Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 1
32 SIÐUR 86. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 19. APRlL 1975 Prentsiniðja Morgunblaðsins. Oljóst ástand í Phnom Penh vegna sambandsleysis: w Ostaðfestar fregnir um brottflutn- inga — Nýja stjórnin víða viðurkennd Bangkok, Tókýó, Peking, Moskvu og víðar 18. apríl AP—Reuter—NTB % FREGNIR bárust um það í dag að hinir nýju valdhafar í Kambódíu, Rauðu Khmerarnir, hefðu fyrirskipað að borgarbúar, sem eru um tvær milljónir, yfir- gæfu borgina vegna yfirvofandi sprengju- eða stórskotaliðsárásar á hana. Ekki var tilgreint hvaðan sú árás ætti að koma, en fregnirn- ar hermdu að mikill ótti og öng- þveiti hefði gripið um sig í borg- inni við þessa tilkynningu. Töldu sumar heimildir hins vegar að hér væri um að ræða bragð vald- hafa til að eiga auðveldara með að hefja hreinsanir og leita uppi stuðningsmenn gömlu stjórnar- innar. Engar af þessum fréttum fengust staðfestar þar eð ríkis- stjórnin rauf allt samband við útlönd og engar fréttasendingar bárust frá Phnom Penh. Hins veg- ar báru kambódískar heimildir í Peking fréttina um brottflutn- inga til baka og kváðu hana föls- un eina. Allt væri með kyrrum kjörum í borginni. Rússar óska eftir skeyti frá Fischer sjálfum . . . Hann hlær og seg- ir að þeir eigi að eiga frumkvæðið Manila 18. apríl — Reuter. SOVÉZKA skáksambandið krafðist þess f dag f skeyti til Campomanos, forseta skáksam- bands Filipseyja, að Bobby Fischer sendi skeyti til Karpovs eða sovézka skáksam- bandsins um beiðni um viðræð- ur um einvfgi milli þeirra tveggja. Campomanos sagði fréttamönnum á fundi, sem hann hélt eftir að hafa talað við Fischer, að Fischer hefði hleg- ið þegar hann heyrði um kröfu Rússa og sagt, að það hefði ver- ið Karpov, sem hefði fyrst haft orð á einvíginu og því væri það hans cða sovézka skáksam- bandsins að senda sér skeyti með tilboði um viðræður. Campomanos spurði þá Fischer hvert skáksambandið ætti að senda slíkt skeyti, en Fischer vildi ekki gefa upp heimilis- fang sitt, sagði að hægt væri að senda skeytið á sitt nafn f Pasadena f Kalifornfu. Síðan bætti Fischer við: „Ef þeir ekki geta fundið mig, er það þeirra vandamál." Þá sagði í skeyti sovézka skáksambandsins, að Karpov gæti ekki hitt Fischer á Filips- eyjum þvi að hann þyrfti að vera í Moskvu 24. apríl, er hann verður formlega sæmdur heimsmeistaratitilinum. í skeytinu til Campomanes var þess farið á leit við hann, að hann kæmi til Moskvu til að vera viðtaddur athöfnina. Sagð- ist Campomanes gera ráð fyrir að fara. Campomanes hefur nú sent sovézka skáksambandinu skeyti, þar sem hann segir, að ef það hafi áhuga á einvígi, verði það að senda Fischer skeyti um það til Pasadena. Er nú ljóst, að snurða er hlaupin á þráðinn og ógerlegt að spá um framhaldið. 9 Ekkert er ann vitað með vissu um örlög ýmissa helztu ráða- manna Lon Nol-stjórnarinnar, þ.á m. Long Borets, forsætisráð- herra, en ekki er talið að hann sé f Thailandi, þar sem fréttir í kvöld hermdu að a.m.k. þrfr kambódfskir valdamenn væru nú, Sak Sutsakhan, yfirmaður hersins, Keuky Lim, utanrfkisráð- herra, og Saukhan Khoy, sem var settur forseti. Sihanouk prins, að nafni til leiðtogi Rauðu Khmer- anna, sagði í Peking i dag að hann myndi snúa heim til Kambódíu eftir u.þb. mánuð, en hann yrði aðeins formlegur þjóðhöfðingi. Völdin yrðu f höndum Khieu Samphan, aðstoðarforsætisráð- herra útlagastjórnar hans. Sihanouk sagði að hann myndi búa f Angkor í Norður-Kambódíu, þar eð hann ætti slæmar minning- ar frá Phnom Penh. 0 Sihanouk hefur að sögn japönsku fréttastofunnar Kyodo beðið Kína um að verða „áfram helzti bakhjarl" rikisstjórnar Rauðu Khmeranna, og fært kin- versku ríkisstjórninni „eilíflegar þakkir" fyrir hjálp við Khmerana hingað til. Mao Tse-tung, formað- Framhald á bls. 31 UPPGJÖF — Þessir Kambódfumenn draga hinn hvfta fána uppgjafarinnar að húni f Poipet-héraði við landa- mæri Thailandsþar sem mikill fjöldi flóttamanna er sagður reyna að komast f gegn. Þetta er ein af örfáum Ijósmyndum sem borizt hafa frá Kambódiu frá þvf er höfuðborgin Phnom Penh féll í hendur Rauðu Khmeranna aðfararnótt fimmtudags. AP.slmamvnd. Barizt í útiöðrum Saigon Stjórnin fellur innan 60 daga án hergagna, segir Kissinger Saigon, Bangkok, Washington 18. apríl AP—Reuter—NTB HERSVEITIR kommúnista brut- ust inn í útjaðra Saigon f kvöld á stöku stað f innan við 10 km fjar- lægð frá miðborginni en megin- sókn þeirra hélt áfram fram hjá Xuan Loc, sem enn er á valdi stjórnarhersins og að hinni hernaðarlega mikilvægu Bien Hoa bækistöð f um 28 km fjar- Ræða Hans G. Andersen féll í góðan jarðveg: Einhliða aðgerðir ef ei næst samkomulag Genf, 18. april Frá Matthíasi Johannessen, ritstjóra. A ALLSHERJARFUNDI haf- réttaráðstefnunnar hér f Genf f dag var Hans G. Andersen, for- maður fslenzku sendinefndarinn- ar, fyrstur á mælendaskrá, þegar fundi var fram haldið eftir há- degi. Ræða hans féll f góðan jarð- veg, enda styttri en flestar ræður aðrar og málefnalega vekjandi aé þvf leyti, að hann benti á, að ef hvorki tækist að ná samkomuiagi né heidur meirihlutaafgreiðslu yrði vfða gripið til einhliða að- gerða fyrr eða síðar — og gaf þar með í skyn hver stefna fslenzkra stjórnvalda yrði. Þetta atriði hef- ur einmitt verið hálfgert feimnis- mál hér á ráðstefnunni, að því er manni skilst, og f ræðum sínum vöruðu nokkrir ræðumanna við slfkri þróun, s.s. fulltrúi Venezuela, áhrifamikill maður hér og fyrrum formaður annarrar nefndarinnar, Aguilar að nafni. Þess má geta, að almennur hlát- ur varð á ráðstefnunni, þegar Hans G. Andersen minnti á stund- vfsina í lok ræðu sinnar, en hún fer í heild hér á eftir: „Herra forseti. Hinn hægfara gangur mála á lægð og innan skotfæris frá höfuðborginni. Stjórnarherir eru sagðir hafa goldið mikið afhroð í framsókn kommúnista, og einnig bárust frengir um harða bardaga þessum fundum ráðstefnunnar er mörgum sendinefndum áhyggju- efni, þegar það er haft i huga, að störf okkar hafa nú staðið yfir um margra ára skeið. I upphafi funda hér i Genf var við það miðað, að annaðhvort yrði náð samkomulagi eða þá að at- kvæðagreiðslur mundu hefjast um þetta leyti eða jafnvel fyrr. Tillögur yðar hr. forseti varð- andi starfsháttu nú eru tímabær- ar, nauðsynlegar og raunar heil- brigð skynsemi. Við hljótum öll að gera okkur grein fyrir því, að ef hvorki tekst Framhald á bls. 31 Kortið sýnir vígstöðuna í Suður- Vfetnam. við siðasta vígi stjórnarhersins á miðströndinni, Phan Thiet, höfuðborg héraðsins Binh Thuan, í um 160 km fjarlægð norðaustur af Saigon. Yrði Binh Thuan 19. héraðið sem fellur í hendur her- sveita kommúnista. Samkvæmt bandarískum leyniþjónustu- heimildum hafa nú flokkar úr þremur norður-vfetnömskum her- fylkjum komizt að víglínum Saigon, og eru herfylki Hanoi- stjórnar og Víetcong sem nú þrengja æ meir að höfuðborginni þar með orðin 10. 0 1 Washington hélt rfkisstjórn Fords enn áfram baráttu sinni til að fá þingið til að samþykkja hjálparslarf við Suður- Víetnamsstjórn. Henni tókst að fá utanríkismálanefnd öldunga- deildarinnar til að samþykkja 200 milljón dollara framlag til brott- flutnings bandarískra þegna og nokkurra Suður-Vfetnama frá Saigon, þar af fa*ru 100 milljónir dollara til mannúðarstarfa. Hins Framhald á bls. 31 Sókn komm- únista í Laos Vientiane 18. april. — Reuter HERSVEITIR kommúnista, sem beita skriðdrekum og stórskota- liði, hafa náð á sitt vald bæki- stöðvum stjórnarhersins f Laos í um 250 km fjarlægð norður af höfuðborginni Vientiane, að því er varnarmálaráðherra Laos, Sisouk Na Champassak, fursti, sagði f dag. Furstinn gaf í skyn að hér væri frekar um að ra*ða her- sveitir Norður-Vfetnama en her- menn Pathet Lao- hreyfingarinnar. Hann sagði að Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.