Morgunblaðið - 19.04.1975, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.04.1975, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRIL 1975 Piltur og stúlka e- Og heldur en ekki, og nú erum við þegar hjá tveimur, það er hvort sem þú vilt heldur hérna undir skipsíðunni eða við búðargaflinn þarna; þó get ég ekki ábyrgzt, að það sé ekki nein óværa í rekkju- voðunum, af því hér koma svo margir. Já, ekki ligg ég þar; en án gamans að tala, getum við hvergi fengið aö liggja inni? Ekki er það allra, en hitt er það, að ég á hér einn kunningja, og þar skulum viö reyna fyrir okkur. Sigurður átti kunnugt þar í húsi nokkru ekki langt frá skytningi; þar átti heima íslenzkur maður, sem L. hét og var eitthvað riðinn viö verzlunarstörf. Þang- að fóru þeir Indriði og voru þar um nóttina. Ekki voru húsakynni þar stór, og voru gestir látnir sofa í sama herbergi sem þau sváfu í, hjónin, og sváfu þau í rúmi, sem stóð nær gluggunum, en gestir báðir í einu rúmi ekki langt frá dyrum. Um morguninn vaknar Indriði snemma og lítur upp; sér hann þá, að húsmóðir er staðin úr rekkju og situr naumlega hálfklædd við gluggann, sem til strætis vissi, og togaði með annarri hendinni sokkinn upp á hægra fótinn, en með hinni hendinni lyftir hún upp glugga- skýlunni og lítur út. Indriði vildi ekki, að konan yrði vör við, að hann væri vaknaður, meðan hún klædd- ist, og togaði hægt yfirsængina upp yfir höfuðið á sér; en í sama bili æpir húsfreyja upp yfir sig ámótlega og svo hátt, að nötraði i hverjum rafti, sem var í húsinu. Sigurður svaf fast og vaknaði ekki, en Indriða þótti bezt ráð að bæla sig betur I fötunum, því HÖGNI HREKKVÍ3I Varðandi 20.000 króna bótatjónið af völdum Högna? hann hugsaði hálfvegis, að sú væri orsökin, að konan mundi hafa orðið vör við, að hann leit upp. Bóndi húsfreyju lá allsber í rúminu og var ekki farinn að hreyfa sér, en vaknaði nú við skrækinn og hrökk með andfælum fram á stokk, en rankaði þó bráðum við sér og gaut augunum á konu sína og mælti: Guð náði þig kona! Hvað gengur að þér? Húsfreyja varpaði mæðilega öndinni og sagði: Söde L.! Vil du bare se, vilt þú bara sjá! Hvað á ég að sjá? Hvorledes det styrter ned, hvernig það sturtar niður. Guði almáttugum sé lof og dýrð fyrir það! sagði bóndi og fór að hnyssa aftur að sér rúmfötunum, sem hann í fáti hafði kastað ofan af sér, þegar hann tók viðbragðið, en við þau orð, sem honum urðu síðast af munni, brá húsmóðursvo, að hún æþir í annað sinn: Ih! Þú frelsins guð! Tal dog kristelig, menneske! Talaðu þó kristilega,maður! — Þannig mælti hún og lyfti um leið augun tárvotum upp í loftið, rétt eins og hún vænti þess, að guðs réttlætandi reiði mundi þá Undrahesturinn Skjóni Hann var skjóttur líka. Þessi og svo líkur Skjóna, að erfitt var að þekkja þá sundur. Piltur settist svo á bak skjótta hestinum, sem hann hafði náð og reið aftur heim í konungsgarð, en Skjóni hljóp laus með honum. Þegar hann kom að höllinni, stóð konungur úti. „Geturóu sagt mér hvorn hestinn ég átti áður og hvorn ég kem nú með í fyrsta skipti?“ sagði piltur. „Getirðu það ekki, þá sýndist mér dóttir þín helst ætti að verða konan mín fljótlega. Konungurinn fór og leit á báða hestana og athug- aði þá gaumgæfilega svo langt sem hann náði, en ekki var nokkurn minnsta mun að sjá á klárunum. „Nei,“ sagði kóngur, „það get ég ekki sagt þér, og fyrstu þú hefir nú útvegað dóttur minni svona myndarlegan brúðarhest, þá skaltu fá hana fyrir konu. En eitt veróum við að reyna fyrst; og það er nú svona: Nú skal hún fyrst fela sig tvisvar og svo skalt þú fela þig tvisvar og ef þú getur fundið hana, þegar hún felur sig, en hún þig ekki, þegar þú felur þig, þá skaltu fá hana fyrir konu.“ „Ekkert var nú um þetta samið,“ sagði piltur, „en maður verður víst að reyna, úr því þetta á svona að vera,“ og svo átti konungsdóttir að fela sig fyrst. Gerði konungsdóttir sig þá að önd og fór að synda á tjörninni rétt hjá höllinni. En piltur fór bara út í hesthúsið og spurði Skjóna hvað hún hefði gert af sér. „Æ, taktu bara byssuna þína, farðu niður að tjörninni og miðaðu á þenan andarræfil, sem er þar á sundi,“ sagði Skjóni, „þá finnurðu kóngsdóttur fljótt.“ Piltur sótti byssuna og hljóp niður að tjörninni. mcötnorgunhofíínu Storken landede i Island Kunnasti fuglateikn- ari Dana, Falke Bang, sem teiknar fyrir stór- blaðið Berlingske Tidende, segir frá komu storksins hingað til lands hinn 11. þessa mánaðar og lætur hann teikningu fylgja af storkinum í hinu ís- lenzka umhverfi. — Við látum klausuna og teikn- inguna fylgja hér. Kennari einn í Bret- landi var fyrir skömmu dæmdur til sjö ára fangelsisvistar, en hann hafði ráðist á 14 ára gamlan nemanda sinn, sem kært hafði hann fyr- ir skólastjórninni, en skóli þessi er fyrir fatlaða unglinga. Hafði kennarinn notað barefli er hann lamdi drenginn með og þurftu læknar að taka hvorki meira né minna en 120 spor í höfuð drengsins vegna áverka er hann hlaut af barsmíðinni. Mamma! Sjáðu hérna. Ég bjó til fuglahús eins og sýnt var í sjónvarp- inu í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.