Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 27

Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1974 27 Jórunn Hannesdóttir — Afmœliskveðja Áttatíu ára er í dag frú Jórunn Hannesdóttir Freyjugötu 15 I Reykjavík. Hún er fædd á Skíða- stöðum á Neðribyggð í Skagafirði 30. október 1894. Foreldrar hennar voru hjónin Hannes Pétursson og Ingibjörg Jóns- dóttir, sem þá bjuggu á Skíðastöð- um. Hannes var sonur Péturs Pálmasonar bónda í Valadal, síðar á Álfgeirsvöllum, og konu hans Jórunnar Hannesdóttur, en Ingibjörg var dóttir Jóns Eiríks- sonar á Þóreyjarnúpi í Linakra- dal, siðar ráðsmanns í Haganesi í Fljótum og konu hans Sigur- laugar Engilbertsdóttur. Að Jór- unni standa merkar ættir í báða liðu og tók hún í arf ýmsa beztu kosti forfeðra sinna og mæðra. Jórunn missti ung föður sinn og ólst upp á Skíðastöðum hjá móður sinni og stjúpa, Gfsla Björnssyni frá Kolgröf. Innan fermingar- aldurs dvaldist hún einn vetur á Bollastöðum i Blöndudal hjá frændfólki sínu, og milli ferm- ingar og tvítugs var hún einn vet- ur við nám í Reykjavík. Vorið 1914 verða þáttaskil i lífi hinnar ungu og glæsilegu konu. Þá flyzt hún í Mælifell og giftist það vor Jóni Sigfússyni (f. 15. nóv. 1892), prests á Mælifelli Jónssonar, og konu hans Guðríðar Petreu Þorsteinsdóttur. Ungu hjónin dvelja eitt ár á Mælifelli, flytjast þaðan í Glaumbæ og búa þar tvö ár, 1915 — 1917, flytja siðan aftur i Mælifell og eru þar við búskap til ársins 1919. Það sama ár lætur séra Sigfús af em- bætti, flytur út á Sauðárkrók og tekur þar við stöðu framkvæmda- stjóra Kaupfélags Skagfirðinga. Þvi starfi gegndi hann til æviloka. Ungu hjónin fluttust einnig bú- ferlum til Sauðárkróks árið 1919, keyptu húsið, sem nú er Aðalgata 13, og bjuggu þar unz Jón lézt, 28. ágúst 1957. Eftir að Jórunn og Jón fluttu til Sauðárkróks gerðist hann afgreiðslumaður hjá kaup- félaginu. Þótti hann mjög lipur í starfinu og drengur góður, prúð- ur og hæglátur i fasi, einstakt glæsimenni sem kona hans. Þótti eigi alllítill fengur fyrir kauptún- ið að þessar fjölskyldur gerðust borgarar þess. Sú sem þessar linur ritar átti því láni að fagna að kynnast all- verulega Ingibjörgu, móður Jór- unnar, á unglingsárum sinum, svo að henni brá ekki siðar, er hún kynntist Jórunni, dóttur hennar, hér heima á Sauðárkróki, hvað rausn og allan myndarskap varð- aði. Og þá er ekki siðri hin hliðin, sem við snúum ef til vill ekki alltaf að samferðamönnunum, því Jórunn átti svo mikið af andlegu atgervi, að eftir henni hlaut að verða tekið, og ég vona, að það glatist henni ekki þótt hún bæti einum tug ennþá við aldurinn. Jórunn hefur ríkulega þegið í vöggugjöf dýran fjársjóð og ávaxtað hann af trúnaði á langri vegferð. Þar er ekki átt við hinn veraldlega auð, sem telja mætti að flestir sæktust eftir í lífinu, og mun hún þó einnig þar hafa verið betur á vegi stödd en margur annar sökum hagsýni og dugn- aðar. Litla heimilið hennar að Aðalgötu 13 bar ætíð vott um snyrtimennsku húsráðenda. Þá ber ekki siður að minnast þess, hvernig hún ávaxtaði andlega hæfileika sína, frjálslyndi og hreinskilni i hvivetna. Jórunn er miklum gáfum gædd og fjölhæf- um að auk, félagslynd og glöð i góðra vina hópi, einnig trúkona i þess orðs fyllstu merkingu og bera bækur Kvenfélags Sauðár- króks þvi bezt vitni, hvern hug hún bar til kirkjunnar sinnar hér á staðnum, en í kvenfélaginu var hún virkur félagi og starfaði þar öll árin, sem hún bjó hér í bæn- um. Og ég hygg, að ég fari ekki með fleipur, þótt ég fullyrði hér, að hún hefur lengst félagskvenna setið þar I forsæti. Þau hjónin, Jórunn og Jón, eignuðust fjögur börn, sem nú eru öll búsett i Reykjavík. Þau eru sem hér segir: Ástrún, fyrri maður hennar var Sveinn Stein- dórsson frá Hveragerði, er hún missti eftir stutta sambúð; siðari maður hennarer Marteinn Sívert- sen húsasmíðameistari. Helga, gift Sveini Þorsteinssyni múrara, frá Stóru-Gröf í Skagafirði. Sig- fús, rafvirkjameistari, kvæntur Þórunni Friðfinnsdóttur úr Reykjavik. Herdís Kolbrún, gift Guðgeiri Magnússyni, blaða- manni. Eftir að Jórunn missti mann sinn árið 1957, fluttist hún til Reykjavikur með yngstu dóttur sína og son hennar ungan, sem segja má, að hún hafi verið fyrst í stað bæði amma og móðir, þar sem dóttirin vann utan heimilis allmörg ár, fyrst hér á Sauðár- króki og síðar í Reykjavík. Keypti Jórunn hæð í húsinu Freyjugötu 15, bjó þar fyrst með dóttur sinni og syni hennar, unz dóttirin gift- ist og stofnaði heimili. Nú um skeiö hefur heilsa Jórunnar ekki verið það góð, að hún gæti haldið eigið heimili, og eftir sjúkrahús- vist á síðastliðnu sumri fluttist hún heim til sonar síns og tengda- dóttur. Þá langar mig til þess að fara nokkrum orðum um margvísleg störf Jórunnar Hannesdóttur í þágu félags og menningarmála á Sauðárkróki. Ég hygg, að á því sviði hafi hún verið vel hlutgeng. En fyrstu minningarnar eru þó frá „barnaböllunum", sem kven- félagið, þessi fámenni hópur, er þá var, hélt upp úr jólum ár hvert yngstu borgurunum til handa og veitti þeim af rausn. Hefur sá siður verið á hafður svo Iengi sem munað er, og helzt enn. Til „barnaballanna" var hlakkað allt árið. Ég sé þær í anda, konurnar, vera að bera á borðin alls kyns góðgæti handa þessum ungu borg- urum og raða þeim sjálfum til sætis. Gleðin ljómar á litlu andlit- unum, og niðri I sal biður jólatréð ljósum prýtt. Ekki var nóg með, að þeim börnum einum væri boð- ið, sem höfðu aldur til að sækja þessi jólaboð, því ef einhvers stað- ar leyndist „krakki í koti“, sem farinn var að stíga fyrstu sporin, var honum sendur aðgöngumiði og eins móður eða ömmu til að gæta hans. Mér er ekki grunlaust um, að ennþá tóri neisti í brjósti fulltiða manns frá þessum fyrri jólaboðum kvenfélagsins. Að sjálfsögðu var allt, sem i magann fór, gefið af konunum, þvi ekki mátti snerta við rýrum sjóði félagsins í þessu skyni, hann hafi öðru og margþættu hlut- verki að gegna. Vonandi hneyksl- ar það enga kvenfélagskonu, þótt ég minnist Jórunnar þar i fremstu röðum, hvikrar og höfðinglegrar, að stjórna þessum barnaboðum, er ég horfi nú aftur til fyrstu búskaparára minna á Sauðárkróki, enda vorum við þá nágrannar. En við Jórunn áttum eftir að kynnast betur. Eftir að ég gekk í kvenfélagið var ég svo lánsöm að vinna með henni I stjórn þess nokkur ár, þegar hún var þar for- maður. Hún tók starf sitt alvar- lega og stýrði fundum af miklum skörungsskap, lagði ætið góðum málum lið, kannski eilitið íhalds- söm á sjóði félagsins, nema til gagnlegra hluta. En slikt hugar- far telst einnig til mannkosta hennar. Jórunn Hannesdóttir er Iistræn kona og ljóðelsk, enda hagmælt vel og ber gott skyn á skáldskap. I ætt hennar eru margir góðir hag- yrðingar og skáld. Hún starfaði i Leikfélagi Sauðárkróks mörg ár og þótti þar liðtæk i betra lagi. Hvort tveggja var, að leikmenntin virtist henni í blóð borin og hún. taldi ekki eftir sér að fórna nokkru af tíma sínum við æfingar og á sviðinu, eftir að dagsönn húsfreyjunnar var lokið. Mun hún einnig hafa átt þátt í að semja „reviu" ásamt öðrum í leik- félaginu; var hún sýnd hér i Sæluviku og þótti vel takast. Hér skal nú staldrað við. Þó vil ég taka mér bessaleyfi til að þakka afmælisbarninu öll störfin, sem unnin voru af fórnfýsi og dugnaöi við að styrkja góð mál- efni, þakka fyrir hönd félaganna, sem frú Jórunn studdi, og bæjar- félagsins i heild. Og að lokum: Drottinn blessi henni ævikvöldið. Hólmfriður Jónasd'óttir. Bátar til sölu 3—4 — 6 — 8 — 10—11 — 12 — 15 — 18 — 20 — 25 — 26 — 28 — 30 — 37 — 39—42 — 45—47 — 50 — 52 — 54 — 56 — 60 — 63 — 65 — 66 — 67 — 71 — 73 — 75 — 76 — 82 — 85 — 86 — 90 — 92 — 94 — 100 — 101 — 104 — 127 — 129 — 142 — 147 — 1 50 — 197 — 227 — 247 tonn Fasteignamiðstöðin Hafnarstræti 11, Sími 14120. Fawslff Fundur i Öldrunarfræðafé- lagi íslands verður haldinn fimmtudaginn 31. október kl. 20.30 I fundarsal Grundar. Gengið inn frá Brávallagötu. Fundarefni: Hjúkrunarmál. Félagar fjölmennið. Stjónin. Af sérstökum ástæðum er til sölu Bronco árgerð 1974, hálf-sport„ sérlega vel klæddur, 6 cyl., ekinn 10 þús. km. Upplýsingar ekki gefnar í síma, aðeins í sölu- skála. ** KR.KRISTJANSSDN H.F. II M R I) fl I fl SUÐURLANDSBRAUT 2, VIÐ HALLARMÚLA U IYI 0 U U I U S(MAR 35300 (35301 — 35302). GLÆPAMAÐUR FANN HEARST Los Angeles, 28. október. AP. FYRRVERANDI glæpamaður, Mickey Cohen, kveðst hafa haft upp á Patriciu Hearst, dóttur auðkýfingins og blaðakóngsins, og félögum hennar úr Symbíónesfska frelsishernum f Cleveland I Ohio en ráðlagt þeim að flýja þaðan. Cohen sagði f viðtali við AP, að ungfrú Hearst hefði komið sér vel fyrir f blökkumanna- hverfinu f Cleveland. Hann tel- ur, að hún hafi búið þar ásamt félögum sínum, William og Emily Harris, þar til fyrir 13—14 dögum. Foreldrar ungfrú Hearst báðu Cohen að finna stúlkuna fyrr í þessum mánuði en þótt hann segist hafa gert þeim þann greiða hafi hann ráðlagt henni að fela sig aftur tii þess að komast hjá þvi að lenda I fangelsi. Aðspurður hvort hann vissi hvar hún væri núna niðurkom- in sagði Cohen, að hann hefði alls enga hugmynd um það og hefði ekki áhuga á að vita það. Cohen kveðst hafa aflað sér vitneskju um dvalarstað ung- frú Hearst gegnum sambönd, sem hann hafi f undirheimun- um. Glæpamenn hafa fengið áhuga á hvarfi hennar vegna 50.000 dollara verðlauna, sem hefur verið heitið fyrir upplýs- ingar um hana. Athugasemd vegna umbúða- samkeppni Þar sem birzt hafa að undan- förnu í fjölmiðlum fréttir um úr- slit í umbúðasamkeppni Félags fslenzkra iðnrekenda vil ég sem formaður Félags grafískra teikn- ara (sem er samningsaðili við þrjár stærstu auglýsingastofur hér I borg) leiðrétta og koma á framfæri réttum höfundum þeirra umbúða sem verðlaun hlutu, en ekki var getið af hálfu auglýsingastofanna. í 5. grein i samningi Félags grafiskra teiknara og auglýsinga- stof anna segir orðrétt: „Auglýsingastofurnar skulu gæta þess að höfunda sé ávallt getið um leið og nafn fyrirtækis- ins er nefnt, þegar tilkynningar koma á verkum stofanna í fjöl- miðlum og víðar.“ 1. Höfundur ostaumbúða, sem verðlaun hlutu, er Friðrika Geirs- dóttir teiknari F.I.T., Auglýsinga- stofa Kristínar. 2. Höfundur möppu fyrir Ice- land Review, sem verðlaun fékk, er Þóra Baldursdóttir, Teiknari F.I.T., Auglýsingastofan h.f. 3. Höfundar að útliti á áburðar- pokum, sem verðlaun hlaut, eru Sigurþór Jakobsson, teiknari F.I.T. ogGisli B. Björnsson, teikn- ari F.I.T., Auglýsingastofan h.f. Þetta er tekið fram vegna þess misskilnings sem gætir i rikum mæli hjá þorra fólks og fyrir- tækja, sem skiljanlegur er, þvi þegar verðlaun hafa verið veitt, bæði fyrir merki og umbúðir, undanfarin ár, hefur oftast verið eingöngu getið viðkomandi aug- lýsingastofu, en ekki höfunda verksins. Því hefur oft mátt ætla að verkið sé unnið af öðrum aðila en raunverulegum höfundi þess. F.h. Félags grafískra teiknara, Sigurþór Jakobsson. ^ |Kor0iinl)Iðbib f^mnRCFMDnR I mnRHno vohr Vió álítum aó okkar bíll sé betri en þinn Simca 1100 Special SIMCA SIMCA 1100 hefur náS verulegum vinsældum hér á landi, sem og I flest öllum öSrum löndum í fjórum heimsálfum. SIMCA 1100 SPECIAL er glæsilegur 5 manna bfll f sérflokki. — SIMCA 1100 er vandaSur, traustur, spameytinn, lipur og sérstaklega styrktur fyrir fslenzka vegi og veSurfar. — SIMCA 1100 er traust ökutæki fyrir vegi og vegleysur. — SIMCA 1100 SPECIAL er fáanlegur 2ja eSa 4ra dyra, meS fimmtu hurSina aS aftan, þ.e.a.s. einskonar station-bfll. TryggiS ykkur SIMCA 1100 strax f dag. Ifökull hf. ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK Sími 84366.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.