Morgunblaðið - 29.10.1974, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞKIÐJUDAGUR 29. OKTOBER 1974
fær hæli í
Bretlandi
London 28. okt. Reuter.
CARMEN Castillo Echeverria,
unnusta vinstri sinnaðs skæruliða
í Chile, Miguel Enriques, sem var
drepinn í skotbardaga fyrir
nokkru, var í dag veitt landvistar-
leyfi í Bretlandi „af mannúðar-
ástæðum.“Unnusti hennar var
ritari athafnasamrar vinstri
hreyfingar f Chile. Hún var áður
gift náfrænda Allends, fyrrver-
andi forseta í Chile og átti með
honum dóttur, sem er komin til
Bretlands fyrir nokkru.
Stúlkan hefur verið á sjúkra-
húsi undanfarið vegna skotsára
sem hún hlaut þegar öryggis-
verðir stjórnarinnar skutu á hana
og unnusta hennar.
Og fœkka starfsfólki um 14,5%
BREZKA flugfélagið, British
Caledonian mun fækka starfs-
fólki um 14,5% á næstunni, og
hætta flugi á ýmsum leiðum.
þ.á m. flugleiðinni yfir Norður-
Atlantshaf. t frétt í brezka blað-
inu The Times segir, að ástæðuna
fyrir þessum samdrætti sé að
finna f gífurlegri kostnaðaraukn-
ingu að undanförnu, svo og minni
eftirspurn eftir farmiðum. Verð-
Staða Heaths
að styrkjast
London 28. okt. AP.
STAÐA Edwards Heaths sem
leiðtoga brezka Ihaldsflokksins
styrktist heldur f dag, þegar
thaidsblaðið Daiiy Mail skýrði frá
úrslitum skoðanakönnunar, sem
það hafði látið gera. Þar kom f
ljós, að 378 af 589 formönnum
flokksdeilda og flokksfélaga
thaldsflokksins víðsvegar um
landið utan London vildu, að
lleath héldi áfram sem leiðtogi
flokksins. 146 vildu losna við
hann úr leiðtogastöðunni, 53
neituðu að svara spurningunni og
12 voru óákveðnir.
Mikið hefur verið rætt að
undanförnu um það, hvort og þá
hvenær Heath láti af flokksforyst-
unni — og hafa þá helzt komið til
greina sem eftirmenn hans Sir
Keith Josep talamaður flokksins í
innanríkismálum og William
Whitelaw formaður flokksins,
fyrrum íríandsmálaráðherra. I
könnun Daily Mail kom fram, að
einungis 47 flokksdeildarfor-
menn studdu Sir Keith og White-
law fékk aðeins 18 atkvæði.
Eftir ósigurinn í kosningunum
á dögunum hefur forysta flokks-
ins verið mjög umdeild og talið
er, að meirihluti þingmanna
íhaldsflokksins, en þeir eru 276
að tölu, vilji að skipt sé um
forystumann. Ljóst er á hinn
bóginn, að þeir verða að taka tillit
til óska dreifbýlisdeildanna í því
efni.
„Þá verða árin kölluð kílódagar.. ”
Birmingham, AP
STARFSFÓLKI í skrifstofum
og verksmiðjum iðnaðarhérað-
anna í Mið-Englandi brá heldur
en ekki f brún, þegar þvf barst
bréf um það f sfðustu viku, að
metrarkerfið hefði verið tekið
upp f dagatalinu og menn gætu
vænzt þess að þurfa að vinna
lengri vinnudag en til þessa
fyrir sama kaup. Mótmælaöldu
rigndi yfir borgarráðið f Birm-
ingham og varð þar uppi fótur
og fit, menn vissu ekki sitt
rjúkandi ráð, en loks komst það
upp á sunnudeginum, að þetta
væri hrekkur einn, Ifklegast
runninn undan rifjum ein-
hverra andstæðinga metra-
kerfisins við vog og mál sem
verið er að taka upp f Bret-
landi.
Bréfið, sem starfsfólkið fékk,
virtist skrifað á bréfsefni frá
fræðsludeild Birminghamborg-
ar með nafni yfirmanns deild-
arinnar, Kenneth Brooksbank.
1 bréfinu sagði, að 1. janúar
nk. yrði 24 stunda sólarhringur
niður lagður, en nýju kerfi á
komið, þar sem hver dagur yrði
10 klukkustundir, tfu mfnútur f
hverri klukkustund og tíu sek-
úndur í hverri mínútu. Sekúnd-
ur yrðu þá kallaðar millidagar,
mfnútur yrðu að centidögum,
klukkustundir að decildögum
eða millimánuðum og árin yrðu
kflódagar.
„Þar sem ein ný klukkustund
jafngildir aðeins fimm tólftu
hlutum úr gömlu klukkustund-
inni verða launþegar að gera
ráð fyrir þvf, að vinnudagurinn
lengist, sagði sfðan f bréfinu og
þar á eftir: „Ekki er gert ráð
fyrir neinum uppbótum á laun
nema á hlaupkflódögum (sbr.
hlaupár) en þá verða launin
leiðrétt f lok hectodaga, á 1,46
decimánaða fresti.“
Þá sagði f bréfinu, að ýmsum
orðatiltækjum og nöfnum yrði
að breyta f samræmi við þcssi
umskipti. Héðan í frá yrði til
dæmis ekki talað um „sunnu-
dagamánuði", heldur „deci-
dagahectodaga“.
Flestir, sem þessi bréf fengu,
voru ekki nema nokkra centi-
daga að skilja grfnið, — en
fjöldi manna tók þetta háalvar-
lega, — svo alvarlega, að sfma-
Ifnurnar til borgarráðsins voru
glóandi í nokkra daga.
ur 827 starfsmönnum sagt upp,
þar af 202 utan Bretlands.
British Caledonian var stofnað
árið 1970 með sameiningu Cale-
donian Airways og British United
Ariways. Á fyrsta rekstrarári var
gróði af starfsemi British
Caledonian 1,9 milljónir sterlings-
punda. Síðan hefur verið tap á
rekstrinum í kjölfar mikillar fjár-
festingar og aukinna umsvifa. Á
árunum 1972—3 var tapið 1,5
milljónir punda, og árið 1973 fór
félagið fram á hlutafjáraukningu
og lán að upphæð 7 milljónir
punda, án þess þó að vilja viður-
kenna, að það ætti í alvarlegum
fjárhagsörðugleikum. Þá var gert
ráð fyrir 1,5 milljón punda tapi
1973— 4, en nú hefur félagið
viðurkennt, að tapið sé mun
meira.
Hins vegar er þessi samdráttur,
sem nú hefur verið tilkynnt um,
gerður á samræmi við spár fyrir
1974— 5. Án slfkra sparnaðarráð-
stafana hefði fyrirtækið orðið fyr-
ir meiri háttar fjárhagstjóni, seg-
ir einn af forstjórum flugfélags-
ins í samtali við Times.
Saudi-Arabía hraðar
þjóðnýtingu Aramco
Beirut, Líbanon 28. okt. AP.
SAUDI-Arabía hefur boðið
fram 800 milljónir dollara
til að unnt verði að þjóð-
nýta til fulls arabískt-
bandarískt olíufélag
(aramco), sem er stærsta
olíufélag heimsins, að því
er blað í Beirut, A1 Anwar,
skýrði frá í dag.
Vonast stjórn Feisals konungs
til þess að þjóðnýting verði komin
f kring fyrir febrúarlok á næsta
ári, en Bandaríkjamenn áttu 40%
hlutabréfa f fyrirtækinu. Voru
þáð fjögur bandarísk olíufélög,
Texaco, Standard Oil, Mobil og
Exxon.
Aramco frámleiðir um 95% af
þeim 8,2 milljónum tunna sem
framleiddar eru á degi hverjum í
Saudi-Arabíu.
Henry Kissinger utanrfkisráðherra og L.I.Brezhnev flokksritari á einum funda þeirra í Moskvu. A
fundum þeirra varð samkomulag um að Ford forseti og Brezhnev héldu með sér fundi skammt frá
Vladivostok dagana 23. og 24. nóvember.
Stefnuræða Wilsons í das
Dllínt iri^ O JK linnn fnni linfln/vn n í n^n A vrn/vnn
Búizt við að hann fari hóflega af stað vegna
skoðanaágreinings innan þingflokksins
London 28. okt. Reuter.
Harold Wilson forsætisráðherra
Breta er að leggja sfðustu hönd á
áætlun stjórnar sinnar, þar sem
lýst verður ráðstöfunum, sem á að
gera til að berjast gegn verðbólg-
unni. Samkvæmt brezkri hefð
mun Elizabeth drottning flytja
ræðuna við setningu brezka
þingsins á morgun.
Sérfræðingar segja að Wilson
muni reyna að fara hóflega í sak-
irnar og reyna að fara bil milli
félagshyggjustefnu og einstakl-
ingsframtaks sem hann leiðir
stjórn sína til baráttu við verð-
bólguna í Bretlandi. Margir valda-
miklir vinstrisinnar innan Verka-
mannaflokksins virðast vera ein-
ráðnir f að koma í veg fyrir að
hann hraði sér að gera ráðstafanir
til stuðnings iðnaðarfyrirtækj-
unum í einkaeign, sem standa
höllum fæti.
Harold Wilson hefur stungið
upp á því að komið verði á fót
44% styðja Rockefeller
New York 28. okt. Reuter.
FJÖRUTlU og fjögur prósent
Bandarfkjamanna eru hlynntir
þvf að útnefning Nelsons
Rockefellers sem varaforseti
verði staðfest, að því er segir í
niðurstöðum Gallup skoðana-
könnunar sem tfmaritið News-
week birti um helgina. 38%
eru andvígir staðfestingunni.
Sextíu prósent spurðra sögðust
ekki vilja að Rockefeller yrði
forseti, en 25% gátu vel hugsað
sér það.
HANDTOKUR I PORTUGAL
Ókyrrð í Mósambik og Angóla
Lissabon, Lorenco
Marques 28. okt.
Reuter. AP.
HÁTT á þriðja hundrað manns
voru handteknir f Norður-
Portúgal um helgina, að þvf er
talsmaður hersins skýrði frá f
dag. Sagði talsmaðurinn, að með
þessu vildi herinn sýna þjóðinni,
að hann væri virkur og á verði og
reiðubúinn að berja hverja þá
andstöðu niður, sem ógnaði eða
truflaði ró og frið f landinu.
Handtökurnar hófust á föstudags-
kvöld og tóku þátt f þeim um
2.500 hermenn og lögreglumenn.
Einnig var leitað að vopnum og
grunsamlegir aðilar yfirheyrðir,
að þvf er segir f fréttaskeytum.
1 Lorenco Marques voru um tólf
hundruð manns handteknir um
helgina, grunaðir um aðild að
uppþotum þeim og óeirðum, sem
hafa verið í Mosambik upp á síð-
kastið. 1 opinberri tilkynningu
um handtökurnar var sagt, að það
hefði sannazt svo að ekki yrói um
villzt, að „glæpamenn, áróðurs-
menn og rógberar reyndu að
koma róti á hugi manna og vekja
með þeim vantrú á stjórnvöld-
um“.
í fréttum frá Angola segir síð-
an, að komizt hefði upp um sam-
særi hóps sjálfstæðissinna og
sagði Antonio Rosa Coutino, að-
míráll, í viðtali, sem var birt um
helgina, að þetta samsæri hefði
verið í tengslum við þau öfl, sem
reyndu valdarán í Lissabon í
fyrra mánuði um svipað leyti og
Spinola forseti sagði af sér. Ýmsir
voru handteknir eftir að upp
komst um samsærið, þar á meðal
var Antonio Navarro, ritari flokks
Kristilegra demókrata í Angóla.
sérstökum fjárfestingarbanka til
að afla lausafjár til handa einka-
fyrirtækjum. Skoðun vinstri sinn-
aðra innan Verkamannaflokksins
á því er sú að það muni ýta undir
kapítalismann og tefja önnur um-
bóta- og þjóðnýtingarstörf, sem
Verkamannaflokkurinn hefur
heitið að beita sér fyrir.
Spá stjórnmálafréttaritarar því
að Wilson verði að fara mjög gæti-
lega til að tryggja sér stuðning
sinna manna og ávinna sér traust
þeirra, því að margir óttist að
hann muni „svíkja lit“ og f ara um
of að dæmi Heaths og aðstoða
atvinnurekendur á kostnað laun-
þega og ríkisfyrirtækja.
Það er hinn svokallaði Tribune-
hópur, en í honum eru 83 þing-
menn af þeim 319 sem styðja
Wilson í þinginu, sem hafa látið
mest að sér kveða og halda þeir
úti málgagninu Trfbune og hafa
komið á laggirnar sérstakri nefnd
sem er ætlað það meginhlutverk
að veita stjórninni aðhald og
tryggja að hagsmunir launþega og
félagshyggjumanna séu ekki fyrir
borð bornir.
Þá segir í sömu frétt að hægri
sinnaðir innan íhaldsflokksins
verði á óánægðari með forystu
Heaths og krefjist þess að flokk-
urinn hverfi tafarlaust aftur og
óskorað til stuðnings við frjálst
einstaklingsframtak.
Unnusta
skæruliða
frá Chile
Hætta flugi yf-
ir N-Atlantshaf