Morgunblaðið - 15.02.1975, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
21
London, 14. febrúar.
Reuter
ELlSABET drottning er dýrari
í rekstri en allir aðrir þjóðhöfð-
ingjar Evrópu en langtum
ódýrari en forseti Bandaríkj-
anna.
Eftir þá 420.000 punda kaup-
hækkun sem hún hefur fengið
er ársrisna hennar 1.400.000
pund en auk þess hefur drottn-
ing boðizt til að greiða úr eigin
vasa 150.000 pund til þess að
taka þátt 1 því að hækka kaup
starfsfólks sfns og standa undir
öðrum kostnaðarauka.
En við þetta bætist rekstur
lystisnekkju drottningar og
fimm flugvéla og viðhald kon-
unglegra bygginga og sá kostn-
aður nemur um 4.600.000
punda á ári.
Auk þess fá nánustu ættingj-
ar drottningar 335.000 pund
hver í tekjur frá ríkinu, þar á
meðal systir drottningar, Mar-
grét prinsessa. Þessi kostnaðar-
liður nemur alls 6.335.000
punda.
Elísabet drottning
Bretum dýr 1 rekstri
1 Frakklandi fær forsetinn
436.000 pund á ári í risnu.
Risna forseta Vestur-
Þýzkalands er talinn nema
2.100.000 punda.
1 Hollandi er talið að Júlíana
drottning fái 625.000 pund frá
ríkinu á þessu ári.
Erfitt er að meta útgjöld
Bandaríkjaforseta þvi þau eru
að miklu leyti falin. Þó er til
dæmis vitað að kostnaðurinn
við lifvörð forsetans er að
minnsta kosti einni milljón
punda hærri en allur kostn-
aðurinn við brezku konungs-
fjölskylduna.
Auk þess sem Elísabet
drottning fær frá rikinu fær
hún 325.000 punda skatt frá
hertogadæminu Lancaster og
þeirri upphæð er varið til per-
sónulegra útgjalda drottningar
vegna starfs hennar, til dæmis
til kaupa á fötum og skart-
gripum.
Bretakonungar hafa þegið
risnu frá rikinu siðan 1760
þegar Georg III afsalaði sér
öllum skattatekjum frá krúnu-
lendum sinum nema hertoga-
dæminu Lancaster, gegn því að
fá risnu.
Matarkostnaður drottningar
jókst úr 57.000 pundum 1972 í
73.000 pund 1973 og kostnaður-
inn við hesthús drottningar
jókst úr 16.000 pundum í 24.000
pund.
Drottning hefur dregið úr
ferðalögum og kaupum á opin-
berum gjöfum en garðveizlu-
kostnaður jókst úr 31.000 pund-
um í 39.000 pund.
Stuðningsmenn krúnunnar
telja peningunum vel varið til
að tryggja stjórnmálajafnvægi
og auka þjóðarstolt og segja
auk þess að krúnan tryggi tekj-
ur af ferðamönnum.
Vinstriblaðið Tribune vili
hins vegar gera konungsfjöl-
skylduna og fylgifiska hennar
atvinnulausa.
Greiðsluhalli
Breta minni
London, 14. febrúar.
Reuter.
VERÐLAG í Bretlandi hefur
hækkað meira en dæmi eru til f
níu mánuði og verðbólgan eykst
enn hröðum skrefum samkvæmt
tölum sem voru birtar í dag.
Hins vegar tilkynnti stjórnin að
greiðsluhallinn hefði minnkað og
að olfu undanskilinni væri um
greiðsluafgang að ræða f fyrsta
skipti sfðan í aprfl 1973. Þá var
metútflutningur f janúar.
Jafnframt er óttazt aó miklar
kauphækkanir sem hin voldugu
samtök kolanámumanna tryggðu
sér i gær hvetji önnur verkalýðsfé
lög til að gera að engu óskrifað
samkomulag stjórnarinnar og
verkalýðshreyfingarinnar er mið-
ar að því að hefta verðbólguna.
Foringjar járnbrautaverka-
manna hófu viðræður i dag við
vinnuveitendur um kaup og kjör
og sögðu að þeir gerðu ráð fyrir
verulegum kauphækkunum.
Greiðsluhallinn í janúar var 261
milljón punda miðað við 346 millj
ónir punda mánuðinn á undan og
hefur ekki verið minni í 15 mán-
uði. Olíugreiðsluhallinn var 312
milljónir svo að um 51 milljón
punda greiðsluafgang er að ræða
ef olían er undanskilin.
Utflutningurinn i janúar var að
verðmæti 1.546 milljónir punda.
Hann jókst um 185 milljónir
punda. Fyrra metið var 1.436
milljónir punda í september.
Þessar tölur eru stjórninni
gleðifréttir I baráttu hennar gegn
verðbólgunni. Þær eru hagstæð-
ari en hinir bjartsýnustu þorðu að
vona.
Hins vegar var tilkynnt að verð-
bólgan í fyrra hefði verið 19.9%.
Verðbólgan jókst um 2.6% tvær
síðustu vijtur desember og tvær
fyrstu vikur janúar og það er
mesta mánaðaraukning síðan í
Brezhnev gagnrýnir
tilraunir Kissingers
Tnmcolnm 1/1 ýnHri 1 or A P
Jerúsalem, 14. febrúar. AP.
ENN var allt á huldu hvort samkomulag tækist milli Israelsmanna og
Egypta um Sinaiskaga þegar Henry Kissinger fór til Jórdanfu f dag að
loknum viðræðum hans og fsraelskra ráðamanna og jafnframt sætti
hann harðri árás Rússa.
Sprengja sprakk rétt hjá hóteli
Kissingers í morgun. Lögreglan
fann tvö lík en gaf enga skýringu
á sprengingunni.
1 Moskvu gagnrýndi Leonid
Brezhnev flokksforingi harðlega
tilraunir Kissingers til að leysa
deilumálin í Miðausturlöndum
skref fyrir skref og virðist greini-
lega vera vel fyrir kallaður eftir
51 dags fjarveru.
Hann sagði: „Takmarkaóar ráð-
stafanir hafa þegar verið gerðar í
Miðausturlöndum eins og kunn-
ugt er. Hafa þær dregið úr spenn-
unni í þessum heimshluta? Þvi
miður ekki. Hafa þær fært þjóð-
um Miðausturlanda frið? Nei, það
hafa þær ekki gert.“
Háttsettur israelskur embættis-
maður sagði blaðamönnum að
Kissinger hefði ekki haft með-
ferðis áþreifanlegar tillögur frá
Egyptum er hann ræddi við Yitzh-
ak Rabin forsætisráðherra, en
gert nánari grein fyrir þeirri
hörðu afstöðu sem Egyptar hefðu
tekið opinberlega.
• •
Oryggismálin efst á baugi
hjá Wilson og Brezhnev
Moskvu, 14. febr. —
Reuter.
• VEL hefur farið á með þeim
Leonid Brezhnev flokksleiðtoga
og gesti hans, Ilarold Wilson for-
sætisráðherra Bretlands, í við-
ræðum þeirra í Moskvu 1 dag.
0 Er þetta 1 fyrsta skipti 1 sjö
vikur, sem Brezhnev kemur fram
opinberlega, og virtist hann vera
við beztu heilsu. Hins vegar er
sagt að hann hafi um skeið verið
sjúkur og þjáðst af inflúensu.
% I viðræðunum í dag lagði
Brezhnev mikla áherzlu á nauð-
syn þess að áframyrðiunnið að því
að bæta sambúð rfkja heims og
tryggja frið. Voru þeir Brezhnev
og Wilson sammála um að rétt
væri að kalla saman á ný leiðtoga-
fund um öryggismál Evrópu, og
er nú talið Ifklegt að sá fundur
verði haldinn f Helsinki f sumar.
Að loknum hádegisverði í
Kreml ræddi blaðafulltrúi
Brezhnevs, Leonid Zamyatin, við
fréttamenn og skýrði þeim frá
gangi vióræðnanna og sagði að
fréttir á Vesturlöndum um alvar-
leg veikindi Brezhnevs að undan-
förnu væru tilgátur og uppspuni.
Hann sagði að í hádegisverðar-
boðinu hefði Brezhnev flutt ræðu
og sagt að leiðtogar Sovétríkjanna
væru ósveigjanlegir í þeirri
ákvörðun sinni að koma á frið-
samlegri sambúð þjóða og vinsam-
legri sambúð þeirra á jafnréttis-
grundvelli öllum til góða. Einnig
vék Brezhnev nokkuð að deilum
Araba og Gyðinga, og voru þeir
Wilson og hann sammála um að
litið mætti út af bera til að þar
syði uppúr.
Þegar viðræður hófust á ný eft-
ir hádegið var Brezhnev i sól-
skinsskapi. Teygði hann sig eftir
flösku af sódavatni yfir samninga-
borðið, og bauðst til að selja Bret-
um-þettasovézkadrykkjarvatn á
mjög góðu verði. Þegar Wilson
svaraði því til að sér þætti verðið
samt of hátt, ýtti Brezhnev vió
Alexei Kosygin forsætisráðherra,
sem sat næstur honum, og sagði:
„Við gerum þeim gott tilboð, og
þeir fara að þjarka um verðið.“
Þetta er fyrsta heimsókn for-
sætisráðherra Bretlands til Sovét-
rikjanna frá því árið 1968, þegar
Wilson kom þangað siðast. Hefur
sambúðin ekki verið upp á það
bezta síðan Bretar ráku 105 full-
trúa Sovétrikjanna úr landi árið
1971 eftir að þeir höfóu verið sak-
aðir um njósnir.
april i fyrra. Ottazt er að aukið
atvinnuleysi verði fylgifiskur
aukinnar verðbólgu.
Tugir
fyrir
réttí
Kaíró
Kaíró, 14. febr. Reuter
RÉTTARHÖLD hefjast á
morgun í Kafró í málum 74
sakborninga sem eru ákærðir
fyrir að hafa tekið þátt f
meintu samsæri um að steypa
Anwar Sadat forseta af stóli og
eiga dauðarefsingu yfir höfði
sér.
Alls eru 92 ákærðir fyrir
morð, þátttöku í glæpsamlegu
samsæri, árás á hernaðar-
mannvirki og samsæri um að
kollvarpa forsetanum.
Sakborningarnir eru flestir
rúmlega tvítugir og dauðarefs-
ingar hefur ekki verið krafizt
yfir jafnmörgum sakborn-
ingum í Egyptalandi síðan
félagar úr Bræðrafélagi
Múhameðstrúarmanna voru
leiddir fyrir rétt 1954, gefið að
sök að hafa reynt að ráða Nass-
er heitinn forseta af dögum.
Sakborningarnir eru ákærð-
ir fyrir að hafa gert árás á
hertækniskólann í Kairó í
apríl. 11 biðu bana og 27 særð-
ust í árásinni.
Því er einnig haldið fram að
þeir hafi reynt að sækja til
aðalstöðva Arabiska sósíalista-
sambandsins, eina stjórnmála-
flokks Egyptalands, þar sem
Sadat var að halda ræðu og
neyða hann til að segja af sér.
Þeir eru einnig sakaðir um
að hafa starfað í leynilegum
samtökum múhameðskra of
stækismanna.
Hann sagði að likurnar á því að
deilan leystist þegar Kissinger
færi í aðra ferð til Miðaustur-
landa um miðjan næsta mánuð
væru 50 á móti 50. Bandaríkja-
menn hafa meti^ líkurnar ná-
kvæmlega eins.
Þegar Kissinger fór frá Israel
lagði hann enn áherzlu á að hann
hefði farió í ferð sina í könnunar-
skyni, en hann sagði aó þær við-
ræður sem hann hefói átt i Jerú-
salem og öðrum höfuðborgum
gerðu honum kleift að koma aftur
eftir nokkrar vikur og taka þátt i
áþreifanlegri viðræðum sem
væru fyrirsjáanlegar. Hann
kvaðst vera mjög ánægður með
viðræóur sinar i Israel og ísra-
eiskir ráðamenn tóku í sama
streng.
Israelski embættismaðurinn
sem skýrði frá gangi viðræðnanna
sagði að Israelsmenn mundu ekki
láta af hendi Mitla- og Gildiskörð-
in og Abu Rudeis-oliulindirnar
nema gegn skuldbindingu frá
Egyptum þess efnis að þeir
mundu ekki beita Israelsmenn
valdi eða hóta þeim valdbeitingu.
Hann sagði að annar helzti
möguleikinn sem væri ræddur
væri sá að Israelsmenn hörfuóu
upp að fjallaskörðunum, en héldu
olíusvæðunum, en þá yrðu Egypt-
ar að koma til leiðar friðsamlegu
andrúmslofti. Þannig yrðu þeir að
gera sig óháðari Rússum og neita
að taka þátt í pólitískum og efna-
hagslegum aðgerðum róttækra
Arabaríkja gegn Israel.
Hann sagði að Israelsmenn og
Egyptar yrðu að gera tvihliða
Framhald á bls. 20
Byltindn
bæld niður
Tananarive, 14. feb.
— Reuter.
HERSVEITUM stjórnvalda i
Malagasy tókst í dag að bæla nið-
ur uppreisnartilraun flokka lög-
reglumanna, sem sakaðir eru um
morðið á þjóðhöfðingja landsins,
Richard Ratsimandrava, á þriðju-
dag.
Lokaátökin urðu við aðalstöðv-
ar sósialistaflokks landsins i
mióri höfuðborginni Tananarive.
Þar höfðu uppreisnarmenn búið
um sig eftir að hafa verið hraktir
úr herbúðum sínum utan við
borgina i gær. Samkvæmt áreið-
anlegum heimildum var Andre
Resampa framkvæmdastjóri
sósialistaflokksins meðal þeirra,
sem gáfust upp i aðalstöðvunum i
dag.
Nitján rnanna herforingjastjórn
undir forustu Gilles Andriama-
hazo hershöfðingja fer með völd í
Malagasy eftir morðið á þjóðhöfð-
ingjanum, og sagói hershöfðing-
inn i dag að við töku herbúða
uppreisnarmanna í gær hefði 21
maður fallið. Ekki hefur verið
tilkynnt hve margir féllu i bar-
dögum við aðalfangelsi höfuð-
borgarinnar, þar sem hópur upp-
reisnarmanna hafði búið um sig,
né heldur við töku aðalstöðva
flokksins.
Yfirmaður sveita uppreisnar-
manna var Brechard Rajaonaris-
on ofursti, og er ekki vitað um
örlög hans.