Morgunblaðið - 12.11.1974, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.11.1974, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974 Snarpar umræður um ráð- stafanir í sjávarútveginum Fundir í báðum þingdeildum Fundir vóru í báðum þingdeild- um í gær. t efri deild vóru á dagskrá frumvarp tii breytinga á lögum um almannatryggingar, þ.e. um ferðakostnað sjúklinga, er þurfa að sækja læknismeðferð um langan veg, og frumvarp um heimildir til að setja á fót vinnslustöðvar í sjávarútvegi. 1 neðri deild var á dagskrá frum- varp til staðfestingar á bráða- birgðalögum um ráðstafanir í sjávarútvegi. Helgi F. Seljan (framsögu- maður), (K), Jón Arnason (S) og Oddur Ólafsson (S) tóku til máls í umræðu um fyrra dagskrármál efri deildar. Efnislegar deilur urðu ekki um frumvarpið. Hins- vegar kom fram, að eðlilegt hefði verið, að flutningsmaður hefði flutt það fyrr, þ.e. í tið vinstri stjórnarinnar, meðan ráðherra Alþýðubandalagsins stýrði þess- um málaflokki. Steingrímur Hermannsson (F) talaði fyrir frumvarpi sínu um vinnslustöðvar í sjávarútvegi, sem gerir ráð fyrir því, að ekki megi setja á fót nýjar vinnslu- stöðvar í þeim greinum i sjávarút- vegi, sem háðar eru aflatakmörk- unum, nema með sérstökum Lagðar voru fram þrjár þings- ályktunartillögur á Alþingi f gær. Keflavíkursjónvarp. Albert Guðmundsson (S) endurflytur þingsályktunartil- lögu, er hann flutti á sumarþing- inu og þá fékk ekki fullnaðaraf- greiðslu. Tillagan gerir ráð fyrir því að feia ríkisstjórninni að leyfa hindrunarlaust útsendingu sjón- varpsstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli, og afnema þar með tak- mörkun á styrkleika útsendinga og breytingar á útsendingargeisl- um stöðvarinnar. Jafnframt að fela ríkisstjórninni að láta fara fram athugun á því, hvaða mögu- leikar eru til staðar fyrir ísland að komast í beint samband við útsendingar erlendra sjónvarps- stöðva, gegnum alþjóðleg fjar- skiptakerfi, og öflun upplýsinga um kostnað við slíkt framtak, sem og aðrar tæknilegar framfarir i þróun sjónvarps, er leitt geti til meiri gagnsemi fyrir landsmenn alla. Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) o.fl. þingmenn Sjálfstæðis- flokksins flytja þingsálykumartil- lögu um bætt skilyrði til viðtöku hljópvarps- og sjónvarpssendinga. Tillagan gerir ráð fyrir því, að ríkisstjórriin, i samráði við Ríkis- útvarpið, láti vinna kostnaðar- og framkvæmdaáætlun í þessu efni, þannig að sendingar geti náð sem greiðast til landsmanna allra, hvort sem er í byggðum landsins eða á fiskimiðum umhverfis það. í því sambandi sé athugað, hvort ekki sé rétt að ákveða afnotagjöld með tilliti til þess, að föstum hundraðshluta þeirra sé jafnan varið tíl dreifikerfis hljóð- og sjónvarps. Jafnframt sé ríkisstjórninni fal- ið að hlutast til um, að Ríkisút- varpið korni upp endurvarps- stöðvum fyrir þá sveitabæi, er njóta slæmra eða engra sjón- varpsskilyrða. Sérstakt fjármagn verði útvegað i þessu skyni og stefnt verði að því að fram- kvæmdum ljúki innan tveggja ára. Stefán Jónsson (K) flytur leyfum sjávarútvegsráðuneytis. — Að loknum umræðum var báð- úm frumvörpunum vísað til 2. umr. og viðkomandi þingnefnda. Ráöstafanir í sjávarútvegi Matthfas Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, gerði í ítarlegu máli grein fyrir frumvarpi um ráðstafanir í sjávarútvegi, sem flutt er til staðfestingar bráða- birgðalögum um sama efni, sem þingsíða Morgunblaðsins hefur áður rakið. Frumvarp þetta felur í sér fjögur meginatriði: 1) Há- markshækkun á fiskverði til ákveðins tfma, 2) tilfærslu á fjár- munum f sjávarútvegi til stuðn- ings þeim greinum, sem bjuggu við verstan rekstrargrundvöll, 3) breytingu ákvæða um verðjöfn- unarsjóð og4) ákvæði um ráðstöf- un á gengishagnaði afurða, sem unnar vóru fyrir gengislækkun en fluttar út eftir hana. Ráðherr- ann vitnaði í niðurstöður á athug- unum Þjóðhagsstofnunar á rekstrarstöðu greina sjávarút- vegs, sem umræddar ráðstafanir vóru m.a. byggðar á. Lúðvfk Jósepsson (K) deildi hart á frumvarpið að öðru en því, að hann kvaðst sammála 3. gr. frumvarpsins, sem fjallar um þíngsalyktunartillögu þess efnis, að ríkisstjórninni verði falið að festa kaup á húsakosti einstakl- inga í Flatey á Skjálfanda, þeirra, sem selja vilja, og gera ráðstafan- ir tíl þess, að þessum eignum verði haldið við, svo að verstöðin, eyjan með gögnum og gæðum, sé tiltæk til fullra nytja. LAGT var fram á Alþingi f gær stjórnarfrumvarp um samræmda vinnslu sjávarafla og veiðar, sem háðar eru sérstökum leyfum. Frumvarpið hljóðar svo: 1. gr. Sjávarútvegsráðuneytið getur samkvæmt lögum þessum sett al- mennar og svæðisbundnar regl ur, er stuðli að samræmingu milli veiðiheimilda samkvæmt sérstök- um leyfum ráðuneytisins til rækju- og skeifiskveiða og vinnslugetu þessarra gfeina fisk- iðnaóarins, meðal annars með skiptingir afla milli vinnslustöðva og/eða þeirra báta, sem veiðileyfi hljóta. 2. gr. i þeim greinum veiða, sem háðar eru sérstökum leyfum samkvæmt 1. gr., skal leita leyfis sjávarútvegsráðuneyt- isins til að koma á fót vinnslu- stöðvum eða til aukningar á afkastagetu þeirra sem fyrir eru. Ráðuneytið getur synjað um slík leyfi, ef ekki er fyrirsjáanleg varanleg aflaaukning á viðkom- andi svæði né samdráttur í starf- semí annarra vinnslustöðva á svæðinu. Opinberum fjárfestingarlána- sjóðum skal tilkynnt um synjun slíkra leyfa. 3. gr. Ráðherra getur sett nánari fyr- irmæli um framkvæmd þessara laga. verðjöfnunarsjóð. Hann mót- mælti einkum ákvæðum um bind- ingu fiskverðs, sem skerti starfs- svið Verðlagsráðs sjávarútvegs- ins, ákvæðum um tilfærslu fjár- muna, sem hann taldi að þýddi um 800—900 m.kr. skerðingu á hluta sjómanna í aflaverðmæti, og ráðstöfun á gengishagnaði, sem væri vægast sagt mjög vara- söm, einkum að þvi er varðar stærri togara og síldveiðiskip í Norðursjó. Stærri togararnir fisk- uðu nær einvórðungu fyrir er- lendan markað og síldveiðiskipin væru nánast gerð út frá Dan- mörku. Karvel Pálmason (SFV) talaði mjög á sama veg og Lúðvfk Jós- epsson. Sagðist hann sizt hafa búizt við því, að háttv. núverandi sjávarútvegsráðherra, sem verið hefði traustur málsvari sjómanna í þingliði Sjálfstæðisflokksins, flytti frumvarp, sem að sínu mati hefði í för með sér verulega kjara- skerðingu fyrir sjómenn. Matthfas Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, svaraði þeim Lúð- vík og Karvel fáum orðum. Vitn- aði hann hvorttveggja í niðurstöð- ur Þjóðhagsstofnunar um rekstr- arstöðu einstakra greina i sjávar- útvegi, sem og fyrri afstöðu þess- ara þingmanna, meðan vinstri stjórnin var og hét. Taldi ráðherr- ann litla sæmd í þvi, af fráf^randi sjávarútvegsráðherra, að gagn- rýna nauðsynlegar ráðstafanir til stuðnings sjávarútveginum, án þess þó að benda á einhverjar aðrar leiðir, er gert hefðu svipað gagn, þ.e. komið í-veg fyrir rekstr- arstöðvun, sem yfir ýmsum grein- um sjávarútvegs hefði vofað, er hann fór úr sjávarútvegsráðu- neytinu. Sighvatur Björgvinsson (A) sagði það rétt, að mikill vandi hefði beðið í ráðuneyti Matthíasar Bjarnasonar í málefnum sjávarút- vegsins, vió stjórnarskiptin. Ráð- herrann væri vissulega ekki öfundsverður af margháttuðum viðfangsefnum. Hinsvegar væri sýnt, að ráðstafanir, sem umrætt 4. gr. Hver sá, er sekur gerist um brot á lögum þessum eða fyrirmælum samkvæmt þeim, skal sæta sekt- um, nema þyngri viðurlögum varði samkvæmt öðrum lögum. Sektir renni í rfkissjóð. Um mál út af brotum á lögum þessum eða fyrirmæ'lum settum samkvæmt þeim, skal fara að hætti opinberra mála. 5. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Greinargerö. I greinargerð með frumvarpinu segir svo: Veiðar á ýmsum tegundum sjávaraflá eru eins og kunnugt er háðar sérstökum leyfum sjavarút- vegsráðuneytisins. Hefur ásókn í slík leyfi, einkum skelfisk- og alveg sérstaklega rækjuveiðileyfi á mörgum vciðisvæðum, verið mun meiri en æskilegt hefur þótt. He/'ur ráóuneytið þvi oft þurft að ákveða reglur til takmörkunar bæði á afla og sókn í þessar veiðar. Skal i því sambandi benl á ýmis skil- yrði, sem ráðuneytið hef- ur sctt til þess að menn geti feng- ið rækju- og skelfiskveiðileyfi á ákveónum svæðum, svo sem kröf- ur um að eigendur og skipstjóri báts hafi verið búsettir á viðkom andi svæði i eitt ár, báturinn sé þar skrásettur og jafnvel að bát- urinn megi ekki vera undir eða yfir ákveðinni stærð. Þá hefur þess oftast verið krafist i Ieyfis- Matthfas Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra. frumvarp geymdi, kæmi mjög hart niður á sjómönnum. Vitnaði ræðumaður bæði til blaðasamtals við Jón Sigurðsson, forseta Sjó- mannasambandsins, sem og sam- þykktar þings Sjómannasam- bands íslands, máli sinu til stuðn- ings. Hann sagði sjómenn telja, að 1800 milljónir væru fluttar frá þeim til útgerðarinnar. Þó deila mætti um réttmæti þeirrar tölu, yrðu þó sjómenn harðast úti í gerðum efnahagsráðstöfunum. Að loknum umræðum var mál- inu vísað til þingnefndar og 2. umræðu í deildinni. Fjöldi frumvarpa var lagður fram á Alþingi I gær, 12 talsins, átta stjórnarfrumvörp og fjögur þing- mannafrumvörp. Stjórnarfrumvörpin. sem lögð voru fram, voru þessi: 1. Frumvarp til laga um samræmda vinnslu sjávarafla og veiðar, sem háðar eru sérstökum leyfum 2. Frumvarp til laga um upplýsingar- skyldu stjórnvalda. 3. Frumvarp til laga um trúfélög 4. Frumvarp til laga um veitingu rikisborgararéttar. 5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 85, 23 júní 1936. um meðferð einkamála í héraði. 6. Frumvarp til laga um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka. 7. Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1971 8. Frumvarp til laga um virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal. Frumvörp, sem einstakir þingmenn flytja, eru þessi. bréfum til rækju- og skelfiskveiða á ákveðnum svæðum, að afli sé unninn í viðurkenndri vinnslu- stöð á viðkomandi svæði. Lös eru að finna i flestum veiðileyfum ákvæði um einhvers konar afla- takmarkanir til verndunar þeim stofni, er leyfið heimilar veiðar á. Þrátt fyrir að ráðuneytið hafi bæði fyrr og síðar sett slíkar al- mennar reglur bæði um veiðarnar sjálfar og um skilyrði til þess, að menn geti yfir höfuð fengið veiði- leyfi, þá hefur þó reynst mjög erfitt að halda sókn í þessar veió- ar i skefjum. Er hér einkum um að kenna því, að lítil -sem engin samræming hefur verið á þessum afla- eða sóknartakmörkunum og byggingu vinnslustöðva á viðkom- andi sviðum. Ljóst er að of marg- ar eða afkastamiklar vinnslu- stöðvar eru til þess fallnar að auka ásókn í veiðarnar og það því meir sem samkeppnin um hið tak- markaða hráefni verður meiri. Getur þetta komið illa niður á rækju- og skelfiskstofnunum. Þá má auðveldlega kippa rekstrargrundvellinum undan at- vinnurekstri á ákveðnum svæðum með of mörgum slíkum fyrirtækj- um á svæðinu og gæti það haft hinar alvarlegustu afleiðingar. Þegar aflamagn á viðkomandi svæði er nokkuð stöðugt frá árrtil árs, virðist óeðlilegt, að nýjum vinnslustöóvum sé komið á fót á svæðinu, ef afkastageta annarra stöðva er næg fyrir, með þeim afleiðingum að dregið er úr starf- semi þeirra. Einnig er óeðlilegt, Fyrir- spurnir Ingólfur Jónsson (S) ber fram fyrirspurn til viðskiptaráðherra, hvort ríkisstjórnin muni nota heimild í lögum til þess að jafna flutningskostnað á sementi á þann hátt, að svipað verð verði á þeirri vöru um Iand allt. Helgi F. Seljan (K) spyr menntamálaráðherra: 1) hve margar smærri endurvarpsstöðv- ar sjónvarps fyrir einstök byggðarlög á Austurlandi séu i umsjá og eigu heimaaðila, 2) hvenær sjónvarpið ráðgeri að fullkomna þessar stöðvar og yfir- taka rekstur þeirra að fullu. niÞinGi 1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 71 frá 6. maí 1966, um verðtryggingu fjárskuldbindinga Flutningsmaður Ellert B. Schram (S). 2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 75, 13. maí 1966, um Fiskveiðasjóð íslands Flutningsmenn: Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S), Jón Árnason (S) og Oddur Ólafsson (S) 3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um söluskatt, nr. 10 frá 22. marz 1960. Flutningsmenn Ólafur Ragnar Grímsson (SFV) og Karvel Pálmason (SFV). 4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93 frá 24 des. 1971, um Framkvæmdastofnun ríkisins. Flutn- ingsmenn Ólafur Ragnar Grlmsson (SFV) og Karvel Pálmason (SFV). Þingsíða Morgunblaðsins mun gera grein fyrir þessum frumvörpum á næstunni, eftir því sem rúm blaðsins leyfir. að settar séu á stofn á sköRiinum tíma margar stöðvar á svæði með mun meiri vinnslugetu, en þörf er fyrir. Er dæmi þess, að komið hafi verið á fót mörgum rækjuvinnslu- stöðvum á takmörkuðu svæði með margfaldri vinnslugetu miðað vió aflamagn á svæðinu með þeirri afleiðingu, að ekki var grundvöll- ur fyrir starfsemi þeirra og urðu margir aðilar fyrir miklu tjóni af þeim sökum. Þykir rétt, að reynt verði að sporna vió að slíkt endur- taki sig og að sá aðili, sem ákveð- ur aflamagnið á viðkomandi svæði, hafi hönd í bagga með því að afstýra slikri þróun. Þá liggja og sömu rök til þess, að á þeim sviðum, sem sjávarútvegsráðu- neytið getur takmarkað veiðarnar með útgáfu sérstakra leyfa eða synjun á útgáfu þeirra, þá skuli það sama ráðuneyti einnig hafa heimild til takmörkunar á aukn- ingu á afkastagetu vinnslustöðva fyrir sömu afurðir. Eins og áður segir, er mikil þörf á samræm- ingu veiðiheimilda og vinnslu- getu viðkomandi greina þar sem afla- og sóknartakmarkanir hljóta að hafa bein áhrif á eðlilega vinnslugetu í landi. 1 frumvarpinu er gert ráð fyrir þvi að leita skuli leyfis sjávarút- vegsráðuneytisins til þess að koma á fót vinnslustöðvum fyrir rækju og skelfisk. Einnig er gert ráó fyrir sams konar leyfi, ef stækka á þær vinnslustöðvar, sem fyrir eru, enda gætu slikar stækkanir haft sömu áhrif og ef Framhald á bls. 39 Þingsályktunartillögur: Um sjónvarp og Flatey á Skjálfanda Frumvarp til laga: Samræmd vinnsla sjávarafla og veið- ar, sem háðar eru sérstökum leyfum TÓLF NÝ LAGA- FRUMVÖRP FLUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.