Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 16

Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1974 Vilja Þróunar- sýninguna til Helsingborg Turistföreningen í Helsingborg hefur farið fram á það að fá hluta af Þróunarsýningunni á Norræna viku sem haldin verður I Helsing- borg 23.—31. maí 1975. Umrædd- ur þáttur af Þróunarsýningunni var sendur til Hasselby í Stokk- hólmi á sýningu þar í sumar. Er nú I athugun hvort unnt er að senda sýninguna til Helsingborg. Leiðrétting I GREIN Ingibjargar frá Löngu- mýri, sem birtist í sunnudags- blaði Mbl. á bls. 38, hefur yfir- skrift greinarinnar misritazt. Þar átti að standa: Skautbúningagerð og skjól- góðar minningar. — Ford Framhald af bls. 1 erfiðleikum Tanaka, forsætisráð- herra Japans. Þá skýrði forsetinn svo frá að John C. Sawhill, yfirmaður orku- stofnunar rikisins, hefði látið af því embætti og mundi ósk Rogers C.B. Mortons innanríkisráðherra, sem fékk það verkefni fyrir þrem- ur vikum að samræma stefnumið stjórnarinnar í orkumálum. Saw- hill hefur hvatt til róttæks sparnaðar á eldsneyti. — Fangar Framhald af bls. 1 ið fór I prentun f kvöld voru yfir- völd enn að velta kröfunni fyrir sér. Þessar kröfur bundu enda á 27 klukkustunda baklás í samninga- viðræðunum við fangana, en þeir hafa nú haldið gíslum í kapell- unni á fjórða dag. Fangarnir kröfðust þess einnig að palestínskur skæruliði og félagi eins þeirra yrði framseldur áður en þeir færu. Þessi Palestínumað- ur sagði félögum sínum hins veg- ar í gær, að hann vildi ekkert við þá tala, og hygðist afplána dóm sinn. Ráðlagði hann þeim að gera slíkt hið sama. Yfirvöld hafa sagt, aó þeir muni alls ekki framselja manninn gegn vilja hans sjálfs. Fyrirliði fanganna er Palestínu- skæruliðinn Adnan Ahmed Nuri. Hinir eru tveir hollenzkir byssu- menn, Jan Brouwers og Daan de Nie, og Alsírbúinn Mohammed Ben Koudache. Þeir eru allir innan við þritugt. — Ók á tvo Framhald af bls. 28 lýsingar gefið eru beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregl- una. Þá hefur rannsóknarlögreglan hug á að fá vitni að árekstri sem varð á Miklubraut laugardaginn 12. október, skömmu fyrir klukk- an 19. Atburðurinn gerðist rétt austan Grensásvegar. Hilmanbill var á leið vestur Miklubrautina og Cortina rétt á eftir. Grænt ljós logaði á götuvitanum, en þrátt fyrir það stöðvaðist Hilmanbíllinn skyndilega og Cortinan ók aftan á hann. Bíll beið á beygjuljósunum við gatnamótin, og ætlaði hann i suður. Er það álit rannsóknarlög- reglunnar, að þeir sem voru i bilnum hafi séð áreksturinn, og hefur hún hug á að ná tali af þeim sem í bílnum voru svo og öðrum sem urðu vitni að árekstrinum. — Arabar Framhald af bls. 1 maður Frelsishreyfingarinnar orðaði það í dag. Þessi samþykkt var gerð eftir harða andstöðu Husseins Jórdaníukonungs, sem taldi hana stofna friðarviðræðum við ísraela í hættu, þar eð Israels- stjórn hefur aldrei viljað viður- kenna tilverurétt hreyfingar- innar. Heimildir herma hins vegar, að Hussein hafi verið fullvissaður um það, aðþeir 900.000 Palestinu- menn sem búa austan Jórdanár- innar muni ekki hlita yfirstjórn Arafats. Ekki er talið að þetta mál hafi hins vegar útkljáð á fund- inum í dag, og var fomlegum loka- fundi frestað þrisvar án þess að skýring væri gefin. — Særún Framhald af bls. 28 staðar i Sláturhúsinu, sem aðeins væri notað fáa mánuði á ári. Morgunblaðið hafði samband við Matthías Bjarnason sjávarút- vegsráðherra og spurði-hann um álit hans á bótakröfunni. „Þessi krafa,“ sagði Matthías, „kom hingað í ráðuneytið nokkrum mínútum fyrir kl. 4 s.l. föstudag og svars við henni var krafist á mánudag. Ég hef litið um þessa kröfu að segja, tel hana fráleita, a.m.k. hef ég aldrei gefið þeim neitt undir fótinn með að leyfa rækjubátum að landa hjá þeim. Þeir fara líklega í mál og þetta mál verður þá að hafa sinn gang.“ — Aukin aðsókn Framhald af bls. 28 óneitanlega stoðum undir þá kenningu að lokun hermanna- sjónvarpsins ætti einhvern þátt I aukinni aðsókn hjá Þjóðleik- húsinu. Guðmundur Pálsson hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur tók í sama streng. Hann kvað leikhúsaðsókn- ina töluvert meiri nú í haust en þeir Leikfélagsmenn hefðu átt von á. Vegna ástandsins í efna- hagsmálum þjóðarinnar og minnkandi ráðstöfunarfjár al- mennings kvað Guðmundur menn þvert á móti hafa talið, að það kæmi fljótlega niður á aðsókn- inni, en raunin hefði sem sagt orðið allt önnur. Þess vegna vakn- aði sú spurning hverju þetta sætti og ýmsir teldu svarið fólgið í lokun Keflavíkursjónvarpsins nú í haust. Arni Kristjánsson, forstjóri Austurbæjarbíós, tjáði Morgun- blaðinu, að þar hefði verið góð aðsókn í september. Aó vísu væri það svo að aðsóknin hefði verið að aukast allt þetta ár en hann taldi sig hafa orðið varan við hlutfalls- lega meiri aukningu í september en aðra mánuði ársins. Árni taldi að gott myndaval í þessum mán- uði hefði eflaust haft sín áhrif, en kvað ekki útilokað að fleiri þættir kæmu hér til. Aftur á móti taldi Friðfinnur Ólafsson, forstjóri Há- skólabiós og formaður félags kvikmyndahúseigenda, fráleitt að setja aukna aðsókn I kvikmynda- húsin I nokkurt samband við lok- un Keflavikursjónvarpsins — alltof skammt væri liðið 'til að nokkur samanburður gæti talizt raunhæfur. Hann benti á að að- sóknin hjá kvikmyndahúsunum hefði stöðugt verið að aukast aft- ur eftir ládeyðuna fyrst eftir stofnun islenzka sjónvarpsins og sagði að ef aukning nú væri hlut- fallslega meiri en áætlað hafði verið, væri nær að leita skýring- anna annars staðar. Fólk eyddi nú kannski peningunum frekar í bió- ferðir en I aðrar og stórum dýrari skemmtanir, svo sem á skemmti- stöðunum. Forstöóumaður Stjörnubíós hafði einnig orðið var við greini- lega aðsóknaraukningu hjá sér nú í haust. Hann taldi þó, að lík- legasta skýringin á þessari aukn- ingu væri forvitni fólks sem vildi gjarnan kynnast hinum nýju húsakynnum Stjörnubíós og einnig það hversu lélegt íslenzka sjónvarpið hefði verið í haust. Stjörnubíó hefur gert tilraun með nýja sýningartíma á kvöldin eða kl. 10 og er það gert með það fyrir augum að laða í bíóið sjónvarps- áhorfendur strax að loknum sýningum sjónvarpsins á fram- haldsþáttum, sem eru venjulega strax eftir fréttir. — Danmörk Framhald af bls. 1 Þriðja atriðið, sem hefur átt þátt í að auka atvinnuleysið, er ástandið i byggingariðnaðinum. Á árunum 1960—70 var það vigorð I Danmörku, að byggja sig út úr Ibúðaskortinum". Það var svo- rækilega gert, að nú standa auðar og tómar þúsundir rán- dýrra ibúða. Vegna hárra vaxta á lánum verða húseigendur að setja upp allt að tvö þúsund danskar krónur I leigu á mán- uði fyrir þriggja herbergja ibúð og svo háa leigu hafa fáir efni á að greiða. Stjórn landsins hefur af þessum sökum ákveðið, að færri íbúðir skuli byggðar, með þeim afleiðingum, að at- vinnuleysi i byggingariðnaðinum var þegar í ágúst sl. komið í 10%. Astandið þar hefur svo aftur dregið aðrar atvinnugreinar nið- ur. Loks verður að taka með I reikninginn, að laun verkamanna og opinberra starfsmanna hafa ekki lækkað I hlutfalli við minnk- andi tekjumöguleika i atvinnulíf- inu, þvert á móti þau hafa hækk- að um 15—16% á árinu. Þar af leiðandi verða mörg fyrirtæki að hætta rekstri eða fækka starfs- fólki. I vor verða launasamningar á vinnumarkaðinum endurnýjaðir og er næsta víst, að atvinnurek- endur bjóða ekki launahækkanir, — en verkalýðshreyfingin lætur sér það varla lynda og spá nú margir viðtækum verkföllum ofan á þá efnahagslegu erfiðleika, sem danska þjóðin á nú við að etja. Ekki bætir úr skák, að efna- hagsástandið einkennist af efna- hagslegri stöðnun samfara rífandi verðbólgu, hún er nú um 15—20%. Það ástand er svo sem ekki einsdæmi i Danmörku, af löndum Efnahagsbandalags Evrópu eru Vestur-Þjóðverjar bezt settir með innan við 10% verðbólgu og viðunandi atvinnu- ástand. (Á það má benda í þessu sambandi, að í fréttum af kosn- ingabaráttunni í Hessen og Bayern á dögunum var mjög talað um ugg almennings vegna vax- andi atvinnuleysis í V-Þýzka- landi. Innskot Mbl.) En það dreg- ur litið úr ugg Dana við fram- vindu efnahags- og stjórnmála landsins á næstunni, þó að önnur lönd séu líka illa sett. r — Italía Framhald af bls. 1 þriggja á þinginu. Slfk rfkisstjórn er aðeins talin geta setið f tvo til þrjá mánuði á meðan Moro reynir að koma á sáttum á milli flokk- anna tveggja, sem líklegastir eru tíl stjórnarsamvinnu við Kristi- lega demókrata, — sósfalista og sósfal-demókrata. 0 Það voru deilur þessara flokka sem gerðu að engu stjórn- armyndunarviðleitni annars af leiðtngum kristilegra demókrata, Amintore Fanfanis fyrir helgina. Aldo Moro sagði f kvöld er hann kom af fundi forsetans: „Ástand- ið f landi okkar er alvarlegt." Hann kvað enga leið út úr ógöng- unum „án fórna, sem um leið eru sanngjarnar og árangursríkar." Enn eru helztu vandamálin hin sömu og felldu rfkisstjórn Mariano Rumors fyrr f mánuðin- um, — samband rfkisstjórnarinn- ar við kommúnista og verkaiýðs- félögin, aðgerðir til að rétta af efnahag landsins og hefta óða- verðbólguna, sem nú er 24,6%. Aldo Moro, sem er 58 ára há- skólaprófessor, hefur unnið sér. góðan orðstír sem leikinn sátta- semjari í deilum þeim sem hvað eftir annað hafa orðið með mið- og vinstri flokkunum á Ítalíu. Hann hefur verið forsætisráð- herra í þremur ríkisstjórnum frá 1963 til 1968. Fimm ára forsætis- ráðherratíð hans er sú lengsta hjá nokkrum » forsætisráðherra á ltalíu í tvo áratugi. Utnefning Leones á Moro hlaut þegar stuðn- ing hjá lýðveldissinnum og báð- um sósialistaflokkunum. Það voru hins vegar sósialistar, sem ráku Moro úr forsætisráðherra- stólnum 1968 fyrir að vera of var- færinn og hægfara. Undanfarið hefur Moro þó unn- ið _ aftur fylgi hina marxiska sósialistaflokks, einkum fyrir yf- irlýsingar sínar um að stjórninni beri að hlusta á viðhorf stjórnar- andstöðunnar og verkalýðsfélag- anna áður en hún tekur mikilvæg- ar ákvarðanir. Aldo Moro hefur átt við van- heilsu að striða nýlega, og hafnaði tilboðum um að reyna stjórnar- myndun fyrr I stjórnarkreppunni af þeim sökum. Einnig stytti hann ferðalag sitt um Bandarikin i fyrra mánuði af heilsufarsástæð- um. — Portúgal Framhald af bls. 14 hvort metnaður marxlskra stjórn- valda geti samrýmzt lýðræðislegu frelsi. Þróun mála I Portúgal til vinstri er vitaskuld einnig áhyggjuefni fyrir hvíta menn i hinum gömlu nýlend- um landsins I Afríku. f Angóla óttast þeir, að stjórnin beiti sömu aðferð og I Mozambique, — þ.e. að af- henda einfaldlega skæruliðum völd- in. En skæruliðar í Angóla eru klofnari innbyrðis en samherjar þeirra f Mozambique, og í nýlend- unni eru 400.000 landnemar, sem ekki eru taldir liklegir til að taka hvaða ákvörðun, sem Lissabon þóknast, þegjandi og aðgerðalaust. Atlantshafsbandalagið hefur ekki slður áhyggjur af gangi mála. Ljóst var fljótlega eftir byltinguna i aprfl, að meiri háttar hernaðarleyndarmál bandalagsins yrðu ekki send til Lissabon. Það þótti fráleitt að veita slikum gögnum til ríkisstjórnar, sem f sitja Moskvu-kommúnistar, leynd- armálum sem I sjálfu sér er ætlað að veita bandalagsþjóðunum vernd gegn Sovétrikjunum. Sömuleiðis er framtíð bandarískra herstöðva á portúgölsku landsvæði f óvissu. Þá fylgist rikisstjórn nágrannarik- isins Spánar náið með þróuninni I Portúgal, og stendur ekki á sama um uppgang marxískra afla. Goncalves forsætisráðherra hefur lofað að efnahagskerfi landsins verði ekki umbylt að þær ráðstafanir, sem stjórn hans muni grípa til, eigi ekki að beinast að einkafjármagninu sem slfku. En örðugt er að sjá hvernig hjá slfku verður komizt á meðan kommúnistaflokkurinn er á hraðri leið með að verða valdamesti flokkur landsins. Flokkurinn er undir járn- aga og f honum eiga verkalýðsfélög- in mikil ftök. Alvaro Cunhal, formað- ur hans, hefur þó sýnt talsverða hófsemi og ávftað verkalýðshreyf- inguna fyrir óraunsæjarkaupkröfur. Um leið hefur hann gerzt fyrsti stjórnmálaleiðtoginn, sem ræðst af hörku á Spinola fyrrum forseta. Cunhal og flokkur hans hafa að undanförnu algerlega skyggt á hinn gæfa og varkára Mario Soares, utan- ríkisráðherra, og sósfalistaflokk hans. Og áhrif Cunhal á Goncalves virðast mjög vaxandi. Augu alheimsins munu því mjög beinast að Portúqal á næstunni. Það yrði mikill harmleikuref lokaárangur aprflbyltingarinnar yrði ekkert annað en skipti á einni einræðisstjórninni fyrir aðra. Reuter/ Economist / Observer — Séra Þórir Framhald af bls. 3 Hið fornkveðna máltæki segir, að með Iögum skuli land byggja, en með ólögum eyða. Þau lög, sem við byggjum með land okkar í dag, þau hafa sina viðmiðun, sem í grundvallar- atriðum er sístæð að eðli, það er stjórnarskrá landsins. Þau lög, sem ekki eru i samræmi við þá viðmiðun, þau skulu dæmd ómerk og úr gildi felld. En við hvað miðar stjórnarskráin? Hvert sækir hún hinn sistæða grunntón sinn? Hann er krist- inn arfur, sóttur í Fjallræðuna og á aðra hátinda kristinnar boðunar. Sú lýðræðishugsjón, sem íslenzka stjórnarskráin birtir og við unnum svo heitt og þér alþingismenn hafið svarið að standa vörð um, hún ásamt ákvæðum sínum um mann- helgi, mannréttindi og bræðra- lag mannanna er kristin arf- leifð, til okkar komin um hinar fögru dyr kristinnar hugsjóna- baráttu og þróunar til sífellt bróðurlegra viðhorfs. Af þeim hugsjónum ekki sízt kviknaði sá frelsisandi, sem varð hvati þeirrar baráttu, er náði langþráðu marki 17. júní 1944. Hinu skal og vissulega ekki gleymt hér, því trausti og öryggi, sem kristin trú gefur hverjum einstaklingi og von hans og vissu um eilíf mörk og mið. Alþingismenn, þér eruð full- trúar þjóðar, sem að meira en 98 hundraðshlutum játar kristna trú. Hún ætlast til þess af yður, að þér standið trúan vörð um hin helgu vé, að þér leitist við að sýna bæði í orði og verki sanna fylgd við þær hug- sjónir, sem hafa fært henni mesta gæfu f 11 alda sögu, skap- að hennar hollasta veganesti og lyft anda hennar hæst. Is- lenzk þjóð á þess von, að þér af heilum hug og heilbrifeðri dóm- greind ihugið ábyrgð yðar sem leiðsögumenn og brautryðjend- ur til batnandi lífs. Henni er ekki sama hver viðmiðun yðar er, hún vill ábyrga afstöðu og hreina, en ekki hentistefnu um pólitiskar krókaleiðir í skugga valdsins. Hún vill að stefnt sé á Fögrudyr. Ég beini til yðar aðvörunar- orðum og heilræðum þjóð- skáldsins: „Þeir sem gefa þjóðum lög þurfa mikið veganesti, verða að skilja dulin drög, drauma fólksins, hjartaslög, bænir þess og bresti. Þeim er skylt að eygja í anda inn i framtíð sinna landa, miða þó sín miklu tök við manndóm sinn og æðstu Löggjafar sem lítið skilja [rök. lúta aldrei fólksins vilja, koma öllu á vonarvöl, verða sjálfir — þjóðarböl." En tslendingar, allir sem mál mitt heyrið. Það er þó ekki nóg, að við gerum kröfur til al- þingismanna okkar. Við verð- um að gera þær líka i eigin barm, hver einasti maður. Án okkar stuðnings og fylgdar eru þeir áhrifalitlir. En við allir sameinaðir undir sterkri stjórn þeirra, sem við höfum kjörið til forystu, við getum gert mikið þegar réttu leiðarljósi er fylgt. Ábyrgðina berum við í raun og veru allir, hver einasti ein- staklingur. Sifelld sjálfsgagnrýni er hverjum manni nauðsynleg og auðvitað ekki sízt þeim, sem með æðstu völd fer. Og hann hlýtur að velja sér viðmiðun, og vilji hann að hún stefni honum hærra, stækki hann og göfgi sem mann, þá hlýtur hann að velja sér það sem æðst er alls, manngildishugsjón hans, sem á nafn sitt letrað yfir hinum fögru dyrum. Þjóðskáldið, sem ég vitnaði til, það mælti einnig: „Sú bylting ein, sem bætir allra- [hag. er betri vilji, fegra hjartalag.“ „Hin innri bylting, blessun dauðlegs manns, mun brautir ryðja, stækka veröld hans.“ Islenzk þjóð stendur á alda- mótum. Við henni blasa viðar dyr og verkmiklar. Brautin mun þó ekki slétt eða of greið framundan. Ekki mun þar of mikið af silfri og gulli, en hins má þá minnast, að i trausti til hans, sem hver þingsetning hefur verið helguð, hefur ís- lenzk þjóð fetað hverja erfiða slóð og alltaf náð sigursæl sínu marki. Því segi ég enn með orðum textans: „1 nafni Jesú frá Nazaret, þá gakk þú.“ Gakk mót framtiðarinnar fögru dyr- um inn I nýja öld farsællar framtíðar íslenzkrar þjóðar. Já, „gakk þú heill að hollu [verki, heimta allt af sjálfum þér. Vaxa skal sá viljasterki, visna hinn, sem hlífir sér. Girð þig mætti orðs og anda efldu miskunn þinna handa, veit þeim hrjáðu vörn og likn. Aldrei skyldi löggjöf landa lúta valdafíkn. Guð blessi Aiþingi íslend- inga, hann blessi land og þjóð á framtíðarför. 1 Jesú nafni, amen. 'Mi V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.