Morgunblaðið - 15.06.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.06.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNl 1975 3 Sigrfður Ólafsdóttir og Sigurður Guðmundsson. Myndin er tekin við heimili þeirra á Selfossi fyrir fáum árum. Þau hafa verið 70 ár í hjúskap Sennilega eru það ekki mörg hjón hér á landi, sem verið hafa f hjónabandi f 70 ár. En á morgun, mánudaginn 16. júnf, eiga 70 ára brúðkaupsafmæli hjónin Sigrfður Ólafsdóttir og Sigurður Guðmundsson fyrrum bankaritari á Selfossi. Á þess- um langa hjúskaparferli hafa þau hjón eignazt samtals 68 af- komendur, sem allir eru á lífi. Sigurður Guðmundsson var kaupmaður á Eyrarbakka fyrr á öldinni og hafði einnig með höndum sparisjóð, er þar var starfræktur. Fyrir um það bil 30 árum fluttust þau hjónin að Selfossi og starfaði Sigurður þar f útibúi Landsbankans. Hann er fæddur á Eyrarbakka 26. nóvember 1878, sonur Guð- mundar Guðmundssonar bókara, sem kallaður var. Sigurður er þvf á 97. aldursári. Sigríður kona hans fæddist á Eyrarbakka 5. marz 1886 og er þvf 89 ára að aldri. Faðir henn- ar var Ólafur Bjarnason tré- smiður. Þau gengu sfðan f hjónaband 16. júní 1905. Þau hjónin hafa eignazt 10 börn. Barnabörnin eru 30' og barnabarnabörnin 28. Alls hafa þau þvf eignazt 68 afkomendur, sem allir eru á lffi. Góð nýting hótelanna — en lítið að gera þessa daganna TILTÖLULEGA mjög lítið er að gera á hótelum borgarinnar þessa dagana, vegna mikilla afpantana er komu f kjölfar verkfallsboð- ana. Hins vegar mun væntanlega verða góð nýting á hótelunum út júlí og ágúst. Sá órói sem verið hefur á vinnumarkaðnum að und- anförnu getur hinsvegar haft margvfslegar afleiðingar f för með sér fyrir hótelin eins og t.d. í sambandi við ráðstefnuhald á næstu árum, þar sem ráðstefnur eru yfirleitt skipulagðar með 2—4 ára fyrirvara. Erling Aspelund hótelstjóri á Loftleiðum sagði i viðtali við Morgunblaðið í gær, að rekstur hótelsins hefði dottið niður sfð- ustu vikurnar vegna fyrirhugaðra verkfalla. Nýting á hótelinu hefði litið vel út, en júni alveg dottið niður vegna ástandsins hél-. Svona nokkuð kæmi harðast á ráðstefnum og t.d. hefði verið ákveðið að hætta við ráðstefnu á hótelinu, sem ákveðin hefði verið 1969. Erlendis væri farið að huga að ráðstefnum fyrir árin 1976—79, en þar væru menn hræddir við óróann á vinnumark- aðnum á Islandi, þyrðu þvf ekki að ákveða ráðstefnur þar. — Já, þetta getur haft áhrif allt fram til 1980, sagði Erling. Konráð Guðmundsson hótel- Saksóknari krefst niðurrifs bílskúrsins við Gnitanes GEFIN hefur verið út ákæra á hendur eiganda hússins nr. 10 við Gnitanes f Reykjavík til þess að brjóta niður bflskúr, sem stendur við húsið. Skv. upplýsingum Har- alds Henryssonar, sakadómara, kemur fram í ákæruskjali, að bygging bflskúrsins brýtur að mati rikissaksóknara f fjórum atriðum gegn byggingarsamþykkt Reykjavfkur og skipulagslögum. I ákærunni, sem birt var húseig- anda sl. þriðjudag, er krafizt niðurrifs bflskúrsins en ekki refs- ingar. Atvik þessa máls eru þau, að byggingarnefnd Reykjavfkur veitti leyfi til byggingar hússins nr. 10 við Gnitanes 14. maí 1970. Akvörðun byggingarnefndar var samþykkt í borgarstjórn 21. maf sama ár. Síðla árs 1970 hófu eig- endur hússins nr. 8 við Gnitanes, Þóra Árnadóttir og dr. Bjarni Jónsson, upp mótmæli gegn bygg- ingu bflskúrs við húsið nr. 10 og munu þau hafa annazt allan mála- rekstur sjálf f máli þessu. Eftir viðræður og bréfaskipti milli þeirra og borgaryfirvalda var þeim tilkynnt í nóvember 1971, að ákvörðun byggingarnefndar yrði ekki breytt. Eigendur hússins nr. 8 skutu þessari ákvörðun borgaryfirvalda til úrskurðar félagsmálaráðu- neytisins. Ráðuneytið kvað upp úrskurð í málinu 16. ágúst 1972 og felldi með honum úr gildi leyfi byggingarnefndar að því er varð- aði byggingu bíiskúrsins við Gnitanes nr. 10. 1 úrskurði félags- málaráðuneytisins var kveðið á um, að tilskildum breytingum framundan stjóri á Sögu sagði þegar Morgun- blaðið ræddi við hann, að mikil lægð væri í rekstrinum þessa dag- ana, t.d. hefði hópur sem pantað hefði átt pláss á hótelinu í gær, flogið áfram án viðkomu og mætti segja að töluverðar afpantanir væru allt fram til 25. júnf, en eftir það væri allt með felldu, og bókanir f júli og ágúst væru svip- aðar og í fyrra. Þá sagði hann að útlitið í haust væri svipað og áður. Björn Vilmundarson forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins sagði, að aðalbókanir á Edduhótelin væru i hópferðum og bókanir væru heldur fleiri en í fyrra. Annað- hvort væri fólk heldur fyrr á ferð, eða þá að áhugi á íslandsferðum væri núna meiri. Þátttakendur í Framhald á bls. 24 skyldi lokið innan 6 mánaða frá uppkvaðningu úrskurðarins. Með bréfi félagsmálaráðu- neytisins dags. 16. júlí 1973 er málið sent til Sakadóms Reykja- vikur og óskað eftir að hann sjáí svo um, að úrskurði félagsmála- ráðuneytisins verði framfylgt, þar eð byggingarnefnd Reykjavíkur hafi ekkert aðhafzt í þvi efni. Sakadómur Reykjavikur sendi málið til umsagnar ríkissaksókn- ara. Með bréfi dags. 8. mai 1974 óskaði ríkissaksóknari síðan eftir því, að Sakadómur Reykjavíkur léti fram fara dómsrannsókn, þar sem kannað yrði, hvort brotið hefði verið gegn byggingarsam- Oswald Dreycr-Eimbckc*. ÞESS VERÐUR MINNZT 1 Ham- borg á þessu ári, að 500 ár eru nú liðin frá því að fyrsta Islandsfarið lagði af stað þaðan. Formaður Is- landsvinafélagsins í Hamborg, Oswald Dreyer-Eimbeke, sem einnig er ræðismaður Islands í borginni, er væntanlegur hingað til Reykjavíkur um þessa helgi og ætlar að flýtja á vegum félagsins Germaniu erindi í Norræna hús- inu um samskipti Þýzkalands og Islands. Erindið verður flutt annað kvöld (mánudag) og hefst kl. Messur VEGNA mistaka féllu messu- tilkynningar niður f blaóinu f gær og er beðizt afsökunar á þvf. Þær eru á bls. 33 f blaðinu f dag. þykkt Reykjavíkur og skipulags- lögum. Þessi dómsrannsókn fór fram síðla árs 1974, en að henni lokinni voru niðurstöðurnar send- ar ríkissaksóknara. Rikissaksóknari hefur nú gefið út ákæru á hendur eiganda húss- ins nr. 10 við Gnitanes til að sæta brottnámi bílskúrsins, en til vara, að honum verði breytt í löglegt horf. I ákæruskjalinu segir, að flatarmál bilskúrsins sé 32,80 fm og lofthæð sé 2,70 m. Brjóti hvort tveggja i bága við byggingarsam- þykkt, þar sem flatarmál bílskúrs er takmarkað við 30 fm og loft- hæð við 2,50 m. 1 öðru lagi segir, að bílskúrinn nái 2,50 fm lengra tii vesturs en byggingarreitur hans sé mark- aður á skipulagsuppdrætti. í þriðja lagi segir, að bíl- skúrinn sé aðskilinn frá íbúð- arhúsinu með 2,40 m breið- um gangi, er brjóti í bága við skilmála á skipulagsuppdrætti af þessu svæði. 1 fjórða lagi er tekið fram að bílskúrinn sé á lóðar- mörkum aðeins 3,50 m sunnan við þegar reist hús nr. 8. Stæró og staður skerði rétt þess húsráð- anda til sólar og birtu á þann veg er varði við ákvæði skipulagslaga og byggingarsamþykktar. 8.30. Einnig verður sýnd kvik- mynd, sem fjailar um Hamborgar- höfn. Afhenti konungi málverk að gjöf STEFAN Jónsson, listmálari frá Möðrudal á Fjöllum, afhenti Svía- konungi málverk að gjöf þegar hann var hér á landi í opinberri heimsókn i s.l. viku. Er þetta oliu- málverk af Akrafjalli. Stefán hugðist afhenda konungi mál- verkið sjálfur fyrir utan Kjarvals- staði s.I. fimmtudag, en að eigin sögn meinaði íslenzka lögreglan honum að nálgast konung. Varð það að ráði að Stefán afhenti sænska sendiráðinu verkið þann sama dag. Fyrsta íslandsf ar- ið frá Hamborg vikuferðir. Brottför 5. júlí, 9 23 ágúst, 6 sept Verð frá kr. 59.900. Júní: 22 og 29 Júlí 6 , 13. 20 og 26 Verð með vikugistingu og morgunverði frá kr. 43.000,- Dvöl á góðum hótelum eða íbúðum á skemmtileg- asta sumarleyfisstað Spánar — LLORET DE MAR — Ódýrar ferðir við hæfi unga fólksins. 16. júní — uppselt. 30. júni — fáein sæti laus. Verðfrá 27.500.- TORREMOLINOS BENALMADENA Næsta brottför 29. júní, Verð með 1. flokks gistingu í 2 vikur frá kr. 32.500.- Allir mæla meö Útsýnarferðum Grikkland Vika i sögufrægri Aþenu og vika á baðströnd við Korintu- flóann. Heillandi sumarleyfi. Brottför um Kaupmannahöfn. 20. ágúst, 2. og 16. september. kr. 89.900.- Þýzkaland Mosel — Rin Vika i Kaupmannahofn. í hugum flestra leikur sér stakur rómantískur töfra- Ijómi um Rinarbyggðir, nátengdur söngvum og j riddarasögum. Brottför: 10. júlí. Verð i 15 daga með gistingu og fullu fæði j k k,, kr. 59.900.- > Gullna ströndin Lignano Bezta baðströnd Italíu. Fyrsta* flokks aðbúnaður og fagurt, friðsælt um- hverfi. Einróma álit far- þeganna frá i fyrra „PARADÍS Á JÖRÐ" Næsta brottför 1 8. júní Fáein sæti laus. Verð með fyrsta flokks gistingu frá ’kr. 34.300.- Ítalía Gardavatniö 2ja vikna dvöl í heillandi umhverfi Gardavatnsins. Brottför 7. ágúst. Verð með gistingu og fullu fæði kr. 61.900. FERÐASKRIFSTOFAN UTSYN AUSTURSTRÆTI 17 SIMAR 26611 OG 2010Ö AMERICAN EXPRESS OG TJÆREBORG EIIVKAUMBOÐ Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.