Morgunblaðið - 14.12.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.12.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974 7 íslenzk þjóðlög, safn séra BjarnaÞorsteinssonar Þjóðháttðarútgáfa Siglufjarðarpren tsmiðju bætir úr brýnni þörf íslenzk þjóðlög, safn séra Bjarna Þorsteinsonar, hefur nú verið gefið út I annað sinn fyrir jslendinga. i fyrra skiptið var það gefið út árið 1909 af Carlsberg- sjóðnum, en I marga áratugi hefur þessi sérstæða bók verið svo til ófáanleg. Nú hefur Siglufjarðar- prentsmiðja bætt þar úr á myndar- legan hátt, en forstjóri hennar er Sigurjón Sæmundsson. jslenzk þjóðlög eru nú gefin út á þjóð- hátfðarárinu f sérstakri hátfðarút- gáfu með merki þjóðhátfðarinnar og áritun 1100 eintaka f númerunum 874—1974, eða ein bók á hvert ár byggðar f landinu. Séra Bjarni Þorsteinson til- einkaði þjóðlagasafnið f fyrri út- gáfunni minningu tengdaföður sfns, Lárusar Blöndals, sýslu- manns á Kornsá, en þessi þjóð- hátfðarútgáfa er algjörlega eins og fyrri útgáfan, þvi hún er Ijósprent- uð upp úr þeirri fyrri. Stafsetning öll og frágangur hefur þvf sama svip og Carlsbergútgáfan. Með starfi sfnu við söfnun fslenzkra þjóðlaga f þessa bók vann séra Bjarni feikilega merki- legt menningar- og björgunarstarf. því ella eru allar Ifkur á að margt hefði farið forgörðum með breytt- um tfmum upp úr aldamótunum þegar þjóðin gekk inn i nútimann. Þessi bók séra Bjarna er ein af dýrgripum islenzkra bókmennta bæði fyrir þá sem vilja kynnast þjóðlegri tónlist og einnig þeim sem unna fslenzkum menningar- arfi. Þjóðlögin hafa verið sungin og kveðin f gegn um allar aldir jslandsbyggðar; á skammdegis- vökum sem sumarnóttum hefur hver kynslóð af annarri lært þau og geymt sér f minni og f dag eru þau lifandi kjarni fslenzkrar þjóð- legrar tónlistar og þetta mikla verk er engin smásmfði, um 1000 blaðsfður að stærð. Siglufjarðarútgáfan er f vönduðu bandi og hin glæsileg- asta bók, sem auðséð er að mikil alúð og rækt hefur verið lögð við. Ragnar Páll listmálari hefur gert kápumynd og er hún af lýsis- lampa. Er það táknrænt, þvf við koluljós hafa íslenzku þjóðlögin verið sungin lengst af. Einnig er teikning eftir Ragnar Pál af séra Bjarna á kápunni. Bókin er f mjög látlausu og stflhreinu bandi, enda kvaðst Sigurjón Sæmundsson álíta það eðlilegastan búning utan um hin stflhreinu og einföldu fslenzku þjóðlög. Vegna ófærðar á Norðurlandi hefur dregist nokkuð að dreifa bókinni, en hún er væntanleg f bókabúðir f Reykjavfk og nágrenni eftir helgina. Sjóleiðis hefur henni verið dreift frá Siglu- firði til nálægra staða. Á 25 ára tfmabili, eða frá 1880-—1905, safnaði séra Bjarni fslenzku þjóðlögunum með ferð- um vfða um og ærinni fyrirhöfn og ritgerðirnar sem segja frá söfnun- inni og lögunum eru samdar á sama tfma. I formála bókarinnar segjr séra Bjarni m.a : Þar eð þetta má heita hin fyrsta tilraun til þess að rita fslenzka söngsögu, að rita um fslenzk þjóð- lög og hinar ýmsu tegundir þeirra, eðli og einkenni og að gefa út nokkurn veginn fullkomið safn fs- lenzkra þjóðlaga, þá gefur að skilja, að við töluverða erfiðleika hefur verið að strfða, þar sem lítið og ósamstætt efni var fyrir hendi til að byggja á. Getur því tæplega hjá þvf farið, að ófullkomleikar finnist á ritsmfð þessari og safninu f heild sinni og munu sanngjarnir dómarar meta það svo sem við á. í þessu efni sem öðrum, og jafnvel frekar en f öðrum efnum, getur og sitt sýnzt hverjum t.d. hvað taka skuli í slfkt safn og hvað ekki. Jeg Tvtti ____ _ „ur* «r -rP L» býwyv- fm-.. Vi.lir haæ.. "‘".r h.«n- T""' , t . - I 1 . 1 . > i i I 3 5 . i I - í V & 1 w 1 1*,r r.«h..r Iok'.«m j&’ * * * * 1 * * * t \rM • • I ' ' ¥ -i 'l.yrk.. •**»«. ^ • • ' r | 2 i i \ 1 11 ™ h’rjll„ lóftm«o«.» fr.«* pefla er ún efa hifi almennasU þjó&U* * sewa að na,lun, hveri mannsbam M ™ er iafnvel eim alnmnnara en Islanil. f«r» b_„,. lei&ir þaö. j<U hef heyrt !«&'» "W»&ur- •M,r jíp hef nnkkur I'JúMO* 11ví úvullt sung» þaiinig. að emn ->np,r '• » •i vLirð en ullir luka untlir Ivi-eðu þrirmlilað v|.l.r ru.l.l- Ll in u LL. ..... "efur I Sstrrl-sBb: „ns Ió„r » •'< '»i« 4kl""",íl Asa gekk um slræU. •<oto Tmtti. Sol... Á, - , pekk ..... Hlnrli F.rvel. n.y. Il.-yrö h.u, fnyur I*. . j mÉE955SmWBS&É \» sikil - ey; mpri.ni Ijnldum slúpu |«.-ir ...nlir Sán.-ev I’annig er li.RÍð i safni Berggrcens og er þj,5 hang.ið foinift fni I*. (iuðjolilisuu. I'ella Ing og L.giB við (jjafur -id nieð bj.'.riMim fr.mi mi þau einn Ivö nf l..gmiiim i afm tíerggre. iis. >.-m imU., bvilu ulimmn ú íslnmti enn i !ag. Lagið vifi A' ina.Hpegi I heyrist .-Irrnig , nn n s|..k,i tað. Ásukvu'fii .-r eilt af Uenzkum funikva'ðuin. ■Sanian við þetta Ing mú bera Ingið: Ása gekk ir.u trarti. | uefi kuri <« pi | . seni m.l.mð . r .iðnini -l.,' Tvö sýnishorn af þjóðlögum úr safni séra Bjarna. listasp rang Eftír Arna Johnsen hef haft fyrir reglu að taka inn f safnið allt, smátt og stórt, sem jeg náði f og með nokkru móti gat talizt til fslenzkra þjóðlaga eða sem gat orðið til þess, að efla og útbreiða þekkinguna á þessum fræðum. Og þótt sumir kunni að telja það ókost, þar sem safnið einmitt fyrir það verði miklu stærra, dýrara og óaðgengilegra, þá munu þó aðrir, og þeir fleiri, telja það rjett ráðið að taka allt með, smátt og stórt, og sem flest- ar tilbreytingar laganna, svo safn- ið verði sem fullkomnast. En sfðar meir geta þeir, sem vilja, gert útdrætti úr safni þessu og gefið út svo mörg eða fá lög, sem þeir vilja, og útsett þau á einn eða annan hátt eptir eigin geðþótta. Þetta safn, er jeg hef reynt að gjöra sem vandaðast og fullkomn- ast, verður þá eins og nokkurs konar forðabúr, sem úr má taka og hagnýta sjer eptir vild og þekk- ingu. Þá segir séra Bjami f upphafi inngangs bókarinnar: Þegar talað er um þjóðlög ein- hverrar þjóðar, er með þvf átt bæði við þau lög, sem að öllu leyti hafa myndazt hjá þjóðinni, án þess nokkur geti bent á stund eða stað, er lagið hafi myndazt, og einnig þau lög, sem þjóðin hefur algerlega gert að sinni eign, með þvf að hafa þau lengi og iðuglega um hönd og setja á þau sinn ein- kennilega blæ, jafnvel þótt lögin sjeu upprunalega utan að komin. Mörg þjóðlög hafa verið ákaf- lega lengi að myndast, og hafa tekið margskonar breytingum; en aptur hafa sum þeirra myndazt á skömmum tfma og svo Iftið breytzt úr þvf. Sumum lögum er miklu hættara við þvf en öðrum, að taka sífelldum breytingum, löngum og erfiðum lögum miklu hættara við þvi en stuttum og Ijettum lögum. Sum þjóðlög ferð- ast úr einu landi í annað, eins og þegar þjóðflokkar flytja sig; er það þá stundum, að lagið gleymist f hinu upprunalega heimkynni þess, en festir rætur f hinu nýja landi, og verður þar reglulegt þjóðlag. Á margan hátt getur þetta breytzt. og er ákaflega mikil fyrirhöfn að rekja slfk ferðalög laganna og rannsaka allar þær breytingar, sem þau taka, eptir þvf, sem tfmarnir Ifða. Þessi teikning af séra Bjarna prýðir kápu bókarinnar. Keflavik — nágrenni Bandaríkjamaður með 2 börn óskar eftir 2ja—4ra herb. íbúð. Upplýsingar i síma 7142 Kefla- vikurflugvelli. Fiat 127 '74 Til sölu Fiat 127, ekinn 11000 km. Uppl. eftir kl. 1 í dag i sima 52129. Frá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar Umsóknir til nefndarinnar eru i simum Málfríður 52268, Hera 51 386, Þorbjörg 51 746. Atvinnurekendur— Fyrirtæki Tek að mér vélritun heim, hef rafmagnsvél, fljót og góð vinna. Upplýsingar i sima 71387. Geymið auglýsinguna. Alfreð Flóki Mynd 70x100 cm til sölu, ef við- unandi boð fæst. Þeir, sem hafa áhuga sendi tilboð til Mbl. merkt: „Mynd 585—8792” fyrir þriðju- dagskvöld 17. des. Nokkur ný sófasett til sölu. Sedrus s.f., Súðarvogi 32, simar 84047 og 30585. Ráðskonustaða óskast i Reykjavik. Upplýsingar i sima 81 965. Úrbeinaðir svínabógar kr. 965,-. Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, Reykjavik, simi 35020. Gunnhildur kógamóðir (Sofðu rótt) í gobelini og mynd- flosi. Fallegir saumakassar. Kærkomnar jólagjafir. Hannyrðaverzl. Erla, Snorrabr. 44, s: 14290. Antik myndarammar og útsaumsefni i þá. Kaffipoka- og eldspýtustokka- hulsutr. Hentugar jólagjafir. Hannyrðaverzl. Erla, Snorrabr. 44, s: 14290. Innrömmun á handavinnu. Erlendir ramma- listar. Matt gler. Fljót lafgreiðsla. Hannyrðaverzl. Erla, Snorrabr. 44, s: 14290. Til sölu Datsun 1 00 A árgerð 1 974. Upplýsingar hjá Sveini Egilssyni, simi 85100. Getum bætt við okkur innréttingasmiði ásamt alls konar sérsmíði. Sýningareldhús á staðn- um. BIRKIS.F. Hjallahrauni 10, Hafnarfirði, simi 51402. Jólatré Jólatrén koma um helgina með Grundarfossi ný högginn, sigræn og sáldfri. Jólatréssalan Drápuhlið 1. Til jólagjafa glæsilegt úrval af hannyrðavörum. Margt á gömlu, góðu verði. Nýkomnir fileraðir dúkar og plus- dúkar. Hannyrðaverzl. Þuriðar Sigur- jónsd., Aðalstræti 12. Til sölu söluturn i gamla bænum í fullum rekstri. Til afhendingar nú þegar. Upplýsingar i sima 33040 eftir kl. 7. RowenlA Hárþurrku- hettan Löng snúra með 3 hita- stigum. VALIÐ ER VANDALAUST Glœsileg 1000 bls. búk urn söngsögu þjóðarinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.