Morgunblaðið - 12.11.1974, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974
23
Afmælishátíð Austra
UNGMENNAFÉLAGIÐ Austri
á Eskifirði hélt upp á 35 ára
afmæli sitt sl. laugardag f Val-
höll á Eskifirði. Félagið var
stofnað haustið 1939 og var
félagahópurinn I fyrstu ekki
stór, en hefur aukist síðan jafnt
og þétt, og telur nú um
100—130 félaga. Austri leggur
einkum stund á knattspyrnu,
en einnig handknattleik, körfu-
knattleik, blak og skíðafþróttir.
í sumar sem leið náðu knatL
spyrnuflokkar frá félaginu
athyglisverðum árangri. Meist-
araflokkur félagsins komst í úr-
slit i 3. deildar keppninni og 5.
flokkur þess komst í úrslit í
íslandsmótinu. Fóru báðir
flokkarnir til Reykjavíkur til
þátttöku í úrslitakeppni og
lentu þar í þriðja sæti. Fimmti
flokkur félagsins í knattspyrnu
vann síðan Austf jarðamót
þessa aldursflokks skömmu
síðar. Má af þessu ljóst vera að
Austri á efnilegt iþröttafólk og
getur litið björtum augum til
framtiðarinnar.
Á afmælishátiðinni var
haldið samsæti og bárust félag-
inu þá margar góðar gjafir, m.a.
35 þúsund krónur frá bæjar-
stjórn Eskifjarðar.
Þá var hinn kunni velgerðar-
maður knattspyrnunnar á Eski-
firði, Jónatan Helgason, heiðr-
aður, en hann er jafnframt
fyrsti heiðursfélagi Austra. Þá
var og Ragnar ÞorsteinsSon
kennari gerður að heiðurs-
félaga, en hann er nú búsettur í
Reykjavík. Við þetta sama tæki-
færi færði Valtýr Guðmunds-
son, sýslumaður, drengjum úr
5. flokki verðlaunapeninga sem
hann gaf sjálfur.
Veizlustjóri . á þessari
afmælishátíð var Kristján Ing-
ólfsson, námsstjóri Austur-
lands, fyrrverandi formaður
UlA.
Núverandi stjórn UMF
Austra skipa: Guðmundur
Gíslason formaður, Jóhanna
Hallgrimsdóttir gjaldkeri,
Helgi Sigurgeirsson varafor-
maður, Stefán Kristinsson rit-
ari og Þórey D. Pálmadóttir
meðstjórnandi.
Jóhann Clausen, bæjarstjóri á Eskifirði, afhendir formanni og
gjaldkera Austra, gjafir á afmælishátfðinni. (Ljósm. Vilberg
Guðnason)
Evrópumeistararnir töpuðu
Rúmenska meistaraliðið Steaua
Búkarest, vann óvæntan sigur
yfir Evrópumeisturunum, 1. Maí
frá Moskvu, 1 fyrri leik liðanna 1
sextán Iiða úrslitum Evrópu-
bikarkeppninnar 1 handknattleik,
sem fram fór 1 Moskvu á sunnu-
daginn. Hafði rúmenska liðið yfir
i leiknum alveg frá upphafi og
sigraði 24—22, eftir að staðan
hafði verið 14—13, þvf I vil f
háifleik. Benda þessi úrslit til
þess að rúmenska liðið sé nú
geysilega sterkt, þar sem það
mun heyra til algjörrar undan-
tekningar að sovézka liðið tapi
leik á heimavelli sfnum.
Mikil harka var f leiknum í
Moskvu og var sex leikmönnum
vfsað af velli f tvær mínútur. Sagt
var, að bæði liðin hefðu leikið
mjög góðan sóknarleik, og gert
falleg mörk, en varnirnar hefðu
verið slakari en tftt er hjá svo
sterkum liðum.
Telja má öruggt að Steaua kom-
ist f átta liða úrslitin. Seinni leik-
ur liðanna fer fram í Rúmeníu 30.
nóvember n.k.
• *
• ♦
V.#-
Lyftinga-
heims-
met
HINN 27 ára sovézki lyftingamað-
ur David Rigert setti um sfðustu
helgi þrjú ný heimsmet í lyft-
ingum á móti, sem fram fór í
Umdurt. Rigert keppir í milli-
þungavigtarflokki og lyfti hann
175,5 kg f snörun, 215,5 f jafnhött-
un og því samanlagt 390 kg.
Sjálfur átti Rigert eldri metin og
hafði hann sett tvö þeirra á
heimsmeistaramótinu f Manila,
en þar lyfti hann 215 kg f jafn-
höttun og 387,5 kg samanlagt.
Leiðbeinendanámskeið í
íþróttum fyrir fatlaða
DAGANA 11.—16. des n.k. verður
efnt til leiðbeinendanámskeiðs I
(þróttum fyrir fatlaða. Fer námskeið-
ið fram i Álftamýrarskólanum, en
Fræðsluráð Reykjavíkur hefur sýnt
þá vinsemd að leggja til húsnæði.
íþróttasamband fslands efnir til
námskeiðsins i samstarfi við íþrótta-
kennarafélag íslands og Félag íslenzkra
sjúkraþjálfara, en stjórnandi og aðal-
kennari verður Magnús H Ólafsson,
íþróttakennari. Magnús er ráðunautur
ÍSÍ i þessum efnum og dvaldi m.a. sl.
vor á Norðurlöndum og í Englandi til
að kynna sér íþróttir fatlaðra Honum
til aðstoðar verða Guðmundur
Þórarinsson, íþróttakennari og Erla
Kolbrún Kristinsdóttir, sjúkraþjálfari
Kennslan verður bæði verkleg og
bókleg. Læknar munu flytja erindi og
jafnframt verður kynning á félagslegri
aðstöðu fatlaðra.
Lögð verður áherzla á kynningu og
æfingu ýmissa íþróttagreina, sem
henta vel fötluðu fólki.
Námskeiðið er einkum ætlað Iþrótta-
kennurum og sjúkraþjálfurum, en auk
þess áhugafólki um þessi mál, ef
aðstaða leyfir Kennslan fer fram dag-
lega kl. 9—5 og þátttökugjald er kr.
1.500.00
Væntanlegir þátttakendur þurfa að
láta skrá sig og senda þátttökugjald til
skrifstöfu ÍSl í Laugardal fyrir 1.
desember n.k. og þar eru jafnframt
veittar nánari upplýsingar.
(Fréttatilkynning frá fSÍ).
Góð nýting Þórarins
1 leiknum á sunnudaginn áttu
FH-ingar samtals 27 skot aó
marki St. Otmar, sem annaöhvort
uróu mörk, eða að Svisslendingar
náðu knettinum eftir þau. Viðar
Símonarson átti flest skot, 9 tals-
ins og skoraði hann úr 7 þeirra.
Geir Hallsteinsson átti 6 skot og 4
mörk, Gunnar Einarsson 4 skot og
1 mark, Jón Gestur 2 skot og 1
mark, Þórarinn Ragnarson 6 skot
og 6 mörk (Glæsileg útkoma
það.)
Svissneski markvörðurinn
varði sex skot, þannig að lið hans
fékk knöttinn eftir þau. Geir átti
tvö þessara skota, Viöar 1, Gunn-
ar 2 og Jón Gestur 1. Tvö skot
FH-inga lentu i stöng. Þau áttu
Gunnar og Viðar.
Fjögur vftaköst fengu FH-ingar
í leiknum sem öll heppnuðust.
Þrjú þessara vftakasta voru
dæmd á brot sem framin voru á
Arna Guðjónssyni og eitt á Geir
Hallsteinssyni.
Að lokum: Það svartasta f leik
FH-inga. Þeir töpuðu knettinum
eigi sjaldnar en 12 sinnum til
Svisslendinga fyrir klaufaskap.
Þarna áttu hlut að máli: Viðar
Sfmonarson 5 sinnum, Geir Hall-
steinsson 3 sinnum, og Jón Gest-
ur, Kristján, Örn og Arni í sitt
skiptið hver.
Samtals vörðu svo markverðir
FH, 11 skot, þannig að FH fékk
knöttinn. Birgir varði 9 þessara
skota, enda f marki lengst af, en
Hjalti varði 2.
Húsið
var til
reiðu
1 tilefni fréttar f Morgunblað-
inu á laugardaginn, um að ekki
hefði verið unnt fyrir FH-inga að
fresta leik sfnum við St. Otmar til
sunnudags, þar sem þá hefði
Laugardalshöllin ekki verið til
reiðu, óskuðu forráðamenn
Hallarinnar eftir því að það kæmi
fram, að allt hefði verið gert til
þess að greiða fyrir þvf að FHing-
ar fengju húsið. Hefði það verið
upprunalega ósk frá þeim sjálf-
um að leikurinn færi fram kl.
19.30 á laugardagskvöld, en þegar
Svisslendingarnir komust ekki til
landsins f tæka tíð, var þegar tek-
ið til við að koma málum þannig
fyrir að leikurinn gæti farið fram
á sunnudag, en til þess varð að
fresta leikjum f Reykjavfkurmót-
inu f handknattleik.
Forráðamenn FH-liðsins
óskuðu einnig eftir því að þakk-
læti yrði komið á framfæri til
handknattleiksforystunnar f
Reykjavík fyrir það hversu vel
hún hefði brugðist við í vandræð-
um þeim er af því hlutust að
Svisslendingarnir komust ekki til
landsins á þeim tíma sem ætlaður
var.
— John
Richards
Framhald af bls. 19
fyrir hrósyrðin sagði
McGarry: „Þú getur leikið
helmingi betur en þú hefir
gert til þessa.“
Ef til vill átti þetta að hafa
sálfræðileg áhrif á
Richards, og ef svo var, þá
verkaði bragðið vel. Hann
var settur í varaliðið um
sinn. Þegar hann fékk aftur
sæti f aðalliðinu, var fyrsti
leikurinn gegn Derby. Hann
var ákveðinn f að sýna getu
sína, og gerði það eft’>
minnilega. Úlfarnir sigruðu
með 2—1 og Richards
skoraði bæði mörkin.
A þessu leiktímabili stefn-
ir Richards að því að vinna
aftur það sjálfstraust sem
hann tapaði f fyrra þegar
allt gekk honum f óhag. Og
betri byrjun hefur hann
vart getað fengið. Þegar í
fyrsta leik sfnum í haust
skoraði hann áður en 5 mín.
voru liðnar. Það var f leik
gegn Burnley sem Ulfarnir
sigruðu með tveimur mörk-
um gegn einu.
A s.I. ári vonaðist Richard
til að vinna sér fast sæti f
enska landsliðinu, en hann
hefir þegar leikið nokkra
leiki fyrir Englands hönd.
En sætið varð ekki hans,
einkum vegna þess hversu
örðuglega honum gekk fyrir
framan mark andstæðing-
anna.
Þórarinn Ragnarsson átti mjög góðan leik með FH-liðinu, bæði f
sókn og vörn. Þarna fer hann inn úr horninu og skorar eitt marka
sinna. (Ljósm. Mbl. Friðþjófur)
— FH sigraði
Framhald af bls. 17
St. Otmar ytra, og að þeir eigi
erindi lengra í þessari Evrópu-
keppni. Hingað til hefur liðið
ekki náð að sýna það sem maður
átti von á að það sýndi, en það
hlýtur að vera aðeins spurning
um tíma, hvenær það springur út.
Gallarnir í leik liðsins eru ekki
það stórvægilegir aó það ætti ekki
að taka langan tíma að lagfæra
þá.
1 STUTTU MÁLl:
EVRÓPUBIKARKEPPNIN
I HANDKNATTLEIK:
Laugardalshöll 10. nóvember.
URSLIT: FH — ST. OTMAR
19—14 (12—5)
Gangur leiksins:
Mín. FH ST. OTMAR
1. Geir 1:0
2. Vidar 2:0
3. 2:1 Berger
8. 2:2 Stahlberger
9. Gunnar(v) 3:2
10. Vidar(v) 4:2
14. 4:3 Winistörfer
14. Geir 5:3
15. Geir 6:3
20. 6:4 Notter
20. Þórarinn 7:4
21. Þórarinn (v) 8:4
24. Þórarinn 9:4
25. 9:5 Jehle
26. Viðar 10:5
28. Viðar 11:5
30. Viðar Hálfleikur 12:5
36. 12:6 Stahlbergei
38. 12:7 Notter (v)
41. Viðar 13:7
42. Geir 14:7
42. 14:8 Thaler
43. Viðar 15:8
45. 15:9 Jehle
46. 15:10 Notter
46. Jón 16:10
47. 16:11 Jehle
50. 16:12 Stahlberger
51. 16:13 Notter
52. Þórarinn 17:13
56. Þórarinn 18:13
60. Þórarinn (v) 19:13
60. 19:14 Jehle
Mörk FH: Viðar Símonarson 17,
Þórarinn Ragnarsson 6, Geir Hall-
steinsson 4., Gunnar Einarsson 1,
Jón Gestur Viggósson 1.
Mörk St. Otmar: Peter Notter 4,
Herbert Thaler 3, Urs Stahlberg-
er 3, Robert Jehle 3, Urs Wini-
störfer 1.
Brottvfsanir af velli: Örn
Sigurðsson og Gils Stefánsson FH
í 2 min.
Misheppnuð vítaköst: Engin.
Dómarar: Nilsson og Ohlsson
frá Svíþjóð og dærndu þeir nær
algjörlega óáófinnanlega.
stjl.