Morgunblaðið - 12.11.1974, Side 3

Morgunblaðið - 12.11.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1974 3 Kollabúðir < Kolabúðir Odáðahraun < Ordauðahraun — frá fyrirlestri Þórhalls Vilmundarsonar S.l. sunnudag flutti Þórhallur Vilniundarson prófessor fyrirlest- ur á Sögusýningunni á Kjarvalsstöðum, en fyrirlesturinn nefndi hann „Af sængurkonum og landnámsmönnum". Fjölmenni var viðstatt fyrirlesturinn, cnda hafa kenningar Þór- halls um þetta efni vakið athygii og orðið tilefni skoðanaskipta frá því þær komu fyrst fram. 1 fyrirlestrinum f jallaði Þörhallur um f jölda torskilinna örnefna, — ekki sízt örnefni, sem talin hafa verið dregin af nöfnum landnámsmanna og annarra fyrstu ábúenda, og varpað fram nýjum skýringum á nöfnunum með hliðsjón af náttúrufari eða búskapar- háttum. Sem dæmi nefndi hann, að sennilega væru Hauksstaðir á Jökuldal í rauninni Haugsstað- ir (af haugum eða jökulruðn- ingi), Finnsstaðir i Kinn og í Eiðaþinghá Fensstaðir (af mýrarfeni), Mýlaugsstaðir Mýlastaðir (af mýlum, þ.e.a.s. kúlumynduðum gervigígum), Hugljótsstaðir væru Huglar- staðir (af hugl i merkingunni hóll). Þá taldi hann, að Údáðahraun hefði sennilega heitið Ördauða- hraun (í merkingunni úrdauða- hraun þ.e. steindauðahraun, vegna gróðurleysis), Goðdalir hefðu heitið Góðdalir (vegna góðrar beitar og/eða góðra veðurskilyrða) og KoIIabúðir í Þorskafirði Kolabúðir (bæki- stöð kolagerðarmanna). Meðal þeirra dæma, sem Þór- hallur tók, var Sængurfoss i Mjóafirði, sem nú er á dagskrá, vegna þess, að þar standa yfir virkjunarframkvæmdir á veg- um Jóns Fannbergs. Sú sögn hefur fylgt því nafni, að eitt sinn hafi bóndi nokkur, sem leið átti hjá fossinum á ferð vestur yfir Glámu, misst sængurföt sin i fossinn, og foss- inn eftir það verið nefndur Sængurfoss. Þórhallur taldi þá skýringu tortryggilega og benti á, að í islenzku var fyrrum til sögnin að sangra, sem einnig er til i norsku og sænsku. Að sangra merkir að syngja eða söngla, en alþekkt er, að fossa- Nýjar skýringar á örnefnum — ný þekkingar atriði í sögu þjóðarinnar nöfn eru oft dregin af foss- hljóðinu, sbr. Dynjandi og Glymur, og i Noregi er til Þórhallur Vilmundarson prófessor Sangfossen. Þess vegna taldi Þórhallur sennilegt, að Sængurfoss hefði upphaflega heitið Sangurfoss. Þórhallur sagðist í lokin vilja bera það af sér, að hann væri með þessum rannsóknum að drepa landnámsmenn. Þeir væru allir hver á sínum stað. Aðeins væri um það að ræða, hvaó þeir hefðu heitið. Hann spurði, hvort miklu væri tapað, þótt við yrðum að láta af þeirri trú, að Kolli hefði numið Kolla vík eða Dýri Dýrafjörð, og hvort það væri ekki meiri ávinningur, ef menn kæmust að þeirri niðurstöðu, að Kollabúð- ir hefðu heitið Kolabúðir, vegna þess að þar hefði verið bækistöð kolagerðarmanna að fornu. Það yrði þá nýtt þekk- ingaratriði í atvinnusögu þjóó- arinnar. Vígdís Jónsdóttir skólastjóri flytur erindi um mataræði tslendinga og almenningsfræðslu á sviði matvæla- og næringarfræði. Nær eru f undarstjórinn. Baldur Johnsen, og ritari, Pálmi Stefánsson. Ráðstefna um matvælaeftirlit: Eiturefni í mat æ tíðari. Þungamálms- mengun áhyggjuefni HÉR á landi er áburðareftirlit, fræ- og fóðureftirlit, en algjör- lega ófullnægjandi matvælaeftir- lit og er slíkt furðulegt ástand, sagði dr. Sigmundur Guðbjarna- son, prófessor, í setningarávarpi sír.u á ráðstefnu um matvæla- eftirlit á lslandi, sem hófst í gær á vegum efnafræðideildar V'erk- fræðingafélags islands og Efna- fræðistofu Raunvfsindadeildar H.I. Tilgangur hennar er að gera úttekt á matvælaeftirliti á Ís- landi, þ.e. kanna ástandið eins og það er í dag og ræða nauðsynlegar breytingar á tilhögun matvæla- eftirlits. i þeim tilgangi var boðin þátttaka flestum þeim aðilum, er hafa hagsmuna að gæta, stjórn- völdum, sérfræðingum, er stunda matvælarannsóknir eóa eftirlit, fulltrúum framleiðenda og neyt- enda og fuiltrúum heilbrigðis eftirlitso.fi. — Þeir þættir matvælaeftirlits, sem unnt hefur verið að sinna, þ.e. eftirlit dýralækna með slátur- og mjólkurafurðum og eftirlit gerlafræðinga með gerlamengun og sóðaskap eru ómetanlegir, sagði Sigmundur í ávarpi sínu. En betur má ef duga skal. Aðstaða og afkastageta gerlarannsókna eru ófullnægjandi og skortur á aó niðurstöður þeirra sé veitt verð- skulduó athygli. Enn þann dag i dag verður t.d. stór hluti ísl. þjóð- arinnar að sætta sig við gerla- mengað vatn, en tært er vatnið. Framhald á bls. 39 A að setja gosbrunn í Tjörnina? TJÖRNIN í Reykjavík er að dómi Reykvíkinga augasteinn borgar- innar. Menn muna allt það fjaðra fok og undirskriftir, er ákveðið var að reisa ráðhús f norðurenda Tjarnarinnar. Nú eru sumir þeirrar skoðunar að setja skuli niður á þeim stað, sem fyrirhugað var að reisa ráðhús, gosbrunn, sem Luth- er I. Replogle seridiherra Banda- ríkjanna á íslandi á árunum 1969 til '72, gaf Reykvíkingum. Morgunblaðið ræddi við nokkra Reykvíkinga um staðarval gos- brunnsins og sýndist sitt hverjum eins og eftirfarandi gefur til kynna: Birgir ísleifur Gunnarsson, borgarstjóri, sagði, að staðsetning gosbrunnsins væri ekki endanleg og ekki væri um frambúðarstaðsetn- ingu að ræða Ráðgert hafði verið að setja gosbrunninn niður síðla hausts, en afhending tækja í hann dróst þannig að ekki gat orðið af því. Því yrði ekkert af uppsetningu fyrr en væntanlega næsta vor. Birgir sagði, að gosbrunnurinn væri hugsaður sem mannvirki á eins kon- ar fleka, sem stungið væri niður með staurum í botn Tjarnarinnar, en tekinn upp á veturna Því yrði aðeins um sumarbrunn að ræða, þar til lóð Norræna hússins hefði verið skipu- lögð endanlega en Birgir kvað áhuga hafa verið á að setja gos- brunninn niður þar. Hann kvað enga endanlega ákvörðun hafa verið tekna um framtíðarstað brunnsins Aðspurður um ráðhússbygginguna við norðurenda Tjarnarinnar sagði Birgir ísleifur: ,,Það má segja, að samþykktin um staðsetningu ráð hússins hafi ekki formlega verið felld úr gildi Hún mun nú verða tekin til endurskoðunar í sambandi við endurskoðun skipulagsins, en ég held, að í raun séu menn horfnir frá henni.” Sigurður Þórarinsson, jarðfræð- ingur birti í Morgunblaðinu á laugardag bréf, sem hann hefur rit- að borgarráði. Þar mótmælir hann eindregið staðsetningu gosbrunns- ins og segir, að forða verði umhverfi Tjarnarinnar frá ,,hvers kyns billegu prjáli, sem stingur í stúf við núver- andi smekklegt látleysi þess ” Vigdís Finnbogadóttir, leikhús- stjóri Leikfélags Reykjavíkur, sagði, að sú hugmynd að setja gosbrunn í Tjörnina ylli sér talsverðum sárs- auka. ,,Ég er Reykvíkingur og hef mikið hugsað um Reykjavík, en ég á ákaflega bágt með að hugsa mér gosbrunn á þessum stað Mér finnst hann fara illa þarna og ég vil geta séð Tjarnargötuhúsin og Iðnó í sínu náttúrulega umhverfi en ekki í gegn- um upplýstan gosbrunn. Þætti mér því vænt um ef þetta mál yrði endur- skoðað og hann ekki settur þarna niður.'' Vigdís sagði ennfremur að margir aðrir staðir kæmu til greina Hún benti t.d. á, að verið væri að skipu- leggja nýjan miðbæ. Þar yrði torg og fannst henni vel til fundið að hafa slíkan gosbrunn á torgi, sem gert væri af mannahöndum, en hún sagði, að ekki mætti taka fram fyrir hendurnar á náttúrunni Þá sýndist henni ekki unnt að leysa vandamálið með gosbrunn í Reykjavík, þar sem oftast væri rok Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, sagði í viðtali við Mbl., að þótt gosbrunnar væru yfirleitt notaðir í suðrænum löndum til þess að kæla loftið, þá hefðu gosbrunnar a.m.k. tvenns konar annað hlutverk, það að skapa hreyf- ingu, þeir hafa ákveðið form eða skulptur og gefa frá sér hljóð. Gestur sagði: ,,Þess vegna finnst mér þeir eiga fullan rétt á sér t d. í borg eins og Reykjavík. Ég hef heyrt grófar hugmyndir um staðsetningu hans, en mér finnst staðsetningin mjög koma til álita og þá einnig hvernig honum verður komið upp " Gestur sagði, að gosbrunnur í Tjörn- inni gæti verið mjög jákvæður ef tekið væri tillit til aðstæðna við gerð hans. Vilhjálmur Þ. Gíslason, formaður Reykvíkingafélagsins, sagði, að þessi hugmynd hefði fyrir allmörg- um árum komið upp innan félags- ins. Hefði þá verið rætt um norður- enda Tjarnarinnar. Um þennan ákveðna stað sagðist Vilhjálmur ekki vera viss, en fljótt á litið sagði Vil- hjálmur, að sér fyndist eins gott ef ekki betra að hafa hann við enda Lækjargötunnar. Þar hefðu hug- myndir innan félagsins gert ráð fyrir staðsetningu gosbrunnsins. Ef hann yrði þar sæist hann mun víðar að en í víkinni við Iðnó Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar sagðist persónu- lega vera mjög mikið á móti gos- brunninum og hann kvaðst alla tíð hafa verið það Hins vegar sagðist hann ekki hafa verið spurður álits á uppsetningu gosbrunna í mörg ár Hafliði sagði: ,,Ég tel. að þessi gos- brunnahugmynd eigi ekki rétt á sér hér á landi Gosbrunnar eru kælingartæki fyrir þá, sem sunnar búa í álfunni Ástæðan fyrir, að fólk vill gosbrunna, er, að því þykir gam- an að láta sprauta upp í loftið, en mjög óskemmtilegt yrði að fá gos- brunn í Tjörnina." Hafliði gat þess, að aðeins yrði unnt að hafa gosbrunninn í gangi yfir hásumarið því að erfitt yrði sjálf- sagt að verja viðkvæm tæki gos- brunnsins fyrir t d klaka. Þá gat Hafliði þess, að sér fyndist miklu nær að láta setja upp í borgarland- inu lækjarsprænur eða fossa Af slfk- um fyrirbærum væri ekkert í borgar- landinu, en hann kvað Reykvíkinga vera ákaflega vel setta í borgarland- inu. Það væri lifandi og það skemmtilegt og þar þyrfti ekkert gervi. Hafliði sagði jafnframt, að erfitt væri að hafna góðum gjöfum og vel meintum Því kvaðst hann ekki hafa viljað snúast gegn þessu Hörður Ágústsson, listmálari, sagðist ekki hafa hugleitt staðsetn- ingu gosbrunnsins neitt að ráði, en ef tilfinningarnar réðu afstöðu hans sagðist hann vera algjörlega á móti staðsetningunni Hörður sagði, að þessu máli svipaði mjög til vand- ræða, sem væru með kirkjur lands- ins. ..Það er alltaf verið að gefa kirkjum og aldrei spurt að því, hvort gjafirnar passi í þær Þetta spillir þeim oft mjög mikið, en er auðvitað gert af góðum hug Þvi er oft erfitt fyrir sóknarnefndirnar og í þessu tilfelli kannski fyrir borg- ina að neita að taka við slikum gjöfum En fara verður mjög varlega í slíkt sem þetta ' Hörður sagði, að á meðan ekki væri full- gengið frá friðunartillögum hans og Þorsteins Gunnarssonar, arkitekts um verndun Tjarnarinnar. væri í raun ekki-hægt að taka ákvörðun sem þessa Gosbrunnur í Tjörninni sagði Hörður að væri hálftilgerðar- legt tiltæki Elfn Pálmadóttir, formaður um- hverfismálaráðs Reykjavíkurborgar Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.