Morgunblaðið - 20.02.1975, Síða 32

Morgunblaðið - 20.02.1975, Síða 32
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1975 % ©m pytfta txmn ap 5{i.ne«íCffíUJH?* 1 . jp I B?£TAf S ZEMi Kct'W. tia * ty*<ttriVt,ftr, *rrf</A. Mr-rLXXXvni. Leki að Skaftafellinu: Frosinn fiskur fyrir 40 milljón krónur um- flotinn sjó í lestinni FRYSTISKIPIÐ Skaftafell kom til Húsavíkur um kl. 21 í gær- kvöldi, en fyrr um daginn hafði orðið vart mikils leka f einni af þremur lestum skipsins, lest 3. Var skipið á leið til Rússlands fullfermt frystum sjávarafurð- um. Dælum skipsins varð fljótlega komið við og hafðist undan að dæla, en skipinu var strax snúið við til Húsavíkur í ágætu veðri. Þegar skipið kom þangað var strax byrjað að losa lest þrjú. Tal- ið var að undirlestin í lest 3 væri full af sjó, en þar eru um 250 tonn af fiski. Verðmæti þess varnings er um 40 millj. kr. I dag verður lestin losuð til fulls og kannað hvað lekanum olli. Vísitala framfærslu- kostnaðar 372 stig Samkvæmt fréttatil- kynningu frá Hagstofu íslands var vísitala framfærslukostn- aðar komin upp í 372 stig þann I. feb. s.l., en þá hafði hún hækkað um 30 stig frá 1. nóv. sl. er hún var 342 stig. Ríkisstjórnin hafði lýst þvi yfir að launajöfnunarbætur myndu hækka ef og þegar vísi- tala framfærslukostnaðar færi yfir 358 stig. Hættulegt skot í um- ferð í HAFNARFIRÐI TÖLUVERT hefur verið um inn- brot f fyrirtæki f Hafnarfirði að undanförnu. Er þetta svo magnað að nálgast faraldur. Eiga innbrot- in sér oftast stað á nóttunni. í fyrrinótt var t.d. brotizt inn í byggingarvörudeild Kaupfélags Hafnfirðinga við Reykjavíkurveg. Þaðan var stolið skiptimynt og nokkrum þúsunda skota í Hilti- naglabyssur. Slík skot geta verið stórhættuleg í meðförum ungl- inga sem ekki kunna með þau að fara, og eru það því eindregin tilmæli rannsóknarlögregiunnar í Hafnarfirði, að hver sá sem verð- ur var við börn eða unglinga með slík skot í fórum sínum hafi strax samband við lögregluna. Ljósmynd Sigurgeir. ! HÖFN MÓÐURSKIPSINS — Það er sjaldan sem ekki er líflegt athafnalíf við Vestmannaeyjahöfn og þessi mynd sýnir einmitt dæmigert ástand þar á þessum tíma þegar bátarnir flykkjast til hafnar með loðnu í bak og fyrir. Fréttir um loðnuveiðarnar eru á bls 2 og 32 og m.a. eru þar frásagnir af bátum sem lentu í vandræðum vegna veðurs út af suðurströndinni. En þeir leituðu vars í höfn „móðurskipsins" Vestmannaeyja. Til umræðu hjá Seðlabanka og viðskiptabönkum: Hækkun vaxta - aukin binding - takmörkun útlánaaukningar SAMKVÆMT upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, eru nú til umræðu hjá bankastjórum Seðlabankans og viðskiptabank- anna mjög róttækar aðgerðir f peningamálum. Aðgerðir þessar eru enn á umræðustigi og hafa engar ákvarðanir verið teknar um Kaupmannahöfn: Landnáma Skálholts- prentsmiðju boðin á 585 þúsund krónur — Fyrsta prentun úr ís- lendingasögunum 1688 EINTAK af Landnámabók prentaðri í Skálholti 1688 er nú til sölu hjá bóksölunni Rosen- kilde og Bagger f Kaupmanna- höfn fyrir 585 þús. kr. fsl., en bók þessi er mjög fágæt og því dýrgripur eins og reyndar flestar þær bækur sem prentaðar voru í Skálholts- prentsmiðju á þessu timabili, en þar var þá rekin prent- smiðja f 18 ár frá 1685—1703. Þar voru prentaðar 5 verald- legar bækur auk kirkjulegra bóka, en veraldlegu bækurnar voru: Landnáma, Schedæ Ara prestz Fróda, Cristendomssaga hliodande um það hvornenn Cristen tru kom fyrst á Island, Gronlandia Edur Grænlands- saga og Olafs saga Tryggva- sonar. Þegar Gfsli biskup Þorláks son lézt f Skálholti 1684 tók bróðir hans Þórður við biskups- embætti og fékk hann einka- leyfi konungs til þess að prenta úr fornritunum og var braut- ryðjandi f þeirri ritgrein. Byrjaði hann á Landnámu 1688 og var Henrik Kruse prentari þeirrar bókar. Titilsíðan á Landnámu var prentuð í rauðu og svörtu og í .bókinni er m.a. mynd af hafguðinum Ægi og heilsíðu andlitsmynd af Ingólfi Myndin sýnir titilblað Land- námabókar þeirrar sem er til sölu i Kaupmannahöfn um þessar mundir. Arnarsyni, en Landnáma fjallar um „Fyrstu bygging Is- lands af Nordmönnum", eins og segir í bókaskrá um eintakið sem nú er til sölu í Kaup- mannahöfn og er I. útgáfa af Landnámabók á prenti. Eins og fyrr getur er Land- náma Skálholtsprentsmiðju Framhald á bls. 18 hvort þær koma til framkvæmda eða ekki. Þær aðgerðir í peningamálum, sem um er rætt, eru aðallega þess- ar: # Hækkun vaxta og hefur þá verið rætt um að útlánavextir fari upp í 21 % 0 Aukin innlánabinding. 0 Mjög veruleg takmörkun í út- lánaaukningu bankanna. 0 Verði af þessum ráðstöfunum öllum eða einhverjum þeirra er hugmyndin að þær verði tímabundnar og standi jafnvel aðeins i þrjá mánuði. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur, voru hugmyndir þessar settar fram og ræddar á fundi bankastjóra Seðlabankans og viðskiptabank- anna, sem haldinn var í fyrradag. I dag munu bankastjórar við- skiptabankanna koma saman til fundar og ræða þessar hugmyndir og væntanlega mun bankaráð a.m.k. einhverra bankanna ræða þessi mál á föstudag, en síðan mun nýr sameiginlegur fundur bankastjóra Seðlabankans og við- skiptabankanna verða haldinn á þriðjudag í næstu viku. Jafnframt mun ríkisstjórnin væntanlega ræða þessar hugsanlegu ráð- stafanir í peningamálum næstu daga. Loðnubátarnír í vand- ræðum vegna veðurs „VIÐ erum að nálgast Vest- mannaeyjar og erum nú að kom- ast í var við Eyjarnar," sagði örn Erlingsson skipstjóri á Erni RE f talstöðvarsamtali við Morgun- blaðið f gær, „það hefur verið öskrandi rok, hreint helv.... og bátarnir eru búnir að eiga f mikl- um erfiðleikum og hasli við að sigla á móti þessum suðvestan 9—10 vindstigum, sem eru hér. Við urðum að slóa f fjóra tfma f nótt vegna veðursins og 10—20 500 krónur fyrir tvöfaldan vodka og gosið SAMBAND veitinga- og gistihúsa- eigenda hefur nú lokið við gerð nýrrar verðskrár, vegna þeirrar hækkunar, sem varð á áfengi eftir helgina. Morgunblaðið fékk það upplýst hjá skrifstofu sambands- ins í gær, að eftirleiðis myndi tvöfaldur Wiskey í vatni kosta 430 krónur. Ekki verður verðið lægra ef menn ætla að fá sér rússneskan vodka, en tvöfaldur vodki með gosi kostar nú 500 kr. íslenzkt brennivín, 6 cl, kosta nú 400 kr. með gosi. Þá kosta 6 c) af Campari 175 krónur. Sem dæmi um verð á dýru koníaki má nefna að einfaldur sjúss af dýrustu tegund af Hennessy kostar nú 665 krónur. mflum á eftir okkur eru 4 bátar á vesturleið til Vestmannaeyja. Þar er nú allt fullt svo við erum ekki lausir við vandræðaganginn þótt við séum komnir f höfn. Það hafa brotnað einhverjar grindur og annað smávegis á þilfarinu hjá okkur, svona eins og gengur f slfkum rosa. Við erum nú búnir að vera sólarhring á leiðinni til Eyja, leið, sem venjulega er farin á 11—12tímum.“ 1 síma við Vestmannaeyjahöfn náðum við sambandi við Ölaf Sigurðsson skipstjóra á Reykja- nesinu. Hann kvaðst vera að landa 230 tonnum, en þeir lentu í nokkrum vandræðum í stormin- um og fengu halla á skipið. Einnig komst nokkur sjór niður i lúkarinn f gegn um loftventla á þilfarinu. Reykjanes er lengdur Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.