Morgunblaðið - 19.04.1975, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRlL 1975
Frá fundi í borgarstjórn
Reykjavíkur
Frá
borgarstjórn
120 millj. kr. til stofn-
ana í þágu aldraðra
borgarstjóri hefði fullvissað borg-
arstjórn um, að hafizt yrði handa
um byggingu íbúða í Furugerði
fyrir aldraða og breytingu á
Hafnarbúðum í langlegudeild.
Framlag til stofnana i þágu
aldraðra yrði þvi i raun 120 millj.
kr.
Adda Bára Sigfúsdóttir sagði,
»ð unnt hefði verið að mæta fjár-
Framhald á bls. 31
A ÞESSU ári er ráðgert að verja
120 millj. kr. til stofnana f þágu
aldraðra í Reykjavík. Þetta kom
fram I tillögu frá borgarfulltrú-
um Sjálfstæðisflokksins, sem
samþykkt var á fundi borgar-
stjórnar sl. fimmtudag. Samþykkt
var frávísunartillaga við tillögu
Guðmundar Magnússonar um
hækkun á framlagi til þessa verk-
efnis. Samþykkt borgarstjórnar
fer hér á eftir:
„I þeim tillögum, sem liggja nú
fyrir borgarstjórn um niðurskurð
framkvæmda, er gert ráð fyrir að
lækka fjárveitingu til stofnana í
þágu aldraðra. Á það jafnt við um
tillögur, sem meiri hluti borgar-
stjórnar ber ábyrgð á, svo og tii-
lögur frá Alþýðubandalagi og
Framsóknarflokki. I tillögum
meiri hluta borgarstjórnar er gert
ráð fyrir að verja samtals 120
millj. kr. til stofnana i þágu aldr-
aðra, þar af 52 millj. kr. til bygg-
ingarsjóðs vegna íbúða fyrir aldr-
aða i Furugerði. Eins og nú horfir
i fjármálum borgarinnar er
óraunhæft að ætla, að unnt verði
að verja meira fjármagni til þess-
ara framkvæmda á árinu. Jafn-
framt telur borgarstjórn eðlilegt,
að borgarráð fjalli um á hvern
hátt staðið verði að undirbúningi
næstu framkvæmda á þessu sviði,
þ.e. hvort kjörin verði ný nefnd
eða borgarráð sjálft fari með
verkefnið. Borgarstjórn visar frá
framkominni tillögu Guðmundar
Magnússonar.“
*
Kostnaðarhækkunum mætt
með 564 míllj. kr. níðurskurði
A KUNDI borgarsljórnar Reykja-
víkur sl. fimmludag var sam-
þykkl endurskoðun á fjárhags-
áa-llun Reykjavikurborgar fyrir
þella ár. Birgir Isleifur Gunnars-
son borgarstjóri gerði grein fyrir
tillögum um niðurskurð, sem fela
í sér sparnað í rekslri og freslun
framkvæmda samtals að uppha-ð
564 millj. kr. I ra-ðu borgarsljóra
kom m.a. fram:
Að óbreyllum aðsla-ðum hefðu
úlgjöld borgarinnar farið 700
millj. kr. fram úr heilöartekjum
m.a. vegna verðha-kkana í kjölfar
gengisfellingar, kaupha-kkana,
útsvarsla-kkunar og slóraukinna
framlaga borgarsjóðs IiI Slra-lis-
vagna Reykjavíkur.
Endurskoðun f járhagsáællun-
arinnar hefur hins vegar í för
með sér, að hún ha'kkar aðeins
um 66 millj* kr. Rekstrargjöld
ha-kka um 70,5 millj. kr. en fram-
lög lil franikvæmda la-kka um 4,6
millj. kr.
Borgarstjóri sagði m.a.:
Að mati borgarhagfræðings
hefðu heildarútgjöld borgarsjóðs
til reksturs- og eignabreytinga
farið a.nt.k. 700 ntillj. króna fram
úr heildartekjum á þessu ári, eins
og fyrr segir, el' fylgt hefði verið
þeim reksturs- og l'ramkvæmda-
áformum, er lágu til grundvallar
áætlunargerðinni í desember.
Rekstrargjöld að meðtalinni
gatnagerð hefðu farið nálægt 350
millj. kr. fram úr áætlun. Beinn
byggingarkostnaður hefði orðið
80 millj. kr. meiri en áætlað var,
og sýnt er, að framlag til Strætis-
vagna Reykjavíkur verður um 170
millj. kr. nteira en áætlað var.
Nærri lætur, að launaútgjöld
borgarsjóðs aukist um 120 millj.
kr. af þessum sökum, en gert er
ráð fyrir, að önnur rekstrargjöld
borgarsjóðs hækki um 180 millj.
kr. Samanlagt nemur þessi kostn-
aðarauki 300 millj. kr., en skv.
framlögðum tillögum tekst að
mæta honum að mestu með því að
draga úr fyrirhuguðum fram-
kvæmdum við gatnagerð og með
því að beita sparnaði i rekstri með
því að skera niður eða lækka
ýmsa rekstursliði í fjárhagsáætl-
un borgarsjóðs. Þannig, að í heild
hækka rekstrargjöld borgarsjóðs
aðeins um 70,5 millj. kr.
Kígnabreytingagjöld lækka
hins vegar í heild um 4,6 millj.,
þannig að heildarhækkun á niður-
stöðutölum fjárhagsáætlunar
borgarsjóðs verður sem fyrr segir
aðeins um 65,9 millj. kr. Niður-
stöðutölur eignabreytinga eru
sem fyrr segir því sem næst
óbreyttar frá fyrri áætlun, þrátt
fyrir það að dregið hafi verið úr
fyrirhuguðum útgjöldum svo sem
frekast þykir kostur. Breyting-
arnar eru i stórum dráttum þær,
að framlög til byggingafram-
kvæmda lækka um tæplega 290
millj. kr. auk þess sem framlag til
afborgana hefur verið lækkað um
100 millj. kr. En á móti koma
tekjufærðar eftirstöðvar af út-
svörum, aðstöðugjöldum og fast-
eignagjöldum, að fjárhæð rösk-
lega 220 millj. kr., og fram til
Slrætisvagna Reykjavikur hækk-
ar um 170 millj. kr.
Framlag til Byggingarsjóðs er
óbreytt og því gert ráð fyrir all-
miklum framkvæmdum við íbúðir
fyrir aldraða við Furugerði á ár-
inu, eins og f'yrr segir.
Eg vek sérstaka athygli á því, að
i heild er hér um að ræða niður-
skurð í rekstri og framkvæmdum
um 560 millj. kr. til að rýma fyrir
verðhækkunum og mæta öðrum
þeim breytingum, sem raskað
hafa grundvelli fjárhagsáætlun-
ar. 1 grófum dráttum er sundur-
liðunin þannig:
llér er um mjög mikið átak að
ræða í niðurskurðarátt, en hjá þvi
verður ekki komizt, ef horfast á í
augu við vandann á raunsæjan
hátt.
Nú þegar hefur verið hafizt
handa um gerð greiðsluáætlunar i
samræmi við þær breytingar á
fjárhagsáa'tlun sem hér liggja
fyrir, og ég gerði grein fyrir. Þar
sem áætluni’i liggur fyrir og
greiðsluvandamál borgarsjóðs
sem nú var lýst, hafa verið
leyst, verða bæði borgarfull-
trúar, forstöðumenn stofnana
og deilda borgarinnar
og borgarbúar allir að gera
sér grein fyrir að gæta verður
itrustu sparsemi i rekstri og
fresta öðr-nu framkvæmdum en
þeim, sem bráðnauðsynlegar eru.
Okkur borgarfulltrúum er öll-
um jafnljóst, að þessar tillögur
fela í sér umtalsverðan
niðurskurð á framkvæmda-
áætlun borgarsjóðs á þessu
ári. Við hefðum að sjálf-
sögðu allir kosið, að til þessara
aðgerða hefði ekki þurft að koma.
Þróun efnahagsmála hefur hins
vegar orðið á þann veg, að undan
aðgerðum vet ður ekki vikizt og þá
kröfu verður að gera til okkar, að
við bregðumst við vandanum á
raunhæfan hátt.
Sigurjón Pétursson sagði m.a.,
að minnihlutaflokkarnir hefðu
kosið að reyna þrátt fyrir allt að
draga nokkuð úr þunga þess
niðurskurðar, sem meirihlutinn
legði til að gerður yrði. Minni-
hlutaflokkarnir tækju þó á engan
hátt ábyrgð á þessum niður-
skurði, sem yrði að framkvæma
nú, eftir að tillögum þeirra um
fjáröflun hefði verið hafnað.
Niðurskurðurinn væri því óhjá-
kvæmilegur. Það væri tillaga
minnihlutaflokkanna, að aðstöðu-
gjöld yrðu hækkuð svo og gjöld
fyrir kvöldsöluleyfi. Þá vildu þeir
skera gatnagerðarframkvæmdi|
mun meira niður en meirihlutinn.
Nauðsynlegt væri fyrir borgina
að leggja til hliðar fjármagn til
ráðstöfunar í því skyni að auka
atvinnu, ef samdráttur yrði í at-
vinnumálum.
Guðmundur Magnússon taldi,
að orsakanna fyrir þeim erfiðieik-
um, sem borgin stæði frammi
fyrir, væri m.a. að leita i efna-
hagsstefnu vinstri stjórnarinnar,
sem bundið hefði hendur sveitar-
félaganna. En þrátt fyrir það tæk-
ist Sjálfstæðisflokknum ekki til
lengdar að skjóta sér á bak við
vinstri stjórnina og fela þannig
óafsakanleg mistök sín. Þá gerði
varaborgarfulitrúinn grein fyrir
tillögu sinni um hækkun á fram-
lagi til stofnana i þágu aldraðra.
Kristján Benediktsson visaði til
tillagna minnihlutaflokkanna
sem Sigurjón Pétursson gerði
grein fyrir. Hann sagðist þó vera
annarrar skoðunar en Sigurjón að
því leyti, að hann vildi taka á sig
ábyrgð á niðurskurðinum, ef
meirihlutinn samþykkti tillögur
minnihlutans. Kristján sagði, að
tillögur minnihlutans þýddu i
raun 50% samdrátt í gatna- og
holræsagerð. Alvarlegast væri þó
að fresta framkvæmdum við ný
byggingarsvæði, í heilbrigðismál-
um, íþróttamálum og skólamál-
um.
Elín Pálmadóttir gerði nokkra
grein fyrir áhrifum niðurskurðar-
ins á framkvæmdir í skólamálum
og harmaði m.a., ef sálfræðideild-
in í Austurbæjarskólanum gæti
ekki tekið tíl starfa á næsta skóla-
ári. Hún sagði hins vegar, að
vonir stæðu til að grunnskóla-
reglugerðin kæmi til fram-
kvæmda innan tíðar, þannig að
endurgreiðsla kæmi frá ríkinu í
haust og gæti þá rætzt úr í þessu
efni. Þá sagði borgarfulltrúinn,
að sér hefði þótt vænt um, að
Brúttólækkun rekstrarútgjalda,
þ.m.t. götulýsing 100 millj.
Minnkun framkvæmda i gatnagerð 170 —
Minnkun byggingaframkvæmda 290 —
560 millj.
Skoðið teppin hjá okkur á stórum ileti.
NÝ WIILT0N-
TEPPI
Ný mynstur