Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 24

Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1974 Svona urðu beltisdýrin til „Þú verður slyngur sundkappi,“ sagði skjald- bakan. „Ég vil ekki standa þér að baki. Reyndu að losa svolítið um skelina að aftan og svo sjáum við til.“ Broddgölturinn losaði um skel skjaldbökunnar að aftan og skjaldbakan reyndi allt hvað af tók að skjóta út broddum og hringa sig í einn kút um leið eins og broddgölturinn gerir. „Gott!“ sagði broddgölturinn. „Reyndu ekki meira á þig strax. Þú blánar í framan. Komdu með mér að fljótinu og ég ætla að æfa þessi sundtök, sem þú segir að séu svo auðveld." HÖGGNI HREKKVÍSI Hann náði háa c-inu! Smásaga eftir Rudyard Kipling. Þýðandi Ingibjörg Jónsdóttir „Glæsilegt!" sagði skjaldbakan. „Æfingin skapar meistarann. Þú verður fyrirmyndar skjaldbaka. Viltu ekki annars losa um skelina að framan og ég ætla að reyna að skjóta upp kryppu eins og þú. Þá held ég, að hlébarðinn verði hissa!“ „Mjög gott!“ sagði broddgölturinn rennandi votur. „Þú minnir á einn ættingja minn. Næst reyni ég að fara i kaf. Svei mér, ef þú ert annars ekki farinn að geta sett fæturnar fyrir aftan hnakka. Svo eru skelplöturnar allar að losna í sundur af áreynsl- unni.“ „Og broddarnir á þér eru að mýkjast af vatninu,“ sagði skjaldbakan. „Þú ert ekki nærri því jafnlíkur þyrnirunna og áður.“ „Er það satt?“ sagði broddgölturinn. „Nú held ég, að hlébarðinn verði hissa!“ Þeir héldu æfingunum áfram og aðstoðuðu hvor annan til morguns. Þeir hvíldu sig ekki fyrr en sól var komin hátt á loft, en þá sáu þeir, að báðir höfðu breytzt. „Ég er ekkert líkur því sem ég var í gær,“ sagði skjaldbakan eftir morgunverð. „Nú stríði ég hlé- barðanum.“ „Mér þykja skeljar fallegri en broddar,“ sagði broddgölturinn, „og svo er gaman að kunna að synda. Hlébarðinn verður hlessa á tiðinni! Stríðum honum nú!“ Hlébarðinn var enn að sleikja aumu loppuna. Hann varð svo undrandi, þegar hann sá þá, að hann datt á rassinn. „Hvernig hefur móðir þín það í dag?“ spurði broddgölturinn. „Ágætt,“ sagði hlébarðinn. „Fyrirgefðu, en ég man ekki, hvað þú heitir.“ „Jæja,“ sagði broddgölturinn, „þú reyndir þó að taka kjötið úr skelinni á mér í gær.“ „Þú varst ekki með skel heldur brodda,“ sagði hlébarðinn. „Sko, loppuna á mér.“ ANNA FRA STÓRUBORO — SAGA FRÁ SEXTÁNDU OLD eftir Jón Trausta mannlega, en sjálfur drakk hann ekki svo, að honum sljóvg- aðist sýn. Mitt í drykkjuháreystinni stóð hann með blá- hvítar, samanbitnar varir og steinharðan svip og horfði og hlustaði. Ekkert orð fór fram hjá eyrum hans, enga minnstu hreyfingu sást honum yfir. — Einn maður var að minnsta kosti á þessu þingi, sem ekki var glaður að jafnaði, og það var Páll Vigfússon lög- maður. Honum hafði gengið margt mótdrægt hin síðari árin. Hann hafði verið rægðxnr og affluttur, nærri því ofsóttur opin- berlega. Það hafði tekið þungt á skap hans fyrir fám árum að þurfa að smala saman eiðmönnum með sér, að boði höf- uðsmannsins, og sverja tylftareið fyrir meira en tuttugu ára gamalt morðmál. Honrnn hafði verið gefið það að sök, að hann hefði, þegar hann var sveinn ögmundar biskups, riðið á spjótskaft Eyjólfs Kolgrímssonar, sem líka var biskups- sveinn, og orðið honum að bana. Þegar Páll hafði hreinsað sig af þessu með eiði, játaði prestur nokkur að hafa logiS upp sögunni. Páll' vissi vel, að hann hafði gert þetta að undirlagi óvina hans og öfundarmanna, og hann vissi líka, að þeir voru ekki af baki dottnir, þrátt fyrir þennan átakan- lega ósigur. Þeir mundu fitja upp á nýjum rógi. Stöðu sinnar vegna varð hann að stíga drykkjudansinn með hinrnn stórmennunum kringum höfuðsmanninn og hinn lög- manninn. Hann varð auk heldur að hafa boð inni sjálfur og bjóða til sín mönnum, sem hann hataði og fyrirleit, og veita þeim ríkulega; þaS verða állir höfðingjar áS gera. Hann varð að horfa upp á allt skottadinglið og fleðulætin og Júdasarkossana og standa mitt í róginum og baknaginu, svikráðunum og hrekkjabrugginu. Hann varð i einu orði sagt að lifa lífi, sem hann hafði andstyggð á, vegna þess að hann var lögmaður sunnan- og austanlands og vildi ekki af því láta að svo komnu. Hann varð að heiðra skálkana, svo að þeir skemmdu hann ekki, vitandi það, að þeir skemmdu hann samt. Hann varð að þola dylgjur og slettur með þögn og þolinmæði og sitja á skapi sínu eins og hann framast gat. Hann vissi vel, að hann var svarti sauðurinn í þessum stór- mennahóp og að ekki mátti mikið út af bera til að steypa honum í ónáð og óvirðingu. Ofan á þetta bættist sú sorg og raun, sem hann hafði af önnu systur sinni og gat ekki talað um við neinn mann á þessu þingi. Það var ekki sparað að nota dylgjurnar um framferði hennar fyrir keyri á hann. Menn vissu, að undan þeim svipuhöggunum sveið bonum mest. Nú var nýmæli mik- ið fyrir á þinginu. Nú átti svo sem almennilega að ganga milli bols og höfuðs á siðleysinu og lauslætinu í landinu. Nú átti að skríða til skara. Höfuðsmaður hafði nefnt tuttugu og fjóra menn í dóm til að dæma um siðferðisbrot og einkum blóðsifjar, og fengið dómsmönnum í hendur frumvarp, sem samið kvað vera úti í Danmörku og síðan snarað á íslenzku. Höfuðsmaður þóttist gera þetta eftir alíra hæstu undirlagi konungsins. Fjölda manna á þinginu stóð ógn og skelfing af þessum dómi, en framgangur málsins var fyrirfram tryggður með skipun dómsmannanna. Hver ykkar er það, sem lagði olfugeymi hér fyrir utan. Þú ert miklu klárari í spænsku en ég bjóst við, Siggi. PQLIUX Ég leyfi mér að kvarta yfir því, að flugan í súp- unni var köld. Gefið honum stærri skammt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.