Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 28

Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 28
RUGIVSII1GRR <gt*-»22480 flUGLVSIRGRR <£l<r-w22480 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1974 Gengið til Alþingishússins að lokinni Guðsþjónustu I Dómkirkjunni. Frá vinstri: Halldóra Eldjárn forsetafrú, séra Þórir Stephensen, Geir Haligrfmsson forsaetisráðherra, Gylfi Þ. Gfslason, forseti Sam- einaðs Alþingis, Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra, Matthfas Bjarnason sjávarútvegsráðherra, Einar Ágústsson utanrfkisráðherra, Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra og Matthfas Á. Mathiesen fjármálaráðherra. Ljósmynd Mbl. ÖL K. M. Særún á Biönauósi: Krefur ríkissjóð um 15 millj. kr. í skaðabætur RÆKJUVERKSMIÐJAN Særún h.f á Blönduósi, sem aldrei hefur tekið til starfa, hefur nú lagt fram skaðabótakröfu á hendur rfkissjóði vegna aðgerða sjávarút- vegsráðuneytisins, en það leyfði ekki, sem kunnugt er, rækjulönd- un á Blönduósi. Hljóðar skaða- Áherzla lögð á að ná Port Vale á flot MENN frá varðskipinu Árvakri fóru um borð f togarann Port Vale f gær og dældu þeim sjó úr skipinu, sem komizt hafði f það. Mun þetta verk hafa gengið sæmi- lega og er nú enginn sjór f þvf. Togarinn hefur færst til um eina 300 metra á strandstaðnum og sandur hefur aðeins hlaðist að honum. Um helgina er stærsti Aftur síldar- löndun á Hornafirði Höfn Hornafirði, 29. okt. FJÓRIR bátar lönduðu hér sfld f dag: Akurey var með 112 tunnur, Steinunn með 32 tunn- ur, Anna með 60 tunnur og Jóhannes Gunnar með 73 tunnur. Fleiri bátar voru ekki á veiðum f dag, en enn eru mikil vandkvæði á veiðum vegna ágangs höfrunga á miðunum. — Elfas. straumur og mun þá að lfkindum verða reynt að draga togarann út, ef veður leyfir. Geir Zoéga, umboðsmaður brezkra togara á Islandi, sagði í samtali við Morgunblaðið i gær, að eftirlitsmaður frá trygginga- félagi togarans, Burrel að nafni, væri nú kominn til landsins. Hann hefði tjáð sér við komuna að mikil áherzla yrði lögð á að ná togaranum á flot, en Port Vale er tryggður hjá tryggingafélagi Sam- bands brezkra togaraeigenda, en þar eru allir brezkir togarar tryggðir. Burrel mun fara til Egilsstaða í dag og halda þegar á strandstað. Geir sagði, að það sem helzt stæði í veginum fyrir björgun tog- arans, væri skortur á hentugum tækjum á Héraðssandi og eins vantaði gott dráttarskip, en varð- skipin kæmu þar helzt til greina. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landheigisgæziunnar sagði, að það færi sennilega að mestu eftir veðri, hvort tækist að draga Port Vale á flot. Komið hefði i ljós, að töluvert langar grynningar væru út frá skipinu, og því væri ekki vitað hvernig gengi að draga það út. bótakrafan upp á um 15 millj. kr., en þar af er þá reiknaður 11 millj. kr. hagnaður f 5 ár. Morgunblaðið hafði samband við Óttar Ingvason, lögfræðing Særúnar, og innti frétta af skaða- bótakröfunni og aðdraganda. Hann kvað kröfuna hljóða upp á 15 millj. kr. og væru þó ekki öll kurl komin til grafar. Bótakröf- una kvað hann skiptast þannig að útlagður kostnaður væri um 5 millj. kr. áætlaður hagnaður um 11 millj. kr. á þeim 5 árum sem leigusamningurinn á vélunum reiknar með að þær séu nýttar og ef ekki tekst að selja vélarnar taldi Óttar að krafan kynni að hækka. Sagði Óttar að áætlaður rekstur hefði verið miðaður við þrjá báta og öll aðstaða til rækju- vinnslu á Blönduósi væri mjög hagstæð, því allur búnaður utan sjálfra rækjuvélanna væri til Framhald af bls. 16 Þingsetning í gær 96. löggjafarþing Islendinga var sett f gær með hefðbundnum hætti. Þingmenn gengu til kirkju ásamt forseta tslands og biskupn- um yfir tslandi um kl. 13.30. Þórir Stephensen dómkirkju- prestur predikaði og er ræðu hans getið sérstaklega á bls. 3 f blaðinu f dag. Að lokinni guðs- þjónustu hófst fundur f sam- einuðu Alþingi. Forseti tslands, herra Kristján Eldjárn. las for- setabréf um samkomulag Alþing- is og sagði 96. löggjafarþingið sett. Hann lauk máli sfnu á þessa leið: „Býð ég yður öll velkomin til þings og læt í Ijós þá ósk og von, að þing megi takast giftursamlega Félagsheimilið Hlaðir brennur Akranesi 29. okt. (JTKALL var hjá slökkviliði Akraness að Félagsheimilinu Hlöðum á Hvalfjarðarströnd kl. 02,30 f nótt. Slökkviliðið fór með einn slökkvibíl og tvær lausar dælur. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var þak hússins fallið. Stutt var I næsta vatnsból og fékkst þar nægilegt vatn fyrir slökkvitækin. Búið var að slökkva eldinn að mestu eftir tvo tíma. Veður var slæmt, sunnan stormur og rigning. Veggir standa enn lítið skemmdir, en að öðru leyti brann allt sem brunnið gat. Veg- farandi í bíl varð eldsins var. Ekki er með vissu vitað um elds- upptök, en menn gizka á að þau hafi verið í hitunarkerfi hússins, sem er svokallað blásturskerfi. Húsið stendur á milli Saurbæj- ar og Ferstiklu ekki langt frá Hallgrfmssteini. I Hlöðum voru haldnar ýmsar skemmtanir, dansleikir og annað í félagslífi fólks sem kom þarna saman i blíðu og stríðu. — Júlfus. Kanna vatna- svæðið við Geitháls „ÞETTA mál verður ekki afgreitt á næstunni, því það á að fara fram víðtæk rannsókn á vatnasvæðinu þarna á næstu 2—3 mánuðum," sagði Matthías Bjarnason heil- brigðisráðherra þegar Morgun- blaðið innti frétta af því hvort ráðuneytið myndi leyfa nýbygg- ingu BP bensínstöðvarinnar við Geitháls. Sagði ráðherra að vatns- veitustjórinn í Reykjavfk myndi sjá um framkvæmd þessarar rannsóknar, en hann hefur yfir- umsjón með þessu svæði. og verða landi og lýð til blessun- ar.“ Að loknu máli forsetans risu þingmenn úr sætum og hylltu for- seta og fósturjörð. Aldurforseti þings, Guðlaugur Gfslason, stýrði fundi. Flutti hann minningarorð um Björn Ólafsson, fyrrverandi ráðherra og þing- mann. Birtast þau í heild hér í blaðinu í dag. Að lokinni athugun á kjörbréf- um varaþingmanna og samþykkt þeirra var þingfundi frestað til fimmtudags, en þá verða væntan- lega kjörnir forsetar sameinaðs þings og þingdeilda. Ók á 2 bíla og stakk svo af UM klukkan 3,15 aðfararnótt sunnudagsins 20. október s.I. ók bifreið á 2 bfla á Framnesvegi. Ekki sá bílstjórinn ástæðu til að stöðva bfl sinn, heldur ók hið snarasta á brott. Hefur rann- sóknarlögreglan hug á að ná tali af manninum. LeigubíH ók suður Framnesveg. Á móts við Öldugötu mætti hann bíl með háum Ijósum, og skipti engum togum, að hann ók rakleitt á leigubílinn og strax á eftir á mannlausan bfl við Framnesveg 12. Urðu töluverðar skemmdir á báðum bílunum. Ökumaður leigu- bifreiðarinnar heldur því fram, að þetta hafi verið blár amerískur fólksbíll með svörtum vinyl-toppi. Er hann að öllum lfkindum illa útleikinn vinstra megin að fram- an. Þeir sem geta einhverjar upp- Framhald af bls. 16 NTB-mál- ið leyst „Okkur barst skeyti frá Noregi f dag þar sem beðið var um að við staðfestum vilja til þess að sendir NTB færi aftur f gang og við sendum jákvætt svarskeyti um hæl,“ sagði Birgir Thorlacius ráðneytis- stjóri f menntamálaráðuneyt- inu f gær þegar við leituðum frétta af NTB málinu. Rfkisstjórn Noregs mun þá hafa fallið frá að sett yrði trygging fyrir greiðslum, en samkvæmt upplýsingum frá fréttaritara Mbl. f Osló, Agúst Jónssyni, vissi rfkisst jórnin ekki af stöðunni f þessu máli fyrr en stórþingsmaðurinn Tönnes M. Andersen reifaði þetta mál f norska stórþinginu fyrir nokkrum dögum. NTB ætti þvf að fara f gang f dag, þ.e. ef fleiri hnútar myndast ekki f embættismannakerfinu. Aukin aðsókn í leikhús og bíó Er skýringin lokun Keflavíkursjónvarps- ins eða lélegt íslenzkt sjónvarp? MJÖG góð aðsókn hefur verið að leikhúsum og kvikmyndahúsum borgarinnar nú f haust og fyrir- sjáanleg aukning miðað við sama tfma f fyrra. Forráðamenn þess- ara húsa hafa leitt hugann að þvf hvað valdi og telja sumir að þetta eigi rót sfna að rekja til lokunar hermannasjónvarpsins á Kefla- vfkurflugvelli, aðrir til þess hversu lélegt fslenzka sjónvarpið hafi verið, auk þess sem ætla megi að verkefna- og myndaval húsanna f haust ráði hér ein- hverju um. „Ég man varla eftir öðru eins, það er alltaf fullt hjá okkur bæði uppi I aðalsal og niðri í kjallara," sagði Klemenz Jónsson hjá Þjóð- leikhúsinu, er Morgunblaðið bar þetta undir hann. Halldór Orms- son, sem er yfir aðgöngumiðasölu Þjóðleikhússins staðfesti þetta og taldi ekki fráleitt að setja mætti aukna aðsókn í sambandi við lokun hermannasjónvarpsins, þvi áður hefði verið komið fram i aðsókninni að íslenzka sjónvarpið hefði verið hætt að hafa þar áhrif á. Halldór kvaðst einnig verða greinilega var við aukna aðsókn fólks úr bæjum og þorpum í ná- grenni Reykjavíkur — bæði af Suðurnesjum og fyrir austan Fjall — sem hefðu þó verið innan þess svæðis er hermannasjón- varpið náði til og að það hleypti Framhald af bls. 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.