Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1974 plnr0iniiMa&ií» Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiRsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. slmi 10 100. Aðalstræti 6. slmi 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 35,00 kr. eintakið. Atímamótum reyna menn gjarnan að horfa á veginn og skyggnast inn í framtíðina með það í huga að meta þau verkefni, sem við blasa. Hitt er þó ekki síður mikilvægt við slíkar aóstæður aö líta yfir farinn veg og glöggva sig á því, sem á undan er gengið: Að fortíð skal hyggja, ef frum- legt skal byggja. Einmitt um þessi áramót er mikil- vægt að líta til baka, til atburða liðins árs. Þjóöin hefur nú lifaó i fullar 11 aldir í þessu landi og þess var minnst meó eftirminni- legum hætti á því ári, sem senn rennur í aldanna skaut. Ársins 1974 verður lengi minnst fyrir þjóðhátióina um land allt, ekki sízt á Þingvelli. Á þessum helga staó stofnuðu áarnir lög- gjafarþing og þar hefur þjóðin komið saman á mestu stundum í sögu hennar. Tugir þúsunda komu á Þingvöll til að minnast ellefu alda byggð- ar á íslandi, en á bessum fornhelga stað kom það skýrar fram en oftast nær áður, að það er ein þjóð, sem byggir þetta land, þó að menn þrefi í dagsins önn og skipi sér í ólíkar fylkingar eftir stjórnmála- skoðunum. Það er hverri þjóð nauðsynlegt að staldra vió stund og stund og minnast þess, sem liðið er, og treysta böndin við landið. Gróðurverndaráætlunin, sem samþykkt var á há- tíðarfundi Alþingis á Lög- bergi var ekki aðeins þarf- leg, heldur bar hún vott um þann samhug lítillar. þjóðar, sem kom fram á þessum merku tímamót- um, ekki einungis á Þing- vallahátíðinni, heldur einnig og ekki síður á héraöahátíðunum. Það ár, sem nú er senn að baki, sýndi, svo að ekki varö um villst, að þessi þjóð hefur einn hug og einn vilja, þegar mikið liggur við. Á næsta ári blasa viö okkur mikilvæg verkefni, sem krefjast sam- stöðu allrar þjóðarinnar. Eitt stærsta verkefnið, sem ljóst er, að við þurfum að fást við, er útfærsla fisk- veiðilandhelginnar í 200 sjómílur. Allt frá því aö lögin um vísindalega verndun fiski- miða landgrunnsins voru sett 1948 hafa íslendingar háð þrotlausa baráttu fyrir yfirráðum yfir fiskimiðun- um umhverfis landið. Að baki eru mikilvægir áfang- ar, en á næsta ári verður stærsta skrefið stigið. Á hafréttarráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna hefur glöggt komið fram, að mik- ill meirihluti þjóða heims fylgir nú meginreglunni um 200 sjómílna efnahags- lögsögu. Þá hefur skýrt komið fram, að fjölmargar þjóðir, sem áður voru and- vigar víðáttumikilli efna- hagslögsögu, hafa breytt um afstöðu í þeim efnum, og annars staðar eru mjög athyglisverðar breytingar á afstöðu þjóöa til þessara mála að eiga sér stað. Þó að þannig sé ljóst, að margí gangi okkur í hag- inn, þarf engínn aö fara í grafgötur um, að við eigum eftir að heyja harða bar- áttu fyrir lokasigrinum. Enn er ekki víst, að bind- andi samkomulag náist á hafréttarráðstefnunni og viö eigum enn i deilum við Vestur-Þjóðverja vegna út- færslunnar í 50 sjómílur. Af þessu má þegar ráða, að lokaáfanganum verður ekki náð átakalaust fremur en hinum fyrri, þó að við stöndum í mörgum efnum betur að vígi en áður, þegar lögsagan hefur verið færó út. Ríkisstjórnin hefur lýst yfir því, að fiskveiðilögsag- an verói færð út í 200 sjó- mílur á árinu 1975. Að baki þessari ákvörðun stendur einhuga þjóð, og á næstu mánuðum mun þessi vilji koma fram í verki. Engum dylst, að árangur landhelg- isbaráttunnar er kominn undir einingu og samhug fólksins. Afkoma okkar hefur um langa tíð verið háð fiskveiðum. En þó að við séum nú staðráðin í að ná endanlega lögsögu yfir fiskimióum landgrunnsins horfir mjög þunglega í efnahags- og fjármálum þjóðarinnar. Á miðju því ári, sem nú er að líða, var öllum ljóst í hvert óefni var komið í þessum efnum. Nú þegar hafa verið gerðar umfangs- miklar aðgerðir til þess að endurreisa efnahags- og at- vinnulífið. Allir eru á einu máli um, að meginverkefn- ið sé að tryggja fulla at- vinnu og koma þannig í veg fyrir það böl, sem nú hrjáir margar nágranna- og við- skiptaþjóðir okkar. En til þess að unnt verði að ná því marki þurfa allir, hvar í stétt sem þeir standa, að leggja nokkuð af mörkum. Okkur hefur tekist að halda svipuðum kaupmætti og var um síðustu áramót. Það er góður árangur í þeim miklu efnahags- þrengingum, sem nú er við að glíma, og í sjálfu sér ekki mikil fórn til þess að bægja frá vofu atvinnu- leysisins. Efnahagsmálin verða þung í skauti á næsta ári, en margt bendir til þess, ef allir leggjast á eitt og ytri aðstæður verða okkur ekki óhagstæðar, að við sjáum fram úr erfiðleikunum við lok næsta árs. Með sam- stilltu átaki er unnt að ná þessu markmiði og þá kem- ur betri tíð. Morgunblaðið óskar landsmönnum farsældar á komandi ári. Mikilvæg verkefni með nýju ári Um snjómanninn hræðilega og önnur þjóðtrúarfyrirbæri — eftir dr. S Dillon Ripley Dr. Dillon Ripley er ritari Smithsonian- stofnunarinnar í Bandarfkjunum og hef- ur farið vfða um heiminn f rannsóknar- leiðangra. 1 gegnum aldirnar hefur mannskepnan sýnt þörf á að trúa á vlsindalega ósannanlega hluti, til þess að styrkja trú sína á annað. Slfk þjóðtrú hefur orðið hluti af menningu yngri og eldri samféiaga, þegar fólk hefur reynt að skýra ákveðnar athafnir, trú eða lang- eða skammlff fyrirbrigði. Hvað er staðreynd? Hvað er hugarburður? Visindalegar að- ferðir má oft nota til að komast að sannleikanum. Trú kemur vísindunum þó oft i opna skjöldu með fornum sögnum um dýr, sem vísindamenn geta ekki komizt upp með að ganga fram hjá. Eitt af skemmtilegustu, áhugaverðustu og verðugustu verkefnunum sem hinn mikli fjöldi vísindamanna og menn- ingarsagnfræðinga Smithson- ian-stofnunarinnar fást við er að sanna hvort ýmsar „stað- reyndir" sem athygli okkar hef- ur verið vakin á eru í raun staðreyndir. Gott dæmi um athuganir okk- ar er hinn frægi Kensington- steinn. Þessi steinn fannst í Minnesota og var höggvinn rún- um. Það vakti grun manna um aó víkingar hefðu farið djúpt inn á meginland Norður- Ameríku þegar á 14. öld. Við eyddum löngum tíma til rannsóknar á steininum og komumst loks að þeirri niður- stöðu að hann væri falsaður. I gegnum árin höfum við oft staðið frammi fyrir spurning- um um hvort ákveðin dýr séu hluti af okkar heimi eða hvort aðeins sé um sögusagnir eða falsanir að ræða. I eitt skipti reyndust sögur, sem í fyrstu þóttu í meira lagi ósennilegar, sannar. Það voru sögur um coelacanth, sem er fiskur, sem talinn var útdauður fyrir 60 milljón árum, en fannst svo sprelliifandi 1 Indlandshafi nærri Suður-Afríku. Ein saga, sem ég hef haft sérstakan áhuga á, er sagan um snjómanninn hræðilega. 1 mörg ár hef ég ferðast um Himalaya- fjöll á mörkum Norður- Indlands, Pakistan og Tibet til að gera skrá yfir fugla, sem halda til á þessum slóðum. En ég hef einnig gefið spendýrum gaum, ekki sízt þeim sem um- leikin eru ævintýraljóma orð- róms og sögusagna innfæddra og ferðalanga og þar á ég við furðuveruna, sem á að halda til þarna í fjöllunum, nefnilega snjómanninn. Engar beinar sannanir eru fyrir tilveru þessa fyrirbrigðis. Ég hef rannsakað höfuðskeljar, sem sagðar voru af þessari veru, en hár sem á þeim voru reyndust vera af fjallageit en ekki af apamanni. Sú vísindalega aðferð, sem við hjá Smithsoniari notum er að tína til staðreyndir og beinar sannanir, eins og hauskúpur, hár, bein, meltingarúrgang eða aðra fasta hluti, sem fræði- menn geta stuðst við til að komast að ákveðinni niður- stöðu. Tökum hár sem dæmi. Snjó- maðurinn, sem sagður er líkjast manni og apa, hlýtur að hafa loðinn pels til að halda hita í köldum veðrum. Vísindamenn geta með því að athuga frum- byggingu hára ákvarðað hvort þau eru af svini, birni eoa mannapa. Hár mannapans hafa enn ekki fundizt. Fótspor, sem fundizt hafa og hafa jafnvel verið ljósmynduð eru mjög vafasamar sannanir því í snjó geta þau stækkað eða minnkað með þýðu og frost hringnum í háfjöllum. Það er ekkert, sem gerir vísindamanni kleift að fullyrða hvort sporin séu eftir mannapa, mann eða gibbonapa. Auðvitað er fjarlægur mögu- leiki á þvi að þarna í fjöllunum séu dýr, sem við þekkjum ekki, þó að sögur innfæddra séu oft í meira lagi ótrúlegar. En ég get ómögulega útilokað það, þvi viðáttan er svo geysileg og ill yfirferðar að maðurinn á mjög erfitt með að komast um þetta hálenda svæði. Þetta dýr, ef það á annað borð er til annars staðar en i þjóðtrú, á allt annað skilið en að vera kallað snjómaðurinn hræðilegi eða skrímsli. Ef það er eins og ég get ímyndað mér, einhvers konar þróaður gibbon, þá er það allt annað en hræði- legt. Það er aðeins venjuleg dýrategund að vísu óþekkt. Við á Smithsonian- stofnuninni vinnum að því að Framhald á bls. 16 Eitt vinsælasta og frægasta skrímslið er Loch Ness skrímslið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.