Morgunblaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
17
annarra þjóöa, hefði nýlega verið í Póllandi og fengið
þar góðar undirtektir. Aðspurður hvert yrði næsta
skref Norðmanna í fiskveiðimálunum, svaraði Bratt-
eli, að samkvæmt starfsáætlun sem ákveðin hefði
verið í haust um það, hvernig vinna skyldi að fram-
gangi lögsögumálanna, yrði það gert skref fyrir skref.
Fyrsta skrefið væri togveiðibannsvæðin, næsta skref
yrði væntanlega útfærsla í 50 sjómflur, hvenær vildi
hann ekkert um segja, en alla vega yrði það ekki fyrir
næsta áfanga hafréttarráðstefnunnar, Norðmenn
myndu halda áfram að vinna að lausn þessara mála á
þeim vettvangi. Hann var spurður, hvort Norðmenn
myndu færa út einhliða ef enginn árangur næðist á
ráðstefnunni, en því vildi hann ekki svara öðru vfsi en
svo, að Norðmenn vildu helzt forðast þorskastríð.
Hann tók fram, að hann vildi ekkert um mál þetta
segja, sem hægt væri að tfta á sem fhlutun í málefni
Islands eða afskipti af fslenzkri afstöðu og hann vildi
enga skoðun láta f ljós á þeirri ákvörðun lslendinga að
færa út fiskveiðilögsögu sfna f 200 sjómflur fyrir lok
þessa árs.
Bratteli kvað forsætisráðherra Norðurlanda hafa
verið sammála um það á fundi sfnum f Oslo á dögun-
um, að orku- og iðnaðarmálin væru mikilvægustu
viðfangsefni þessa þings Norðurlandaráðs. Hann
sagði fulltrúa Norðmanna og nágrannaríkjanna vinna
í sameiningu að hugmyndum um það, hvernig háttað
skyldi samstarfi um olfumálin og hugsanlegum olfu-
viðskiptum. Aðspurður hvort þetta væru samningavið-
ræður sagði hann það of mikið sagt: Hann var einnig
spurður hvenær kæmi til greina, að Norðmenn gætu
selt lslendingum olfu, ef til kæmi, en út á það vildi
hann ekkert gefa; sagði, að Norðmenn myndu fyrst
framleiða olfu fyrir sig og útflutningur kæmi síðan til
smám saman eftir því sem framleiðslan ykist. En
hann kvað Norðmenn hafa góðar vonir um að f lok
þessa áratugar yrði olfuframleiðslan við Noreg orðin
tíföld þeirra eigin þörf. 0
Trygve Bratteli, forsætisráðherra Noregs, ásamt
sendiherra Noregs á Islandi.
Per Borten:
„Eg tel ekki að olíu-
gróðinn verði jafn-
skjótfenginn og
sumir œtla”
0 PER Borten, fyrrv. forsætisráðherra Noregs, er
meðal fulltrúa á þinginu. Hann sagði að á slfkum
fundum væru jafnan nokkrir málaflokkar, sem hæst
bæri og virtist sem nú væru orkumálin í brennidepli.
1 framhaldi af þvf barst talið að olíuvinnslu Norð-
manna f Norðursjó og sagði Borten að honum sýndist
sem menn einblfndu á olfuna sem alls herjar bjarg-
vætti allra vandamála.
— Ekki má gleyma, hversu gffurlega hefur verið
fjárfest á sfðustu árum f ýmiss konar undirbúnings-
starfi og eru þó ekki öll kurl komin til grafar. Það
mætti segja mér að þarna yrði ekki jafnskjóttekinn
gróði og margir reiknuðu með.
— Það eru ýmsar blikur á lofti í efnahagsmálum
Noregs og vtð höfum ekki farið varhluta af erfið-
leikunum. Iðnaðurinn, landbúnaðurinn, sjávarútveg-
urinn — allar þessar greinar eiga í örðugleikum. Og
að mfnum dómi hefur stjórninni alls ekki tekizt að
hafa hemil á verðbólgunni.
— Annars hefur verðbólgan f Noregi ekki verið slík
að þörf sé að hafa uppi mikinn barlóm, bætti Borten
við.
— Hagur okkar og staða gæti verið erfiðari.
Borten var síðan spurður um hvort jafnréttismál
yrðu ekki talsvert til umræðu vegna kvennaársins.
Hló hann þá glaðlega og sagði að á Islandi þyrfti
nánast ekki að ræða slfk mál þar sem allir hefðu
mögulcika á að vera jafnir. 0
Per Borten, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs.
Pekka Tarjanna:
Stgðjum baráttu
íslendinga —
0 Pekka Tarjanna, samgöngumálaráðherra Finn-
lands, kom sem kunnugt er hingað til lands á þjóð-
hátfðina á Þingvöllum sl. sumar. Hann kvaðst telja
Pekka Tarjanna, samgöngumálaráóherra Finnlands.
orku- og iðnaðarmálin almennt mikilvægustu við-
fangsefni þingsins næstu daga. Finnar hefðu mikinn
áhuga á samstarfi Norðurlanda á þvf sviði, en þeir
flytja inn, að hann sagði, um tvo þriðju hluta þeirrar
olfu, sem þeir nota, frá Sovétríkjunum.
Finna kvað hann þó hafa hvað mestan áhuga 1
hugmyndunum um gagnkvæm réttindi norrænna
borgara í þátttöku f bæja- og sveitastjórnarkosning-
um, þar sem þeir væru búsettir og starfandi og hefðu
þeir lagt fram tillögu f þvf efni. Hann kvað þetta
einkar mikilvægt, þar sem hreyfing vinnuafls innan
Norðurlanda færi vaxandi. Sjálfur kvaðst hann hafa
sérstakan áhuga á vandamálum er vörðuðu upp-
lýsingaskyldu Norðurlandaráðs, bæði inn á við og út á
við, — hvað grundvallarreglur skyldu gilda f þeirn
efnum, m.a. um samskiptin milli forsætisnefndar-
innar og ráðherranefndarinnar, til þess til dæmis að
komizt yrði hjá tvfverknaði. Aðspurður, hvort nokkur
breyting hefði orðið á afstöðu Finnlands f fiskveiði-
lögsögumálunum svaraði Tarjanna þvf neitandi: „Við
styðjum baráttu Islendinga." 0
Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, ræðir v<ð
blaðamenn i flugstöðinni í Keflavik.
Olof Palme:
„Efnahagsþróunin
hefur verið
okkur hagstœð”
0 OLOF Palme, forsætisráðherra Svfþjóðar, kvað'l
aðspurður sérstaklega telja að orkumálin og samstarf
Norðurlanda á þvf sviði, væri þýðingarmest; nefna
mætti undirbúning að fjárfestingarbankanur.1
norræna, samvinna á sviði samgangna og menninga"-
mála, kvennaárið og mál að þvf lútandi kæmu t l
umf jöllunar ásamt ótal mörgum öðrum.
Blaðamaður Mbl. spurði Palme hverja hann teltíi
vera skýringu á þvf að efnahagur Svfa stæði með þeim
blóma, sem raun bæri vitni um, þegar ástandið 'væfi
vfða erfitt og óbjörgulegt. Palme yppti þá öxlum og
sagði að dæmið gæti snögglega snúist við; veðrabrig‘»-
in og sveiflurnar gætu komið áður en við væri litið.
Hann sagði aðspurður að ekki treysti hann sér til ao
álfta skýringuna vera þá að hann væri svona góðu.'
forsætisráðherra og sagði: — Efnahagsþróunin hefu<-
verið okkur mjög hagstæð og því höfum við geta)
framfylgt stefnu, sem hefur borið ávöxt. En ekki þori
ég að spá þvf að þetta ástand geti varað.
Palme var síðan inntur lítillega eftir afstöðu Svía <
landhelgismálum. Hann vísaði til fyrri yfirlýsing <
stjórnarinnar og sagði að Svíar vildu að Hafréttarrái-
stefnan mótaði alþjóðlega stefnu, en eólilegt væri a)
taka tillit til þjóða sem ættu afkomu sína nær einvöré.
ungu undir fiskveiðum. 0