Morgunblaðið - 12.11.1974, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974
29
Frá blaðamannafundinum. Talið rá vinstri: Hjalti Pálsson, Asgeir Jóhannesson, Júlfus S. Ólafsson,
Ólafur Ó. Johnson, Arni Gestsson, Hallgrímur Fr. Hallgrfmsson, Robert Merner og Gunnar Kvaran.
— Ljósm.: ÓI.K.M.
Kanadamenn vilja auka við-
skipti sín við Islendinga
OKTOBERAFLINN
MEIRI EN í FYRRA
VIÐSKIPTA- og iðnaðarráðu-
neyti Kanada hefur sýnt sérstak-
an áhuga á að auka viðskipti ts-
lendinga og Kanadamanna og
hefur í þvf augnamiði boðið sér-
staklega ýmsum frammámönnum
viðskipta á lslandi til Kanada. 7
manna sendinefnd fór utan til
Kanada hinn 21. september sfð-
astliðinn og kom aftur heim hinn
2. október. Dvalizt var í þremur
fylkjum Kanada og ræddu fslend-
ingarnir þar við f jölda aðila.
Á blaðamannafundi hjá Félagi
íslenzkra stórkaupmanna var ferð
Jjessi gerð að sérstöku umræðu-
efni. A fundinum voru flestir
ferðalanganna frá Kanada, en
auk þess viðskiptafulltrúi við
kanadiska sendiráðið i Osló,
Robert Merner, sem átt hefur við-
ræður við frammámenn í við-
skiptum hér i kjölfar ferðarinnar.
Þeir, sem áttu sæti í islenzku
sendinefndinni, sem fór til
Kanada, voru: Gunnar Kvaran,
forstjóri I. Brynjólfsson & Kvar
an, Ólafur 0. Johnson, forstjóri
O. Johnson & Kaaber h.f., Ásgeir
Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Innkaupastofnunar ríkisins,
Hjalti Pálsson, framkvæmdastjóri
innflutningsdeildar S.Í.S., Sveinn
Sveinsson, framkvæmdastjóri
Völundar h.f., og Július S. Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Félags is-
lenzkra stórkaupmanna. Kanada-
stjórn greiddi fargjöld og uppi-
hald á meðan á ferðinni stóð.
Árna Gestssyni, forstjóra Glóbus
h.f., var einnig boðið, en hann
varð að fresta för sinni vegna
anna, m.a. vegna starfa sinna sem
formaður Félags íslenzkra stór-
kaupmanna.
Það kom fram á blaðamanna-
fundinum í gær, að sendinefndin
heimsótti ýmis fyrirtæki og stofn-
anir og kynnti hún sér vörufram-
boð, vörugæði og verð á þeim vör-
um, sem hugsanlega mætti flytja
til íslands. Flutningavandamál er
veruleg milli íslands og Kanada
einkum vegna -fjarlægðar, en af
athugun á þeim gögnum, sem
söfnuðust í ferðinni leiðir i ljós
verulega samkeppnishæfni vara
frá Kanada miðað við vörur frá
öðrum löndum, má búast við að
þörfin fyrir flutninga aukist.
Eimskipafélag Islands h.f. hefur
óskað þess að ef félagið eigi að
taka upp reglubundnar ferðir til
t.d. Halifax í Kanada, þurfi að
tryggja a.m.k. 200 smálesta flutn-
Islenzkur bæjar-
stjóri í Gimli
VIOLET Einarsson var endur-
kjörin bæjarstjóri Gimlibæjar í
Manitoba í Kanada 23.
október. Hún hlaut 489 at-
kvæði, en andstæðingur hennar
Norman Valgarðsson 165. Þau eru
bæði af íslenzkum ættum, en
Gimli er hinn kunni landnáms-
bær Islendinga við Winnipeg-
vatn.
Þrír Islendingar voru kjörnir f
borgarráð W'innipegborgar, þeir
Magnús Elíson f ltannatyne kjör-
dæmi, Kobert Johannson í Cock-
burn kjördæmi og Rick Nordman
f St. Charles.
ing frá Kanada mánaðarlega. Að
öðrum kosti mun ekki svara
kostnaði að halda ferðum uppi
reglulega.
Mikill áhugi er meðal Kanada-
manna á auknum viðskiptum, en
grundvöllur þeirra byggist á
reglulegum skipaferðum. Skipa-
ferðir geta hins vegar ekki hafizt,
nema að tryggð sé ákveðin flutn-
ingaþörf. Því virðist málið vera í
eins konar hnút. Þó var það álit
manna að þau samskipti, sem þeg-
ar er til stofnað með ferð sendi-
nefndarinnar til Kanada hafi auk-
ið líkur á að til viðskiptasam-
banda verði stofnað.
Blaðamannafundinn í gær sat
einnig Hallgrímur Fr. Hallgríms-
son, aðalræðismaður Kanada á
íslandi, en hann ásamt sendi-
herra Kanada í Noregi, sem einn-
ig er sendiherra á íslandi,
Mcllwraith, veittu mikilvæga fyr-
irgreiðslu í sambandi við ferð
sendinefndarinnar.
Blaðinu hefur borizt yfirlit um
sjósókn og aflabrögð í Vest-
firðingafjórðungi f október.
Róðrar með línu hófust víðast i
byrjun október, og nokkrir bátar
hófu róðra strax í byrjun vertíðar,
sem telst frá 16. sept. Gæftir voru
mjög góðar allan mánuðinn, og
var afli nokkuð sæmilegur, 5—7
lestir i róðri við Djúpið, en heldur
iakari suður frá. Aftur á móti var
afli togargnna sáratregur allan
mánuðinn.
Heildaraflinn i mánuðinum var
2.872 lestir, en var 2.770 lestir á
sama tima í fyrra. Af línubátun-
um var Vikingur III. frá Isafirði
aflahæstur í október með 94,3
lestir i 25 róðrum. Guðbjörg frá
isafirði var aflahæst af togurun-
um með 249,0 lestir, en í fyrra var
Páll Pálsson frá Hnífsdal afla-
hæstur í október með 255,9 lestir.
Nú um mánaðamótin voru 22
bátar byrjaðir róðra með linu, en í
fyrra voru 26 bátar byrjaðir róðra
á sama tima. Þá stunduðu 7 bátar
togveiðar, eins og nú.
Aflinn i einstökum verstöðvum
var sem hér segir:
Patreksf jörður 267 lestir (219 i
fyrra), Tálknafjörður 122 (43),
Bildudalur 31 (80), Þingeyri 169
(0), Flateyri 261 (266), Suðureyri
416 (289), Bolungarvik 465 (295),
ísafjörður 961 (1278) og Súðavík
180 (200).
Samtök prjóna-
kvenna stofnuð
Nokkrar konur sem hafa þann
starfa að annast prjón á prjóna-
vélar hafa stofnað með sér sam-
tök. Var fundur þeirra haldinn á
Hótel Borg, 4. nóv. síðastl. Var
þar samþykkt að láta gera texta
fyrir vinnu prjónakvenna, þvi i
ljós hafði komið að engin þeirra
kvenna sem mættar voru hafi i
rauninni vitað hvað slík prjóna-
vinna skuli seljast á. Það er
Sigríður Norðkvist á Bolungarvík
sem aðallega hefur beitt sér fyrir
stofnun þessara samtaka og til
hennar skal beina fyrirspurnum
þetta varðandi.
JHfirounþlntiHi
nucivsmcnR
<^-»22480