Morgunblaðið - 20.02.1975, Síða 12

Morgunblaðið - 20.02.1975, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1975 Minning: Sigurður Grímsson hœstaréttarlögmaður F. 20. apríl 1896. D. 10. febrúar 1975. Vinur minn og samstúdent Siguröur Grímsson hæstaréttar- lögmaöur andaöist í Landakosts- spítala mánudaginn 10. þ.m. eftir stutta legu. Við Sigurður vorum búnir að tala um þaö okkar í milli, meira í gamni en alvöru, að sá okkar, er lifði hinn, skyldi skrifa nokkur minningarorð um þann, sem á undan færi. En nú, þegar það er orðið hlutskipti mitt að efna þetta loforó, sé ég, að vandinn er meiri en ég bjóst við. Kemur það til af tvennu: Annað er það, að i 22.—24. tbl. Lesbókar Morgun- blaðsins s.i. ár birtist viðtal Sigurðar við Guðrúnu Egilson, þar sem hann lýsir á mjög skemmtilegan en nokkuð léttúðugan hátt lífi sinu og starfi og vil ég forðast að mestu leyti endurtekningar á því. Hitt er, að ég hef mjög takmarkaða þekk- ingu á aðal áhugamáli Sigurðar, sem var hverskonar list og list- sköpun, sérstaklega ritlist. Sigurður var fæddur á lsafirði 20. apríl 1896. Voru foreldrar hans Grímur Jónsson, cand. theol., skólastjóri þar m.m. og k.h. Ingveldur Guðmundsdóttir. Grímur Jónsson var fæddur á Krossi í Austur-Landeyjum 14. júlí 1855, d. í Reykjavik 29. sept. 1919. Foreldrar hans voru Jón síðast prestur á Gilsbakka f. 1. janúar 1815, d. 25. júní 1881, Hjartarson, prests á Gilsbakka, f. 3. april 1776, d. 2. nóv. 1843 Jóns- sonar og f.k.h. Kristín, f. 18. jan. 1814, d. 26. marz 1869, Þorvalds- dóttir, prests og sálmaskálds, sið- ast í Holti undir Eyjafjöllum, f. 21. mai 1758, d. 21. nóv. 1836, Böðvarssonar. Móðir Sigurðar og kona Gríms var Ingveldur Guðmundsdóttir f. 26. nóv. 1864, d. 11. marz 1935. Foreldrar hennar voru Guðmund- ur (Einarsson) Johnsen f. 20. ágúst 1812, d. 28. feb. 1873, síðast prestur í Arnarbæli, sonur Einars stúdents og kaupmanns í Reykja- vik, Jónssonar og k.h. Ingveldar Jafetsdóttur, gullsmiðs Illugason- ar, og k.h. (31. ágúst 1847) Guðrún, f. 7. júlí 1825, dóttir Georgs Péturs Hjaltested að Helgavatni í Vatnsdal, Einarsson- ar. Grimur skólastjóri átti, áður en hann kvæntist Ingveldi, 2. dætur: Aslaugu f. 24. júlí 1877, sem gift- ist norskum manni Svendsen að nafni og bjuggu í Drammen i Noregi og Ásthildi f. 4. apríl 1884, gifta Magnúsi Magnússyni B.A. Minnesota, bróðursyni Eiriks meistara Magnússonar í Cam- bridge. Eru þær báðar látnar. Alsystkini Sigurðar voru: 1. Jón Grimsson, verzlunar- og mála- færslumaður á lsafirði, f. 17. des. 1887, sem enn er á lífi kvæntur Ásu ■F-innsdóttur Thordarson, f. 18. mai 1892, d. 15. maí 1971. 2. Kristrún f. 9. feb. 1890, d. 10. okt. 1895, og 3. SigFÍður f. 17. apríl 1893, d. 1. sept. 1973, ekkja Guðmundar Ólafssonar hæsta- réttarlogmanns, f. 5. júní 1881, d. 22. maí 1935. Þau Grímur og Ingveldur skildu árið 1910 og bjó Grímur siðar með Kristínu f. 15. feb. 1884, sem enn er á lífi, Eiríksdóttur b. á Hóli í önundarfirði Kristjánsson- ar, og áttu þau saman eftirtalin börn: 1. Séra Grím Grímsson skóknarprest í Asprestakalli Reykjavik, f. 21. apríl 1912, kvæntan (21. apríl 1939) Guðrúnu Sigriði, f. 4. sept. 1918 Jónsdóttur stjórnarráðsfulltrúa í Reykjavík f. 8. okt. 1890, Gunnlaugssonar. 2. Hildur f. 21. apríl 1912, búsett í Kaupmanna- höfn, gift fyrr Gunnari Kaaber lyfsala þar og síðar dr. Jens G. Hald lyfjafræðingi þar. 3. Kristín f. 28. sept. 1914 ekkja Áka Péturs- sonar, deildarstjóra í Hagstof- unni, f. 22. sept. 1913, d. 10. sept. 1970. Um foreldra Siguróar læt ég mér nægja að vísa til fyrrnefnds samtals hans í Lesbókinni og sama er að segja um fyrstu æsku- ár hans á Isafirði og þegar hann er sendur suður til Reykjavíkur til skólanáms til móðursystur sinnar Guðríðar f. 21. nóv. 1853, d. 7. jan. 1940 konu (7. sept. 1880) Ólafs, frikirkjuprests, f. 24. sept. 1855, d. 26. nóv. 1937, Olafssonar. Ég kynntist Sigurði fyrst haust- ið 1914 er ég settist í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavik að afloknu gagnfræðaprófi á Akur- eyri. Er mér óhætt að segja, að Sigurður varð strax eftirtektar- verðastur af skólabræðrum min- um. Ollu því óvenjulegur fríðleiki hans og glæsimennska i fram- komu og ekki síður hitt, að hann var viðurkennt skólaskáld. Ekki minnkaói það aðdáun mina þegar ég á fyrstu skólaskemmtun okkar það ár heyrði hann syngja ein- sönginn í laginu „Von der Mutter" með sinni undurfögru söngrödd. Tókst fljótlega góð vinátta með okkur Sigurði, sem enginn skuggi hefur fallið á. Þegar ég kom fyrst suður i Menntaskólann varð mér það ljóst, að nokkur annar skólabrag- ur var þar en á Akureyri. Mun m.a. heimavistin á Akureyri hafa sett sinn stóra svip á skólalífið þar. Nokkuð er það, að námið var aðalatriði okkar norðansveina meðan við dvöldumst þar og má það ef til vill mest þakka okkar ógleymanlega skólameistara Stefáni Stefánssyni. Hér var allt miklu lausara í reipunum. Skólasveinar voru hér dreifðir um allan bæ og þó að kennsla hér væri betri í sumum greinum, sérstaklega í málunum, varð samband nemenda ekki nærri eins náið. Norður á Akureyri fóru piltar til þess að læra það, sem kennt var. Hér í Menntaskólanum var nokkur hópur nemenda og meðal þeirra sumir gáfuðustu nemendurnir, sem töldu sig svo mikla andans menn, að óþarfi væri að lesa kennslubækur og nægilegt að ganga upp til prófs „á gáfunum“, en álitu sig skáld og spekinga og lásu „klassiskan" skáldskap og fagrar bókmenntir í stað námsbókanna. Hefur það vafalaust aukið and- legt útsýni þeirra og aukið þroska þeirra á vissum sviðum, en ekki Var það vænlegt til þess að taka sæmileg próf. Sigurður var á þessu timabili einn af aðalforingjum þessa hóps og við hinir, sem vorum jarð- bundnari, dáðum þessa skóla- bræður okkar, þó við vildum eða gætum ekki fetað í fótspor þeirra. Sérstaklega var sumum þessara nemenda uppsigað við stærðfræð- ina og Sigurður segir frá því af mikilli frásagnargleði i fyrr- nefndu samtali, aó sér hafi tekizt ásamt þrem öðrum samstúdentum okkar, sem allir hafa orðið merkir menn, að fá 0 (núll) í stærðfræði til stúdentsprófs. Sigurður hætti um stund námi i Menntaskólanum í 5. bekk og gerðist þá blaðamaður við blaðið „Þjóðstefna“, sem Einar skáld Benediktsson gaf út. Dáði hann Einar mjög og hefur áreiðanlega orðið fyrir miklum áhrifum frá honum, en þetta seinkaði námi hans um eitt ár og varð til þess að við tókum stúdentspróf sama vor- ið, báðir utanskóla. Sigurður var eftir stúdenlspróf óráðinn í hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur. Hann varð starfsmaður hjá Sjóvátryggingar- félagi Íslands og síðar prókúru- hafi hjá Guðmundi Eiríkss. heildsala, taldi sig vera og var í raun og veru skáld, langt fram- yfir þá, sem nú telja sig til skálda og njóta opinberra styrkja og vióurkenninga, og gaf árið 1922 út ljóðabókina „Við langelda", sem þá hlaut misjafna dóma, en myndi nú í lægðarmiðju íslenzkr- ar skáldlistar teljast öndvegis- verk. Hann vildi endurbæta ekki aðeins þjóðfélagið heldur alla heimsbyggðina og gerðist kommúnisti og síðar Alþýðu- flokksmaður. En í raun og veru var hann óráðinn „boheme" og lét hverjum degi nægja sina þján- ingu. Sigurður fór um þessar mundir í lögfræðideild Háskóla Islands og lauk þar námi 24. júní 1925 „með einkunn, sem var nógu stór, en þó í mesta hófi“ eins og Tómas stór- skáld orðaði það um próf sitt. Árið 1926—’35 stundaði Sigurð- ur málafærslustörf í Reykjavík og á þeim árum liggur lítið prentað eftir hann, en 12. maí 1932 kvænt- ist hann ágætri konu Láru Jóns- dóttur og við það verða alger straumhvörf í lífi hans. Lára er fædd 11. feb. 1904 dótt- ir Þórstinu Gunnarsdóttur, f. 5. ágúst 1883, d. 12. jan. 1950 og Jóns Hermannssonar úrsmiðs, f. á Barðanesi i Norðfirði 11. nóv. 1868, d. 19. des. 1947. Foreldrar Jóns voru Hermann, bóndi á Brekku og Barðanesi, Vilhjálms- son og k.h. Guðný Jónsdóttir prests á Skorrastað og i Heydöl- um f. 10 ágúst 1800 d. 5. marz 1881, Hávarðssonar og k.h. (26. maí 1825) Sólveigar Benedikts- dóttur d. 8. apríl 1870, 66 ára, prests á Skorrastað, Þorsteinsson- ar. Jón var „ágætur maður“ (Ættir Austfirðinga bls. 168) og var m.a. frumkvöðull að stofnun Aust- firðingamóta. Þórstína var einnig merkiskona. Hún giftist síðar Einari Ólafssyni matsveini og vkm., siðar í Borgarnesi, og er Ásgeir Ó. Einarsson dýralæknir sonur þeirra og hálfbróóir frú Láru. Frú Lára er vel gerð kona, list- feng og skapföst. Með hjónabandi þeirra Sigurðar öðlaðist hann þá kjölfestu í lífinu, sem hann hafði þörf fyrir eftir rótleysi fyrri ára. Þau stofnuðu fagurt og listrænt heimili og voru mjög samhent í því. Sigurður segir í fyrrnefndu blaðaviðtali að námið í lögfræði hafi ekki átt hug sinn nema að nokkru leyti, en 1935 gerðist hann fulltrúi hjá lögmanni og siðar borgarfógeti og hafði með hönd- um fógetaréttarmál í útsvars- og skattamálum. í þeirri stöðu stóð hann með þeim ágætum, að flestir úrskurða hans voru staðfestir í Hæstarétti og starfstími hans var framlengdur til 75 ára aldurs með því aó „setja“ hann í embættið eftir að hann var kominn yfir lögbundið aldurshámark emb- ættismanna. Eins og vikið er að hér að fram- an var Sigurður fagurkeri í víð- tækustu merkingu þess orðs. Hann unni öllu sem fagurt var hvort heldur það var fagurt út- sýni á landi, lofti og legi, fagrar konur, fagrar bókmenntir í fögru bandi, sem hann sjálfur batt í frístundum, fögur málverk og önnur listaverk, fögur föt, góður matur, gómsæt og litfögur vín. Var smekkur hans fyrir hinu fagra alþekktur og metinn að verðleikum, t.d. með því að gera hann að dómara í fegurðarsam- keppni kvenna. Leiklistargagn- rýnandi Morgunblaðsins var hann um 20 ára skeið og kvikmynda- gagnrýnandi sama blaðs um 10 ár. Hann skrifaði fjölda ritdóma og sat um skeið i stjórn og sem for- maður Rithöfundafélags Islands. En um leið og Sigurður gagn- rýndi aðra listamenn óx sjálfs- gagnrýni hans. Hann taldi sig nú ekki lengur hafa þá skáldagáfu, sem hann áður hugði og gaf ekki út fleiri ljóðabækur. Þó lagði hann ekki skáldskap- inn alveg á hilluna og birtust eftir hann i blöðum og tímaritum ágæt kvæði, sem flestir aðrir hefðu safnað saman i bók. Bendi ég t.d. á eftirmæli hans eftir skáldin Einar Benediktsson og Þórberg Þórðarson, sem birtust i Lesbók Morgunblaðsins. Hjónaband þeirra Láru og Sigurðar var óvenjulega ástúðlegt af beggja hálfu. Því miður eignuðust þau ekki börn saman, en tóku sem fósturdóttur og síðar sem kjördóttúr Asu Finnsdóttur f. 23. nóv. 1944. Hún giftist Jóhannesi Arnasyni Long, heil- brigðisfulltrúa Reykjavíkurborg- ar og eiga þau tvær dætur. 1 næði hins fagra heimilis þeirra hjóna gerðist Sigurður, að loknum embættisönnum, afkasta- mikill þýðandi og rithöfundur. Einkum þýddi hann leikrit eftir fræga erlenda höfunda, sem leik- in hafa verið i Þjóðleikhúsinu og kann ég ekki tölu á þeim, en í „Islenzkir samtímamenn” sem miða við árið 1963 eru talin upp 8 leikrit. Auk þess þýddi hann bók- ina Kristín Svíadrottning, bók Ivring Stone: Lífsþorsti í tveimur bindum og fjölda annarra bóka, ljóða og sagna, sem ég kann ekki að greina frá. Yfirleitt má segja, að Sigurður Grímsson hafi verið meðal afkastamestu og vandvirk- ustu rithöfunda okkar og þarf þá ekki að miða við, að flest ritverk hans eru unnin í fristundavinnu. Mér er vel ljóst, að þessi orð eru harla ófullkomin til þess að kveðja minn glaðværa og góða vin Sigurð Grimsson, sem var bæði drengur góður og merkur maður, en við það verður að sitja. Eg og kona mín vottum ekkju hans, kjördóttur og öðrum að- standendum innilega samúð i sorg þeirra út af fráfalli hans og biðjum honum sjálfum góðrar ferðar og indællar heimkomu. Lárus Jóhannesson. Nú er Sigurður vinur minn Grímsson látinn. Það er erfitt að átta sig á því að þessi dásamlegi nágra.ini með hlýja brosið og faðminn breiða sé farinn og komi aldrei aftur. Ég sá hann næstum daglega allt mitt líf, og margt kemur í huga manns þegar litið er til baka. Til dæmis þegar hann kenndi okkur Ásu að þéra, og ég æfði mig í marga daga. Og hvað hann hló dátt, þegar ég heilsaði næst, kom- ið þér sælir, Þiguðu Gðímþon, — ég hætti nefnilega að vanda mig, þegar kom að þvi, sem ég kunni fyrir. — Ég minnist þess líka þeg- ar hann tók ofan fyrir mér á götu í fyrsta skipti, ég roðnaði af monti og fannst ég verða fullorðin á augabragði. Sambandið milli heimilannavar náið og með afbrigðum gott. Aldrei sáumst við svo að ekki væri veifað og brosað, og rifs- berjarunnarnir milli garðanna bera þess merki, aðþrír ættliðir hafi skotist á milli öðru hverju á góðviðrisdögum til þess að drekka saman kaffisopa og rabba saman í bliðunni. Þá fann maður ekki mikið fyrir áratuga aldursmun. Dætur mínar voru heldur ekki ýkja hávaxnar þegar þær fóru að laumast yfir til að spjalla við Sig- urð og Láru, og alltaf var þeim vel tekið, að minnsta kosti eru ferð- irnar orðnar margar. Okkur á Snorrabraut 79 þótti innilega vænt um þennan mann, og víst er að við eigum eftir að sakna hans mikið. Jóhanna Arnadóttir. „Upp hef ég augu mfn, alvaldi Guð, til þfn. Náð þinni er Ijúft að lýsa, lofa þitt nafn og prfsa. Allt er að þakka þúr það gott, sem hljótum vér um allar aldaraðir, eilífi Ijóssins faðir.“ Við þökkum Guði fyrir allar góðar gjafir hans, við þökkum honum fyrir samferðamanninn Sigurð Grimsson, hann mikla heiðursmann, sem nú er farinn burt frá okkur til æðri heima, hefur lokið hlutverki sínu hér á jörðu. Þar er mikið skarð fyrir skildi, en dauðinn hlífir engum, og tími Sigurðar var kominn, það vissum við, sem þekktum hann best. Við, sem vorum svo lánsöm að fá að njóta vináttu hans og þeirr- ar gleði, sem setti svo mjög svip á allt umhverfi hans, fáum þrátt fyrir brottför hans hér úr heimi geymt með okkur mynd hans og dýrmætar minningar. Því að Sig- urður Grimsson var gleðinnar maður, og allir, sem voru i návist hans, hlutu að njóta hennar með honum. Slíkir menn sem hann eru okk- ur ómetanlega dýrmætir, þvi að svo sannarlega þurfum við á glað- værðinni að halda í öllu okkar lifi, og hann var einn af þeim, sem kunni að njóta augnabliksins og láta aðra njóta með sér. Ég kom fyrst í hús hans fyrir 37 árum. og siðan höfum við átt vin- áttu hvor annars, og þar hallaðist ekki á. Fáa menn hef ég þekkt um æv- ina, sem mér hefur þótt jafn gam- an að ræða við um menn og mál- efni, og það eins hvort við vorum á sömu skoðun eða ekki. Sigurður var fjölhæfur maður, hann var skáld og rithöfundur, og sérlega vandvirkur á allt, sem hann lét frá sér fara. Hann ritaði fágað ís- lenskt mál, enda elskaði hann feg- urðina í lífinu og hafði næmt auga fyrir henni. Hann unni tón- list, fögrum bókmenntum og leik- list, en meðalmennskan í þeim efnum var honum fjarri skapi. Sigurður var hamingjubarn. Hann talaði oft um það, hversu „heppinn” hann hefði verió i líf- inu, og var þakklátur fyrir það. Hann hafði lengst af góða heilsu, átti fallegt heimili, góða vini, elskulega fósturdóttur og tengdason, sem hann mat mikils, og hann hafði mikið yndi af litlu börnunum þeirra. „En mesta gæfa mín í lifinu var, þegar ég eignaðist Láru konuna mína,“ sagði hann oftar en einu sinni. Þau bjuggu saman í 42 ár og þess- ar ljóðlínur til hennar tala sinu máli: 1/11 1972 Til Láru minnar Sérhver stund, sem á ég einn meó þér, er indælt blóm i minninganna krans. Þú varst mér hlý, en hlýjust eru mér, er halla tekur degi gamals manns. 19/11 1974 Til Láru minnar. Konan min góða, bljúgur þakka ég þér það sem þú ert og verið hefur mér. Ekki síst nú, er svifur hausti að og svalir vindar næða um strá og blað. Sigurður orti mikið, sérstaklega á yngri árum, og við sum þeirra ljóða samdi hann lög, sem hann söng fyrir nánustu vini sína. Þau hafa ekki verið gefin út, svo að fáir kunna. Ég ætla mér ekki að gera hér lifsstarfi Sigurðar nein skil, veit ég, að þaó munu aðrir gera. Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.