Morgunblaðið - 29.10.1974, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.10.1974, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1974 23 Fjölbýlishús í byggingu. Samdráttur meiri í fast- eignasölu en byggingariðnaði Verðbólguþróun sú, sem sett hefur mörk sín á efnahags- líf víða um heim, hér sem erlendis, hefur sums staðar leitt til samdráttar og kreppumerkja. Erf- itt er að fullyrða um slík samdráttar- áhrif hér á landi, þar eð fáar heimildir eru tiltækar og áhrifin sjálfsagt mismun- andi mikil í hinum ýmsu þáttum at- vinnu- og efnahags- lífsins. Morgunblað- ið leitaði upplýsinga hjá bankastjórum Útvegsbankans, byggingaraðilum og fasteignasölum um hugsanlegar mark- aðsbreytingar, bæði í byggingariðnaði og fasteignasölu. Umsagnir féllu ekki í sama farveg og virðist samdráttur- inn fremur segja til sín í fasteignasölu, sölu notaðs hús- næðis, en byggingar- iðnaði, nýsmíði íbúð- arhúsnæðis, enn sem komið er. Hér fara á eftir umsagnir aðila, sem Morgunblaðið leitaði til og innti frétta af þessum vettvangi: Færri hugsa sér til hreyfings Vfglundur Þorsteinsson framkvæmdastjóri Steypu- stöðvar BM Vallá sagði, að ekki hefði orðið vart við verulegan samdrátt i byggingafram- kvæmdum enn sem komið er. Byggingaáform ættu sér lengri aðdraganda en svo, að breyt- ingar gætu gerzt á einni nóttu. Á hinn bóginn sagði hann, að ýmis teikn væru á lotfi, er bentu til þess að samdráttur gæti orðið á næsta ári. Sem dæmi mætti nefna að búast má við minni lóðaúthlutunum og færri aðilar virðast vera að hugsa sér til hreyfings og byrja framkvæmdir nú í haust en oft áður. Ekki er ólíklegt að fram- kvæmdir á þessu sviði fari að dragast saman eftir áramót. Ekki umtalsverð breyting Ármann örn Ármannsson hjá Ármannsfelli hf. sagði: „Ég hefi ekki orðið var við umtalsverðar breytingar á byggingamarkaði. Eftirspurn virðist hin sama og verið hefur. Otborganir hafi ekki lækkað í þeim tilfellum, sem við þekkj- um til, og í engu tilfelli hefur kaupsamningi verið rift hjá okkur vegna samdráttaráhrifa. Við höfum að vísu heyrt nokkuð talað um samdráttar- áhrif, en þau hafa í öllu falli ekki sagt beint til sín enn, að þvf er okkar viðskipti varðar. Fólk virðist hafa svipaða hand- bæra peninga og áður og um- talsverðar markaðsbreytingar hafa ekki sett svip á starfsem- ina hjá okkur." Samdráttur ekki hjá okkur Páll Friðriksson hjá Breið- holti hf. sagði: „Enn sem komið er er það okkar reynsla, að markaðs- breyting I byggingariðnaði sé óveruleg. Að vfsu höfum við orðið smávegis varir við sam- drátt í eftirspurn, en hann hefur ekki sagt til sfn í lækkun útborgana f sölusamningum húsnæðis og f engu tilfelli hefur byggingarsamningi verið rift. Blikur eru á lofti sem benda til þrengri sölu- markaðar. En það mun ekki koma niður á rekstri okkar fyrirtækis f náinni framtíð svo séð verður. Við byggjum, auk söluíbúða, bæði fyrir Fram- kvæmdanefnd byggingar- áætlunar og svokallaðar verka- mannaíbúðir, sem njóta sér- stakra hlunninda í lánsfjár- mögnun.“ Söluverð lægra en nemur byggingar- kostnaði Ragnar Tómasson, fasteigna- sali sagði: „Já, ég hefi orðið var við sam- dráttaráhrif á sölumarkaði íbúða. Framboð íbúðarhús- næðis er nú meira en eftir- spurnin. Fyrir misseri eða svo var söluverð notaðra íbúða sam- bærilegt miðað við byggingar- kostnað þess tíma. Þetta er nú breytt. Söluverð notaðs hús- næðis er komið niður fyrir það, sem kostar að byggja samsvar- andi húsnæði í dag. Utborganir, sem voru að meðaltali 70—75% söluverðs á þeim tíma, eru nú að meðaltali komnar um eða niður fyrir 65%. Lægst er út- borgunarhlutfallið i gömlum, stórum húsum. Mér virðist að hér stefni að sama ástandi og var á árunum 1967 og 1968, er hliðstætt efna- hagsástand varð í þjóðarbúinu. Þetta stafar bæði af minni handbæru fjármagni fólks og lakari lánamöguleikum, að þvf er varðar skemmri bankalán, sem áður voru jafnan tiltæk og auðvelduðu viðskipti á þessu sviði. Athyglisvert er og, að bensínverð virðist nú hafa ein- hver áhrif á fasteignakaup, þ.e. hvar menn vilja búa. Auð- seldari eru íbúðir, sem fremur minnka en auka rekstrarkostn- að bifreiða viðkomandi. Ég held að markaðurinn I bygg- ingariðnaði og fasteignasölu komi til með að haldast f hend- ur við efnahagsþróun, sem verða kann í þjóðarbúinu." Samdráttaráhrif eru merkjanleg Sverrir Kristinsson, fast- eignasali sagði: „Samdráttaráhrif eru merkjanleg I fasteignasölu. Verð og útborgun húsnæðis, sem verið hefur til sölu síðustu vikur og mánuði hefur ekki hækkað til samræmis við hækkun byggingarkostnaðar. Söluverð íbúða hefur um nokkurn tfma staðið f stað og hlutfall útborgana, miðað við söluverð, er nú lægra en áður, að meðaltali 65%, en var tölu- vert hærra. Þetta er ekki einangrað fyrir- bæri í fasteignasölu, heldur spegilmynd af ástandi efna- hagsmála nú, hérlendis og er- lendis. Lánamöguleikar hús- kaupanda, a.m.k. að því er varðar skammtímalán, virðast minni nú en áður, sem hefur sfn áhrif. Nei, við höfum ekki orðið varir við, að fólk rifti kaup- samningum beinlinis af þessum sökum. Og ástandið er enn ekki orðið jafn bágborió og á árun- um 1967 og 1968. En öruggt er að nú er hægt að fá betri kjör í fasteignakaupum, bæði hvað verð og útborgun snertir, en áður.“ Neyðst til að draga úr skammtímalánum Jónas Rafnar, bankastjóri, Otvegsbanka tslands, sagði: „Viðskiptabankarnir hafa neyðzt til, vegna sinnar erfiðu greiðslustöðu, að draga veru- lega úr skammtfmalánum til byggingaraðila og fasteigna- kaupa. Utvegsbankinn gerði nokkuð af því að lána viðskipta- mönnum sfnum slík lán út á væntanleg húsnæðismála- stjórnarlán og lífeyrissjóðslán, en hefur neyðzt til að draga úr slíkri lánafyrirgreiðslu. Eftirspurn slikra lána er svipuð og áður, en þó er greini- legt, að fólk gerir sér almennt grein fyrir aðstöðu bankanna, sérstaklega þeirra sem þurfa að fjármagna sjávarútveginn, skil- ur erfiðleika þeirra og reiknar ekki með sömu fyrirgreiðslu og áður.“ Borgarspítalinn fær blaðflettara Kvennadeild Rauða kross Islands hefur afhent Borgar- spftalanum rafknúinn blaðflettara að gjöf. Honum er stjórnað með litlum armi, sem má skorða undir höku, f handarkrika sjúklinga eða annars staðar, jafnvel við tungu hans. Ármur þessi er mjög næmur svo að ekki þarf nema mjög Iftið átak til þess að gera hann virkan. Á blaðflettaranum sjálfum eru síðan tveir armar, sem fletta og halda blöðunum i skorðum. Má nota flettarann jafnt fyrir bækur og tímarit. Kvennadeild Rauða kross Islands hefur gefið Borgarspítalan um ýmis önnur hjálpartæki til þess að auðvelda sjúklingum lestur, svo sem lesgrindur og prismagleraugu. Tæki þessi hafa reynst mjög vel og hjálpað mörgum, sem annars hefðu ekki getað notið þeirrar afþreyingar og fræðslu, sem lestur veitir. Frá Borgarspítalnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.