Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1974 I minningu Jónasar Jakobs- sonar veðurfrœðings A þessum timum hraðans og þeim ríkjandi tíðaranda, sem svo mjög einkennist af kapphlaupi við hina líðandi stund, lífsgæða- kapphlaupið svokallaða, verður lífið einhæft og hversdagslegt meðan allt líður áfram áfalla- laust. Þessi fábreytni rofnar þó öðru hvoru skyndilega. Stundum af gleðilegum óvæntum atburð- um, stundum af reiðarslagi sorg- legra viðburða. Við stöldrum við, horfum til baka, hugsum og spyrj- um. Hvar stend ég? Hvað get ég gert? Hvað get ég sagt? Þannig varð mér innanbrjósts þegar mér barst fréttin um fráfall vinar míns og bekkjarbróður Jónasar Jakobssonar veðurfræðings, sem svo skyndilega var á brott kallað- ur mitt í önn dagsins þann 18. desember sl. Kynni okkar hófust á skólaár- unum á Akureyri, en Jónas hóf þar nám í fjórða bekk í stærð- fræðideild haustið 1939, en gagn- fræðaprófi lauk hann utanskóla þá um vorið. Námsárin eru án efa merkilegasti tími æfiskeiðsins. Auk þess að mótast og þroskast sem einstaklingar, tengjast menn oft órofa böndum, sem aldreigi bresta. Böndum, sem vara æfi- langt þó fundum fækki og verk- efni dagsins verði óskyld. Menntaskólinn á Akureyri hafði í þá tið vissa sérstöðu að þessu leyti vegna þess að skóli og heimavist fór saman. Hér var um stórt heim- ili að ræða og aðkomusveinar kynntust þannig betur í starfi og í leik. Á þessum árum og með þess- um hætti ófust okkar vináttu- bönd. Jónas Jakobsson var er hann hóf nám i MA, þroskameiri and- lega og líkamlega en flestir sam- bekkinga hans. Við nám í Lauga- skóla hafði hann þjálfast í íþrótt- um jafnt sem i bóklegum grein- um. Hann var rammur að afli og þrekmaður mikill. Sem námsmað- ur var hann frábær. 1 okkar hópi var margt góðra nemenda, en ég hygg að ekki sé of sterkt til orða tekið þó Jónas sé þar talinn í fremstu röð. Hann var alhliða námsmaður þó hinar stærðfræði- legu greinar námsins ættu hug hans frekar. Hann var frábær stíl- isti og átti auðvelt með að tjá sig á léttan og skýran hátt og með kersknilausu gamni. Við áttum samleið á þessum árum. Hann var veitandinn. Bjartur svipur hans, heilsteypt vinarþel og hlýja er mér ljúf minning. Við störf á Siglufirði, og síðar, að afloknu námi, áttum við enn samleið. Ég á margar góðar minningar frá heimsóknum á heimili þeirra hjóna Jónasar og Ljótunnar. En dagsins önn vex og vinafundum fækkar. Engu að síður, böndin órjúfanlegu, frá fyrri árum halda sinni festu. Það er óvænt gleði að hitta á förnum vegi góðan vin og finna hlýjuna og gleðina við endurfundina. Það er birta og heiðríkja yfir minningunni um þessa fundi. Æfistarf Jónasar Jakobssonar var unnið á Veðurstofu íslands en þar hóf hann starf við heimkomu frá námi í veðurfræði i Banda- rikjunum. Um nær þrjá árautgi hefir hann fylgst með veóri og vindum, sól og frera og birt það landsins börnum. Þar skiptast á skin og skúrir. Heiðríkja í hugsun og sál veðurfræðingsins Jónasar Jakobssonar fá þar engu um ráð- ið. Þar eru náttúruöflin að verki. Skýr frásögn hans, að öðrum ólöstuðum á þeim vettvangi, mun þó lengi í minnum höfð. Þeir ágætu menn, sem þann starfa hafa, að segja fyrir veður og vinda og skýra ástand loftlaganna á sjónvarpsskerminum verða næstum beinir þátttakendur í + JÓN RÓSINKRANZ SVEINSSON frá Hvilft, Önundarfirði andaðist i St. Fransiskusspítala, Stykkishólmi 29 desember Útför hans verður gerð frá Flateyrarkirkju. Vandamenn. Eiginmaður minn og faðir okkar HALLDÓR KR. INGÓLFSSON húsasm., Logalandi 7, andaðist á Borgarspitalanum 29 des. F h aðstandenda, Elly Ingólfsson. t Ástkær eiginmaður minn og faðir, / JÓHANNESJÓHANNESSON, bakari frá Hábæ Hafnarfirði andaðist að St. Jósefsspítala sunnudaginn 29 1 2 Fyrir hönd barna og barnabarna Jóna Jóhannsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og sonur HILMAR HARALDSSON, Hlaðbrekku 6, Kópavogi, lézt á Landspltalanum, aðfarar- nótt 29 des Margrét Þorláksdóttir og börnin, Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Haraldur Teitsson, tengdaforeldrar, systkini + JÓNASMAGNUSSON Strandarhöfði Vestur-Landeyjum er andaðist I Landakotsspítala aðfaranótt 23. des. verður jarð- sunginn frá Breiðabólsstaðar- kirkju Fljótshlíð 4 jan. kl. 2. e.h. Pállna Stefánsdóttir og börn. + Móðir okkar SIGURLAUG EINARSDÓTTIR frá Akranesi verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, laugardaginn 4 janúar 1 975, kl. 1 0.30 fyrir hádegi Margrét Ásmundsdóttir Áslaug Ásmundsdóttir Ingveldur Ásmundsdóttir Jón Óskar Ásmundsson GIsli Ásmundsson + Faðir minn HAUKUR EYJÓLFSSON, Horni Skorradal, verður jarðsettur frá Reykholti laugardaginn 4. janúar kl. 2 e.h. Ingólfur Hauksson. + FRIÐBJÖRN TRAUSTASON, Hólum f Hjaltadal sem andaðist á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 23. desember s.l. verður jarðsunginn frá Hóladómkirkju laugardaginn 4. janúar kl. 1 4.00. Fyrir hönd ættingja og vina. Ingimar Jónsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, MARÍU HRÓMUNDSDÓTTUR AALEN og virðingu sýnda minningu hennar. Fyrir hönd aðstandenda. Albert B. Aalen. + Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu SIGRÍÐAR STEFÁNSDÓTTUR fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. janúar kl. 1 3.30 Adda Bára Sigfúsdóttir Hulda Sigfúsdóttir Flosi Hrafn Sigurðsson Stefán H. Sigfússon Sigrún Júliusdóttir og barnabörn + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, FRIOJÓNS JÓNSSONAR, kaupmanns, Ytri Njarðvik. Fyrir hönd aðstandenda Jóhanna Stefánsdóttir. + Móðir okkar, ELLEN SVEINSSON. Suðurgötu 1 3, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn 3 janúar kl 2 síðdegis Jarðað verður I gamla kirkjugarðinum Vilji einhver minnast hennar, skal bent á blindrafélögin eða aðrar líknarstofnanir og félög Hörður Þórðarson, Úlfar Þórðarson, Sveinn Þórðarson, Nlna Þórðardóttir, Agnar Þórðarson, Gunnlaugur Þórðarson, Sverrir Þórðarson. + Alúðar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför systur minnar, fóstursystur, móður, ömmu og lang- ömmu ÞÓRUNNAR F. ÞORSTEINSDÓTTUR Maria Þorsteinsdóttir, Gyða Tómasdóttir, Hafdls Þórólfsdóttir, Þorbjörg Ottósdóttir, Sigrún Simonardóttir, Ingólfur Hannesson, Bjarni Magnússon, börn og bamabörn. daglegu lífi okkar, sem heyrum og sjáum þessar skýringar. Þeir verða heimilismenn eða a.m.k. aufúsugestir hjá þúsundum fjölskyldna um landið allt. Við söknum þeirra, sem hverfa. Við söknum Jónasar Jakvobssonar úr þeim glæsta hópi. Stúdentahópurinn frá MA 1941 hefir á þessu ári átt á bak að sjá, úr sinum hópi, þremur ágætis- mönnum. Eigi má sköpum renna. Æfisporin, lengri eða skemmri, verða aldrei annað en áfangi á langri leið. Samfylgdin var ljúf meðan hún varði. 1 vorum hópi eru nú skörð fyrir skildi. Eigin- konu Jónasar, dætrum, barna- börnum, tengdasonum og ættingj- um öllum bið ég guðsblessunar. Ég þakka kærum vini samfylgd- ina. Jóhann Jakobsson. Jónas Jakobsson er látinn, langt fyrir aldur fram. Ég ætla ekki að rekja hér ætt hans eða uppruna, það gera sjálfsagt aðrir, er betur til þekkja. Kynni okkar hófust, er hann ásamt öðrum veðurfræðingum kenndi veðurfræði við islenska flugskóla, þegar sú kennsla var tekin upp hér á landi. Jónas var mjög góður og vel liðinn kennari. Þegar ég hóf flug- nám í bóklegum fræðum, bjóst ég frekar við að tímar i veðurfræði yrðu þurrir, mest yfirferð yfir veðurskeyti og annað er því til- heyrir. En Jónas var sérstaklega laginn i að vekja áhuga nemenda sinna á námsefninu, svo að við drukkum i okkur þann fróðleik, er veður- fræðin býður upp á. Þeir er starfað hafa við flug- samgöngur hér á landi, hafa átt mörg sporin til veðurfræðinganna á veðurstofunni i leit að upplýs- ingum um veður og veðurútlit. Störf þessara manna hafa ekki ailtaf verið metin að verðleikum, en það er ekki alltaf auðvelt verk að spá um veður á Islandi og nágrenni landsins, við erfiðar að- stæður, t.d. vegna of langra vega- lengda milli veðurathugunar- stöðva á hafinu umhverfis landið. Jónas var einn þeirra manna, er alltaf reyndi að veita greið svör við spurningum okkar. Oft man ég eftir að hann sagði við mig: hringdu til mín þegar þú ert lentur. Ræddum við þá saman, af hverju veðrið var svona, en ekki á þann veginn er við höfðum búist við. Það er skemmtilegt að hafa + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, NÍELS HAFSTEINN JÓNSSON sem andaðist 22. desember, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 3. janúar kl. 3 e.h. Hrefna Níelsdóttir Sigrfður Nlelsdóttir Maren Nielsdóttir Stanley Kiernan börn og barnabörn. S. Helgason hf. STEINIDJA tlnhoid 4 Slmar 7M7 og 14254

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.