Morgunblaðið - 20.02.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1975
FH og Grótta
sigruðu í gær
TVEIR leikir fóru fram I gær-
kvöldi í fyrstu deild tslandsmóts-
ins f handbolta. Úrslit urðu
þannig aó Grótta sigraói IR með
19 mörkum gegn 16 og var staðan
í hálfleik 8—10 fyrir Gróttu. Leik
FH og Hauka lauk með sigri FH
sem skoraði 23 mörk á móti 17.
Hjá FH og Haukum var staðan í
hálfleik 17—12 fyrir FH.
Tvö innbrot
TVÖ innbrot voru tilkynnt til
rannsóknarlögreglunnar í gær-
morgun. I Verðandi við Tryggva-
götu'hafði verið stolið 15 lengjum
af vindlingum og skiptimynt. Þá
var brotizt inn í súturnarverk-
smiðju Sláturfélagsins við
Grensásveg sömu nótt og stolið
þaðan skiptimynt og reiknivél
ofan af búðarkassa.
— Landnáma
Framhald af hls. 32
mjög fágæt bók, en í nokkrum
tilfellum hefur hún verið bund-
in inn með öðrum veraldlegum
bókum frá Skálholtsprent-
smiðju nema Olafs sögu
Tryggvasonar, sem er tvö bindi
í stóru broti.
— Elztu hús
Framhald af bls. 5
vetrum þegar hækka tekur sól
mikill skíðahugur í mönnum og
ekki dregur það úr að Islandsmót-
ið verður haldið hér um páskana.
ísfirzkir skíðamenn æfa af kappi
og hafa fengið hingað þjálfara frá
Austurríki í vetur.
Þann 25. janúar var sólardagur
hjá okkur ísfirðingum með til-
heyrandi pönnukökum og rjóma.
Sama dag hélt Sunnukórinn ár-
lega skemmtun sina og stjórnaði
þar i fyrsta skipti nýr söngstjóri
kórsins Hjálmar Helgi Ragnars-
son. Þetta var í 31. skipti sem
Sunnukórsfélagar fagna sólar-
komunni, en kórinn var stofnaður
árið 1934 og hefur starfað óslitið
síðan. Fyrsti stjórnandi kórsins
LEIKNIR, Xdcildar liðið í hand-
knattleik, sem sló KR-inga út í
fyrstu umferð keppninnar hafði
heppnina með sér er dregið var í
átta-liða úrslitin. Mun liðið keppa
við Breiðablik, liðið, sem er við
botninn í 2. deildar keppninni,
þannig að Leiknir ætti að eiga
góða möguleika á að komast í
f jögurra liða úrslitin.
Einum leik er enn ólokið í
fyrstb umferðinni: KA á eftir að
keppa við Þrótt, en sá leikur fer
var Jónas Tómasson tónskáld á
ísafirði en síðan var hann undir
stjórn Ragnars H. Ragnars sem
lét af starfi sem söngstjóri á
síðastliðnu ári, en Hjálmar sem
nú hefur tekið við stjórn kórsins
er sonur Ragnars.
— Sigurður.
— Sovét
Framhald af bls. 1
rutt á braut með jarðýtum og öðr-
um stórvirkum vélum, en viku
síðar var svo sýningin leyfð.
Meðal þeirra sem eiga verk á
þessari innisýningu nú eru Oskar
Rabin, Lidia Masterkova, Otari
Kandaurov og Anatoli Sverev.
Síðast var haldin sýning á
sovézkri nútimalist í Moskvu árið
1962, þegar Nikita Krúseff var við
völd. Hann lét þá hafa eftir sér
um sýninguna, að engu væri lík-
ara en myndirnar væru málaðar
með asnahölum.
Sýningin nú hefur ekki verið
auglýst í fjölmiðlum, en engu að
síður var aðsókn mikil að henni
eftir að hún var opnuð eins og 1
upphafi er frá greint.
— Loðnubátarnir
Framhald af bls. 32
bátur og með fullar lestar af
loðnu lá hann nokkuð þungt í að
sögn Ólafs, enda var lunningin
svo til á kafi. Ólafur sagði að þeir
yrðu að halda kyrru fyrir í Eyjum
í sólarhring, því sjór hefði komist
í mótor, sem knýr spildælu og
væri verið að gera við tækið, en
síðan yrði haldið hið snarasta á
miðin.
í Djúpavogi náðum við sam-
bandi við Pétur Sæmundsson
skipstjóra á Óla Tóftum. „Við
lentum nú ekki í neinum sérleg-
um vandræðum," sagði hann,
„þetta hefur verið snarvitlaust
veður, ógeðslegt í einu orði sagt. I
nótt fengu bátarnir á sig vitlaust
veður og þegar það er sótt eins
hart og raun ber vitni má auð-
vitað búast við einhverjum vand-
ræðum.
Loðnu? Við erum að landa
hérna 80 tonnum og hér er einnig
annar bátur, Sæunn, en hún mun
landa á morgun.“
fram á Akureyri. Er enn ekki
ákveðið hvenær hann verður, en
erfiðleikar með húsnæði þar
nyrðra virðast vera svipaðir og á
höfuðborgarsvæðinu.
Liðið sem sigrar í þeim leik á að
keppa við Hauka i Hafnarfirði í
átta-liða úrslitunum, en síðan
drógust saman IR og Fram og
Valur og FH, þannig að búast má
við miklum spennuleikjum þegar
i þessari umferð bikarkeppn-
innar.
— Kýpur
Framhald af bls. 1
að vera kominn til Bandaríkjanna
til að fylgjast með þeim. Búizt er
við því að Glafkos Klerides leið-
togi Kýpur-Grikkja leggi fram
formlega kæru vegna þeirrar
ákvörðunar Kýpur-Tyrkja að lýsa
hluta eyjarinnar sjálfstætt ríki.
Fundur Öryggisráðsins um
Kýpurmálið verður fyrsti fundur
þess á árinu. Er gert ráð fyrir
mjög harðorðum yfirlýsingum af
hálfu Kleridesar vegna ákvörðun-
ar Tyrkja á Kýpur.
— 8500 manns
Framhald af bls. 3
um áramótin og um miðjan
janúar voru komin tilboð f þá,
sem reyndust vera 10% undir
kostnaðaráætlun. Samt sem áður
telur Hitaveitan sér ekki fært að
leggja út í framkvæmdir á meðan
mál hennar liggja ekki klár fyrir.
í þessum fyrirhuguðu fram-
kvæmdum er um að ræða Mið-
bæjarhverfið 1 Hafnarfirði, Öld-
urnar og Kinnarnar, en á þessu
svæði búa um 3000 manns. Það
eru vissir hlutir i þessu sambandi,
sem við þurfum sjálfir að gera og
það er búið að koma mestöllu af
þvi í verksamninga og mun þvi
ekki standa á því. Við biðum því
spenntir eftir að úr rætist varð-
andi þessar mikilvægu fram-
kvæmdir."
— Ný stífla
Framhald af bls. 3
arinnar. Með hliðsjón af þessu
kemur manni undarlega fyrir
sjónir, að svona hugmyndir skuli
vera settar fram og það í fjölmiðl-
um þjóðarinnar til þess að koma
af stað nýjum viðsjám og óánægju
í deilumáli, sém hlotið hefur end-
anlega afgreiðslu. Eg vil ekki
ætla, að hér sé að ferðinni hið
sama og gerðist í vatnsvélamáli
Laxár 3, þegar vél Gljúfurvers-
virkjunar, sem svo var nefnd og
smíðuð var fyrir 57 metra stíflu,
varð að setja niður við Laxá hvað
sem það kostaði þrátt fyrir mót-
mæli landeigenda og hagkvæmis-
útreikninga sem sýndu að hæfileg
vél er þjónaði óbreyttu falli gæti
aukið afköst virkjunarinnar veru-
lega. Þær grunsemdir munu þó
vera til meðal landeigenda, að
með þessari níu metra stífluhug-
mynd búi annað og meira bakvið,
þ.e.a.s. að þessi stífla eigi að verða
áfangi að öðru meiru siðar. Segj-
um að þetta yrði leyft eða um það
samið, sem aldrei verður, og
reynslan leiddi i ljós í samræmi
við álit framkvæmdastjóra Laxár-
virkjunar 1969, að framkvæmdin
skapaði aukið öryggisleysi og
aukna áhættu f rekstri virkjunar-
innar í stað aukins öryggis I raf-
orkumálum svæðisins. Er þá ekki
rökrétt að álykta, að formaður
Laxárvirkjunar komi á ný i fjöl-
miðla til þess að kref jast hækkun-
ar á sinni níu metra stíflu, t.d. i 23
metra og síðar 57 metra. Grun-
semdir af þessu tagi geta átt rétt á
sér ef menn í ábyrgðarstöðum
reyna það i alvöru, að enn sé
lagaheimild fyrir hendi til áfram-
haldandi virkjunarframkvæmda í
Laxá. þrátt fyrir gerða samninga
og nýsett náttúruverndarlög og
láta jafnvel að því liggja, að samn-
ingar við opinbera aðila og ríkis-
stjórn séu marklaus pappírsgögn.
Og þrátt fyrir niðurstöður
vísindalegra rannsókna, að ekki
megi gera stíflu 1 Laxá. Satt að
segja hélt ég, að allir væri búnir
að fá nóg af ritdeilum og margra
ára málaferlum í sambandi við
þetta mál, þótt ekki væri verið að
gera leik til þess að hrinda af stað
nýrri óánægjuöldu, allra síst datt
mér það 1 hug um núverandi for-
mann Laxárvirkjunarstjórnar, að
hann skyldi vilja eiga hlut að því.
Bætt samvinna milli Laxáreig-
enda og landeigenda væri heilla-
drýgri og meira I samræmi við
sáttasamninginn um lausn Laxár-
deilu, þar sem hver aðili um sig
gæti unað við sitt og sinn hlut á
grundvelli gerðra samninga, sem
báðir aðilar hafa gengist undir að
virða.
2. Varðandi verðútreikninga
Vals Arnþórssonar á olíu til raf-
orkuvinnslu hygg ég, að slegin
séu flest ef ekki öll fyrri met í
frjálslegri meðferð talna harð-
svíruðustu stjórnmálamanna.
Þessar tölur sem formaðurinn set-
ur fram eiga að sýna þjóðhagslega
hagkvæmni níu metra stíflu í
Laxá, er gæti gefið 5 megawatta
grunnorku og nýtingin á ekki að
vera minni en 100%. Verðið sem
fundið er út er hvorki meira né
minna en 9 krónur á kílówatt-
stund, eða um sex sinnum hærra
en núverandi heildsöluverð Lax-
árvirkjunar er nú og nálægt 12
sinnum hærra en ráðgert er að
selja raforku til stóriðju frá Sig-
ölduvirkjun frá áætluðum
seljanda raforku til Norðurlands
á þessu eða næsta ári. Valur gefur
I skyn, að viðbótarorkan frá Laxá
komist í gagnið strax og nýtist að
fullu yfir sumar jafnt sem vetur.
Auðvitað er þetta fráleitt. Bæði
er, að núverandi orkuframleiðsla
Laxárvirkjunar fullnægir að iang-
mestu leyti þörfum svæðisins á
sumrin án keyrslu dieselvéla og
að varanleg stifla í Laxá yrði vart
tilbúin fyrr en rafmagnið frá
Sigöldu yrði komið til Norður-
lands. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem ég hef aflað mér um
olíukostnað Laxárvirkjunar
reyndist hann um 10 milljónir
árið 1973 og u.þ.b. 23 milljónir
árið 1974. Ég held að hvorki
Valur né ég geti áætlað olíukostn-
aðinn á þessu ári. Þó finnst mér
ekki óraunsæ bjartsýni að hann
verði ekki stórlega miklu meiri en
á sfðasta ári með tilkomu nýju
svartoliustöðvarinnar, sem bráð-
lega verður tekin 1 notkun á
Akureyri, en svartolía er nærfellt
þriðjungi ódýrari en venjuleg
dieselolia og ef dreifikerfið á Lax-
ársvæðinu yrði styrkt og gert
öruggara. Samt gerir formaður
Laxárvirkjunar ráð fyrir 170
milljón króna ollukostnaði á
þessu ári, 260 milljón króna
kostnaði 1976 og hugsanlega 360
milljón króna kostnaði 1977, en
auðvitað á kostnaðurinn við stífl-
una að vera óbreyttur alltaf sömu
100 milljónirnar þótt verðlag hafi
margfaldast siðan þessi 100
milljón króna kostnaðarút-
reikningur var fundinn. Og ekki
skal gleymda því, að framkvæmd-
skuli vera varanleg við stífluna.
Eg held að það hefði verið rétt-
ara fyrir formann Laxárvirkjunar
að fara varlegar með tölur i sam-
bandi við Laxármál og nær af
fenginni reynslu að byrja á því
fyrst að semja við landeigendur
um óuppgerð mál áður en hann
fer að biðla til Alþingis og ríkis-
stjórnar um nýtt Laxárævintýri
sem hann virðist vera reiðubúinn
að steypa sér út i þrátt fyrir gerða
samninga.“
— Ferðafélagið
Framhald af bls. 2
starf hefði að langmestu leyti ver-
ið leyst af hendi af sjálfboðalið-
um. „Fyrir þetta starf nýtur
Ferðafélagið líka mikillar al-
mennrar velvildar bæði hjá
stjórnvöldum og almenningi, og
t.d. erum við skattfrjáls eins og
önnur félög sem starfa á svipuð-
um grundvelli," sagði Sigurður.
„En viðhorfin hljóta að breytast
um leið og við förum að reka
ferðaskrifstofuviðskipti í nokkr-
um teljandi mæli og þá er naum-
ast hægt að ætlast til að það fáist
sjálfboðaliðar til að þjóta með er-
lenda ferðahópa þvert og endi-
langt um landið, likt og ferða-
skrifstofurnar gera á venjulegum
viðskiptagrundvelli. Þetta tvennt
fer ekki saman þegar til lengdar
lætur — við getum ekki rekið
þetta sem sjálfboðaliðsstarf á
áhuga og skilningi almennings ef
við jafnframt rekum harða ferða-
skrifstofustarfsemi i samkeppni
við aðila sem raunverulega starfa
á öðrum grundvelli."
Ágreiningurinn hefur aðallega
staðið um franska ferðamanna-
hópa frá þarlendu ferðafélagi eða
ferðaklúbbi, sem Ferðafélagið
hefur tekið að sér að skipuleggja
þriggja vikna ferðir fyrir yfir
sumarmánuðina. Hefur verið far-
ið með þá á Snæfellsnes og á Kjöl,
svo og lítillega í Landmannalaug-
ar. Að sögn Einars Guðjohnsen
hafa þessir frönsku hópar verið
algjörlega út af fyrir sig og með
eigin tjöld og fæðu, svo að Ferða-
félagið skipuleggur aðeins ferð-
irnar fyrir þá og leggur þeim til
fararstjóra. Ferðafélagið gæti þó
af þeim sökum haft þessa hópa á
þeim svæðum á landinu sem þvi
sjálfu hentaði bezt hverju sinni.
Ferðafélagið hefur að sögn
Einars verið með þessa frönsku
hópa á sínu snærum allt frá 1970.
„Þetta hefur gefizt mjög vel og ör
aukning orðið í þessari starf-
semi,“ sagði Einar. „Við vorum
þannig á sl. ári með 11 slíka hópa
og ég vil taka það fram, að þetta
hefur ekki þýtt aukið álag á mig
persónulega. Þetta þýðir miklu
meiri vinnu fyrir mig en það er
auðvitað mitt mál hvort ég legg af
einskærum áhuga fram meiri
störf en ég er beinlinis skyldugur
til. Þessi fyrirgreiðsla Ferða-
félagsins hefur aftur á móti gefið
af sér mjög góðar tekjur fyrir
Ferðafélagið og á sl. ári námu
tekjurnar af þessum 11 hópum
um 1,4 milljónum kr. og á næsta
ári eru horfur á að ferðunum geti
fjölgað upp í 18, sem mundi þýða
um 2,5 milljónir I hreinar tekjur
fyrir félagið. Ég held því þannig
fram, að við höfum hreinlega ekki
efni á að visa þessum ferðum frá
okkur. Þær lenda þá aðeins
annarstaðar, því að þessir hópar
hætta ekki að koma til landsins
meðan Loftleiðir beinlínis kynda
undir þessar ferðir af öllum kröft-
um með auglýsingum. Um sam-
keppni er þó varla að ræða, því að
hver ætti að taka við þeim. Ekki
Ulfar Jacobsen — hann hefur
sjálfur sagt mér að þetta sé ekki
hópur sem myndi koma til hans
auk þess sem hann hafi engan
möguleika á að annast hann.
Frönsku hóparnir gætu e.t.v. lent
hjá Farfuglum en það er heldur
ekkert ósennilegt að Frakkarnir
sendu eigin umboðsmann hingað
til að annast þetta sem ekkert
mælir á móti, og Islendingar
misstu töluverðar gjaldeyristekj-
ur fyrir bragðið. Nú er því haldið
fram, að ég hafi gengið of langt í
þessum efnum án samráðs við
stjórnina. Eg held þvi aftur á móti
fram, að stjórnin hafi fylgzt með
þessari þróun nákvæmlega, enda
erum við búnir að stefna að þessu
markvisst í mörg ár."
Sigurður Jóhannsson kvað ekki
vaka fyrir stjórn félagsins að
stöðva þessar ferðir útlendinga
heldur vildi hún hafa þennan þátt
starfsemi félagsins innan tiltölu-
lega þröngra marka. „Það hafa
alltaf annað slagið komið smá-
hópar útlendinga og ekkert hefur
verið við því sagt þótt þeir keyptu
sig inn í hinar auglýstu ferðir
félagsins, eins og alltaf hefur
verið eitthvað um, sagði Sigurður.
„En um leið og við erum farnir að
auglýsa og gera tilboð í hópferðir
útlendinga til Islands, erum við
komnir inn á annan starfsgrund-
völl og erum þá að þrengja okkar
eigin fólki að verulegu marki út
úr húsunum. Það sem kom þessu
máli i brennidepil nú var að fram-
kvæmdastjórinn gerði tilboð i
svona ferðir án heimildar
stjórnar félagsins en það fól í sér
50% aukningu ferða frá sl. ári.
Við töldum þá fyllilega tímabært
að fá úr þvi skorið hver skyldi
verða stefna og markmið félags-
ins í framtíðinni."
Einar Guðjohnsen var spurður
álits á sjónarmiðum meirihluta
núverandi stjórnar og svaraði
hann því til að nú væru einatt
farnar að heyrast raddir úr ýms-
um áttum á þá leið að Island ætti
að vera fyrir Islendinga eina og
við mættum ekki opna landið um
of fyrir útlendingum til að eiga
ekki á hættu að verða önnur Mall-
orka. „Þessi sjónarmið eiga vist
að vera á þjóðlegum grundvelli en
ég held aftur á móti að þetta sé
algjör misskilningur og ástæðu-
laus ótti. Lif og tilvera okkar
byggist þvert á móti á því að við
eigum vinsamleg samskipti við
aðrar þjóðir — og við verðum að
kynna land og þjóð til að geta selt
vörur okkar erlendis."
Sigurður Jóhannsson, formaður
Ferðafélagsins, kvað hins vegar
grundvallarspurninguna í þessu
máli vera hliðstæða þeirri spurn-
ingu hvort Slysavarnafélag Is-
lands gæti rekið t.d. björgun
skipa á viðskiptalegum grund-
velli, líkt og Björgun hf. gerir —
með sjálfboðaliðum sínum.
Skíðafólk
Munið
þorrablótið
í R.R. félagsheimilinu við Elliaár föstudags-
kvöld. Tilkynnið þátttöku í síma 81181.
Allsherjar
atkvæðagreiðsla
um kosningar stjórnar, varastjórnar, trúnaðar-
ráðs og endurskoðenda Starfsstúlknafélagsins
Sóknar fer fram dagana 22. og 23. febrúar
1975.
Kosning hefst kl. 10 og lýkur kl. 20 báða
dagana.
Kosið verður á skrifstofu Iðju, félags verk-
smiðjufólks, Skólavörðustíg 16.
Kjörstjórn Sóknar.
Leiknir fékk UBK og
Valur leikur við FH