Morgunblaðið - 14.12.1974, Page 22

Morgunblaðið - 14.12.1974, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974 — Efnahagsmálin Framhald af bls. 1 að koma til leiðar nánari sam- vinnu olíuneyzlulanda. Þrátt fyrir ágreining Frakka og Bandaríkjamanna í þessum efn- um var dr. Kissinger bjartsýnn og taldi horfur á samkomulagi i við- ræðum Valery Giscard d’Estaing forseta og Gerald forseta á Mart- inique um helgina. Kissinger kvaðst hafa skýrt Hin- um ráðherrunum frá ástandinu í Miðausturlöndum. Þótt hann var- aði við því að það gæti haft alvar- tegar afleiðingar fyrir heimsfrið- inn ef ástandið þar versnaði var hann bjartsýnn á að takast mætti að finna friðsamlega lausn. Kissinger hefur átt nokkra fundi með utanríkisráðherrum Grikklands og Tyrklands um Kýpurdeiluna og á blaðamanna- fundinum lagði hann áherzlu á, að hann væri bjartsýnni á lausn deilunnar en áður en hann kom til Briissel. — Olían Framhald af bls. 1 að neyða Persaflóarfkin til að hverfa frá þessari hækkun. Amoúzegar sagði, að full- trúarnir á ráðstefnunni hefðu samþykkt í aðalatriðum þá ákvörðun að auka tekjur aðild- arríkjanna af olíu 1 samræmi við hina auknu verðbólgu I iðnvæddum löndum. Olíusérfræðingar áætla, að sú einhliða olluverðhækkun, sem fulltrúar Saudi Arabíu, Qatar og Arabiska furstasam- bandsins ákváðu á fundi 1 Abu Dhabi f síðasta mánuði, jafn- gildi þvl, að árlega muni olíu- framleiðendur fá 1.5 milljarð dollara til viðbótar frá olfu- neytendum. Samkvæmt gildandi verð- lagskerfi hafa löndin tekið 9,74 dollara í gjöld af hverri olíutunnu. Samkvæmt sam- komulaginu í dag hækka gjöldin í 10,12 dollara og hækkunin tekur gildi 1. jan. Þar við bætist framieiðslu- kostnaður og annar kostnaður þannig, að verðið á tunnuna verðu 10,73 dollarar i stað 10,35 dollara nú. Samkomulag er um að koma á einu verðlagskerfi í stað flókins kerfis, sem hefur gilt hingað til. Með hinu nýja kerfi vilja olíuframleiðslurfkin draga úr hagnaði olíufélag- anna, sem þau telja óeðlilega mikinn. — Samkomulags- tilraunir Framhald af bls. 1 hvor við annan fyrir milligöngu utanríkisþjónustunnar. Aóspuröur hvort aðrir ráðherr- ar á fundinum hefðu gert fisk- veiðideiluna að umalsefni, kvað Einar Agústsson ekki vera. Fundurinn á fimmtudag var haldinn fyrir luktum dyrum og snerist að sögn ráðherra fyrst og fremst um efnahagsvandamálin og olíukreppuna. „Við hinir kom- umst ekki að fyrr en undir lokin, en þá gerði ég fundinum grein fyrir því, að við myndum færa fiskveiðilögsöguna út í 200 sjómíl- ur fyrir árslok 1975. Ennfremur minntist ég á þessa deilu við Þjóð- verja og átti síðan fund með dr. Josep Luns, þar sem við ræddum um, að NATO mundi vita af þessu máli, að minnsta kosti ég skýrði honum frá deilunni og sagði, að við Islendingar litum svo á, að þetta væri NATO-mál — og bandaiagið gæti e.t.v. stuðlað eitt- hvað að því að leysa þessa deilu okkar, — og hann tók vel í að vera til aðstoðar,“ sagði Einar Ágústs- son að iokum. Hann er væntanleg- ur heim á sunnudag. — Miðflokkurinn Framhald af bls. 1 þessu máli. „Við skulum ekki gera okkur hlægilega í augum þjóðannnar," sagði Bratteli. Bratteli lagði áherzlu á, að stjórnin teldi hlutabréfakaupin nauðsynlega ráðstöfun til þess að fá ytwumsjón með áliðnaðinum. Hann sagði, að samningarnir við Alcan væri góðir og bað þingið að samþykkja þá, ekki til að gera stjórninni heldur áliðnaðinum greiða. Hann lagði áherzlu á, að stjórn- in mundi fá meirihluta í fyrir- tækjunum og að dregið yrði úr áhrifum kanadiska álhringsins. Fréttaritari Mbl. í Ósló, Agúst Jónsson, skrifar: Umræðurnar um Alcan- samninginn hófust i Stórþinginu kl. 10 f.h. og var almennt ekki búizt við því, að fyrri yfirlýsingar flokkanna mundu breytast við umræðurnar. Málið virtist komið í sjálfheldu og dagar Trygve Brattelis sem forsætisráðherra virtust taldir. Þó var vitað, að innan Mið- flokksins voru uppi raddir um, að það þjónaði engum tilgangi að fella stjórnina á þessu máli. Kl. 15.00 var gert hlé á umræðum og fram til kl. 18 sátu þingmenn Mið- flokksins á fundi. Að honum lokn- um kom í ljós, að ríkisstjórnin hafði fengið meirihluta í Alcan- málinu á síðustu stundu. Á sama tíma sátu þingmenn Kristilega þjóðarfiokksins á fundi. Þeir ræddu þó ekki Alcan- málið sjálft heldur stjórnarmynd- un. Um það hafði verið rætt bak vió tjöldin, að Hægri flokkurinn, Miðflokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn mynduðu nýja ríkisstjórn og yrði hún þá væntan- lega undir forsæti Lars Korvalds úr Kristilega þjóðarflokknum. Þegar þingmenn Miðflokksins lýstu því síðan yfir, að þeir myndu styðja stjórnina í málinu, varðuppi fótur og fit í Stórþing- inu. Almennt voru þingmenn ánægðir með þessa lausn því i rauninni vildi enginn fella rikis- stjórnina. Þvi er líklegt, að Mió- flokkurinn standi nú með pálm- ann í höndunum að þessu sögu- lega máli loknu. Sósialistíska kosningabandalag- ið (SV) hefur stutt stjórnina í flestum stórmálum undanfarið eða fram aó umræðunum um Alcan. 1 því máli mætti stjórnin harðastri andstöðu frá SV og hætt er við þvi, að samvinna Verka- mannaflokksins og SV versni mikið frá því sem áður var. Góð samvinna hefur einnig ver- ið á þingi milli borgaraflokkanna. En þar sem Miðflokkurinn skarst úr leik í atkvæðagreiðslunni um Alcan og veitti stjórninni stuðn- ing sinn verður afleiðingin örugg- lega sú, að gagnkvæmt traust borgaraflokkanna bíður alvarleg- an hnekki. 13. desember 1966 seldi norska ríkið Alcan-álhringnum frá Kanada 50% hlutabréfa í fyrir- tækinu AS. Árdal og Sunndal Verk, einhverjum stærstu álverk- smiðjum Evrópu. Nú, nákvæm- lega átta árum síðar, 13. desem- ber 1974, hefur norska stjórnin fengið leyfi til að kaupa 25% hlutabréfanna aftur. Þetta hefur kostað mikil átök og miklar væringar á vettvangi norskra stjórnmála. En hvað ríkisstjórn Brattelis snertir varð þessi dagur ekki eins langur föstudagur og allt leit út fyrir í morgun. — Jarðýta Framhald af bls. 2 skipinu, síðan var jarðýtunni ekið út að því, og skipsmenn stukku niður á þak hennar, en þeir voru 11 aó tölu. Á þennán hátt komust þeir á þurrum fótum í land. I fyrrinótt var hvöss sunnanátt a strandstaðnum og nokkurt brim. Við það færðist Verðandi nær landi. Báturinn stendur réttur í fjörunni og er honum engin hætta búin, svo framarlega, að hann grafist ekki í sandinn. Björgunar- skipið Goðinn mun nú vera komið á strandstað og um leið og veður lægir og komin er norðanátt verður reynt að draga bátinn út. Skipverjar Verðanda fóru allir í fyrrinótt upp á Hvolsvöll, þaðan fóru svo 6 þeirra til Reykjavikur, en 4 urðu eftir og bíða eftir veðri til björgunar. — Hrossaþjófar Framhald af bls. 2 Viðurkenndu þeir við yfir- heyrslur stuld á 9 hrossum. Auk þess viðúrkenndu þeir marga þjófnaði af öðrum toga. 4 hross drápu þeir á víðavangi með 10 skota skammbyssu, sem fannst heima hjá öðrum mannanna. M.a. slátruðu þeir 4ra vetra meri, fyl- fullri. Kjötið seldu þeir. Hross- unum stálu þeir í Vatnsenda- landi, við Geitholt, á Kjalarnesi og I Rangárvallssýslu. Vngri maðurinn átti þátt í að stela 5 hrossum en sá eldri 9. Eigendur hafa fundizt að öllum hestunum nema steingrárri meri með stjörnu, líklega um 4ra vetra, sem er í vörzlu rannsóknarlögregl- unnar í Hafnarfirði. Hrossaþjófnaður í stórum stíl mun ekki hafa komizt upp á Is- landi i tugi ára, að sögn Sveins Björnssonar rannsóknarlögreglu- manns í Hafnarfirði. — Átti ekki. . . Framhald af bls. 2 um til vanvirðu eða álitshnekk- is eða varpað getur rýrð á það starf eða starfsgrein, er hann vinnur við.“ Varla fer á milli mála, að áður tilfærð ummæli Braga Jósepssonar séu likleg til að varpa rýrð á viðkomandi starfs- grein, auk þess sem rök skortir fyrir þeim staðhæfingum, að ráðamenn menntamála „standi gegn úrbótum” og að starfsemi þeirra sé einungis til „niðurrifs og þjóðfélagslegrar óþurftar". Þann 10. október s.l. ritaði Bragi Jósepsson menntamála- ráðherra bréf þar sem krafist er „opinberrar rannsóknar á störfum og starfsháttum menntamálaráðuneytisins." Þetta bréf var jafnframt sent forsætisráðherra til áherslu. Kröfu um rannsókn hafði hann áður sett fram munnlega og hann áréttaði hana einnig sið- ar. 1 nefndu bréfi lætur bréfrit- ari þess getið, að hann hafi „að sjálfsögðu“ virt skoóun yfirboð- ara sins að vettugi og unnið tiltekin störf „í óþökk þess sem valdið hafði“. I skipunarbréfi Braga Jóseps- sonar segir m.a.: „Hann skal vera yfirmönnum sinum trúr og hlýðinn — —“. Hin tilvitn- uðu ummæli úr bréfi Braga Jósepssonar samrýmast ekki þessum fyrirmælum. Hinn 15. október var lögð á borð ráðherra skýrsla, talin gef- in út af menntamálaráðuneyt- inu, 86 bls. Hafði hún verið fjölrituð og henni dreift til 200—300 aðila án vitundar ráð- herra og ráðuneytsstjóra. 1 skýrslu þessari felst gróf ádeila á menntamálaráðuneytið og nafngreindan starfsmann þess. Bragi Jósepsson ritar formála að skýrslu þessari og tekur þar sterklega undir ályktanir skýrsluhöfundar og gerir þær að sínum. í skýrslunni eru ýms- ar upplýsingar um nemendur á grunnskólastigi. Tel ég hæpið að þær eigi erindi til almenn- ings, en skýrslan var ekki send út sem trúnaðarmál. Ég veitti deildarstjóra þegar í stað harða áminningu. Mun það fátítt ef ekki einsdæmi, að áeildarstjóri í ráðuneyti standi að slíkri útgáfu án vitundar yf- irboðara sinna. Skýrslu þessa mátti ekki gefa út án samþykkis ráðherra en Bragi Jósepsson var hins vegar á annari skoðun eins og fram hefur komið. Eftir óviðurkvæmilega ádeilu Braga Jósepssonar á mennta- málaráðuneytið i almennu riti, endurteknar kröfur um „opin- bera rannsókn" á ráðuneytinu, yfirlýsingu um, að hann „að sjálfsögu" virði vilja yfirboðara að vettugi, útgáfu yfirgripsmik- illar og umdeilanlegrar ritsmfð- ar í nafni menntamálaráðu- neytisins í heimildarleysi, átti ég eigi annars kost en segja honum upp störfum. — Silfurslátta Framhald af bls. 2 þá, að verð punds og dollars hefði hækkað um 35—37% og þvl hefði verið ákveðið að hækka sölu- verðið á Islandi um 25%. Sigurð- ur örn kvað það hafa verið nauð- synlegt að samræma verðið hér heima og erlendis og þar sem myntin hefði upphaflega verið seld á yfirverði hefði þetta verið hægt. Ef myntin hefði hins vegar verið seld á nafnverði hefði ekki verið hægt að hækka hana, en Sigurður Örn kvað þá hafa dregið það i lengstu lög að hækka silfur- myntina, eða þar til þeir voru farnir að verða varir við að er- lendir aðilar vildu heldur kaupa myntina hér heima en erlendis af ' því að hún var ódýrari hér. — Minning Sigrún Framhald af bls. 28 eftir þetta. Með þá trú er Sigrún kvödd og minningin um lífsglaða og þróttmikla konu er öllum að- standendum mikils virói. Dýpstu samúð votta ég eftirlif- andi eiginmanni, börnum, barna- börnum, tengdadóttur og syni, svo og eftirlifandi systkinum. Geir R. Andersen. — Stálvík Framhald af bls. 40 að séu smátt og smátt að færast í betra horf.“ Samningar að báðum skipunum voru undirritaðir 12. október s.l. og Stálvík getur nú þegar hafið smíði á skipi Súgfirðinganna, þar sem fyrirtækið á stál í skipið. Að sögn Jóns var það mjög þýðingar- mikið að fá tilskilin leyfi fyrir áramót, þar sem vitað er, að margt af því, sem þarf til skipa- smíðarinnar, en hægt er að semja um strax, hækkar eftir áramót. Tæki og vélaútbúnaður skipanna verður væntanlega svipaður því, sem er i Runólfi, enda hafa verið valin öll beztu tæki og vélar i það skip að mati kaupenda. Nýju skipin tvö verða 51,20 metraaðlengd, eða svipuð Guð- björgu frá ísafirði. Það telst til nýjunga, að bæði verða þessi skip útbúin þannig, að hægt verður að veiða loðnu og spærling og þá með flotvörpunni. Munu skipin taka um 750 tonn af loðnu, en þaó er hægt með sérstakri hönnun innréttinga fiskirúms. Hvoru skipi fylgja 2500 fiskikassar og allar lestar verða með sléttu gólfi og stuðningsútbúnaður er fyrir þá. Fiskileitartæki verða svo til öll frá Simradverksmiðjunum i Nor- egi, ratsjár frá Decca og sjálfstýr- ing og gyroáttaviti frá Anzchugg. Að lokum sagði Jón, að nú væri áríðandi að geta fljótlega planlagt þriðja smíðaárið og i því sam- bandi þyrfti að ganga frá mörgum atriðum. — Minning Friðjón Framhald af bls. 28 sem ötull félagsmaður frá upp- hafi í klúbbnum, með sínum verslunarstörfum. Hann var gerð- ur að heiðursfélaga í Lions- klúbbnum árið 1972. Vió félagarnir sendum honum okkar hinstu kveðjur, með þakklæti fyrir allar ánægju- og gleðistund- ir, sem við áttum með honum. Blessuð sé minning þín. — Geirfinns- málið Framhald af bls. 3. kannaSir allir Fiat 600 bllar með G númeri, en án árangurs. Liggur nú fyrir úttekt á öllum bílum af þessari gerð á landinu, unnin af Skýrsluvélum ríkisins. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í gær, hafa verið fluttir inn um 200 Mercedes Bens sendi- bílar þeirrar tegundar, sem um ræðir. Ekki liggur fyrir hve margir Fiatbílar af þessari gerð hafa verið fluttir inn, en innflutningi þeirra var hætt 1972. Að lokum skulu ítrekuð þau tilmæli lögreglunnar I Keflavlk, að fólk haldi áfram að senda inn þær upplýsingar, sem það telur að geti komið að gagni. Almenningur hefur fylgzt með þessu máli af mikilli athygli og samvinna lögreglunnar og al- mennings verið einstaklega góð. Fólk á ekki að hika við að hringja I lögregluna, það kann að búa yfir þeim fyrir þeim upplýsingum, sem kannski koma lögreglunni á sporið, og leiða til lausnar þessa erfiða máls. — SS. - Píanótónleikar Framhald af bls. 20 algjörar andstæður við þessa ófögru lýsingu, sem urðu þá sérdeilis hrifandi, eins og t.d. Debussy prelú- dían „Kirkjan á hafsbotni". Allir listamenn eiga sín góðu og slæmu kvöld. Á fimmtudaginn leikur Simonkova með Sinfóníu- hljómsveitinni. Það verður vonandi eitt góðu kvöld- anna. — íslendingar Framhald af bls. 40 afli þeirra hefði verið 348 þúsund lestir 1970, árió 1971 hefði afli þeirra verið 384 þús. lestir, árið 1972 hefði hann verið 309 þús. lestir og 1973 hefði afli þeirra verið 279 þús. lestir. Af þessum afla veiddu Bretar og Vestur-Þjóðverjar meginhlut- ann. Afli þessara tveggja þjóða 1970 hefði verið 277 þús. lestir, árið 1971 hefði hann verið 335 þús. lestir, árið 1972 hefði hann verið 279 þús. lestir og á siðasta ári hefðu þær veitt 246 þús. lestir af þeim 678 þús. lestum, sem veiddar hefðu verið hér við land. Aðspurður um það, hvort samdráttur hefði orð- ið í veiðum annarra þjóða hér við land en Breta og Vestur-Þjóðverja sagði ráðherra, að veiðar ann arra þjóða á sl. árum hefðu verið sára litlar. Færeyingar væru næstir í röðinni hvað aflamagn snerti og þeir hefðu veitt 21,5 þús. lestir á síðasta ári en á árinu 1970 aðeins 12 þús. lestir. Færey- ingar væru þvi eina þjóðin, sem hefði stóraukið afla sinn á íslandsmiðum á sama tíma og við sjálfir hefðum minnkað afla okkar úr 472 þús. lestum í 399 þús. lestir. Sú þjóð, sem kæmi næst á eftir Færeyingum væri Belgar, en þeir hefðu veitt hér við land 7,7 þús. lestir og aðrar þjóðir hefðu samtals veitt hér 3,3 þús. lestir. Matthias Bjarnason sagði ennfremur, að á árinu 1970 hefðu Islendingar veitt 57,6% af heildarafl- anum hér við land, árið 1971 hefði þetta hlutfall verið komið niður í 52,1%, árið 1972 hefði það verið 55% og á síðasta ári 58,9%. Af þessu mætti sjá, að brýn nauðsyn væri á að færa landhelgina út i 200 sjómílur á næsta ári og stefna markvisst að því að auka hlutdeild Islendinga I veiðunum hér við land og auka möguleika okkar sjálfra til þess að stjórna heildarsókninni á miðin. Ráðherrann sagði, að framtíð sjávarútvegsins og íslendinga sem sjálfstæórar þjóðar væri komið undir því að hraða sem mest að taka þessa ákvörð- un. Islendingar ættu einir að ráða yfir 200 sjó- mílna fiskveiðilögsögunni, en hinu yrði eflaust ekki neitað, að réttlætanlegt og skiljanlegt væri vegna vinsamlegs samstarfs við aðrar þjóðir að einhverjir samningar kynnu að verða gerðir um veiðiheimildir innan 200 milna lögsögunnar um mjög takmarkaðan tíma, en við slika samninga yrði að draga verulega úr afla erlendra þjóða hér við land og færa veiðisvæði þeirra utar en samið hefði verið um vegna útfærslunnar í 50 sjómilur. Ráðherrann sagðist ekki gera ráð fyrir, að haf- réttarráðstefnan í Genf kæmist að endanlegri niðurstöðu, en hann sagóist vera bjartsýnn á framhaldsfundinn í Caracas. Hann sagðist vona, að stefna okkar og annarra þjóða nyti stuðnings % hluta þjóðanna, er taka þátt i ráðstefnunni, en þá væri sigurinn líka auðunninn. Hins vegar kæmi það ekki til með að breyta stefnu núverandi ríkisstjórnar þó að þessi aukni meirihluti fengist ekki, því hún ætlaði að framfylgja sinni stefnu um 200 sjómílur á næsta ári, en útfærsludagurinn hefði ekki verið ákveðinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.