Morgunblaðið - 19.04.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.04.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRlL 1975 3 Fundur um heilbrigðis- og félagsmál aldraðra REYKJAVlKURDEILD Rauða kross lslands efnir á laugardag- inn til almenns fundar um vissa þætti félags- og heilbrigðismála aldraðra. Verður fundurinn hald- inn í Domus Medica. Á fundinum verða flutt fjögur stutt framsöguerindi. Rætt verður um þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða, skýrt frá félagslegri aðstoð við aldraða og félagsstarfi þeirra i Reykjavik, sagt frá könn- un á högum aldraðra, rætt um vandamál í sambandi við ellilíf- eyrisaldurstakmörk, fjallað um hugsanlegar úrbætur i sambandi við atvinnumál aldraðra og loks skýrt frá vinstunarrými fyrir aldraða á sjúkrahúsum. Hvert framsöguerindi verður 15 minútur og á eftir verður orðið gefið frjálst og framsögumenn svara fyrirspurnum. Listamannaþing fjallar um stjórnun menningar Listamannaþing verður á sunnudag í Tjarnarbúð f fram- haldi af aðalfundi Bandalags listamanna. Verður aðalfundur- inn kl. 10 um morguninn, en þingið verður sett klukkan tvö. Viðfangsefni þingsins verður stjórnun menningar, það í Fundur með flugmönn- um ekki boðaður enn SAMNINGAFUNDUR flugfélag- anna og fulltrúa Félags íslenzkra atvinnuflugmanna var haldinn í fyrradag. Hefur deilunni enn ekki verið vísað til sáttasemjara og i gærkveldi hafði ekki verið boðað til nýs samningafundar. Verkfall flugmanna, sem standa á í fjóra sólarhringa, kemur til framkvæmda á miðnætti næst- komandi þriðjudag, hafi samn- ingar ekki tekizt. Samningafundur með flug- freyjum hefur ekki verið boð- aður, en þeirri kjaradeilu hefur verið vísað til sáttasemjara rikis- ins. Þá má geta þess að viðræður við flugvirkja og flugvélstjóra eru ekki hafnar, en búast má við þvi, að þær hefjist bráðlega. Viðræður standa yfir við fulltrúa flugum- sjónarmanna. nokkurs konar framhaldi af ráð- stefnu sveitarstjórna um menn- ingarmál fyrir skömmu og eru gestir þingsins Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra og Páll Lindal, formaður Sambands sveitarstjórna. Á aðalfundinum um morguninn verður kosinn formaður Banda- lags listamanna. Vitað er að Hannes Daviðsson, sem verið hef- ur formaður siðan haustið 1966, gefur ekki kost á sér til endur- kjörs, og að tveir verða í kjöri, auk þess sem stinga má upp á fleirum á fundinum. Eru það Thor Vilhjálmsson rithöfundur og Edda Scheving ballet dansari. Aðildarfélög bandalagsins skipa einn mann í stjórn félagsins. Þátttaka i þinginu er heimil öll- um meðlimum aðildarfélaga bandalagsins, sem eru 8 talsins, þ.e. Arkitektafélag Islands, Rit- höfundarsamband Islands, Tón- skáldafélag Islands, Félag fsl. tón- listarmanna, Félag ísi. ieikara, Félag ísl. listdansara, Félag isl. myndlistarmanna og Félag ísl. kvikmyndagerðarmanna. Á listamannaþinginu nú er ætlunin að ræða almennt viðhorf i stjórnun menningar og þá fyrst og fremst það sem að listamönn- um snýr, listanna sjálfra. Queen Elizabeth II til Islands í sumar BREZKA skemmtiferðaskipið Queen Elizabeth II kemur til Reykjavíkur í sumar, í júlí eða ágúst. Er hér um að ræða lang- stærsta skemmtiferðaskip sem til tslands hefur komið. Upplýsingar þessar fékk Mbl. hjá Geir H. Zoéga í gær, en skipið kemur hingað á vegum ferðaskrifstofu Zoéga. Geir sagði að með skipinu kæmu um 2000 farþegar. Aðspurður hvort ekki þyrfti mikinn viðbúnað tii að taka á móti skipinu sagði Geir: „Við erum orðnir svo van- ir því að taka á móti stórum hópum, en það þarf auðvitað fleiri bíia í þetta sinn.“ Félag guðfrœðinema: Andstaða við fóstureyðingar „Aðalfundur Félags guðfræði- nema. haldinn 16. apríl 1975, lýsir yfir fullri andstöðu sinni við frjálsar fóstureyðingar. Fundur- inn beinir þeirri áskorun til hæst- virts Alþingis, að það samþykki enga þá breytingu á löggjöf um fóstureyðingar, sem feli í sér, að móðir geti haft ótakmarkaðan ákvörðunarrétt um örlög fösturs síns. Með slikri lagasetningu væri tilveruréttur fóstursins einskis virtur, um leið og konunni væri gefið óskert vald yfir lífi og dauða, vald sem er i þversögn við náttúrulegan tilgang lífsins og boðskap kristinnar trúar," þannig hljóðar samþykkt sem gerð var á aðalfundi Félags guðfræðinema. 1 frétt frá félaginu segir, að enn- fremur hafi verið samþykkt, að beina því til háttvirtra alþingis- manna, að þeir felli inn i frum- varp til laga um fóstureyðingar o.fl. nýja grein, er kveði svo á, að fóstrið sé mannlegt líf, sem eigi sér einhvern tilverurétt. Slíkt ákvæði mundi setja nokkrar hömlur við gerræðisfullri beit- ingu fóstureyðinga. Þá vekur fundurinn athygli á þvi, að ef löggiltar verða fóstur- eyðingar af félagslegum ástæð- um, sem unnt er að bæta úr, þá er skorazt undan þeirri ábyrgð, sem hvílir á hinu opinbera, að koma í veg fyrir félagslega neyð. Frum- skylda þjóðfélagsins er nú að tryggja borgurum sínum félags- Framhald á bls. 31 Fjórir japanskir tog- arar nota nú svartolíu — sá fimmti bœtist fljótt í hópinn AÐ UNDANFÖRNU hefur verið unnið að því að koma fýrir tækj- um til svartolíubrennslu við aðal- vélar japanskra skuttogara og Fá vangefn- ir sérstaka tannlækna- þjónustu? DANSKUR sérfræðingur í tannlækningum vangefinna, Björn Russell, er hér í Reykja- vfk um þessar mundir á vegum Tannlæknafélags tslands og Styrktarfélags vangefinna. Hann hefur flutt fyrirlestra um sérgrein sfna fyrir tannlækna, en f dag, laugardag, heldur hann fyrirlestur f Bjarkarási við Stjörnugróf kl. 2 e.h., og er almenningi heimill aðgangur að fyrirlestrinum. Björn Russell var um skeið aðstoðarprófessor við Tann- læknaháskólann í Kaupmanna- höfn, en starfar nú eingöngu að tannlækningum í sjúkrahúsi fyrir vangefin börn i Vengede. Hann var fyrsti danski tann- læknirinn, sem gerði tann- lækningar vangefinna að sér- grein sinni, en slíkir læknar eru nú 11 að tölu í Danmörku. Tannlækningar og viðgerðir vangefinna eru að verulegu leyti frábrugðnar venjulegum tannlækníngum, m.a. að því leyti að þær eru 3—4 sinnum tímafrekari og i mjög mörgum tilvikum er þörf sérstakrar að- stöðu og sérþekkingar. Van- gefnir eru einnig mun næmari fyrir ýmsum munn- og tann- sjúkdómum en þeir, sem heilbrigðir eru, þannig að enn nauðsynlegra er að fylgjast Björn Hussell, Gunnar Þormar og Magnús Kristinsson, formadur Styrktarfölags van- gefinna, gera grein fyrir nauösyn sérstakrar tannlæknaþjónustu fyrir vangefna. náið og stöðugt með ástandi tanna þeirra, til að tryggja að þeir geti nærzt eðlilega og hindra vanlíðarv Björn Russell sagði á fundi með blaðamönn- um í fyrradag, að auk alls þessa væri það oft svo, að vangefnir gætu ekki sagt frá vanlíðan sinni, þannig að ástandið væri ekki vitað fyrr en alltof seint, auk þess sem gervitennur koma þeim að litlu haldi, bæði vegna þess að vöðvar þeirra eru oft vanþroskaðir og eins af því að þeir skilja hreinlega ekki hvernig þeir geta haft not af gervitönnunum. í nágrannalöndunum, t.d. Danmörku, er sérstök tann- læknaþjónusta á þessu sviði talin sjálfsögð, bæði fyrir þá, sem dveljast í stofnunum fyrir vangefna, og þá, sem dveljast í heimahúsum. Hér á landi hefur engin þjónusta af þessu tagi verið fyr- ir hendi en Gunnar Þormar tannlæknir hefur kynnt sér þessa þjónustu erlendis. Heil- brigðisráðuneytið fól honum að gera skýrslu um tannlækningar vangefinna, og var hún tilbúin á sfðasta ári. Gert er ráð fyrir þvi, að hér á landi séu nú 1500—2000 einstaklingar, sem þurfa á þessari þjónustu að halda, og telja islenzkir tann- læknar, að nauðsynlegt sé að gera ráð fyrir sérstakri stofnun I þessu skyni hið bráðasta. Þess má geta, að svæfingum hefur nokkuð verið beitt i sambandi við tannlækningar vangefinna, en Björn Russell telur þær afar óheppilegar, vegna þeirra hliðarverkana, sem þær hafa oft haft á sjúklingana. Björn Russell er ritstjóri timarits sem gefið er út af tann- læknum, er einkum fást við tannlækningar vangefinna á Norðurlöndum, en Gunnar Þormar á einnig sæti í stjórn samtaka þeirra. þegar eru fjórir togarar komnir með þennan útbúnað, sem eins og kunnugt er sparar milljónir í olíukostnað á ári. Þau skip, sem búið er að koma þessu kerfi fyrir í, eru Rauðinúpur, Vestmannaey, Hvalbakur og nú síðast Bjartur frá Neskaupstað, en togarinn fór frá Reykjavík i gærkvöldi eftir að hann hafði verið þar í vikutima, á meðan svartolíutækin voru sett i hann. Sigurður Brynjólfsson hjá AsíUr félaginu sagði þegar Morgun- blaðið hafði samband við hann í gær, að allt benti til þess að svart- oliutæki yrðu komin í alla jap- önsku skuttogaranna eftir skamman tima. Togararnir væru vel undir þetta búnir, því þeir hefðu allir komið með tveimur skilvindum, en það sem fyrst og fremst þyrfti að setja i þá til þess að þeir gætu brennt svartoliunni væru fleiri hitarar. — Ennfremur Framhald á bls. 31 99 „Stórkostlegur stuðningur — segja verkfallsmenn á Selfossi um yfirlýsingu miðstjórnar ASI MIÐSTJÖRN Alþýðusambands lslands hefur fordæmt aðfarir Kaupfélags Árnesinga gegn starfsmanni þeim, er vikið var úr starfi og hefur gefið 100 þúsund krónur til verkfallsmanna á Sel- fossi. „Þetta er stórkostlggur stuðn- ingur," sagði Snorri Sigfinnsson, einn af forsvarsmönnum verk- fallsmanna í samtali við Morgun- blaðið. „Engin hreyfing er þó i málinu, þeir hafa ekkert samband haft við okkur ennþá en þeir hljóta nú að fara að sjá að sér. Ef þeir eru ekki farnir að skilja að þetta ,,Kolbeins-mál“ er ekkert samningsmál af okkar hálfu, hljóta mennirnir að vera stein- runnir“. Morgunblaðið hafði sam- band við Odd Sigurbergsson, kaupfélagsstjóra, til að forvitnast um hlið kaupfélagsins i þessari vinnudeilu en hann kvaðst ekkert vilja um málið segja. Fréttatilkynning frá Alþýðu- sambandinu fer hér á eftir: Á fundi miðstjórnar Alþýðu- sambands íslands i dag var til umræðu brottvikning Kolbeins Guðnasonar úr störfum hjá Kaup- félagi Arnesinga. Voru miðstjórnarmenn einhuga í fordæmingu sinni á þeim aðför- um að vikja úr starfi manni með áratugastarfsferil að baki i þjón- ustu fyrirtækisins fyrir það eitt að gagnrýna með bréfi breyt- ingar, sem einhliða voru ákvarðaðar af stjórnendum fyrir- tækisins. Taldi miðstjórnin þetta mikinn álitshnekki fyrir sam- vinnuhreyfinguna. Miðstjórnin samþykkti að leggja fram krónur 100.000,00 til stuðnings verkstæðismönnum á Selfossi. Beintáslysamrð- stofuna aftur... HARÐUR árekstur varð í gær á mótum Grensásvegar og Skeifunnar. Tveir fólksbílar lentu saman. I öðrum bílnum meiddist piltur, sem sat i framsæti, og var hann fluttur beint á slysavarðstofuna og lagður þar inn. Ekki var pilt- urinn ókunnur húsakynnum þar, því hann var einmitt að koma þaðan þegar hann lenti í árckstrinum. Var þá verið að gera að mciðslum sem hann hafði hiotið daginn áður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.