Morgunblaðið - 14.12.1974, Side 1
40 SIÐUR
251. tbl. 61. árg.
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fundur utanríkisráðherra íslands og V-Þýzkalands:
Ákveðið að halda áfram
samkomulagstilraunum
EIM A R A viictccnn utanrfkicráð. I tals hans við Genscher. en Þeir
EINAR Ágústsson utanríkisráð-
herra ræddi við utanríkisráð-
herra V-Þýzkalands, Hans
Dietrich Genscher, sl. fimmtu-
dag, svo sem fram kom ( Morgun-
blaðinu ( gær og urðu þeir þar
ásáttir um að halda áfram til-
raunum til að leysa landhelgis-
deiluna. Siðar skýrði Einar
Ágústsson utanríkisráðherra
fundi Atlantshafsbandalagsríkj-
anna frá deilum lslendinga og
Þjóðverja og fyrirætlunum Is-
lendinga um að færa fiskveiðitak-
mörkin út i 200 sjómilur fyrir
árslok 1975 — og að fundinum
loknum ræddi hann við dr.
Joseph Luns, framkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins og tjáði
honum, að Islendingar litu svo á,
að mál þetta kæmi bandalaginu
við. Lét framkvæmdastjórinn (
Ijós áhuga sinn á að stuðla að
viðunandi lausn málsins.
Morgunblaðið hafði samband
við Einar Agústsson í Briissel i
gær og innti hann eftir efni sam-
Lýðveldi
á Möltu
Valletta, 13. des. Reuter.
EYJAN Malta varð lýðveldi í
kvöld þegar landstjórinn, Sir
Anthony Mamo, vann emb-
ættiseið sem fyrsti forseti
eyjunnar.
Þingið hafði áður samþykkt
þrjár nauðsynlegar breytingar
á stjórnarskrá, sem hefur
verið í gildi siðan Bretar
veittu Möltu sjálfstæði 1964.
Dom Mintoff forsætisráð-
herra hefur lýst því yfir, að
sjálfstæði Möltu hafi engin
áhrif á aðild eyjunnar að
brezka samveldinu.
tals hans við Genscher, en þeir
hittust að máli, áður en fundahöld
hófust á fimmtudag.
Ráðherra kvað þá hafa rætt um
landhelgisdeiluna og hvort nokk-
ur leið væri að leysa hana. Þeir
hefðu orðið ásáttir um að athuga
hvor hjá sér, hvort nokkur mögu-
leiki væri á að breyta afstöðunni.
„Ég sagði honum strax, sagði
Einar Ágústsson, að frá okkar
hálfu kæmi ekki til greina að
frystitogararnir fengju veiðileyfi,
en hann vildi engu að siður að við
hefðum það i huga að leysa deil-
una og leituðum samkomulags-
leiða.“
Ráðherra sagði aðspurður um,
hvort þeir hefðu rætt löndunar-
bannið, að Genscher hefði einung-
is sagt, að það hefði verið talin
nauðsynleg gagnráðstöfun af
þeirra hálfu vegna togaratökunn-
ar á dögunum. Ekki hafði verið
neitt ákveðið um frekari viðræð-
ur, hvar, hvernig eða hvenær þær
gætu orðið, en ráðherrarnir komu
sér saman um að hafa samband
Framhald á bls. 22
BRATTELI
KVÍÐINN
Trygve Bratteli forsætisráð-
herra hlýðir áhyggjufullur á
svip á umræðurnar f Stórþing-
inu, er hefðu getað orðið
honum að falii. Aftast til
vinstri er Reidar T. Larsen,
foringi kommúnistaflokksins,
sem lýsti þvi yfir, að hann
mundi greiða atkvæði gegn
áformum stjórnarinnar um að
kaupa hlutabréf af álhringn-
um Alcan til að tryggja sér
helming þeirra.
Mðflokkurinn bjargaði
stjórn Trygve Bratteli
Ösló, 13. desember,
NTB. Reuter.
ÞINGMENN Miðflokksins af-
stýrðu stjórnarkreppu í Noregi og
björguðu stjórn Trygve Brattelis
forsætisráðherra þegar þeir
ákváðu ( kvöld að leggjast ekki
gegn áformum stjórnarinnar um
kaup á hlutabréfum af kanadfska
álhringnum Alcan f fyrirtækjun-
Ráðherrafundi lokið:
Efnahagsmálin talin
ógna öryggi NATO
Brussel, 13. desember.
Reuter. AP. NTB.
UTANRlKISRÁÐHERRAR að-
ildarrfkja NATO voru sammála
Henry Kissinger, á blaðamanna-
fundi eftir ráðherrafund NATO.
um það á fundi sfnum f Briissel er
lauk f dag, að kvfðvænlegt ástand
í efnahagsmálum væri ein alvar-
legasta hættan, sem steðjaði að
bandalaginu.
Enginn kunni lausn á vandan-
um en allir lögðu áherziu á nauð-
syn náinnar samvinnu f efnahags-
málum og orkumálum.
Henry Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, sagði á
blaðamannafundi eftir fund utan-
ríkisráðherranna, að ef efnahags-
ástandið versnaði ennþá meir
gæti það leitt til pólitískrar ólgu,
sem gæti veikt varnargetu banda-
lagsins.
Framkvæmdastjóri NATO,
Joseph Luns, gekk svo langt að
halda því fram, að mesta ógnunin
við bandalagið væri ástand efna-
hags- og orkumálanna, ekki Sovét-
ríkin.
Utanríkisráðherrarnir hafa orð-
ið sammála um vissar ráðtafanir
til að koma af stað viðræðum við
oliuframleiðslulönd Araba og til
Framhald á bls. 22
Joseph Luns, framkvæmdastjóri
NATO, á blaðamannafundi f gær.
um A—S Ardal og Sunndal Verk.
1 atkvæðagreiðslu seinna í
kvöld samþykkti Stórþingið með
86 atkvæðum gegn 69 kaupin á
hlutabréfunum og þar með var
stjórninni borgið.
Það eina, sem kom á óvart f
atkvæðagreiðslunni, var, að Finn
Gustavsen, foringi Sósfalistfska
kosningabandalagsins, (SV)
greiddi atkvæði með stjórninni
einn allra þingmanna flokkksins.
Gustavsen hvarf úr þinghúsinu
eftir atkvæðagreiðsluna og vildi
ekkert láta hafa eftir sér um
stefnubreytingu sína. Formaður
SV, Stein Örnhöi, neitaði þvi aó
afstaða Gustavsen mundi draga
dilk á eftir sér í flokknum.
Erland Steenberg, þingleiðtogi
Miðflokksins, kvaðst hafa skipt
um skoðun að ákveðið að styðja
stjórnina vegna yfirlýsinga ráð-
herra um málið. Hann sagði, að
þingmenn flokksins gætu kosið
eftir sannfæringu sinni i málinu.
Verkamannaflokkurinn hefur 62
þingmenn af 155 og Miðflokkur-
inn 22 en fimm þingmenn
borgaraflokkanna höfðu lýst yfir
stuðningi við tillögu Brattelis.
Borgaraflokkarnir voru á móti
frumvarpinu vegna þess, að
Alcan biður um 62 milljónir doll-
ara fyrir 25% hlutabréfanna sem
stjórnin ætlar að kaupa nú en
greiddi 50 milljónir dollara fyrir
50% sem stjórnin seldi 1966.
Að sögn fréttaritara Mbl. í Ösló
er ekki óliklegt, að Per Borten
fyrrverandi forsætisráðherra og
fyrrum leiðtogi Miðflokksins hafi
haft úrslitaáhrif i þessu máli.
Hann lýsti því yfir strax á mánu-
daginn, að hann gæti vel sætt sig
við fyrirhugaða samninga við
Alcan og siðan hefur hann fengið
nær alla þingmenn flokksins með
sér.
Bratteli forsætisráðherra lýsti
þvi yfir i umræðum Stórþingsins,
að stjórn sin stæði eóa félli með
Framhald á bls. 22
Olían
hækkar
Vin, 13. desember. AP.
HELZTU olíuútflutningslönd
heimsins samþykktu i dag að
hækka gjöld sfn um 38 cent á
tunnuna, eða tæp 4%. En
þegar aðalfulltrúi Irans var að
þvf spurður hvort þetta hefði f
för með sér verðhækkun fyrir
neytendur sagði hann, að það
fari eftir því hvað olfufélögin
gætu tekið mikið á sig af
þessum hækkunum.
Jafnframt var samþykkt í
lok ráðstefnu Samtaka olfuút-
flutningsrfkja (OPEC) ein-
hliða olfuverðhækkun, sem
rfkin við Persaflóa hafa
ákveðið. transki aðalfull-
trúinn Jamshid Amouzegar,
sagði, að ekki hefði verið hægt
Framhald á bls. 22