Morgunblaðið - 20.02.1975, Page 21

Morgunblaðið - 20.02.1975, Page 21
Konur á alþingi og fóstur- eyðingar VEGNA þess að fimm nafngreind- ir menn og konur (Björg Einars- dóttir o.fl.) hafa síðustu daga sent frá sér stuttar hugleiðingar, sem birzt hafa í flestum dagblöðum, varðandi sjónvarpsþáttinn Þing- vikuna hinn 1. febr. s.l., vilja und- irritaðir taka eftirfarandi fram: I Þingvikunni er að jafnaði skýrt frá öllum nýframkomnum þingsályktunartillögum og laga- frumvörpum á alþingi með frá- sögnum og viðtölum við flytjendur þeirra séu þeir aðalþingmenn. Ekki mun unnt að segja, að við höfum sniðgengið þær fáu konur, er á þingi sitja, í viðtölunum, því að þær munu allar einhvern tíma hafa komið fram í þættinum. I vetur hefur vegna bættrar upp- tökutækni reynzt unnt að birta f þættinum þó nokkur kvikmynda- sýnishorn frá umræðum í þingsöl- urtí. Tilviljanir ráða oft helzt til miklu um, hvaða mál eru til um- ræðu, þegar komið er í Alþingis- húsið með upptökubúnað og nauð- synlegan liðskost til upptökunnar. Við umræðuna um fóstureyðingar- frumvarpið 1. febr. þótti rétt að taka upp kafla úr framsöguræðu Matthíasar Bjarnasonar heilbrigð- isráðherra, úr því að við vorum þarna staddir með tæknibúnaðinn, og á sama hátt þótti rétt að taka upp pósta úr ræðu Magnúsar Kjartanssonar fyrrverandi heil- brigðisráðherra (það er ekki okk- ar sök að engin kona skuli hafa verið heilbrigðisráðherra), sem vitað var að myndi hafa ýmislegt við frumvarpið að athuga. Ljóst var, að ekki væri unnt eða heppi- legt vegna lengdar þáttarins (Þingvikunnar) í heild að taka upp kafla úr ræðum margra ann- arra ræðumanna, og þegar Sverr- ir Hermannsson tók til májs lét- um við spyrjast fyrir um það hjá viðkomandi þingforseta, hvort fleiri væru á mælendaskrá. Svo var þá ekki, og því var líka tekinn upp kafli úr ræðu Sverris, en þá var kvikmyndafilman, sem fyrir hendi var, alveg á þrotum. Það er ekki okkar sök, að Sigurlaug Bjarnadóttir og Bjarnfríður Leós- dóttir skyldu kveðja sér hljóðs svo seint sem raun ber vitni. I fyrrgreindri blaðagrein er full komlega látið í veðri vaka, að Sig- urlaug og Bjarnfríður hafi tekið til Framhald á bls. 23 K.F.U.M. — A.D. Fundur i kvöld kl. 20.30. Kvöld- vaka. Veitingar. Allir karlmenn vel- komnir. Kvenfélag Hallgrímskirkju heldur árlega samkomu sina fyrir aldrað fólk sunnudaginn 23. febr- úar kl. 3 siðdegis i félagsheimili Hallgrimskirkju. Magnús Jónsson óperusöngvari syngur við undir- leik Ólafs Vignis Albertssonar og Róbert Arnfinnsson leikari les upp. Hátiðarkaffi verður borið fram. Árshátið Farfulgadeildar Reykjavíkur verður haldin að Siðumúla 11, föstudaginn 28. febrúar og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Aðgöngumiðar á skrifstofunni Laufásveg 41, simi 24950, mánudag, miðvikudag og föstu- dag kl. 4-6. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1975 21 Verkamenn óskast nú þegar. Ákvæðisvinna. Steypustöðin h.f.. sími 33603. SLOTTSLISTEN glugga- og dyraþéttingar Þéttum opnanlega glugga úti og svalahurðir með SLOTTSLISTEN innfræstum varanlegum þéttilistum, nær 100% þétting. Ný þjónusta. þér getið komið með lausa opnan- lega glugga og svalahurðir til okkar og við setjum SLOTTSLISTEN á samdægurs, fyrir lægra verð. ATH. SLOTTSLISTEN þéttikerfið er byggt á 14 mismunandi löguðum listum sem við notum til þéttingarvið mismunandi aðstæður. Ólafur Kr. Sigurðsson og Co Tranavog 1. Simar 83484 — 83499. Sölumenn Munið kynningarf^.nd deildarinnar í Leifsbúð á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 21. þ.m. kl. 6—8 eh. Fjölmennið allir á fundinn. Sölumannadeild V.R. Heimdallur. Stjórnmálafræðslan. í kvöld er þar, SJÁLFSTÆÐISSTEFNAN. Leiðbeinandi: Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra. Mætið stundvíslega kl. 20.30. i Miðbæ við Háaleitisbraut. Nýir þátttakendur velkomnir. Upplýsingar i sima 17102. Gunnar Thoroddsen. Heimdallur. AUGLÝSING um styrki Evrópuráðsins á sviði læknisfræði og heil- brigðisþjónustu fyrir árið 1976. Evrópuráðið mun á árinu 1976 veita læknum og öðru starfsfólki í heilbrigðisþjónustu styrki til kynnis- og námsferða í þeim tilgangi að styrk- þegar kynni sér nýja tækni í starfsgrein sinni í löndum innan ráðsins. Styrktartímabilið hefst 1 . janúar 1 976 og lýkur 31. desember 1976. Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu landlæknis og I heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og eru þar veittar nánari upplýsingar um styrk- ina. Umsóknir skulu sendar ráðuneytinu fyrir 15. apríl n.k. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 18. febrúar 1975. Félag járniðnaðarmanna AÐALFUNDUR verður haldinn sunnudaginn 23. febrúar 1975 kl. 1 3.30 í Domus Medica v/Egilsgötu 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Reglugerðir styrktarsjóða 3. Önnur mál Ath: Reikningar félagsins liggja frammi í skrif- stofu félagsins föstud. 21. febr. kl. 16.00 til 18.00 og laugard. 22. febr. kl. 10.00 til 12.00. Mætið vel og stundvislega. Stjórn Félags jániðnaðarmanna. óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf: Blaðburðarfólk: AUSTURBÆR Óðinsgata, Sóleyjargata, Laufás- vegur 2 — 57. Skipholt 54 — 70, Skúlagata. ÚTHVERFI Hluti af Blesugróf, Fossvogsblettir, Selás, Ármúli, Laugarásvegur 1 —37, Skipholt 35 — 55. VESTURBÆR Nýlendugata, Tjarnargata I og II. Upplýsingar í síma 35408. SELTJARNARNES Barðaströnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.