Morgunblaðið - 20.02.1975, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1975
+
Maðurinn minn,
GUNNAR EINARSSON
prentsmiðjustjóri,
lézt I Landakotsspitala að morgni 1 9. febrúar.
Jónína Jónsdóttir.
Eiginmaður minn,
GEIR GUÐLAUGUR JÓNSSON,
vélstjóri, Stórholti 47,
lézt 1 8 febrúar á Landspítalanum
Fyrir hönd vandamanna,
Signý Þ. Óskarsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
ÁGÚST ODDSSON,
netagerðarmeistari,
Framnesveg 21, Reykjavík,
andaðist 1 9. febrúar
ingibjörg Guðmundsdóttir.
+
Eiskuleg eiginkona mín,
ELÍNBORG HALLGRlWISDÓTTIR,
andaðist að morgni 1 9 þ m að Sólvangi i Hafnarfirði
Eirikur Þ. SigurSsson.
Faðir minn, +
JAKOB BENEDIKTSSON
fyrrv. vegaverkstjóri
frá Þorbergsstöðum,
andaðist þriðjudaginn 1 8 febrúar
Sigurður Jakobsson.
+ Útför móður okkar.
RAGNHEIÐAR HJ. SIGURÐSSON.
Flókagötu 5,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 21 febr. kl. 1 3 30
Guðrún Þorvarðsson, Ingibjörg Gfslason,
Grímur Jónsson, Bergljót Jónsdóttir.
+
Útför móður okkar,
MARlU B. EINARSDÓTTUR,
fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 21 febrúar kl. 1 4
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
Kristjana Kristjánsdóttir.
+
Útför eiginkonu minnar og móður
ARNDÍSAR SIGURÐARDÓTTUR,
Norðurbyggð 1 5, Akureyri,
verður gerð frá Víðimýrarkirkju, Skagafirði laugardaginn 22. febrúar kl.
2 e.h
Vigfús Sigurðsson.
Sigurlaug Vigfúsdóttir.
+
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 21 febrúar kl. 3 e.h.
Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti Hallgrímskirkju
njóta þess
Fyrir hönd vandamanna,
Jón Hermanníusson. Baldur Hermanniusson,
Guðmundur Hermanniusson, Áslaug Hermanniusdóttir Burawa,
Hafsteinn Hjaltason og Sigriður Hjaltadóttir.
Minning:
Ólafur Sigurðs-
son yfirvélstjóri
Laugardaginn 8. febrúar s.l. var
jarðsettur frá Neskirkju Ólafur
Sigurðsson, fyrrum yfirvélstjóri,
en hann lézt 2. febrúar.
Ólafur var fæddur 31. okt. 1901
í Flatey á Breiðafirði. Foreldrar
hans voru merkishjónin Guðrún
Magnúsdóttir og Sigurður
Sigurðsson, bóndi þar, en síðar
starfsmaður Áfengisverzlunar
ríkisins. Ólafur ólst upp í Flatey
til 17 ára aldurs, en hélt þá til
Reykjavikur og hóf járnsmíða-
nám í vélsmiðjunni Héðni sam-
hliða námi í Iðnskólanum og lauk
prófi í þeirri iðn árið 1927. Að
loknu járnsmíðanámi hélt Olafur
í Vélstjóraskólann og lauk þaðan
prófi 1929. Á milli bekkja í Vél-
stjóraskólanum var hann á ýms-
um skipum, en árið 1930 gerðist
hann vélstjóri á skipum Skipaút-
gerðar ríkisins og Landhelgis-
gæzlunnar þar sem hann var til
ársins 1948 er hann réðst til Eim-
skipafélags Reykjavíkur sem yfir-
vélstjóri á m/s Kötlu. Á m/s
Kötlu var Ólafur til ársins 1966,
er það skip var selt úr landi. Þá
ræðst Ólafur sem yfirvélstjóri á
síldarflutningaskipið Haförninn
og er þar til ársins 1971. Eftir það
er Ólafur við ýms störf í landi.
Síðasta árið var hann yfirvélstjóri
á togaranum Maí frá Hafnarfirði.
Eins og sjá má á þessu stutta
yfirliti um æviferil Ólafs Sigurðs-
sonar, hefur ævistarf hans verið
viðamikið, þó Ólafur væri að
jafnaði fámáll um það. 1 Flatey
sleit Ólafur barnsskónum og
liggja ábyggilega mörg spor hans
í f jörunni þar, bæði við leik og að
fylgjast meö störfum sjómann-
anna við vinnu sína. Og þar hefur
hann andað að sér sjávarseltunni
og í huga hans hafa greipzt hand-
tök sjómannanna. Ólafur var
stoltur af að vera Breiðfirðingur
og minntist oft á fallegu eyjuna í
Breiðafirði. Fyrir nokkrum árum
hélt hann á fund eyjarinnar með
sonum sínum og dvöldust þeir í
tjaldi í nokkrar vikur. Ólafur
byggði fjölskyldu sinni sumar-
bústað á fögrum stað við Þing-
vallavatn og dvaldist þar löngum
er hann átti frí frá sjónum, og var
það þá hans mesta yndi að kasta
fyrir silung í vatninu.
Þegar Ólafur gerðist vélstjóri á
sjónum má segja að hann hafi
sameinað tvennt sem virtist
renna í blóði hans, sjómanninn og
þúsundþjalasmiðinn. Sjómanns-
blóðið rann i æðum Ólafs, hann
var góður vélstjóri og það ber
öllum saman um það sem til Ólafs
þekktu að hann hafi verið list-
rænn í höndunum, enda bera
smíðagripir hans þess vott. Og
teppin á heimili hans, sem hann
sjálfur óf, bera merki um fagurt
handbragð og listrænan smekk.
Tvennt var það sem Ólafur mat
öðru fremur en það var heimilið
og starfið. Hann var ástríkur
eiginmaður og faðir og störfum
sínum þjónaði hann af alúð og
samviskusemi og fyrir það naut
hann trausts og virðingar. Má í
því sambandi benda á að þrátt
fyrir 73ja ára aldur var hann yfir-
vélstjóri á togaranum Maí, þar
sem stjórnendur útgerðarfyrir-
tækisins sýndu honum mikið
traust. Ólafur var ern þrátt fyrir
aldurinn, og kom því mörgum,
sem hann þekktu, á óvart hið
skyndiiega fráfall hans.
Ólafur var dagfarsprúður mað-
ur í framkomu, en hann gat verið
+
Hugheilar þakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu
minnar og fósturmóður okkar,
INGIGERÐAR ÁGÚSTSDÓTTUR,
Sigurður Ó. Lárusson,
Sigurður Reynir Pétursson,
Bragi Jósepsson.
+
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÚNAR SIGVALDADÓTTUR,
Grænugötu 4, Akureyri.
Ari Jóhannesson, Sverrir Jóhannesson,
Sigurður Jóhannesson, Gunnar H. Jóhannesson,
tengdadætur og sonabörn.
+
Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð við andlát og útför,
MARGRÉTAR ÞORGEIRSDÓTTUR,
frá Djúpadal,
Ennfremur þökkum við læknum og hjúkrunarliði Vífilsstaðaspítala fyrir
góða hjúkrun er hún naut þar.
Fyrir hönd vandamanna, .. . _.
Alexander Sigursteinsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÓLAFS SIGURÐSSONAR,
yfirvélstjóra,
Melabraut 49.
Þuriður Guðmundsdóttir,
Hrafnhitdur Ólafsdóttir,
Sigrún Ólafsdóttir,
Örn Ólafsson,
Sigurður Ólafsson,
Bjarni Ólafsson,
og barnabörn.
Eggert Ólafsson,
Jóhannes Sveinbjörnsson,
Halldóra Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Hjartardóttir,
Sjöfn Ingólfsdóttir,
stífur á meiningunni og' fastur
fyrir.
Ólafur var gæfumaður í hjóna-
bandi. Hann giftist 27. maí 1939
eftirlifandi konu sinni Þuríði
Guðmundsdóttur og eignuðust
þau 6 mannvænleg börn. Þau eru:
Hrafnhildur, flugfreyja, Sigrún
gift Jóhanni Sveinbjörnssyni full-
trúa, Eggert, vélstj., Örn, þjónn,
giftur Halldóru Guðmundsdóttur,
Sigurður, vélstjóri, giftur Ingi-
björgu Hjartardóttur og Bjarni,
járnsmiður, giftur Sjöfn Ingólfs-
dóttur.
Nú er Ólafur Sigurðsson, einn
af sonum Breiðafjarðar, fallinn í
valinn. Drottinn gaf og Drottinn
tók. Megi Drottinn gefa eigin-
konu, börnum og öðrum ástvinum
styrk í sorg sinni.
Ég sendi þeim mína dýpstu
samúð. Blessuð veri minning
Ólafs Sigurðssonar.
Helgi Hallvarðsson.
Afmælis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast f
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línubili.
+
Maðurinn minn,
SIGURÐUR JÓNASSON,
fyrrv. ritsimavarðstjóri,
Stóragerði 1 7,
andaðist að Vífilsstöðum að
morgni 19. þ.m. Fyrir hönd að-
standenda.
Júlía Guðnadóttir.
+
Útför eiginmanns míns,
HELGA KR.
HELGASONAR,
vélstjóra,
Langholtsvegi 75,
verður gerð frá Fossvogskirkju,
laugardaginn 22. þ.m. kl.
10.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Magnea G. Magnúsdóttir.
Útfaraskreytingar
blómouol
Gróðurhúsið v/Sigtún sími 36770