Morgunblaðið - 14.12.1974, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 14.12.1974, Qupperneq 40
Ronson Electronic gjöfin, sem vermir Taylor byrjaður að af- plána fangelsisvistina BREZKI togaraskipstjórinn Dick Taylor kom til landsins s.l. mið- vikudagskvöld. Knúði hann ð dyr fangelsins í Síðumúla daginn eftir, og kvaðst vera kominn til að taka út 30 daga fangelsisdóminn, sem hann fékk í sumar, eftir að skip hans Forester H-86 var staðið að veiðum innan 12 mflnanna. Dick Taylor. 9 erlend til- boð í Vest- mannaeyjaskip BORIZT hafa 9 tilboð í smíði nýja Vestmannaeyjaskipsins og hafa tilboðin verið opnuð. Er nú unnið að þvi að kanna tilboðin, en þau eru mjög misjöfn bæði hvað varðar verð, tilhögun og afgreiðslu- tíma. Eru tilboðin öll erlend, frá Japan, Spáni, Noregi og Vestur-Þýzkalandi. Að sögn Guðlaugs Gislasonar alþingismanns formanns stjórnar Vestmannaeyja- skipsins verður niðurstöðu að vænta í kring um ára- mótin hvaða tilboði verður tekið. Hefur Taylor dregið til baka áfrýjun á máli slnu til hæsta- réttar, og stendur þvf dómur undirréttar sem endanlegur dómur. Dick Taylor mun þvf eyða jólunum á tslandi. Eins og menn rekur minni til, stóð varðskipið Þór skuttogarann Forester frá Hull að ólöglegum veiðum innan 12 milnanna útaf Hvalbak 19. júlí i sumar. Sinnti togarinn ekki stöðvunarmerkjum heldur sigldi af stað, en var stöðvaður eftir mikinn eltingar- leik og átta stöðvunarskot og færður til Seyðisfjarðar. Voru afli og veiðarfæri gerð upptæk og Tayior dæmdur i 1200 þúsund króna sekt og 30 daga fangelsi vegna itrekaóra landhelgisbrota við Island. Hann áfrýjaði dómn- um. Á miðvikudaginn barst svo skeyti til dómamálaráðuneytisins, p þar sem Taylor dró áfrýjunina til baka og boðar komu sína til ís- lands. Jafnframt ákvað saksókn- ari rikisins að áfrýja ekki, og er máiinu þvi lokið. Mótorbáturinn Verðandi á strandstað á Landeyjasandi f gær, en þá hafði ekki tekizt að ná honum á flot þrátt fyrir ftrekaðar tilraunir vegna þess að dráttartaugar slitnuðu. Myndina tók Sveinn Ingólfsson á Hvolsvelli, en um borð sjást nokkrir skipverjar vera að bauka frammi á hvalbak. Samstaða á Alþingi: 2000 milljónir króna til Norður- og Austurvegar Brunabótamat hækkar um 50% BRUNABÓTAMAT f Reykjavfk mun hækka um 50% 1. jan. n.k. en gildistfmi brunabótamats f Reykjavfk er frá 1. jan. — 1. jan. Þessi 50% hækkun á brunabóta- mati miðast við mat frá fyrra ári og endurskoðaða breytingu f sumar. 15. okt. s.l. tók gildi nýtt bruna- bótamat fyrir landsbyggðina og var þar um 53% hækkun að ræða. FJÁRHAGS- og viðskipta- nefnd neðri deildar Al- þingis hefur skilað sam- hljóða áliti um frumvarp til laga um happdrættislán til framkvæmda við Norðurveg, sem Eyjólfur Konráð Jónsson o.fl. flytja. Umræður í deildinni bentu og til þess að þar næðist algjört samkomulag um málið, með þeim breyt- ingum, er nefndin leggur til. Breytingarnar fela það í sér, að heildarfjár- hæð happdrættisútboðsins hækki úr 1200 milljónum í 2000 milljónir króna. % hluti fjárhæðarinnar fer til að greiða kostnað við gerð Norðurvegar, milli Reykja- víkur og Akureyrar, og Í4 til Austurvegar, frá Reykjavík um Suðurland og til Egilsstaða. Fyrirsögn frumvarpsins breytist í samræmi vió þetta, þannig, að við heiti frumvarpsins bætist orðið Austurvegur. Þar sem frumvarp þetta hefur vakið mikla athygli, ekki sízt á Norður- og Austurlandi, og snertir jafnframt samgöngumál Vesturlands og Vestfjarða, verða umræður um málið raktar lauslega á þingsíðu blaðsins, væntanlega á morgun. Stálvík semur um smíði 2ia skuttogara SKIPASMlÐASTÖÐIN Stálvfk f Arnarvogi hefur nú gengið frá samningi á tveimur nýjum skut- togurum og á annar að afhendast eftir 15 mánuði, en hinn eftir 25 mánuði. Togararnir verða byggð- ir fyrir Einar Ólafsson og fleiri á Súgandafirði og Sæfinn h.f. f Reykjavfk. Bæði eru skipin svip- uð hinum nýja skuttogara Runólfi frá Grundarfirði, sem ný- lega var afhentur f Stálvfk, nema hvað þau verða 4 metrum lengri. Kostnaðarverð skipanna er áætl- að 330 millj. kr. á öðru skipinu, en 360 millj. kr. á hinu og liggur verðmismunurinn f útbúnaði skipanna. Morgunblaðið náði tali af Jóni Sveinssyni forstjóra Stálvíkur i gær og spurði hann hvort það væri rétt, að búið væri að ganga frá samningum skipanna. Jón ját- aði, að það væri rétt, og sagði íslendingar hafa ekhi fengið stærri hlut í heildarfiskaflanum MATTHlAS Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, greindi frá þvf í samtali við Morgunblaðið í gær, að hlutdeild Islendinga í heildarfiskaflanum hér við land hefði frá árinu 1970 aðeins aukizt úr 57,0% í 58,9% þrátt fyrir útfærslu landhelginnar. Ráðherrann sagði aðspurður, að útfærsla land- helginnar 1972 hefði ekki leitt til þess, að íslend- ingar hefðu fengið stærri hlut fiskaflans, sem veiddur er hér við land. Frá 1970 til 1972 hefur heildarfiskaflinn á lslandsmiðum minnkað um 140 þúsund lestir. Ráðherrann sagði, að þegar litið væri á tölur um heildarafla á Islandsmiðum bæði innan og utan fiskveiðimarkanna kæmi f Ijós, að hann hefði verið 820 þúsund lestir árið 1970, árið 1971 hefði hann verið 801 þús. lest, árið 1972 hefði aflinn verið 687 þús. lestir og fyrsta heila árið eftir útfærsluna, árið 1973, hefði hann verið 678 þús. lestir, en tölurnar fyrir það ár væru bráða- birgðatölur alþjóða hafrannsóknarráðsins. Þessar tölur væru og miðaðar við þorsk og aðra botnlæga fiska. Um sóknina á miðin sagði ráðherra, að engar tölur væru fyrir hendi enn um sókn okkar sjálfra á árinu 1973, en enginn vafi væri á því, að um sóknaraukningu væri að ræða, þó að hún væri sennilega ekki jafn mikil eins og fjölgun skut- togaranna gæfi til kynna. Margt benti hins vegar til þess, að sókn Breta og Vestur-Þjóðverja hefði minnkað við útfærslu landhelginnar. Ráðherrann sagði ennfremur, að reikna mætti með svipaðri heildarsókn á miðin öll þessi ár. Hér væri því um að ræða dapurlega niðurstöðu, þai^sem aflinn hefði á þessum árum minnkað um 140 þúsund lestir. Aðspurður um hlutdeild erlendra þjóða í veið- um hér við land sagði sjávarútvegsráðherra, að Framhald á bls. 22 Matthías Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra. síðan, að annar aðilinn, Einar Ölafsson og fl. á Súgandafirði, væri búinn að fáallarþær staðfest ingar, sem með þyrfti til að geta hafið smíði skipsins.og hinn aðil- inn, Sæfinnur h.f. í Reykjavík, vonaðist til, að fá bréflega stað- festingu fljótlega. Þá sagði Jón: „Það hefur gengið mjög fljótt fyrir sig að koma þessum samn- ingum i gegn og ef þetta mætti taka sem tákn um það, að maður gæti i framtíðinni skipulagt verk- in minnst 2 ár fram I tímann, þá væri það mjög þýðingarmikið at- riði fyrir þróun íslenzkra skipa- smíða. Nútimaiðnaður krefst þess, að það sé ætíð horft nokkuð til framtíðarinnar. Ef það er ekki gert, þýðir ekkert að tala um að standast samkeppni við þróaðar iðnaðarþjóðir. Öll þessi mál tel ég, Framhald á bls. 22 Hafrúnarslysið: Lítið loft í gúnuníbátniim 1 GÆR var ekki búið að rannsaka brakið, sem talið er vera úr Hafrúnu BA, en gúmmf- björgunarbáturinn sem fannst á reki með litlu lofti f, var merktur bátnum sem var f róðri frá Kefla- vfk. Þá er einnig verið að kanna hvort hugsanlegt sé, að olfuskip á leið í Hvalfjörð hafi siglt niður bátinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.