Morgunblaðið - 20.02.1975, Side 14

Morgunblaðið - 20.02.1975, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBROAR 1975 Það er dansað í „Kerfinu' Það er spilað i „Kerfinu" . NEMENDAMÓT Verzlunarskólans var haldið í gærkvöldi. Meðal skemmtiatriða voru leikritið „Kerfið" eftir Peter Oheyevich, jassballett um verðbólguna og flutningur nemendamótskórsins á nokkrum lögum eftir Brian Wil- son. „Kerfið" er nýlegt verk og höf- undur þess er landflótta Pólverji. Þýðandi verksins og leikstjóri er Hrafn Gunnlaugsson, en hann þekkir höfundinn og fékk leyfi hjá honum til að staðfæra verkið í þýðingu yfir á íslenzku. Tildrög þess, að nemendur V.í. taka „Kerfið" til sýninga, voru þau, að leitað var til Hrafns um að taka að sér leikstjórn fyrir nemendamótið og hann jafnframt beðinn að koma með tillögur að verki til flutnings. Minnugur þátttöku sinnar í Herra- nótt M.R á skólaárum sínum þar og þeirra góðu undirtekta sem fár- anleikverk eins og Bubbi kóngur höfðu hlotið hjá nemendum þar, stakk Hrafn upp á Kerfinu, ekki sízt vegna þess, að verkið byði lagslegt öryggi", að farið sé að svipta þegnana frelsinu í nafni verndarinnar?" Hrafn bendir á, að þetta verk sé þess eðlis, að sáralitlar líkur séu á verki í leiklistarlífinu. Þeir geta kynnt á sinn hátt það sérstæða í leikrituninni á hverjum tfma." Búningateikningar fyrir „Kerf- ið" gerði danska konan Else „Kerfið sýntár nemendamóti V.í. Það er sungið i „Kerfinu" upp A endalausa möguleika í túlk- un allri. Verkið fjallar um viðureign heimilisföðurs nokkurs við „kerf- ið". eftir að óargadýr hefur setzt að i baðherberginu heima hjá hon- um. Verkið er afar myndrænt og óhugsandi að flytja það i hljóð- varpi. „Sá heimur, sem opnast áhorfandanum, er afar framandi i fyrstu, en smám saman viður- kennir áhorfandinn hann," segir Hrafn. „Það er alltaf verið að tala um að leiklistin eigi að vera raun sæ. sýna raunveruleikann, en ég tel, að leiklistin eigí ekki að lýsa raunveruleikanum beint, heldur að gegnumlýsa hann. sýna hvað i honum býr. Þess vegna verður leikhúsið að búa til sinn eigin veruleika og hafna lögmálum hversdagslífsins. Annars gætu menn bara setzt við glugga og horft á raunveruleikann úti fyrir og sleppt öllum leikhúsferðum." Meginínntak „Kerfisins" er að sögn Hrafns spurningin um „of- verndun" þjóðfélagsþegnanna — „hvenær þýðir hugtakið „þjóðfé- þvi, að leikhúsin tækju það til sýningar. „Þau verða að hugsa um reksturinn — og verkiðerauk þess of stutt i sýningu, um 50 minútur. Áhorfendur vilja fá heila kvöldstund fyrir peningana sína. Þess vegna tel ég, að skólarnir geti gegnt þýðingarmiklu hlut- Duch, sem teiknaði búningana i Kaupmanninn i Feneyjum i Þjóð- leikhúsinu. „Hún er geysilega fær listamaður," segir Hrafn, „og það var mikið happ fyrir okkur að fá hana til samstarfs." Else hefur einnig gert búninga fyrir jassball- ettinn, sem nokkrar stúlkur sýna á nemendamótinu, undir stjórn Iben Sonne. Ballettinn fjallar um verð- bólguna og er skreyttur verð- bólgutáknum. eins og peningum, vixlum og fleiru. Eitt vinsælasta atriði hvers nemendamóts er söngur nem- endamótskórsins og að þessu sinni flytur kórinn lög eftir banda riska tónskáldið Brian Wilson, undir stjórn Magnúsar Kjartans- sonar. Brian hefur verið maðurinn á bak við velgengni bandarisku hljómsveitarinnar Beach Boys og var raunar liðsmaður hennar fyrstu árin. Hann hefur samið ýmsar af perlum popptónlistarinn- ar og eru verk hans afar vel fallin til kórsöngs, þvi að hann hefur jafnan útsett þau fyrir mikla rödd- un, sem er sérgrein Beach Boys. Sem fyrrsagði var nemendamót ið sjálft í gærkvöldi. en fyrirhugað er að efna til tveggja sýninga fyrir almenning á skemmtiatriðum mótsins og verða þær i Austurbæj- arbíói á föstudagskvöld og sunnu- dag. —sh. Nemendamótskórinn syngur lög Beacn Boys undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar. (Ljosmyndir: E B.B.) Gróska í leiklistinni í framhaldsskólunum LEIKHÚSIN tvö i Reykjavik hafa nú fengið þrjá nýja keppinauta — en þó aðeins um sinn. Eru það nemendur þriggja framhaldsskóla, sem hafa fært upp leiksýningar, bæði fyrir skólasystkini sin og al menning. Nemendur Menntaskól- ans við Hamrahlið urðu fyrstir til að ýta úr vör á þessari skólaleikja- vertíð með sýningu á hinu kunna verki Brendans Behans, „Gisl", en næstir uðru nemendur Verzlun- arskólans með pólskt ádeiluverk, „Kerfið", og innan tíðar hefur herranótt Menntaskólans i Reykjavik sýningar á tveimur ein- þáttungum eftir Bertold Brecht. Auðvitað standa stóru leikhúsin þessar atlögur af sér, en ekki er að efa að margir munu fagna þvi að fá þessa tilbreytingu i leikhúslifið i höfuðborginni. Leikhúsunum hef- ur nokkuð verið legið á hálsi fyrir að hafa „kassann" of mikið i huga við verkefnaval, m.a. með tilliti til „öruggra" gamanleikja eins og „Flóá skinni" og „Hvaðvarstu að gera i nótt". En á timum, þegar krónan skreppur saman með degi hverjum, er skiljanlegt, að leik húsin treysti sér ekki til að taka mikla áhættu i verkefnavali. f samtalinu við Hrafn Gunn- laugsson um sýningu verzlunar- skólanemenda á „Kerfinu" bendir hann m.a. á það hlutverk, sem skólarnir geti gegnt í leiklistarlifi hér á landi: „Þeir geta kynnt á sinn hátt það sérstæða í leikritun- inni á hverjum tíma." Ekki er hægt að segja, að Gisl sé sýnishorn þess nýjasta i leikrit- uninni, en hins vegar má hiklaust segja það um „Kerfið". Og ein- þáttungar Brechts hafa ekki oft verið á boðstólum fyrir islenzka áhorfendur. Slagsiðan óskar nemendum framhaldsskólanna velgengni á sviðinu og vonar, að undirtektir áhorfenda verði góðar og hvatning til frekari dáða. — sh. Nemendur M.H, sýna„Gísl” NEMENDUR Menntaskólans við Hamrahlið hafa nýverið tekið til sýningar leikritið Gisl eftir Brend- an Behan, en það var fyrst sýnt Herranótt sýnir tvo einþáttunga Brechts HERRANÓTT nemenda Mennta- skólans i Reykjavik sýnir að þessu sinni tvo einþáttunga eftir Bertold Brecht. Nefnist annar „Smáborg- arabrúðkaup", en hinn „Spæjar- inn". Auk þess flytja tveir leikend- ur Ijóð eftir Brecht. Þorsteinn Þor- steinsson þýddi verkin, en Kjartan Ragnarsson er leikstjóri. Ólöf Einarsdóttir er formaður Herranætur — eða ætti heldur að segja forstöðukona? — og sagði i - . t___c*i________________ „X stefnt væri að þvi að frumsýna einþáttungana i byrjun næstu viku. Yrðu tvær sýningar fyrir nemendur MR, en síðan væri ætl- unin að halda tvær aukasýningar fyrir almenning. Sýningarnar verða i Austurbæjarbiói. Smáborgarabrúðkap tekur um 50 minútur i sýningu og er mjög létt ádeila. gamanleikur, að sögn Ólafar, en Spæjarinn tekur hins vegar um 20 minútur i sýningu og er hörð ádeila á nasismann, gerist fyrir rúmum áratug i Þjóðleikhús- inu. Leikritið var frumsýnt á mánudagskvöldið, en ætlunin er að sýningar verði a.m.k. fjórar. Einnig munu leikendurnir fara með stutta kynningardagskrá um verkið i ýmsa skóla i borginni. Leikstjóri er Stefán Baldursson, en þýðinguna gerði Jónas Árna- son. Leikendur eru átján og hljóð- færaleikarar fjórir, þvi að mikil tónlist er i leikritinu. Voru nokkur laganna úr því raunar meðal vin- sælustu dægurlaga á íslandi um skeið eftir að Þjóðleikhúsið sýndi verkið um árið. Leikritið er kunnasta verk frans Brendans Behans og það fjallar um málefni, sem enn er efst á baugi þar i landi: Átökin um stjórnarfarsskipan. hún i samtali við Slagsiðuna, að i Þýzkalandi árið 1935.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.