Morgunblaðið - 30.10.1974, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1974
15
Pálmi Jónsson á
Akri átti 5 verð-
launahrúta af 6
I HAUST voru haldnar hrútasýn-
ingar I öllurn hreppum A-Hún. og
héraðssýning að þeim loknum.
AIls voru sýndir 458 hrútar og
hlutu 228 þeirra fyrstu verðlaun.
Héraðssýningin var á Blöndu-
ósi. Þar voru sýndir 49 hrútar og
16 þeirra hlutu heiðursverðlaun.
Akur, eigandi Reynir Steingríms-
son i Hvammi í Vatnsdal, varð í
efsta sæti. Hann hlaut 92 stig og
er það fádæma gott. Úr Torfa-
lækjarhreppi voru sýndir 6 hrút-
ar og fengu þeir allir heiðursverð-
laun. Pálmi Jónsson á Akri átti 5
þeirra.
Nýr formað-
ur bakara
Aðalfundur Landssambands
bakarameistara var haldinn í
Reykjavfk dagana 18. og 19. okt.
s.l. 1 þessum félagsskap eru öll
brauðgerðarhús á landinu, en þau
eru 57. Formaðurinn, Kristinn
Albertsson setti fundinn, bauð
menn velkomna og minntist
þeirra 7 félagsmanna, sem látizt
höfðu frá sfðasta aðalfundi.
Auk föstu liðanna, sem tilheyra
fundum sem þessum, var rætt um
menningar og hagsmunamál stétt-
arinnar, sérstaklega þó um erfiða
aðstöðu í verðlagsmálum og hvað
þetta fyrirkomulag rýrir fram-
leiðsluna, sem er í samkeppni við
erlendan innflutning.
Stjórnarkjör fór þannig að
Ragnar Eðvaldsson Keflavík var
kosinn formaður í stað Kristins
Albertssonar, en hann tók ekki
við endurkjöri sem formaður.
Meðstjórnendur eru Kristinn
Albertsson, Rvík, Georg Michel-
sen Hveragerði, Hermann Bridde
Rvík. Fyrir í stjórninni voru
Hörður Pálsson Akranesi, Snorri
Kristjánsson Akureyri og Árni
Guðmundsson Rvík.
Sýningin var í tvennu lagi, þvl
að vegna sauðfjárveikivarna má
ekki flytja fé yfir Blöndu nema
því aðeins að farið sé með það
beint á sláturhús. Vestan Blöndu
voru sýndir 29 hrútar. Þar af voru
15 afkomendur Dvergs á Akri og
fengu 10 þeirra heiðursverðlaun.
Dvergur hlaut fyrstu heiðursverð-
laun fyrir afkvæmi haustið 1970.
Pálmi á Akri keypti hann sem
lamb af Hallgrími Guðjónssyni í
Hvammi.
I Sveinsstaðahreppi var sýndur
veturgamall hrútur, Fjalli að
nafni, sem kom útigenginn til
byggða 29. april í vor. Hann vó 67
kg og fékk þriðju verðlaun. Eig-
andi er Guðmundur Bergmann í
öxl.
Leifur Jóhannesson, ráðunaut-
ur á Snæfellsnesi, var aðaldómari
á hreppasýningunum. Hann var
einnig dómari á héraðssýning-
unni ásamt Aðalbirni Benedikts-
syni ráðunaut í V-Hún. og Guð-
bjarti Guðmundssyni ráðunaut í
A-Hún.
Árni Pétursson, sauðfjárrækt-
arráðunautur Búnaðarfélags ís-
lands, kom á héraðssýninguna.
Hann kvað þetta vera einhverja
þá allra fáguðustu héraðssýningu,
sem hann hefði séð, og framfarir
mjög miklar frá því hann kom
fyrst á héraðssýningu í A-Hún.
fyrir 8 árum.
— Björn.
Leiðrétting
1 frásögn Mbl. af láti Hjálmtýs
Péturssonar s.l. laugardag er
ranghermt, að hann hafi rekið
verzlunina Nonna til dauðadags.
Eigendaskipti urðu að verzlun-
inni í aprílmánuði síðastl. og nýi
eigandinn skipti um nafn á
verzluninni, sem nú heitir Bimm
Bamm.
MBL. sneri sér til Höskuldar Frí-
mannssonar útgáfustjóra Menn-
ingarsjóðs og fékk hjá honum
upplýsingar um þær bækur sem
forlagið gefur út fyrir jólin.
Kennir þar margra grasa eins og
vænta má.
Fyrst nefndi Höskuldur verkið
Marfmna eftir sænska nóbels-
skáldið Per Lagerkvist. Þetta er
hugleiðing út frá biblíusögunum
og samdi Lagerkvist það um svip-
að leyti og Barrabas. Sr. Gunnar
Árnason þýddi. Bókin er i smá-
bókaflokki Menningarsjóðs. Ný
ljóðabók eftir Ólaf Jóhann
Sigurðsson kemur út fyrir jólin
og nefnist hún Af brunnum og er
tæpar 100 blaðsíður. Þá kemur
Gandreiðin eftir Benedikt
Gröndal út fyrir jólin ásamt rit-
gerð um verkið eftir Ingvar heit-
inn Stefánsson þjóðskjalavörð.
Bókin um Eþfópfu verður Iíklega
titill bókar eftir sr. Felix Ölafs-
son. Er það saga lands og þjóðar,
svo og saga kristniboðsins í
Konsó, en Felix var eitt sinn trú-
boði þar. 1 bókaflokknum alfræði
Menningarsjóðs kemur út ís-
landssaga eftir Einar Laxnes
sagnfræðing. Þetta er 4. bókin i
bókaflokknum. Þá kemur út Is-
lendingasaga Sturlu Þórðarsonar,
myndskreytt af Þorbjörgu
Höskuldsdóttur og Eiríki Smith.
Saga Grfmsvatna- og Skeiðarár-
hlaupa nefnist bók eftir Sigurð
Þórarinsson jarðfræðing, að
miklu leyti byggð á annálunt.
Þetta er jafnframt staðalýsing. 3.
leikrit eftir Grikkjann Evrípídes
koma út fyrir jólin í þýðingu dr.
Jóns Gíslasonar skólastjóra. Bók
þessi er í flokki sígildra verka
Menningarsjóðs, en flokkurinn er
auðkenndur á þann hátt, að hann
er allur bundinn í grænt band.
Saga togaraútgerðar frá upphafi
fram til 1920 nefnist bók eftir
Heimi Þorleifsson sagnfræðing og
er hún 3. bókin i flokki bóka um
sagnfræðirannsóknir. Loks skal
nefnd hljómplata með Eddukór-
um, sem út kemur fyrir jólin.
Syngur þar kórinn islenzk þjóðlög
í nýjum útsetningum.
Fimmtán hrútar, allir atKomendur Dvergs á Akri.
Ljósm. Mbl. Björn Bergmann.
Aflarýrnun báta á SV-
landi 36% frá því 1973
23% meira en annarsstaðar á landinu
Níu bækur og ein hljóm-
plata frá Menningarsjóði
Utvegsmannafélög Suðurnesja,
Hafnarfjarðar og Reykjavikur
héldu sl. laugardag sameigin-
legan fund f Hafnarfirði um
ástand og horfur í útgerðarmál-
um. Á þessum fundi, en á honum
var m.a. Matthfas Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra, var sam-
þykkt ályktun og hér á eftir er
upphaf hennar:
„Þrátt fyrir þær aðgerðir, sem
gerðar hafa verið og fyrirhugaðar
eru af hálfu stjórnvalda til að
tryggja rekstrargrundvöll sjávar-
útvegsins, er fyrirsjáanlegt, að
enn skortir mikið á, að rekstrar-
grundvöllur bátaflotans á SV-
landi sé tryggður.
Er ástand hjá bátaflotanum á
þessu svæði nú svo alvarlegt, að
þegar hefur fjöldi báta stöðvazt,
og ef fer fram sem horfir, munu
allir bátar frá verstöðvum á þessu
svæði stöðvast mjög fljótlega.
Ástæður fyrir þessu alvarlega
ástandi eru ýmsar, einkum þó sú
staðreynd, að aflarýrnun á þessu
ári miðað við s.l. ár nemur 36 af
hundraði, sem er um 23 af
hundraði meira en meðal afla-
rýrnun á öllu landinu.
Vegna hins slæma ástands
hefur söfnun lausaskulda verið
geigvænleg og sömuleiðis vanskil
á föstum lánum. Hefur þetta leitt
til þess, að ýmsir aðilar hafa nú
stöðvað viðskipti við útvegsmenn,
að aðrir hafa þegar hafið inn-
heimtuaðgerðir."
Þá segir ennfremur á einum
stað i ályktuninni:
„Fundurinn bendir á þaó hróp-
lega misrétti, sem átt hefur sér
stað um langt árabil í útlánum
opinberra sjóða, að því er varðar
útgerðaraðila á SV-landi. Bendir
fundurinn sérstaklega á útlána-
starfsemi byggðasjóðs, sem nær
ekkert hefur lánað til útgerðar á
SV-landi hin síðari ár, en þetta
hefur m.a orðið til þess, að endur-
nýjun bátaflotans á þessu svæði
hefur verið lítt framkvæmanleg."
Siðar segir í ályktuninni:
„Fundurinn bendir á, að ein
höfuðorsök hinnar erfiðu afkomu
báta á SV-landi, er skortur á hæf-
um sjómönnum til starfa. Ástæð-
ur til þessa eru fyrst og fremst
tvær: I fyrsta lagi hin mikla
þensla í framkvæmdum í landi,
sem dregur til sín vinnuaflið með
stórkostlegum yfirborgunum,
sem sjávarútvegurinn getur ekki
keppt við. Vegna þess lítur fund-
urinn svo á, að óhjákvæmilegt sé,
að ríkisvaldið vinni að því að tak-
marka framkvæmdir þannig, að
um óeðlilega samkeppni við
sjávarútveginn verði ekki að
ræða, en um það verður ekki
deilt, að arðbærustu störf, sem
unnin eru fyrir þjóðarbúið, eru
fiskveiðar og fiskvinnsla.
I öðru lagi stafar fólkseklan af
hinni stórauknu skólagöngu ungs
fólks, og telur fundurinn að
breyta þurfi kennslutíma í þeim
skólum, sem heppilegast þætti,
þannig að nemendur geti stundað
vinnu á bátum og í fiskvinnslu-
stöðvum, a.m.k. i marz og april.
Þá mótmælir fundurinn því fyrir-
komulagi, sem í gildi er um skil-
yrði til námslána, þar sem þau
eru bundin því, að námsmenn
vinni sem minnst, en leggur þess í
stað til, að námslán verói aðeins
veitt þeim, sem unnið hafa ákveð-
inn lágmarkstíma við framleiðslu-
störf.“
Sprúttsali tek-
inn í Keflavík
FYRIR skömmu handtók
lögreglan í Keflavík mann
nokkurn, sem hún hafði
um hríð haft grunaðan um
að selja áfengi í heimahúsi.
Lét hún til skarar skríða
dag einn og gerði húsleit
Björn Þorsteinsson varð
sigurvegari á Haustmóti TR
BJÖRN Þorsteinsson sigraði með
miklum glæsibrag f Haustmóti
Taflfélags Reykjavíkur, sem ný-
lega er lokið. Illaut hann 9'A vinn-
ing af 11 mögulegum. Er árangur
Björns þeim mun glæsilegri
þegar haft er í huga, að hann
hefur ekki tekið þátt f taflmóti
hér innanlands s.l. 2 ár. Hlýtur
Björn titilinn Skákmeistari Tafl-
félagsins 1974, rétt til að keppa f
landsliðsflokki Skákþings Islands
og Spánarferð f verðlaun.
Annars varð röð manna i A-
flokki þessi:
§'A
5'A
5
1. Björn Þorsteinsson
2. -3. Magnús Sólmundarson
og Björgvin Viglundsson
9 'A
7'4
4. Júlíus Friðjónsson
5. —7. Sævar Bjarnason,
Kristján Guðmundsson
og Björn Jóhannesson
8. Áskell örn Kárason
9. —11. Jón Pálsson,
Gylfi Magnússon
og Björn Halldórsson 4
12. Guðmundur Aronsson 1 'A
I unglingaflokki var Einar
Valdimarsson efstur, hlaut 6
vinninga af 6 mögulegum. í 2.
flokki hlaut Þorsteinn Þorsteins-
son 7'A af 9 mögulegum. I C-flokki
meistaraflokks sigraði Ásgeir
Ásbjörnsson, hlaut 7 'A af 10
mögulegum og í E-flokki Árni
Sigurbjörnsson með 9'A af 11
mögulegum. Keppni er ólokið i
tveimur flokkum. í B-flokki
Björn Þorsteinsson.
meistaraflokks er Ómar Jónsson
efstur og í D-flokki Gísli Jónsson.
Alls voru þátttakendur í mótinu
78.
hjá manninum. Fundust í
fórum hans 9 flöskur af
ótolluðu áfengi, að sögn
Hauks Guðmunssonar,
rannsóknarlögreglumanns
þar á staðnum. Viður-
kenndi maðurinn að hafa á
síðustu tveimur mánuðum
selt 40 ótollaðar flöskur,
sem hann fékk hjá starfs-
manni á Keflavikurflug-
velli. Hafði sá keypt vínið
af varnarliðsmönnum.
Báðir mennirnir sátu í gæzlu-
varðhaldi á meðan frumrannsókn
málsins fór fram, en þeim hefur
nú verið sleppt. Húsleit v.ar einn-
ig gerð hjá þeim, sem höndlað
hafði við varnarliðsmennina, en
þar fannst ekkert áfengi. Hins
vegar fundust hjá honum sex
lengjur af ótolluðum vindlingum.
Viðurkenndi hann að hafa keypt
vínið og vindlingana af varnar-
liðsmönnum. Mál mannanna eru
enn í rannsókn, en þau verða síð-
an send áfrarn til frekari dóms-
meðferðar.
Þá má að lokum geta þess, að
sama kvöld og húsleitin var gerð
hjá sprúttsalanum, var gerð um-
fangsmikil áfengisleit i leigubif-
reiðum í bænum, en án árangurs.