Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 8
g MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1974 VIÐ ÁRAMÓT SVÖR FORMANNA FJÖGURRA ST JÓRNMALAFLOKKA VIÐ SPURNINGUM MORGUNBLAÐSINS Morgunbladid hefur snúið sér til formanna Al- þýðuflokks, Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna og óskað eftir svörum þeirra við nokkrum spurningum um viðhorfin í þjóðmálum um þessi áramót. Fara spurningar og svör hér á eftir, en að venju birtist áramótagrein formanns Sjálfstæðisflokksins ann- ars staðar í blaðinu. Olafur Jóhannesson formaður Framsóknarflokks Um flest þau málefni, sem spurningar Morgunblaðsins lúta að, er fjallað, beint eða óbeint, í áramótagrein minni í Tímanum. Get svarað þeim hér í örstuttu máli á þessa lund: 1) Er þörf frekari ráðstafana i efnahagsmálum en ríkisstjórnin hefur þegar beitt sér fyrir? Já. 2) Teljið þér grundvöll fyrir kjarabótum á næsta ári, og ef svo er, með hvaða rökum? Nei, ekki eins og nú horfir. 3) A síðustu 12 mánuðum nam vöxtur verðbólgu 51%. Hvernig á að draga úr þessari öru verð- bólgu? Ég hef ekki ráð á neinni patent- lausn á því vandamáli. En rétt er að hafa i huga, að hinn öri verð- bólguvöxtur á liðnu ári á að lang- mestu leyti rætur að rekja til verðhækkana á innfluttum vörum, og þá ekki hvað sízt á olíuvörum, eins og alkunna er. Við slikt getur engin ríkisstjórn ráðið. Of hátt spenntar kaupkröf- ur eiga og nokkurn þátt í hinum öra verðbólguvexti siðustu 12 mánaða, og þá ekki hvað sízt óbil- gjarnar kröfur þeirra stétta, sem hafa sérstaka aðstöðu til að knýja fram vilja sinn. Eg get einkum bent á eftirfarandi úrræði til að halda aftur af hinum öra verð- bólguvexti: Hemla hækkanir á verðlagi og þjónustu, jafnt opin- berri sem annarri, eftir því sem unnt er, gæta hófsemi I fram- kvæmdum, bæði hjá því opinbera og einkaaðilum, beita ströngu að- haldi i peninga- og lánamálum og sveigjanlegri vaxtapólitík, nota verðtryggingu fjárskuldabind- inga meir en nú er gert, lögleiða skattfrjálsan skyldusparnað af hærri tekjum, endurskoða vísi- tölukerfi og reikna kaupgjalds- vfsitölu út aðeins á 6 mánaða fresti. En siðast en ekki sizt þarf þá hugarfarsbreytingu, að menn almennt vilji vinna gegn verð- bólgu í raun og veru, þ. e. ekki aðeins í orði heldur og á borði. 4) Hvenær teljið þér, að færa eigi fiskveiðilögsöguna út f 200 mílur? Ég er ekki áþessu stigi reiðubú- inn að nefna ákveðna dagsetn- ingu, enda hefur enn ekki verið fjallað um það í rikisstjórn, þó að nokkur undirbúningur sé að öðru leyti hafinn að fyrirhugaðri út- færslu. 5) Eigum við að leggja áherzlu á samkomulag við Vestur- Þjóðverja í landhelgisdeilunni? Ég hef talið, að það ætti að gera, en eftir því sem tfminn líður, skiptir það æ minna máli. 6) Eigum við að semja við Union Carbide um byggingu málmblendiverksmiðju í Hval- firði? Já. 7) Hver eru heiztu viðfangsefni f atvinnumálum, byggðamálum og velferðarmálum á næsta ári? 1 atvinnumálum er verkefnið fyrst og fremst það að koma í veg fyrir stöðvun atvinnurekstrar og tryggja fulla atvinnu. I byggða- málum eru brýnustu verkefni, að atvinnumálunum slepptum, orku- mál, samgöngur og bætt heil- brigðisþjónusta, en að sjálfsögðu mætti þar nefna ýmislegt fleira, t. d. á sviði skólamála og ýmiss konar þjónustu starfsemi. Stuðn- ingur við elli- og örorkulffeyris- þega, sem raunverulega þurfa á hjálp að halda til að geta lifað við mannsæmandi lffskjör. 8) Hver teljið þér, að fram- vinda íslenzkra stjórnmála verði f kjölfar stjórnarskipta á árinu 1974? Um það get ég lítið sagt. Övissu- atriðin eru þar svo mörg. En auð- vitað vona ég, að ríkisstjórninni takist að ná traustari tökum á efnahagsmálum og hafa raun- verulega stjórn á þjóðarbúskapn- um. Hún ætti að hafa til þess sæmilegar forsendur, ef til þess er vilji og samheldni hjá stjórnar- flokkunum. En ég tel hyggilegast að biða reynslunnar f stað þess að vera með spádóma. Ólafur Jóhannesson. Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokks 1) Er þörf frekari ráðstafana í efnahagsmálum en ríkisstjórnin hefur þegar beitt sér fyrir? Svar: Það er fráleitt, sem felst í spurningunni, að ríkisstjórn geti í eitt skipti beitt sér fyrir ráðstöf- unum í efnahagsmálum, og síðan ekki hafst frekar að á því sviði. Vandamálin breytast sífellt, til hins betra eða hins verra, og ríkis- stjórn Islands bregst hlutverki sinu hvern þann dag, sem hún ekki hugsar um ný úrræði til að styrkja efnahag þjóóarbúsins og einstaklinganna. Ef núverandi ríkisstjórn telur sig hafa nóg að gert í efnahagsmálum, verður hún ekki langlíf. 2) Teljið þér grundvöll fyrir kjarabótum á næsta ári, og ef svo er, með hvaða rökum? Svar: Landsmenn geta ekki all- ir fengið kjarabætur, nema þjóð- artekjur aukist. Enda þótt skjótt geti skipast veður í islenskum efnahagsmálum, hef ég því miður ekki trú á slíkri hækkun þjóðar- tekna á næsta ári. Hins vegar geta einstakar stéttir eða aðilar fengið kjarabæíur, þótt allir fái ekki, og þá á kostnað annarra. Mér kæmi ekki á óvart, þótt gera þyrfti á komandi ári nýjar ráðstafanir til að bæta kjör lágiaunafólks, ekki sist þess, sem mest á undir al- mannatryggingum, og verður j>á að finna ráð til að mæta þvi. Einn- ig er rétt að hafa i huga, aó kjara- bætur geta verið margt annað en kauphækkanir, og ýmislegt getur komið til greina á því sviði. Reynsla launþega er raunar sú, að oft reynist slikar kjarabætur haldbetri en aukin tala á síminnk- andi krónum. Verkalýðshreyfing- in hlýtur að heyja harða varnar- baráttu á komandi ári til þess að halda aó minnsta kosti sinum hlut, og hún mun játa einhuga stuðnings Alþýðuflokksins. 3) A síðustu 12 mánuðum nam vöxtur verðbólgu 51%. Hvernig á að draga úr þessari öru verð- bólgu? Svar: Hluti þessarar verðbólgu er erlendur. Á því sviði gætu Is- lendingar gert skipulegt átak til að draga verulega úr notkun á bensíni, sykri, fóðurbæti og öðr- um vörum, sem mest hafa hækkað á heimsmarkaði. Innanlands hefði þurft að afgreiða fjárlög með verulegum greiðsluafgangi, sem ekki væri dælt aftur út f kerfið. Ríkisstjórnin getur hert til muna aðhald að útlánum án þess að til atvinnuleysis komi. Ekki ætti að taka meirí lán með vísi- tölutryggingu en lánað er út með sömu kjörum, og takmarka ætti eilendar lántökur. Stórauka mætti raunhæít verölagseftirlit og hefja víðtæka verðlagsfræðslu fyrir neytendur. Astunda verður náin samráð við verkalýðshreyf- inguna og önnur launþegasamtök um þessi mál. Hefja mætti skipu- lega herferð til aukinnar hagræð- ingar i öllum atvinnurekstri. Þetta og fjölmargt annað mætti gera. En kjarni málsins er að út- rýma verðbólguhugsunarhætti landsmanna, því aJlir íbúðaeig- endur og svo til öll fyrirtæki eru í rauninni verðbólgubraskarar, sem hafa hag af áframhaldandi verðbólgu. Varanleg úrræði verða að koma við þann kjarna. 4) Hvenær teljið þér, að færa eigi fiskveiðilögsöguna út f 200 míl- ur? Svar: Sem fyrst, og júní er síst verri en haustið. Hinu verðum við íslendingar að gera okkur grein fyrir, að yfirlýsing okkar um 200 mílur verður ekki þegar að veru- leika. Fyrst þurfum við að semja um línu milli íslands og Græn- lands og Islands og Færeyja og síðan að fá niðurstöóu um, hvort Jan Mayen og Rockall fái 200 mílna efnahagslögsögu, en fari svo, þá að semja um linu milli Islands og eyjanna. I öðru lagi verða aðrar þjóðir að viðurkenna 200 mílurnar í reynd, og það get- ur tekið tíma, enda þótt hafréttar- ráðstefnan nái betri og skjótari árangri en nokkur þorir að vona. Við skulum halda áfram að standa saman í landhelgismálinu, en vera ávallt raunsæ. 5) Eigum við að leggja áherslu á samkomulag við Vestur- Þjóðverja f landhelgisdeilunni? Svar: Með aðild að Sameinuðu þjóðunum höfum við skuldbundið okkur til að reyna að leysa milli- ríkjadeilur á friðsamlegan hátt, og það er raunar í eóli okkar. Ég tel, að við hefðum átt að leggja ríka áherslu á að semja við Vest- ur-Þjóðverja alllöngu áður en samið var við Breta. Þá var rætt um samninga, sem hefðu getað stutt málstað okkar verulega. Nú virðist málið öllu erfiðara. Við getum ekki látið undan varðandi verksmiðju- og frystitogara, af þvi að Island er allt eins og risa stór verksmiðjutogari, sem liggur við festar hér norður í hafsauga. Við getum ekki fórnað þessari sér- stöðu, sem heldur i okkur lífinu. 6) Eigum við að semja við Union Carbide um byggingu málm- blendiverksmiðju í Hvalfirði? Svar: Alþýðuflokkurinn hefur siðan í fyrravetur verið hlynntur byggingu verksmiðjunnar, en hef- ur áskilið sér allan rétt varðandi einstök atriði samninga við Union Carbide, enda hafa upplýsingar um þau verið af skornum skammti. Þar á meðal má nefna mengun, áhrif verksmiðjunnar á aðra lánamöguleika, orkuverð og orkuflutning, höfnina og nokkur fleiri atriði. 7) Hver eru helztu viðfangsefni f atvinnumálum, byggðamálum og velferðarmálum á næsta ári? Svar: 1 atvinnumálum tel ég, að auk uppbyggingar í Neskaupstað og á Seyðisfirði sé brýnast að fylgjast vel með atvinnuástandi og gera fljótt ráðstafanir, ef bólar á atvinnuleysi. Jöfn nýting fiski- flotans er nauðsyn, og þar verða að vera kjör, sem tryggja öllum skipum mannskap. Annars á inn- lend orkuframleiðsla að ganga fyrir öllu. Iðnaðinn verður að efla, en byggingariðnaðurinn — einn okkar stærsti — er nátengd- ur vandamálum húsnæðislána- kerfisins, sem kalla á úrlausn. I byggðamálum er nauðsyn að gera nákvæmari skilgreiningu á því, hvaða byggðir eigi að aðstoða og hvers vegna, en síðan að vinna mun skipulegra starf við aðstoð- ina. Hyggja þarf að húsnæðismál- um, þ.ám. leiguhúsnæði, því að íbúðaskortur er oft hindrun þess, að ungt fólk setjist að úti á landi. öryggisleysi í raforkumálum og mótttöku fjölmiðla er þáttur í hinu sama, þótt vegir teppist, sem sjaldan er lengi i einu. 1 velferðarmálum er sameining fjölskyldubóta og tekjuskatts í eitt tekjujöfnunarkerfi bæði rétt- lætis- og sparnaðarmál. Gera verð- ur athugun á meintri misnotkun velferðarkerfisins og leiðrétta, ef rétt reynist. Þá verður að minnast þess, að aukió jafnrétti þegnanna, lýðræði á vinnustað og í hinu dag- lega lifi, baráttan gegn áfengi og afbrotum, eirðarleysi unga fólks- ins, störf kirkjunnar og félagsráð- gjafanna og margt fleira af þessu tagi eru allt mikilsverðir þættir velferðar. Velferðarrikið er ekki aðeins krónur og aurar, þótt bar- áttan við fátækt og skort hafi ein- kennt það í upphafi. 8) Hver teljið þér, að verði fram- vinda fslenskra stjórnmála í kjölfar stjórnarskipta á árinu 1974? Svar: Það var ekki fyrr en 1916, að fyrst voru stofnaðir islenskir stjórnmálaflokkar, sem byggðust á hugmyndum um innri byggingu þjóðfélags okkar, en ekki barátt- unni við Dani. Það var ekki fyrr en 1934, aó ný kynslóð, sem ekki var að verulegu leyti mótuð af sjálfstæðisbaráttunni, tók völdin í landinu. Þá voru ráðherrarnir 28, Framhald á hls. 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.