Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1974 eftir JÓN Þ. ÞOR Frá Skákþingi Sovétríkjanna 1975 NÚ stendur yfir austur í Rússlandi keppni í 1 . deild skákþings Sovétríkjanna, þar sem keppt er um titilinn Skákmeistari Sovétríkjanna 1975 Að vanda er þetta einhver bezt skipaða keppni sem fram fer á árinu, en þó standa ýmsir af öflugustu stórmeisturum Sovétríkj- anna utan hennar. Karpov og Kortsnoj eru vafalítið búnir að fá nóg af skák í bili, en af öðrum stórmeisturum, sem ekki eru á meðal þátt- takenda má nefna þá Spassky, Petrosjan, Geller og Smyslov. Alls taka 16 meistarar og stórmeistarar þátt í keppninni og má þar nefna Tal, Taimanov, Polugajevsky, Kuzmin, Savon, Vaganjan og Vasjukov. Ekki er mér kunn- ugt um, hvernig einstökum keppendum iiefur gengið, en þó virðist af þeim óljósu fregnum, sem borizt hafa, að þeir Tal, Polugajevsky og Kuzmin séu í forystusveit. Við skulum nú líta á eina skák frá 8. umferð keppn- innar, en þar á stórmeistar- inn Mark Taimanov í höggi við ungan og lítt þekktan meistara. Hvítt: K. Grigorjan Svart: M. Taimanov Nimzoindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Bb4, 4. Dc2 (Þetta gamla afbrigði er nú orðið heldur fágætt en heldur þó fyllilega gildi sínu). 4. — c5, (Hér komu margir góðir leikir til greina, t.d. 4 — d5, 4. — 0-0, og 4. — Rc6) 5. dxc5 — Bxc5, 6. Rf3 — d5, 7 Bf4 — dxc4, 8. e3 — Rd5, (Vegna hótunarinnar Rd5 — b4 — d3+ verður hvít- ur nú að láta biskupinn á f4 af höndum Það veldur hon- um þó engum erfiðleikum). 9 Hdl — Da5, 10. Bxc4 — Rxf4, 11. exf4 — Bb4, 12 0-0 — Bxc3, (Svartur ákveður að láta biskupinn af hendi, en það á eftir að koma honum í koll). 13 bxc3 — 0-0, 14. Rg5! (Nú neyðist svartur tíl að veikja svörtu reitina í kóngs- stöðu sinní og það verður honum að falli Athyglisvert er að svarta drottningin stendur hjá sem áhorfandi það sem eftir er af skákinni) 14. — g6, 15. Dd3 — Rc6, 16. Hfel (Kemur í veg fyrir að svartur geti losað um sig með e5) 16. — Kg7, 17. Re4 — a6, (Eða 17 — Hd8, 18 Rd6 — Dc7, 19 f5 — gxf5, 20. Dg3+ — Kf8, 21 Hd3 með vinnings- stöðu) 18 Bb3 — Hd8, 19 Dg3 — Ha7, 20. Dh4 Framhald á hls. 21. þAKKA þ&R FyftlR VIÐVÖK L/mHA. DeSUtRRA EN þElR HAFA ALDREI UPF’A STyTTUNNI AF xorucAu HJ'A Mét?- X-B smAfúlk Við óskum ykkur öllum gleöi- legs nýs árs! (andvarp) KÖTTURINN FELIX FEROIIVIAIMD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.