Morgunblaðið - 12.11.1974, Page 40
nuGivsincnR
<^^22480
nUGIVSinGHR
^^-»2248U
ÞRIÐJUDAGUR, 12. NÓVEMBER 1974
Bifreiðin eftir slysið. Ljósm. Mbl. Heimir Stfgsson.
Markaðshorfur salt-
fisksins eru erfiðar
Sendimenn SIF hafa kannað aðstæður
í S-Ameríku og á Evrópumörkuðum
SENDIMENN Sölusambands
fslenzkra fiskframleiðenda hafa
undanfarið verið erlendis til að
kanna markaðshorfur og mögu-
leika á saltfiskssölum. Er ástand-
ið engan veginn bjart í þeim efn-
um og hvað saltfiskverðið áhrærir
„þyngist þar heldur fyrir fæti“,
eins og einn af fulltrúum SlF
orðaði það. Frá Noregi berast
einnig þær fréttir, að þar sé sölu-
tregðan á saltfiski orðin slfk, að
framleiðendur séu teknir
að undirbjóða hver annan.
Tveir fulltrúar SÍF eru ný-
komnir heim úr ferð um kara-
bísku eyjarnar, Mið- og Suður-
Ameríku, þar sem þeir könnuðu
markaðshorfur og þreifuðu fyrir
sér á nýjum mörkuðum. Sameig-
inleg niðurstaða þessarar ferðar
var sú, að markaðsaðstæður allar
Blekktu slysavarna-
menn með neyðarblysi
MISNOTKUN neyðarblysa getur
gert slysavarnamönnum gramt í
geði, ekki sfzt þegar slfk óhæfa
fylgir strax f kjölfar réttrar notk-
unar neyðarblysa, þar sem björg-
un tekst giftursamlega.
Þannig var, að sl. laugardag um
kl. 18.45 var lögreglunni í Kefla-
vík tilkynnt um, að sézt hefði
neyðarblys á lofti austur af Kefla-
víkurhöfn. Skömmu síðar bar þar
að vb. Bergþór, sem var að koma
úr róðri og á leið til Njarðvíkur og
hafði hann einnig séð blysið. Kom
hann að litlum sportbát með
bilaða vél en þrjá menn um borð.
Höfðu þeir ætlað á bátnum frá
Keflavík til Keykjavíkur en voru
komnír skammt út úr höfninni er
vélin bilaði. Bergþór dró bátinn
til hafnar og varð mönnum ekkí
meint af dvölinni í bátnum.
Nákvæmlega sólarhring síðar
og þremur mínútum betur til-
kynnir varðmaður i flugturninum
á Reykjavíkurflugvelli til tilkynn-
ingarskyldu SVPH, að hann hafi
séð rautt blys í átt að Keflavik.
Um líkt leyti voru flugumferðar-
stjórar á Reykjavíkurflugvelli
staddír í bíl við Stapa og sáu
einnig ljósið á lofti og fannst
þeim það bera í Garðskaga. Til-
kynntu þeir það þegar til lögregl-
unnar í Reykjavík.
Þegar tilkynningarskyldan
haföi fengið svo samhljóða fregn-
ir og í ljósi atburðarins daginn
áður létu starfsmenn hennar
kalla út aðvörun til skipa á nálæg-
um slóðum. Þytur KE gaf sig þeg-
ar fram og kvaðst skipstjóri báts-
ins einnig hafa séð þetta ljós en
Framhald á bls. 39
væru erfiðar og verðlag heldur á
niðurleið. Að öðru leyti vörðust
þeir allra frétta um ferðina, þar
sem þeir hafa enn ekki gefið
stjórn SÍF skýrslu sína.
Aðrir sendimenn SÍF eru ný-
komnir heim eftir að hafa kannað
horfur á Evrópumörkuðum. Attu
þeir m.a. viðræður við fulltrúa
kaupenda í Portúgal og á Italíu i
London, og á næstunni er jafnvel
í ráði að senda mann til A-Þýzka-
lands til að þreifa fyrir sér með
sölur þar. Hins vegar á stjórn SÍF
einnig eftir að fá skýrslu um
þessa ferð og sendimenn hennar
vilja því ekki fjölyrða um niður-
stöður hennar að svo stöddu.
Vinnuslys
i GÆRDAG varð vinr.uslys i
timburverzlun Árna Jónssonar.
Tveir rafvirkjar voru að koma
upp vinnuljósum í porti fyrirtæk-
isins. Varð öðrum þeirra föta-
skortur og féll hann tæpa fjóra
metra og niður á jörðina. Hann
var þegar fluttur á slysadeildina,
og við rannsókn kom í ljós, að
hryggjarliður hafði brákazt.
45 ára bóndi brann
til bana í bíl sínum
UM KLUKKAN 23 s.l. laugar-
dagskvöld varð árekstur milli
fólksbifreiðar og jeppa á Reykja-
nesbraut, skammt fyrir innan
Innri-Njarðvík. Áreksturinn varð
mjög harður, og kom eldur upp í
báðum bifreiðunum. 1 jeppanum
voru tveir menn, og komust þeir
báðir út úr brennandi bflnum. t
fólksbílnum var einn maður.
Hann mun að öllum lfkindum
hafa misst meðvitund við árekst-
urinn. Varð honum ekki bjargað
út og brann hann til bana f bfl
sfnum. Hann hét Haraldur
Sæmundsson bóndi á Kletti f
Gufudalssveit, AusturBarða-
strandarsýslu, 45 ára gamall.
Haraldur heitinn lætur eftir sig
konu, 5 börn og eina stjúpdóttur.
Haraldur heitinn, sem bjó í
Kópavogi meðan á suðurdvöl hans
stóð, hafði skroppið í heimsókn til
systur sinnar, sem býr í Keflavík.
Var hann á leið inn í Kópavog
aftur á bil sfnum, sem er Ford
Escort. Jeppinn, sem er Austin
Gipsy, var á leið til Keflavíkur úr
Vogum. Ökumaður jeppans segist
hafa séð ljós fólksbílsins fram-
undan, og hafi sér virzt sem
Haraldur heitinn hafi verið búinn
að missa stjórn á bíl sínum, en
flughálka var á Reykjanesbraut-
inni þetta kvöld. Skipti engum
togum, að fólksbíllinn snerist í
hálfhring og barst yfir á öfugan
vegarhelming. Skall hægri aftur-
helmingur fólksbílsins framan á
jeppann vinstra megin og varð
áreksturinn mjög harður. Við
áreksturinn varð sprenging, lik-
lega i bensíntank fólksbílsins,
sem einmitt var hægra megin að
aftan. Kom strax upp eldur í báð-
um bifreiðunum. Ökumaður jepp-
ans slapp ómeiddur, en farþegi
skall með höfuð í gegnum fram-
rúðu og skarst nokkuð á höfði.
Ökumaðurinn hljóp þegar að
fólksbílnum, sem kastazt hafi útaf
veginum. Var billinn alelda, en
maðurinn reyndi þó að opna dyr
hans, en án árangurs. Brenndist
hann við þessar björgunartilraun-
ir. Sá hann ekkert lífsmark með
Haraldi. Slökkvilið frá Keflavík
og frá Keflavíkurflugvelli komu
brátt á vettvang, og var eldurinn
slökktur í báðum bílunum. Var
Haraldur þá látinn. Báðir bílarnir
eru taldir gerónýtir, að sögn lög-
reglunnar í Keflavík, sem hafði
rannsókn þessa máls með hönd-
um.
Átökin við Þórscafé:
Krufning leiddi ekki í
ljós ákveðna dánarorsök
STÖÐUGAR yfirheyrslur hafa
farið fram hjá rannsóknarlög-
reglunni í Reykjavík vegna dauða
mannsins fyrir framan Þórscafé
aðfararnótt s.l. laugardags, en
eins og fram hefur komið í Mbl.
lézt hann eftir ryskingar við um-
rætt veitingahús. Maðurinn hét
Benedikt Jónsson, til heimilis að
Stóru-Ávík í Árneshreppi í
Strandasýslu. Hann var fæddur 8.
september 1954, og þvi tvítugur
Álitshnekkur íslandsloðnunnar á Japansmarkaði:
Verður mætt með auknu gæða-
eftirliti á kostnað magnsins
T\ Ö helztu sölusamtök frystrar
loðnu á Japansmarkaði — sjávar-
afurðadeild SlS og Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna — búa sig nú
undir stóraukið gæðacftirlit með
meðferð frystrar loðnu á næstu
loðnuvertíð á kostnað fram-
leiðslumagnsins. Koma slíkar
ráðstafanir í kjölfar skaðabóta-
krafna og kvartana af hálfu
kaupenda í Japan um léleg gæði
Islandsloðnunnar, sem Morgun-
blaðið skýrði frá sl. sunnudag.
Innan beggja samlakanna verður
nú á næstunni þingað sérs<aklega
um þetta mál til að tryggja betri
gæði vörunnar eftirleiðis. Hins
vegar tókst Morgunblaðinu ekki
að afla upplýsinga um hversu
háar skaðabótakröfur japönsku
kaupend?una eru en þær munu
aðeins ná til annars þessara fyrir-
tækja — Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, sem jafnframt er
langstærsti útflytjandi frystrar
loðnu á Japansmarkað.
Að því er Guðjón B. Ólafsson,
framkvæmdastjóri sjávarafurða-
deildar SÍS, tjáði Morgunblaðinu
í gær, hefur deildin ekki fengið á
sig neinar skaðabótakröfur en
hins vegar hefur borizt kvörtun
frá einum kaupenda af þremur,
sem selt var til í ár. Hann sagði
hins vegar, að málið væri á því
stigi að hvorki væri hægt að upp-
lýsa um hversu mikið magn væri
hér að ræóa né verðmæti. Kvört-
unin stafaði hins vegar aðallega
af rangri flokkun loðnunnar.
„Okkur finnst Iiggja í loftinu,“
sagði Guðjón, „að Japanir muni
nú mjög herða gæðakröfur sínar
og stórhert gæðaeftirlit hlýtur að
koma niður á framleiðslumagn-
inu. Við erum nú dottnir niður i
annað sætið hvað gæði loónunnar
snertir, norska loðnan líkar nú
bezt á Japansmarkaói. Við verð-
um að bregðast eins við og Noró-
mennirnir i fyrra. Þeir gerðu þá
átak til að bæta gæði loðnunnar,
sem þýddi, að mikill samdráttur
Framhald á bls. 39
að aldri. Benedikt vann við tré-
smíðar í Reykjavik, og bjó hjá
bróður sfnum.
Við yfirheyrslur hefur 18 ára
piltur viðurkennt, að hafa lent í
ryskingum við Benedikt heitinn
fyrir utan Þórscafé um nóttina,
en segist ekki hafa slegið hann.
Pilturinn hefur verið úrskurðað-
ur í 20 daga gæzluvarðhald. Hann
var ölvaður nöttina, sem atburð-
urinn gerðist. Þá hefur vitni skýrt
frá því, að það hafi séð mann slá
hinn látna föstu höggi í magann,
en kveðst ekki muna gjörla
hvernig sá hafi litið út.
Seint í gær gaf sig fram maður,
sem varð samferða hinum látna
frá Röðli niður aó Þórscafé um
klukkan 1,15 um nóttina. Hann
segist muna eftir því, að hafa
einnig lent í ryskingum þá um
nóttina, ekki þó við sömu aðila og
Benedikt. Að öðru leytí man hann
lítið.
Margir þeir, sem staddir voru
við Þórscafé umrædda nótt, og
lögreglan hefur rætt við, hafa
borið við ölvun, og hefur rann-
sókn málsins því verið mjög erfið.
Það er trú rannsóknarlögreglunn-
ar, að enn fleiri hafi verið fyrir
utan veitingastaðinn þegar at-
burðurinn gerðist en þeir, sem
þegar hafa verið yfirheyrðir og
eru það eindregin tilmæli rann-
sóknarlögreglunnar, að þeir gefi
sig fram hið allra fyrsta.
Eins og fram kom í Mbl., voru
engir áverkar sjáanlegir á likinu.
Krufning fór fram í gær, og
Framhald á bls. 39