Morgunblaðið - 29.10.1974, Side 35

Morgunblaðið - 29.10.1974, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1974 35 — Tveir ósigrar Framhald af bls. 1 skipt mjög miklu máli i þessum kosningum," sagði aðalritari CDU, Kurt Hans Biedenkopf." . . . og við getum túlkað kosninga- úrslitin á þann veg, að kjósendur hafi snúizt gegn efnahagsstefnu Schmidts . . . Við teljum, að Schmidt kanslari hafi verið í hópi þeirra, sem fengu verstu út- reiðina í þessum kosningum.“ Jafnframt hefur styrkzt staða tveggja áhrifamanna CDU, sigur- vegarans í Hessen, Alfred Dregg- er, og sigurvegarans i Bæjara- landi, Franz-Josef Strauss. Talið er, að þeir muni báðir ógna völdum og áhrifum formanns CDU, Helmut Kohl, sem er miðju- maður og nú talinn liklegasta kanslaraefni CDU 1976. Þeir eru báðir eindregnir hægrimenn og líklegast er talið, að CDU færist meira í hægriátt eftir kosninga- sigrana. Strauss sagði i dag, að hann hefði enn ekki gefið kost á sér sem kanslaraefni — það væri of snemmt hversu mikill sem kosn- ingasigurinn hefði verið. Kohl sagði í dag, að kanslaraefnið vrði valið í maí eða júni á næsta ári. — Moro Framhald af bls. 1 andi því að reyna enn myndun slíkrar stjórnar. Moro er talinn eini maðurinn sem geti myndað slíka stjórn. Hann verður að jafna alvarlega deilu, sem hefur risið með sósíal- istum og sósíaldemókrötum um það hve langt til vinstri slík stjórn skuli fara. Takist slík stjórnarmyndun ekki gæti lausnin orðið þriggja flokka stjórn án þátttöku sósial- demókrata eða minnihlutastjórn, er verði við völd þar til efnt verði til kosninga, sennilega í vor. En allir flokkar nema sósíal- j demókratar hafa lagzt gegn því að efnt verði til kosninga á næstunni þar sem þær muni valda sundr- ungu og sóa tima á sama tíma og þjóðin verði að einbeita öllum kröftum sínum að þvf að leysa alvarlegustu efnahagskreppu sína síðan heimsstyrjöldinni lauk. Aldo Moro var þrívegis for- sætisráðherra á árunum 1963—68 og er utanrfkisráðherra i fráfar- andi stjórn Mariano Rumors, sem situr til bráðabirgða. Auk hans gæti Flaminio Piccoli, þingleiðtogi kristilegra demó- krata, komið til greina sem for- sætisráðherraefni. Þrfr menn aðrir úr flokki kristi- legra demókrata geta og komið til greina: Giuseppe Artolomei, for- ingi hægra armsins, Emilio Col- ombo, núverandi fjármálaráð- herra, og Mariano Rumor, fráfar- andi forsætisráðherra. — Sleppt Framhald af bls. 1 hann hefur verið i hungurverk- falli. Þar sem Tanima neitaði að fara úr fangelsinu ríkti óvissa um framhald viðræðna yfirvalda og fanganna því að aðalkrafa fang- anna hafði verið sú, að Tanima fengi að fara til þeirra. Yfirvöldin vildu ekki leyfa það fyrr en fang- arnir slepptu 11 ára drengnum og tveimur konum. En i kvöld var drengnum sleppt og dregið hafði úr spennunni. Seinna sagði talsmaður dóms- málaráðuneytisins, að kona eins fanganna væri komin inn i kapell- una til þess að ræða við mann sinn, Daan Denie. Vonað var, að hún gæti talið mann sinn og hina fangana á að sýna meira raunsæi f samningaviðræðunum. Hljómleikar MILES í kvöld BREZKA hljómsveitin MILES er komin til Islands og leikur á mið- næturhljómleikum f Austur- bæjarbfói f kvöld ásamt Ingva Steini og hljómsveitinni Júdasi frá Keflavfk. Miles er framhald af trfóinu John Miles Set, sem hér lék f fyrra við góðan orðstfr, en nú hefur fjórði maðurinn bætzt f hópinn. Liðsmenn hljómsveitarinnar eru mjög bjartsýnir á að ná á næstu mánuðum frægð og frama í brezka poppheiminum og hafa nú þegar gert samninga um að spila í sjónvarpsþáttum og taka þátt f hljómleikaferðum um Bretland eftir áramót, um líkt leyti og stór plata með tónlist þeirra kemur á markað. Þess má geta, að einn kunnasti plötusnúður BBC, Emperor Rosko, valdi hljómsveit- ina sem þá líklegustu til að slá i gegn á næsta ári, er plötusnúður BBC efndu til skoðanakönnunar sín á milli um þetta atriði fyrir skömmu. — Heimsmeistari Framhald af bls. 15 sætið á eftir Kenmotsu eftir að hafa mistekizt á æfingum á hesti. Hann náði siðan aftur öðru sæt- inu, eftir að taugar Kenmotsu brugðust honum í sláaræfingum, sem venjulega er þó hann sterk- asta hlið. Helztu úrslit i keppn- inni urðu þessi: stig Kasamatsu, Japan 115,500 Andrianov, Sovétríkjunum 115,375 Kenmotsu, Japan 114,750 Kajiyama, Japan 114,650 Tsukahra, Japan 114,600 Mikaelyan, Sovétrikj- unum 114,175 Thuene, A-Þýzkalandi 114,000 Azajna, Póllandi 113,725 Marchenko, Sovét- ríkjunum 113,700 Shamugia, Sovétríkjunum 113,375 — Hafsteinshús Framhald af bls. 2 Þá segir, að tilefni þess, að þessi áform séu nú boðuð, sé, að með þvi vilji áhugamennirnir minnast sextugsafmælis Hafsteins Björns- sonar, miðils, hinn 30. október 1974 og f annan stað vilji þeir vekja athygli þeirra, sem áhuga hafa á áformum þessum, að þessi félagsstofnun standi nú fyrir dyr- um. I drögum að lögum félagsins segir um tilgang þess, að hann sé að koma upp og standa að hús- byggingu til sálarrannsókna, búa það fullkomnum tækjum, aðstöðu fyrir fræðimenn til rannsókna á þessu sviði, bæta aðstöðu miðla fyrir starfsemi sína, veita fólki með dulræna hæfileika aðstoð og þjálfun og leita samvinnu við önnur félög og stofnanir innlend sem erlend, er að þessum málum starfa. Sem viðurkenningu fyrir hið geysilega starf, er Hafsteinn Björnsson hefur lagt af mörkum til þessara mála og i tilefni sextugsafmælis hans, er lagt til, að húsið skuli nefnast Hafsteins- hús. 1 siðustu grein laganna segir, að verði félaginu slitið skuli stjórn félagsins og Heimspekideild Há- skóla Islands ákveða hvernig eig- ur félagsins stuðli að áframhald- andi dulsálfræðirannsóknum. Haukur Guðlaugsson HAUKUR Guðlaugsson, organisti, hefur verið skipaður söngmála- stjóri þjóðkirkjunnar, en áður gegndi Róbert Abraham Ottósson því embætti. Fimm umsækjendur voru um starfið: Garðar Cortes, Hallgrím- ur Helgason, Haukur Guðlaugs- son, Sigurður Björnsson og Þor- gerður Ingólfsdóttir. Það er dóms- og kirkjumálaráðherra, sem veitir embættið. Hallgrfmur Helgason Þá hefur dr.Hallgrimi Helga- syni verið veitt dósentsembætti við guðfræðideild Háskóla Is- lands í sálma- og messusöngfræði. Umsækjendur voru tveir: Hall- grimur og Þorgerður Ingólfsdótt- ir. Dómnefnd fjallaði um báða umsækjendur og komst að raun um, að báðir væru hæfir til starfs- ins. Þessu dósentsembætti gegndi Róbert A. Ottósson einnig, og er það veitt af menntamálaráðherra. Hallgrímur og Hauk- ur hlutu embættin — Einar Ólafur Framhald af bls. 3 grundvallanda íslenzkra fræða við Háskólann. Á stúdentsárum mínum stundaði ég nám I Kaup- mannahöfn, en var þó hálfan annan vetur við Háskóla Islands. Eftir meistarapróf lágu vegir mínir aftur hingað til lands, og þar varði ég dokt- orsritgerð mina. Eftir heimkomuna var starf mitt oftast tengt háskólanum. Skal ég ekki rekja það nánar í þessum fáu þakklætisorðum. En hér kynnt- ist ég mörgum mikils háttar mönnum, sem létu sér annt um visindin og unnu ötullega að framförum og þroska háskólans. Loks auðnaðist mér að setjast þar I kennarasæti, hið sama sem hugur minn stóð til og þeir höfðu setið í áður Björn Ólsen og Sigurður Nordal. En þegar tíminn líður, verða menn að ganga allrar veraldar veg. Verk þeirra kunna að gleymast, en þó lifa þau með nokkuru móti f áhrifum á annarra manna verk. Þegar ÖIlu er á botninn hvolft, mega slíkir kostir heita góðir. Ég vil ljúka máli minu með síðustu orðum mikils vfsindamanns. I þeim eru fólgin mikil sannindi og um leið er sem rétt sé mund um hafið hálft. I þeim er tilfinning einingar allra vísinda, og hvar sem er í heiminum. Þetta eru orð Pasteurs: „II faut travailler“, það þarf að vinna. Herra rektor, ég hef lokið máli mínu.“ — Jón Helgason Framhald af bls. 3 það, sem gamla fólkið sagði: „Það var nú og“ — þegar það heyrði eitthvað ótrúlegt. Eins, þar sem þessi orð hafa verið töluð til mín í fullri einlægni, vil ég ekki síður af fullri einlægni, það er mér bæði ljúft og skylt, þakka fyrir þann heiður, sem mér hefur hlotnazt, þegar mér er veitt þessi nafnbót." — Brennuvargar Framhald af bls. 2 var eldur i Cortinu 1970 árgerð, og fór hún sömu leið og hinar bifreiðarnar, og er hún talin nánast ónýt. Hún stóð fremst í innkeyrslu við húsið, en henni hafði verið ýtt logandi 10—15 metra vegalengd upp að húsinu, og hefði getað orðið stórtjón ef eldtungurnar hefðu náð húsinu. Þá var reynt að kveikja í Volks- wagenbíl, sem stóð við Heiðar- gerði 114, en eldurinn breiddist ekki út. Vélarhlíf hafði verið oþnuð og reynt að kveikja i þráðum í rafkerfi. Voru þeir allir sviðnir. Þá var kveikt i timbur- skúr við við húsið númer 64 við Heiðargerði. Svo vel vildi til, að fbúar hússins voru að koma heim i þann múnd er eldurinn var að breiðast út, og gátu þeir slökkt hann sjálfir áður en slökkviliðið kom á vettvang. Mikið dót var geymt í skúrnum, og hefði orðið stórtjón ef tilviljunin ein hefði ekki ráðið þvi, að íbúarnir komu heim einmitt á þessum tíma. — Gamli stíllinn Framhald af bls. 2 stöðvað það á sinum tíma, að frekari breytingar voru gerðar á salnum nema á húsbúnaði for- seta og skrifara. Gylfi kvað alla hafa verið sammála um það, að eldri stíllinn myndi sóma betur i sölum alþingis enda er gamli húsbúnaðurinn mjög fallegur og tígulegur og það var Guðjón Samúelsson húsameistari, sem teiknaði hann á sínum tíma i kring um 1940. Þessi húsgögn þykja falla mjög vel að stíl al- þingishússins. „Við teljum þessa breytingu," sagði Gylfi, „vera í samræmi við þann vilja, sem nú er fyrir því að varðveita gamlan stfl, sem ber sig vel og þótt upphaflega hafi breytingin verið gerð 1959 til þess að rýmka til i salnum fyrir þing- mennina 60, þá taka gömlú hús- gögnin ekki meira pláss eftir að nokkur breyting hefur verið gerð á þeim. Það er að sönnu þröngt i salnum, en þröngt mega sáttir sitja og ósættið kemur nú helzt þegar menn koma í pontuna.“ Þá hefur verið unnið að ýms- um öðrum bótum, m.a. hefur verið teppalagt á áheyrenda- pöllum og settir nýir stólar þar og þannig hefur verið dyttað að einu og öðru. Sú breyting var gerð á for- setaborðinu og skrifaranna, að þau hækka um 50 sm til þess að stjórnendur þingfunda hafi góða yfirsýn yfir þingsalinn. — Strandið Framhald af bls. 36 festing á því, að strandstaðurinn væri allur annar en skipið hafði gefið upp upphaflega. Skipið hafði þá fundizt fyrir miðjum Héraðsflóa, skammt sunnan við ósa Lagarfljóts. Var þá haft sam- band við bæi i Hjaltastaðaþinghá, sem næstir eru strandstað, og heimamenn beðnir að ganga fjör- ur og hyggja að ljósum. Þeir stað- festu strandið skömmu siðar. Slóðin rudd Björgunarsveitarmenn á Egils- stöðum fengu Guðmar Ragnars- son frá Sandi i Hjaltastaðaþinghá sem leiðsögumann frá veginum og eftir vegleysunni á sandinum og fóru fyrst tveir bílar niður eftir honum til að ryðja slóðina. Á sama tíma náðist loks samband við Borgarfjörð og björgunar- sveitarmenn þar voru beðnir að halda sem leið lægi á strandstað og hraða för sinni sem mest. Þeg- ar bílarnir tveir, sem fyrstir fóru á sandinn, komu að skipinu, skutu skipverjar linu upp á sand- inn. Jafnframt tengdu þeir gúmmibáta við sterka línu og létu draga þá að landi. Með fyrri bátn- um komu tveir menn og þrír i þeim seinni. Þessi aðferð var þá stöðvuð, enda voru fleiri komnir úr björgunarsveitinni á Egilsstöð- um og sveit Borgfirðinga var þá rétt ókomin. Þegar þeir komu var línu strax skotið um borð i skipið og siðan voru tildráttartaugin og líflínan dregnar um borð. Björg- un skipverja hófst þá fyrir alvöru, en skipið var eina 80 metra frá landi. Festu skipverjar línurnar á brúarþakið og gekk mjög greijS- lega að draga þá í land. Engin slys urðu á mönnunum, en þeir voru hraktir og kaldir eftir veruna um borð og einnig blotnuðu sumir á leið í land. Upphitaðir bílar og þurr föt Björgunarsveitin á Egilsstöðum hafði farið vel útbúin á staðinn og voru margir bílar með í förinni. Um leið og skipbrotsmenn komu í land, var þeim komið fyrir i hlýj- um bílunum og þeir færðir í ullar- föt, en margir voru klæðalitlir, þegar þeir komu i land. Þá var' læknir með I förinni og aðstoðaði hann þá, sem þurftu á hjálp að halda. Þegar björgunaraðerðum var lokið um kl. 9 á sunnudagsmorg- un var haldið til Egilssaða, þar sem skipbrotsmönnum var komið fyrir í Valaskjálf, en þegar þeir komu þangað, beið þeirra heitur matur og hlý rúm. Þá fóru skip- verjar i verzlun Kaupfélags Héraðsbúa á sunnudaginn, þar sem þeir fengu ný föt. Taldi sig vera vió Langanes. Skipstjórinn á Port Vale. Richard Hildraith, sagði fréttarit- ara Mbl. á Egilsstöðum, að þeir hefðu verið að koma á miðin, en ekki byrjaðir veiðar þegar óhapp- ið átti sér stað. Þegar óveðrið skall á ætlaði hann að leita vars við Langanes og hélt sig vera ná- lægt nesinu þegar skipið strand- aði. Þá kom í ljós, að staðar- ákvörðunin var röng, og kennir hann veðrinu um. Þess má geta, að ferð Eskfirð- inga upp Fagradal seinkaði nokk- uð, en fólksbíll hafði verið skilinn eftir á veginum um nóttina. Þurfti að moka hana upp og færa til. Togarinn Port Vale er 427 rúm- lestir að stærð. Skipið var byggt árið 1957 og er i eigu Wendover F.CO Ltd. í Grimsby. Skipbrotsmenn við komuna til Reykjavfkur f gær. Richard A. Hildraith er (skinnjakka lengst til vinstri á myndinni. Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.