Morgunblaðið - 12.11.1974, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1974
37
V.
Evelyn
Anthony:
LAUNMORÐINGINN
Jöhanna x
Kristjönsdöttir
þýddi /
46
— Hefurðu ekkert sofið? spurði
Mathews.
— Nei, ég fékk skilaboð klukk-
an níu í kvöld. Frá manni í Mið-
austurlandadeildinni. Seztu niður
og fáðu þér kaffi. Þér veitir ekki
af því.
— Hvað hefur komið fyrir?
— Við fyrstu sýn virðist það
ekki vera i frásögur færandi.
Arabísk flóttastúlka Souha
Moamonlian fannst kyrkt og
rænd í Beirut. Ekkert sérstakt —
nema það að í Landsbankanum í
Líbanon höfðu verið lagöir inn tiu
þúsund dollarar á hennar nafni
— og það gerði Evrópumaður sem
hún bjó með. Interpool skýrði frá
þessu, vegna þess að bankinn hélt
að þetta væri i sambandi við
eiturlyfjamál, sem er í gangi
þarna. Þetta er mikið af pen-
ingum fyrir stúlku af hennar
sauðahúsi, því vitað var að þessi
vinur hennar átti ekki bót fyrir
rassinn á sér. Engin föst atvinna,
en eftir að hann lagði peningana
inn í bankann á hennar nafni,
hvarf hann eins og jörðin hefði
gleypt hann. Vinum okkar hjá
Interpol fannst við þurfa að vita
þetta vegna þess að Beirut var
síðasti viðkomustaður Eddi King,
áður en hann kom til Parísar,
hvar hann hitti Druet. Þetta er nú
það fyrsta. Númer tvö er öllu
verra. Drekktu kaffi. Þegar við
vorum að kanna ferðir Kings þá
komumst við að ýmsu. Hann fór
beint til Parísar, en daginn eftir
fór Elizabeth Cameron til New
York. Fjölmargir farþegar og
starfslió á flugvellinum, svo og
flugfreyja staðhæfa að hún hafi
verið i fylgd með karlmanni. Hún
nefndi hann aldrei við mig. Hún
talaói um King og um allt mögu-
legt annað, en hún minntist ekki
orði á neinn annan karlmann.
— Þetta lítur ekki sérlega
kræsilega út, sagði Peter sein-
mæltur.
— Þú hafðir á réttu að standa.
Velvakandi svarar í slma 10-100
kl. 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi
til föstudags.
0 Lofið okkur
að njóta þeirrar
menningar, sem
við skiljum!
Fyrir helgi hringdi kona, sem
kýs að kalla sig „þriðja flokks
fiskvinnslukonu á Skaganum".
Hún sagði:
„Hversvegna fáum við, sem
hefjum vinnu snemma morguns,
ekki að njóta leikfimikennsl-
unnar í útvarpinu. I fyrra var
leikfimi á dagskrá kl. 7.20, en nú
hefur verið byrjað að útvarpa
henni kl. 7.40. Þetta hefur það að
segja, að þeir, sem eiga að vera
byrjaðir að vinna kl. 8, eins og er
t.d. hér i frystihúsinu, hafa ekki
möguleika á að notfæra sér leik-
fimikennsluna.
I fyrra sleppti ég ekki úr nema
fáeinum tímum allan veturinn en
ég hefði haldið, að við, sem vinn-
um i fiskinum, mættum njóta
þessarar menningar, fyrst við
skiljum hana, — það er víst ekki
svo mikið annað, sem við — hinir
menningarsnauðu — getum skilið
í Ríkisútvarpinu.
Það kom einu sinni fram í
þætti, sem fluttur var i útvarpi og
fjallaði um fiskvinnslu, að við
frystihúsafólkið værum þriðja
flokks fólk, og nú hefur sjónvarp-
ið lýst þvi á eftirminnilegan hátt
hve menningarsnauð við erum, en
ég held þó, að við séum fær um að
skilja leiðbeiningar leikfimikenn-
arans um hvort við eigum að sitja
eða standa.
„Þriðja flokks fiskvinnslukona
á Skaganum“.“
Áreiðanlega hefur dagskrár-
Þú sagðir að hún þegði yfir ein-
hverju — þú varst meira að segja
að geta þér til um að karlmaður
væri í spilinu. Ég er alveg viss um
að einhver var hjá henni, þegar
ég hringdi til hennar. Við vitum
um ferðir hennar í kvöld, hún fór
til Freemont og ætlar sjálfsagt að
vera þar um helgina.
Hann lauk við kaffið úr boll-
anum og kveikti sér í sígarettu.
Hann hafði sagt í gamni við hana
að hann langaði til að vita hvaða
karlmaður hefðí haft þau áhrif á
hana að augun ljómuðu eins og
stjörnur. Hún hafði engu svarað
honum heldur. — Og nú kem ég
að því, hélt Leary áfram — hver
var aðalástæðan fyrir því að ég
vakti þig. Líttu á þetta.
Hann ýtti pappírsörk til
Mathews og hagræddi sér í stóln-
um á meðan Mathews las. Þetta
var samtal við kennara Eddi King
við Wiscounsin-háskólann.
Ástæðan fyrir því að Eddi King
var kennaranum minnisstæður
var sú að hann hafði ákaflega
gaman af körfubolta. Undir þau
mönnum útvarpsins ekki gengið
illt til með þessari breytingu,
heldur hefur hér verió um að
ræða breytingu af einhverjum
hagkvæmnisástæðum. Hins vegar
virðist i fljótu bragði ekkert vera
því til fyrirstöðu, að leikfimin
verði höfð fyrr á morgnana, og er
þessari ósk hér með komið á fram-
færi við rétta aðila.
Það er annars gleðilegt til þess
að vita, að margir hafa gert sér
það að reglu að stunda líkams-
æfingar — þvi að heilbrigð sál í
hraustum likama er það, sem bliv-
ur.
# Bifreiðastæði
Þorkeli P. Pálsson, Stóragerði
22, Reykjavik skrifar:
„Velvakandi góður.
Það er nú kannski að bera í
bakkafullan lækinn að fara að
tala um bílastöður, vöntun á bfla-
stæðum og fleira.
En ég hef verið að velta því
fyrir ntér hvers vegna þetta mál
er ekki leyst á næsta auðveldan
hátt.
Það er staðreynd, að maður,
sem þarf að reka einhver erindi I
miðborginni að degi til, hefur
enga möguleika til að gera það,
þar sem mjög erfitt er að ná i
bifreiðastæði. Þó las ég i Morgun-
blaðinu í dag, að um Iaus bifreiða-
stæði við Tollstöðina væri að
ræða. Þangað vill fólk ekki fara
vegna þess að þau stæði voru i
upphafi auglýst til leigu í langan
tima — þ.e.a.s. í mánuð i einu
gegn föstu gjaldi.
Ég fæ ekki séð, að hægt sé að
ætlast til þess af borgarsjóði, að
gerð séu dýr stæði fyrir bifreiðar,
sem síðan standa ónotuð, á sama
tima og S.V.R. eru reknir með
miklu tapi, sem einnig er greitt úr
borgarsjóði.
orð var strikað með rauðum blý-
anti. En gallinn var sá að hann
var svo stuttur að hann komst
ekki í skólaliðið og féll það mjög
þungt.
Mathews leit upp. — Eg næ
þessu ekki. Hvað er bogið við
þetta?
Leary hafði lygnt aftur augun-
um. Hann talaði lágt og líkt og
þreytulega.
— King var tuttugu og eins árs.
Hann var hættur að stækka. Ég
hef heyrt að fólk minnki með
aldrinum, en ekki að það byrji að
stækka þegar það kemst á miðjan
aldur. Okkar Eddi King er miklu
hávaxnari en gefið er upp þarna.
Skilurðu hvað það þýðir. Pete?
Þú skilur hvað þessir sentimetrar
segja okkur mikla sögu.
— Þetta er ekki sami maðurinn,
sagði Peter hægt.. — Þetta er ekki
hinn rétti Eddi King.
— Ég lét ekki þar við sitja,
sagði Leary. — Ég fór sjálfur til
Wiscounsin. King var mjög lág-
vaxinn og grannur.
— King var i Frakklandi á
Þá finnst mér það vera hróplegt
ranglæti, að opinber fyrirtæki og
einkafyrirtæki skuli merkja sér
og starfsmönnum sínum bifreiða-
stæði, bæði við akbrautir og á
opnum svæðum í borginni.
Ég legg til, að öll bifreiðastæði,
gerð á vegum borgarsjóðs, bæði
við akbrautir og á opnum svæð-
um, verði gerð gjaldskyld á mesta
annatíma dagsins. Þá myndu fást
næg bílastæði og mikil aukning
yrði á farþegafjölda S.V.R.
S.V.R. veitir að minum dómi
mjög góða þjónustu, og ég fæ ekki
séð, að fólk, sem vinnur allan
daginn í miðborginni og nágrenni
hennar, þurfi að fara til vinnu
sinnar á einkabílum til að láta þá
standa við vinnustaði allan dag-
inn, taka upp bílastæði og þrengja
að umferð. Slysahættan myndi
einnig minnka til muna með
minni bílaumferð.
Með þökk fyrir birtinguna.
Þorkell P. Pálsson."
Þorkell virðist vera betur vak-
andi en Velvakandi — eða hvar
eru öll þessi stæði, þar sem ekki
hafa verið settir upp stöðumælar?
Það er auðvitað hárrétt hjá
bréfritara, að alltaf stendur
mikill fjöldi bifreiða við vinnu-
staði, og áreiðanlega gætu margir
t.d. tekið sig saman og haft sam-
flot á vinnustað. Nýlega fréttum
við af þremur íbúum á Selfossi,
sem stunda vinnu hér í Reykja-
vík. Þeir eru allir búsettir I sama
íbúðarhverfinu á Selfossi, og fara
á sama tima af stað á morgnana.
Þessir menn fara allir á milli
kvölds og morgna, hver á sínum
bíl, s.s. þrir menn í þremur bilum.
Nú fyndist manni vitið meira, að
þeir sameinuðust um einn bíl, þó
ekki væri nema til að spara
striðsárunum. Það kemur fram i
skýrslunni hans. Honum var
sleppt árið 1945 og kom hingað til
Bandarikjanna árið 1958. Svona
liggur í þvi, Pete. Hinn eini sanni
Eddi King dó I búðunum. Rússar
tóku skilriki hans og skjöl og út-
bjuggu einn sinna manna sém
Eddi King og sendu hann hingað.
— Guð minn góður! hrópaði
Peter upp yfir sig. — Hér er sem
sagt ekkert síli á ferðinni —
heldur reglulegur stórfiskur.
— Sennilega með þeim allra-
stærstu. Littu betur á þetta. Hann
hefur verið hér í fimmtán ár og
komið sér vel fyrir. Ilver heldur
þú að hafi fjármagnað þetta tíma-
rit hans — og þvílikt snjallræði að
koma upplýsingum áleióis eftir
þeim leiðum með skrifstofur út
um alla Evrópu. Og hvað
heldurðu það hafi'kostað að koma
honum í þau kynni við Huntley
Cameron sem reynslan sýnir að
hefur tekizt — hann hlýtur að
vera einn af þeirra toppmönnum.
— En hvar kemur Cameron þá
inn i málið — og Elizabeth? í
hamingju bænum segðu mér ekki
að þau séu flækt i njósnamál hjá
KGB!
— Ég veit það ekki, svaraði
Leary. — En King fór til Líbanon
og hafði ákveðinn tilgang með
þeirri ferð og hann hélt því næst
til Parisar og átti fund með Druet
og lét vinkonu þina, Elizabethu
Cameron koma aftur til Banda-
ríkjanna í fylgd með manni, sem
hún minntist ekki orði á, þegar
við ræddum saraan.
— Það gæti hafa verið þannig
vaxið, að hún hefði kynnzt
þessum manni í Beirut og fallið
flöt fyrir honum, stakk Mathews
upp á. — Og kannski hefur hún
farið að búa með honum, þegar
heim kom. Ég er ekki viss um að
hún hefði sagt þér frá þvi, ef svo
hefði verið. Þvi telurðu ástæðu til
að tengja þetta King?
— Vegna þess að meðan einn
manna okkar fylgdist með ferðum
bensínkostnað. En það er ekki þar
með sagt, að öll sagan sé sögð.
A.m.k. tveir þessara manna þurfa
vegna vinnu sinnar að sinna
erindum út um borg og bý flesta
daga vikunnar, og þá kæmi þeim
farartæki nágrannans að litlum
notum.
Þetta er aðeins smádæmi um
það, að málið er alls ekki eins
einfalt og virzt getur i fljótu
bragði. Hins vegar er rétt að
menn haldi áfram að velta þvi
fyrir sér hvernig hægt er að ráða
bót á þessu mikla vandamáli, þ.e.
skorti á bilastæðum og þrengslum
í umferðinni almennt.
# Giröingar og veggir
Kona, sem býr i Norðurmýr-
inni, kom að máli við Veivakanda
og bent á, að i mörgum hverfum
borgarinnar hefði fyrir alllöngu
verið farið inn á þá braut að
lækka girðingar og veggi um-
hverfis húsalóðir og þætti það til
mikillar prýði og gerði umhverfi
og Ióðir mun léttari að yfirbragði.
Aftur á móti hefði þessu fordæmi
ekki verið fylgt I Norðurmýrinni
nema við stöku hús og fannst
henni tímabært að íbúar þar
brytu niður þessa háu skrímslis-
legu veggi. Hún sagði einnig, að
þar í hverfinu væri mikið af göml-
úm og háum trjám, sem væru
hætt að vera á nokkurn hátt til
prýði, enda mörg ilia útleikin.
Stakk hún upp á, að borgaryfir-
völd kæmu til móts við fólkið
þarna, aðstoðaði við að brjóta nið-
ur garða hjá þeim, sem það vilja,
og fjarlægja tré, sem ekki væru
lengur til augnayndis. M.vndi
þetta án efa gefa hverfinu hlý-
legri og notalegri svip. Og er þess-
um skoðunum hennar hér með
komið á framfæri.
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Eins og fram hefur komið
í fréttum vann sovézki stór-
meistarinn Vasjukov óvænt-
an en öruggan sigur á skák-
mótinu mikla sem haldið var
í Manila á Filippseyjum á
dögunum. Röð efstu manna
varð sem hér segir: 1.
Vasjukov 10, 5 v., 2. Petrosj-
an 9,5 og 3. Larsen 9 v. Nán-
ar mun skýrt frá úrslitum
þegar þau berast, en auk
þessara þriggja voru Port-
isch, Ljubojevic, Georghiu
og Anderson á meðal þátt-
takenda, sem voru alls
fimmtán.
Sú skák, sem mestu réð
um úrslit mótsins var viður-
eign þeirra Vasjukovs og
Larsens og samkvæmt frétt-
um, sem bárust áður en mót-
inu lauk hefur Vasjukov
sennilega fengió fegurðar-
verðlaun fyrir hana.
Hvítt: E. Vasjukov
Svart: Bent Larsen
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4
— cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5.
Rc3 — e6, 6. g4
(Leikur Keresar nýtur
ávallt vinsælda hinna sókn-
glöðu).
6. — h6, 7. h4!
(Nýjung Vasjukovs!
Algengast er hér 7. g5 eða 7.
Bg2).
7. — Rc6, 8. Hgl — h5,
(Larsen tekur að vanda
hraustlega á móti, en hvitur
hótaði g5 og siðan g6).
9. gxh5 — Rxh5, 10. Bg5 —
Dc7, 11. Dd2 — a6, 12.
0—0—0 — Rxd4, 13. Dxd4
— Bd7, 14. Kbl — Hc8, 15.
Be2 — b5,
(Svartur leitar eftir mót-
spili á drottningarvæng, en
staða hans er þó mjög
ótrygg, þar sem hann getur á
hvorugan veginn hrókað).
16. Hgel — Dc5, 17. Dd2 —
Rf6,18. a3 — Dc7,
(Larsen á í erfióleikum
með að finna nokkra hald-
góða áætlun, 18. — Be7
hefði hvítur t.d. getað svarað
með 19. e5!).
19. f4 — Db7, 20. e5!
(Skemmtilegur leikur,
sem opnar hvitum leið að
svarta kónginum).
20. — dxe5, 21. Bf3!
(Þennan biskup verður
svartur að drepa).
21. — Dxf3, 22. Bxf6 — Dc6,
23. Re4! — b4, 24. fxe5 —
bxa3, 25. He2! — Dxc2 +
(Vegna hótunarinnar Hc3
og síðan Bxg7 neyðist svart-
ur til að fara út i tapað enda-
tafl).
26. Dxc2 — a2+, 27. Kxa2 —
Hxc2, 28. Hb3 — Hc8, 29.
Hb7 — Bb5, 30. Bxg7!
(Nú vinnur hvítur skipta-
mun. Svartur getur auðvitað
ekki foróað hróknum vegna
Rf6 mát!)
30. — Bxg7, 31. Rd6+ —
Kf8, 32. Rxc8 — Bxe5, 33.
Hd8+ — Kg7, 34. Hxh8 —
Kxh8, 35. Hxf7 — Bg3, 36.
h5 — Be2, 37. h6 — e5, 38.
Bd6 — Bf4, 39. He7 — Bh5,
40. Kb3 — Bg6, 41. Rf7+ —
Bxf7, 42. Hxf7
(Hér fór skákin í bið;
eftirleikurinn er auðveldur
og þarfnast ekki skýringa).
42. — Bxh6, 43. Ha' — Kg8,
44. Kc4 — Kf8, 45. Kd5 —
Bcl, 46. b3 — Bb2, 47. Hxa6
— Ke7, 48. Hh6 — Bc3, 49.
Hc6 og svartur gafsl upp.
Hann er nýfluttur til Hafnarf jarðar.
VELX/AKAIMDI