og Eggert skaut,
en Sigurður slæmdi fætinum í
boltann og þaðan barst hann aftur
fyrir endamörk.
Á 30. mín komst Eggert upp
kantinn á skemmtilegan hátt,
sendi fyrir markið, þar sem Krist-
inn var fyrir og skaut hörkuskoti f
slána. Þá máttu Valsarar prísa sig
sæla.
Allan fyrri hálfleikinn höfðu
Framarar undirtökin. Tengiliðir
þeirra byggðu oft upp ljómandi
fallegar sóknarlotur, en uppskáru
ekki eins og til var sáð.
SlÐARI HÁLFLEIKUR
Síðari hálfleikurinn var hinum
fyrri mun síðri. Að mestu var þá
um þóf á miðjunni að ræða og
litið sást af fallegri knattspyrnu.
Þó átti Kristinn Jörundsson tvö
dauðafæri þegar í byrjun sem
hann misnotaði á hinn herfi-
legasta hátt.
Það var ekki fyrr en að um
fimmtán mínútur voru til leiks-
loka, að svolítill fjörkippur færð-
ist yfir leikinn. Jóhannes
Eðvaldsson færði sig þá í fremstu
línu Valsmanna og skapaði á tíð-
um talsverða hættu. T.d. átti hann
hörkuskot í hliðarnetið eftir mis-
tök í vörn Fram.
Á 82. mín. sendi Jón Pétursson
sakleysislega sendingu til Árna
Stefánssonar markvarðar Fram,
sem kom i markið í hálfleik í stað
Þorbergs. Ekki vildi betur til en
svo að Arni missti boltann undir
sig og eftirleikurinn var
Jóhannesi Eðvaldssyni auðveld-
ur, sem renndi knettinum í netið.
RANGSTÖÐUMARK
Við jöfnunarmark Valsara sóttu
Framarar heldur í sig veðrið, með
þeim árangri að á 42. mín. náðu
þeir forystu með marki Marteins.
Það mark kom þó upp úr rang-
stöðu, sem allir viðstaddir sáu að
dómaranum einum undanskild-
um. Rúnar Gfslason fékk boltann
inn fyrir vörn Valsara, línuvörð-
urinn veifaði, Valsararnir stopp-
uðu, en dómarinn lét sem ekkert
væri og Rúnar sendi boltann fyrir
markið þar sem Marteinn stóð
einn og óvaldaður og renndi bolt-
anum auðveldlega f netið.
Eðlilega létu Valsmenn í Ijós
óánægju sína við dómarann. En
lítið höfðu þeir þó upp úr krafs-
inu, þar sem dómarinn, Sævar
Sigurðsson, vfsaði Inga Birni út af
og Sigurður Jónsson fékk að sjá
gula spjaldið.
Því miður er þetta ekki í eina
skiptið í sumar sem slök dóm-
gæzla hefir ráðið úrslitum f leikj-
um Bikarkeppni og Islandsmóts-
ins.
LIÐIN
Lið Fram var mun sterkara í
þessum leik. Þeir Ásgeir, Gunnar
og Eggert stóðu sig með mikilli
prýði. Guðgeir átti og snarpa
spretti, einkum í fyrri hálfleik.
Framarar spiluðu af meiri skyn-
semi heldur en Valur, nýttu kant-
ana og voru allir vel hreyfanlegir,
enda var uppskeran þeirra.
I liði Vals var enginn einn sem
skar sig úr. Það voru þó helzt þeir
Jóhannes og Dýri sem létu að sér
kveða.
Dómari leiksins, Sævar Sigurðs-
son, átti þó einna síztan dag,
þeirra sem þátt tóku i leiknum á
laugardaginn.
1 STUTTU MÁLI
Melavöllur. 26. október. Is-
landsmótið, endurtekinn leikur
Fram og Vals, 2:1 (1:0)
Mörk Fram: Kristinn Jörunds-
son á 10. mfn. og Marteinn Geirs-
son á 87. mín.
Mark Vals: Jóhannes Eðvalds-
son á 82. mfn.
Ahorfendur : 132.
Aminning: Sigurður Jónsson á
87. mín. fyrir að mótmæla dómi.
Brottrekstur: Ingi Björn
Albertsson á 87. mfn. fyrir að
mótmæla dótni.
Sigb. G.