Morgunblaðið - 31.12.1974, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1974
Magnús Torfi Ölafsson formaður Sgmtaka
frjálslgndra og vinstri manna
7) Hver eru helztu viðfangsefni
( atvinnumálum, byggðamálum
og velferðarmálum á næsta ári?
Mest ríður á að full atvinna
Þótt sumar spurningar blaðsins
séu frekar tilefni langra ritgerða
en stuttra andsvara, mun ég leit-
ast við að hlífa lesendum við sliku
og vera sem gagnorðastur.
1) Er þörf frekari ráðstafana í
efnahagsmálum en rikisstjórnin
hefur þegar beitt sér fyrir?
Þróun verðlags og greiðslu-
stöðu bendir ekki til að ráðstafan-
ir ríkisstjórnarinnar í efnahags-
málum hafi dregið að neinu
marki úr jafnvægisleysi í þjóðar-
búskapnum. Þessi rikisstjórn, eða
önnur sem við tæki af henni,
getur því ekki látið við svo búið
standa.
2) Teljið þér grundvöll fyrir
kjarabótum á næsta ári, og ef svo
er, með hvaða rökum?
Eins og nú horfir virðist ekkert
svigrúm til almennra kjarabóta,
1) Er þörf frekari ráðstafana í
efnahagsmálum en rikisstjórnin
hefur þegar beitt sér fyrir?
Fyrsta spurningin, sem
Morgunblaðið setur fram, felur
það sjálf í sér, að efnahagsaðgerð-
irnar, sem ríkisstjórnin hefur
beitt sér fyrir undanfarna
mánuði, m.a. stórfelld gengisfell-
ing, hækkun söluskatts og gifur-
leg hækkun á hvers konar opin-
berri þjónustu hafi verið þarfar
ráðstafanir. Það er sem sagt ekki
spurt um giídi þessara aðgerða,
heldur um hitt, hvort menn vilja
meira af svo góðu.
En kjarni málsins er sá, að
stefnan i efnahagsmálum, sem
núverandi ríkisstjórn fylgir, er
röng og háskaleg, og þjóðin hefur
sízt af öllu þörf fyrir frekari ráð-
stafanir af þessu tagi.
Ráðstafanir í efnahagsmálum
verða fyrst og fremst að miðast
við að koma i veg fyrir yfirvof-
andi samdrátt og atvinnuleysi.
Lífskjör fólksins i landinu hafa
versnað mjög verulega seinustu
mánuði, jafnhliða því sem
þúsundir milljóna króna hafa ver-
ið teknar með aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar af launamönnum,
sjómönnum og bændum og færð-
ar yfir til atvinnurekenda og fjár-
málamanna. Þennan ójöfnuð
verður að leiðrétta, og skal að því
vikið í svari við næstu spurningu.
1 samræmi við grundvallar-
stefnu sína leggur Alþýðubanda-
lagið áherzlu á eðlisbreytingu
efnahagslifsins. Eitt fyrsta verk-
efnið er að minnka yfirbygging-
una með breytingum á inn-
flutningsverzlun, oliusölu og
vátryggingakerfi, sem leitt gætu
til einföldunar og sparnaðar.
Af öðrum brýnum ráðstöfunum
í efnahagsmálum vil ég nefna
breytingar á skattamálum. Sýnt
hefur verið fram á, að í Reykjavik
einni eru ekki færri en 240 fyrir-
tæki í félagsformi, sem engan
tekjuskatt greiða. Aætluð árs-
velta þessara fyrirtækja saman-
lögð nemur yfir 10 þús. millj. kr.
og þetta komast þau upp með
vegna hinna fáránlegu fyrningar-
reglna, sem Viðreisnarstjórnin
sáluga kom inn í skattalögin fyrir
fjórum árum og ekki náðist sam-
staða um að leiðrétta i tíð vinstri
stjórnarinnar. Með þessum ein-
stæðu skattafríðindum geta fyrir-
tækin velt skattabyrði, sem nem-
ur þúsundum milljóna króna yfir
á almenning, jafnframt því sem
þessi fyrningaskollaleikur er
notaður til að framkalla bókhalds-
legt tap, sem á að sanna nauðsyn
þess að lífskjör fólksins séu skert.
2) Teljið þér grundvöll fyrir
kjarabótum á næsta ári, og ef svo
er, með hvaða rökum?
Ég tel, að þau lifskjör, sem lág-
launafólk bjó við á miÓju þessu
ári, þegar stjórnarskiptin urðu,
eigi að haldast, og að þau geti
heldizt, ef efnahags- og atvinnu-
málum þjóðarinnar sé skynsam-
lega stjórnað. Vegna geysilegra
verðlagshækkana, og þar sem
en brýnt er að hlutur þeirra sem
lægst eru launaðir verði réttur.
3) A síðustu 12 mánuðum nam
vöxtur verðbólgu 51%. Hvernig á
að draga úr þessari öru verð-
bólgu?
Ráðið til að draga úr verðbólgu-
vextinum er að feta brautina til
bærilegs jafnvægis i þjóóarbú-
skapnum. Sníða verður af verð-
bótakerfum launþega og fram-
leiðenda agnúana sem hafa gert
þau að sjálfvirkri verðbólgu-
kvörn. Verðtryggja ber sparifé og
fjárskuldbindingar til langs tima.
Fjármagna ber framkvæmdir i
rikari mæli en gert hefur verið
með innlendum sparnaði.
4) Hvenær teljið þér, að færa
eigi fiskveiðilögsöguna út ( 200
m(lur?
Jafnskjótt og lokið er nauðsyn-
kaupgjaldsvisitala hefur verið
bundin með lögum, hafa lífskjör
mjög versnað seinustu mánuði.
Engin rök verða færð fyrir því, að
þessi mikla kjaraskerðing sé þjóð-
hagslega nauðsynleg. Þjóðarfram-
leiðslan hefur vaxið um 10% á
seinustu tveimur árum og þjóðar-
tekjur á mann um 6%. Við
stjórnarskiptin á miðju sumri var
kaupmáttur launa eitthvað innan
við 10% hærri en hann var að
meðaltali árið 1972, sem að vísu
er kannski heldur minna en
verkalýðshreyfingin gerði sér
vonir um að fá út úr samningun-
um á s.l. vetri. En þessu kaup-
máttarstigi átti og mátti viðhalda,
einkum hvað snertir lægri launin,
og við það voru tillögur Alþýðu-
bandalagsins miðaðar í viðræðum
um stjórnarmyndun í sumar.
Nú er kaupmáttur launa hins
vegar orðinn talsvert lakari en
hann var að meðaltali á árinu
1972 og nálgast óðfluga ársmeðal-
tal 1971. Kjör bænda hafa versnað
að sama skapi og þá ekki siður
kjör sjómanna, sem hafa orðið að
þola, að samningsbundin hluta-
kjör þeirra væru skert með lög-
um.
Launaþegasamtökin hafa sýnt
mikla biðlund á undanförnum
mánuðum og gefið nýrri ríkis-
stjórn góðan tima til viðræóna við
aðila vinnumarkaðarins. En
kjaraskerðingin er löngu orðin
óbærileg, og samtök launamanna
hljóta þvi að snúast til varnar á
næstu mánuðum.
3) A síðustu 12 mánuðum nam
vöxtur verðbólgu 51%. Hvernig á
að draga úr þessari öru verð-
bólgu?
Meginástæða þessarar gífur-
legu dýrtíðar er hin alþjóðlega
verðbólga, sem kemur fram í inn-
lendu verðlagi bæði beint og
óbeint. Samkvæmt skýrslum þjóð-
hagsstofnunar var meðalverð á
innflutningsvörum landsmanna
að meðaltali 85% hærra árið 1974
en 1972, en þessar innfluttu verð-
hækkanir hafa óvenjulega mikil
áhrif á islenzka verðþróun, vegna
þess að Islendingar eru háðari
innfluttum vörum en flestar aðr-
ar þjóðir. Verðhækkun á inn-
flutningsvörum hefur að sjálf-
sögðu hækkað launin að sama
skapi. Hins vegar hafa út-
flutningsatvinnuvegirnir ekki átt
i vandkvæðum með að standa
undir þessum miklu launahækk-
unum, þvi að verð á útflutningsaf-
urðum okkar hefur hækkað um
92% frá árs meðaltali 1972—1974.
En þessi hækkun hefur einnig
stuðlað að innlendri verðbólgu.
Nú er útlit fyrir, að verulega
dragi úr hækkunum á innfluttum
og útfluttum vörum og hefur það
mikil áhrif til að draga úr inn-
lendri verðbólgu. Hins vegar er
efnahagsstefna ríkisstjórnarinn-
ar ekki fallin til þess sama, og
með gerðum sinum hefur stjórnin
bæði komið af stað miklu verð-
hækkanaflóði og valdið því, að
safnazt hafa fyrir veróhækkana-
legasta undirbúningi undir
gæslu stækkaðrar landhelgi og
öflun viðurkenningar á henni.
5) Eigum við að leggja áherzlu
á samkomulag við Vestur-
Þjóðverja i landhelgisdeilunni?
Viðunandi samkomulag við
Vestur-Þjóðverja væri síst þýð-
ingarminna en bráðabirgðasam-
komulagið við Breta.
6) Eigum við að semja við
Union Carbide um byggingu
málmblendiverksmiðju í Hval-
firði?
Samningsgerð við Union Car-
bide eða hvern annan aðila um
stofnun sameignarfyrirtækis
veltur fyrst og fremst á því, hver
nýting raforku er hagkvæmust
þjóðarbúskapnum og hraðar mest
frekari virkjunum.
tilefni sem koma fram i verð-
bólgustraumi næsta árs.
Beztu ráðin til að draga úr verð-
bólgu eru öflugt verðlagseftirlit,
vinnufriður og góð samvinna við
samtök launamanna ásamt
ströngu aðhaldi að opinberum
rekstri og einkarekstri til að
tryggja itrasta sparnað og hag-
kvæmni í þágu þjóðarheildarinn-
ar.
4) Hvenær teljið þér, að færa
eigi fiskveiðilögsöguna út ( 200
m(lur?
A árinu 1975. Aðalatriðið er, að
um raunverulega útfærslu verði
að ræða, sem nái til allra erlendra
þjóða, þó með hugsanlegri undan-
tekningu hvað snertir Færeyinga,
en samningurinn vió Breta verði
ekki framlengdur. Sá samningur
rennur út 13. nóv. á næsta ári og
verður þvi ekki um raunverulega
útfærslu landhelginnar að ræða
fyrr en þá, þótt útfærslan verði
dagsett fyrr.
5) Eigum við að leggja áherzlu
á samkomulag við Vestur-
Þjóðverja I landhelgisdeilunni?
Nei, við eigum ekki að semja
við Vestur-Þjóðverja um veiði-
heimildir innan íslenzkrar land-
helgi.
6) Eigum við að semja við
Union Carbide um byggingu
málmblendiverksmiðju ( Hval-
firði?
Nei. Eitt mikilvægasta verkefni
okkar er að koma upp varma-
veitum, hvarvetna þar sem heitt
vatn er fáanlegt með hagkvæmum
hætti, en jafnframt að tengja sam-
an orkuveitusvæðin með stofnlán-
um og byggja öflugt dreifikerfi,
sem flutt geti raforku til húsahit-
unar, þar sem heitt vatn er ekki
fáanlegt. 1 þessu skyni höfum við
þörf fyrir allt það fjármagn, sem
vió getum aflað til stórfram-
kvæmda á næstu árum, en auk
þess erum vió að byggja tvær
mjög dýrar virkjanir við Sigöldu
og Kröflu. Orka þessara virkjana
nýtist til fulls og nýtist bezt til
húsahitunar, og við erum þvi ekki
heldur aflögufærir um orku á
næstu árum. Bygging málm-
blendiverksmiðju í Hvalfirði i
samvinnu vió Union Carbide virð-
ist óskynsamleg fyrirætlun af
ýmsum öðrum ástæðum, en
þyngst vegur, að þessi fram-
haldist. Brýnt er að unnið sé
skipulega að þvi að tryggja öllum
landshlutum næga og ódýra raf-
orku. Fjárframlög til byggðaþró-
unar nýtast ekki sem skyldi fyrr
en landinu hefur verið skipt í
þróunarsvæði að undangenginni
könnun á byggóavandanum.
Byggðaáætlanir verður að gera
með fullri þátttöku heimamanna.
í velferðarmálum er aðkallandi
að tekjutrygging bótaþega fylgi
verðlagsþróun og að lífeyrisþegar
sitji allir við sama borð. Samteng-
ing skattheimtu og almannatrygg-
inga i tekjutryggingarkerfi væri
mikið framfaraspor.
8) Hver teljið þér, að fram-
vinda (slenzkra stjórnmála verði (
kjölfar stjórnarskipta á árinu
1974?
Myndun hægri stjórnar með (
yfirgnæfandi þingmeirihluta að
kvæmd er ekki skynsamleg frá
efnahagslegu sjónarmiði.
7) Hver eru helztu viðfangsefn-
in í atvinnumálum, byggðamálum
og velferðarmálum á næsta ári?
Eins og fram kom í svari við
seinustu spurningu er nýting inn-
lendra orkugjafa eitt mikil-
vægasta viðfangsefnið okkar.
Fljótlega þarf að taka ákvarðanir
um næstu stórvirkjun eftir
Sigöldu og Kröfluvirkjun, og hlýt-
ur ný virkjun á Norðurlandi að
koma sérstaklega til álita vegna
nálægðar við húsahitunarmarkað
á Vestf jörðum og Norðurlandi.
Verðtryggður lífeyrissjóður
fyrir alla landsmenn er mjög
brýnt mál. Einu verðtryggðu
lífeyrisréttindin eru lífeyrir opin-
berra starfsmanna, en fyrir aðra
starfshópa er með öllu óviðun-
andi að horfa upp á verðbólguna
eyða þeim litlu réttindum til lif-
eyris, sem áunnizt hafa.
I menntamálum er brýnast, að
verknám og iðnfræðsla verði
endurskipulögð.
A árinu 1973 urðu augljós
straumhvorf i byggóamálum eins
og auðveldlega má ráða af skýrsl-
um um fólksflutninga innanlands
og búsetuþróun. Þetta var einn
merkasti ávinningurinn af störf-
um vinstri stjórnarinnar, og þess-
ari sókn verður að halda áfram.
Sérstök ástæða er til að leggja
áherzlu á samgöngumálin og var-
anlega gatnagerð í þéttbýli. Ut-
vega verður sérstakt fjármagn,
vafalaust þúsundir milljóna
króna, til að gera traustan og
öruggan hringveg um landið, og
hlýtur nú að verða lögð áherzla á
leiðina milli Akureyrar og
Reykjavíkur. Væntanlega yrði um
að ræða einhvers konar lánsfé, en
9
baki er prófsteinn á stjórnhæfni
þeirra sem þar eiga hlut að máli,
en jafnframt reynir á getu vinstri
afla til að ná samstöðu i stjórnar-
andstöðunni. En vanhagi Morgun-
blaðið um spádóma um óorðna
stjórnmálaviðburði væri þvi nær
að ráða sér spákonu en snúa sér
til mín.
Magnús Torfi Ölafsson.
athuga þarf vandlega, hvort vega-
sjóður getur ekki fengið hag-
kvæmari lán en vísitölulán, sem
eru margfalt óhagkvæmari en
önnur lán og geta orðið sjóónum
ískyggileg byrði í framtíðinni.
8) Hver teljið þér, að fram-
vinda islenzkra stjórnmála verði i
kjölfar stjórnarskipta á árinu
1974?
Staða þjóðarbúsins hefur aldrei
verið öflugri en nú. Hins vegar
hafa komið upp ýmis vandamál í
efnahagsmálum á þessu ári, sem
þurft hefur að leysa án þess að
vinnufriði og atvinnuástandi væri
stefnt i hættu. En núverandi
ríkisstjórn hefur hagnýtt þessi
vandamál til að knýja fram veru-
lega breytta tekjuskiptingu milli
atvinnurekenda annars vegar og
hins vegar launamanna, sjó-
manna og bænda. Minnkandi
kaupmáttur fólksins er þegar
farinn að gera vart við sig á ýms-
um sviðum. í byggingariðnaði er
samdrátturinn mestur, og hefur
þegar orðið vart við atvinnuleysi
meðal iðnaðarmanna eftir lang-
varandi skort á vinnuafli. Hættan
er sú, að um verði að ræða keðju-
verkandi samdrátt í íslenzku at-
vinnulífi á næsta ári í líkingu við
það, sem gerðist eftir gengisfell-
inguna 1968, þótt hægar fari.
Ég hef orðið var við, að margir
stuóningsmenn Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknarflokksins eru
lítið hrifnir af þessari nýju ríkis-
stjórn, og sérstaklega á þetta við
um Framsóknarmennina. Ég
spái því, að fólkinu í landinu
muni sakna hinnar fyrri stjórnar
þeim mun meir, sem þessi situr
lengur.
Ragnar Arnalds.
+
Hjartkær móðir okkar
SIGRÍÐUR KRISTlN SIGURÐARDÓTTIR
Suðurgötu 100 Akranesi
andaðist að kvöldi föstudagsins 27. desember
fh. ættingja og vina
Sveinn Jóhannsson
Rlkharður Jóhannsson
FLUQ£LmALfi
í VESTURBÆNUM
Margar gerðir af flugeldum.
Fjölskyldupokar. Jókerblys.
iRómönsk blys. Bengalblys.
Stjörnublys. Fallhlífarblys.
Stjörnuljós. Bengaleldspítur ofl.
Dunhagi 23,
sími 28510
*
Ragnar Arnalds formaður
A Iþýðubandalags