Morgunblaðið - 15.06.1975, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNl 1975
Jafnrétti kynja — í
orði en ekki á borði
- segja niðurstöður rannsöknar námsbrautar
í þjóðfélagsfræðum við Háskóla íslands
Erich Arnulf Stegman, stofnandi og forseti samtaka fót- og munn-
málara — vinnur hér að einu verka sinna.
Samtök Fót- og
munnmálara kynnt
hér á landi
9 .. ÞÓTT karlar og konur búi við
sama lagalega rétt til menntunar,
atvinnu, launa og stjórnmálalegra
áhrifa, skortir i raun mikið á, að
jafnrétti kynjanna riki á þessum
sviðum. Konur hafa almennt minni
menntun en karlar. Þær sækja færri
skóla og temja sér einhæfara náms-
val. Atvinnulíf landsins greinist i
ákveðin karlastörf og kvennastörf.
Karlar eru ríkjandi við aðalatvinnu-
vegi þjóðarinnar, tæknistörf og
stjórnun. Konur sinna heimilis-
verkum, barnagæzlu og ýmiss konar
þjónustustörfum. Kvennastörf eru
yfirleitt verr launuð en störf karla og
tekjumunur karla og kvenna er á
flestum sviðum allverulegur. Þjóð-
félagsleg forysta — á Alþingi og i
sveitarstjórnum, í embættiskerfi,
stjórnmálaflokkum og hagsmuna-
samtökum — er nær algerlega t
höndum karla. Þrátt fyrir lagalegan
rétt skipa konur þannig á fæstum
sviðum sama sess og karlar."
0 Þessar eru í megindráttum niður-
stöður skýrslu námsbrautar i þjóð-
félagsfræðum við Háskóla Íslands
um jafnrétti karta og kvenna að þvi
er varðar menntun, atvinnu, launa-
kjör og forystu í íslenzku þjóðlifi.
Aðdragandi skýrstu þessarar er sá,
að árið 1971 samþykkti Alþingi til-
lögu um rannsókn á jafnrétti þegn-
anna I íslenzku þjóðfélagi á áður-
nefndum fjórum sviðum. Árið 1972
fól félagsmálaráðuneytið námsbraut-
inni að framkvæma þessa rannsókn.
Upphaflega fólst einnig í tillögu
þessari könnun á hugsanlegum
breytingum á gerð þjóðfélagsins sem
stuðlað gætu að auknu jafnrétti.
Kennarar námsbrautarinnar töldu
óhjákvæmilegt að takmarka rann-
sóknina við rannsókn á raunveru-
legu jafnrétti karla og kvenna. Sú
skýrsla sem er árangur þessarar
rannsóknar er því fyrst og fremst
lýsing á ástandinu eins og það er og
eins og líkur benda til að það muni
verða, en ekki skýring á þvl, eins og
þrlr að aðstandendum skýrslunnar,
dr. Ólafur Ragnar Grimsson prófess-
or, Þorbjörn Broddason lektor og
Haraldur Ólafsson lektor sögðu á
blaðamannaf undi I gær þar sem
skýrslan var kynnt. Samantekt efnis
vegna rannsóknarinnar var hins
vegar að mestu I höndum eins af
nemendum námsbrautarinnar, Guð-
rúnar Sigriðar Vilhjálmsdóttur B. A.
Skýrslan kom út i gær sem fyrsta rit
nýrrar ritraðar af rannsóknarverkum
um islenzkt þjóðfélag, sem náms-
brautin og bókaútgáfan Örn & Örlyg-
ur hafa tekið höndum saman um að
gefa út.
í skýrslunni er gerð itarleg grein fyrir
athugunum á hverju fyrrnefndra fjög-
urra sviða með töflum og línuritum,
niðurstöður dregnar saman og úr-
dráttur á ensku birtur í rannsókninni
er jafnrétti skýrgreint sem jöfn hlut-
fallsleg skipting karla og kvenna og i
samræmi við það voru fyrst og fremst
tekin til athugunar fjöldi og dreifing
kynjanna á hinum ýmsu menntastig-
um, í atvinnugreinum og launaflokkum
og í ýmsum helztu forystustöðum þjóð-
félagsins Aðstandendur rannsóknar-
innar sögðu að þótt hún væri kannski
ekki tæmandi lýsing á ástandinu í
þessum efnum þá veitti hún býsna
greinilega heildarmynd af ríkjandi
einkennum þess Þessi lýsing miðast I
höfuðatriðum við árabilið 1970—73,
en verulegur hluti talna og annarra
upplýsinga er byggður á Hagstofu-
skýrslum og öðrum könnunum á þessu
sviði sem áður hafa farið fram. Skýrsla
ná msbrautarinnar er 287 bls að
stærð, en hér á eftir verður drepið á
nokkur dæmi um ástandið á þeim
fjórum sviðum sem rannsóknin beind-
ist að
0 Menntun: í rannsókninni kemur
fram að nokkrar breytingar séu
að verða á menntun kvenna
Fleíri konur ganga mú mennta-
veginn og þeim fjölgar hlutfalls-
lega meir en körlum I mennta-
skólum (nú um 40% nemenda; 32%
árið 1966—7), verzlunarskólum
(58% 1971—2, 50% 1966—7),
kennaraháskólanum (hafa verið um og
yfir 60% undanfarin ár), og
háskólanum (nú tæp 30%, 25%
1961, 20% 1951) í iðn- og tækni-
skólum fjölgar konum hins vegar ekki
teljandi (innan við 10% I Tækni- og
Velskólanum, iðn-, flug-, sjómanna- og
bændaskólum) Skólaárið 1972-—3
voru 60 konur i Iðnskólanum í Reykja-
vik (7,5%), þar af 51 I hárgreiðslu.
Námsvalið er því mjög kynbundið,
bæði er varðar skóla og deildir innan
skóla Konur fara fremur í bóknáms-
greinar og hugvisindi en verknám og
raunvisindi Þess mS geta að konur
stunda fullorðinsfræðslu meir en karl-
ar, og voru t d. 67% nemenda i öld-
ungadeild M H sem tóku próf vorið
1973.
0 Atvinna: Hið kynbundna vaf á
skólum og deildum er í nánum tengsl-
um við hina hefðbundnu hlutverka-
skipan kynjanna i þjóðfélaginu, eink-
um í atvinnulífinu, þar sem þróazt hafa
karlastörf og kvennastörf, segir I
skýrslunni. Konur gegna litið sem ekk-
ert tæknistörfum, vísindastörfum,
stjórnun, sjómennsku, samgöngustörf-
um, varðstörfum og ýmsum iðnaðar-
og verkamannastörfum. Varðandi
heildarþátttöku kynjanna I atvinnu-
llfinu kemur fram að 1 960 voru 87%
allra karla 15 ára og eldri virk við
atvinnustörf, en aðeins 33% kvenna. Á
meðan starfsferill karla er yfirleitt sam-
felldur einkenna miklar aldursskeiðs-
sveiflur atvinnuþátttöku kvenna. Hins
vegar kemur fram að 1 963—70 eykst
atvinnuþátttaka giftra kvenna með ein-
hverjar launatekjur úr 37% í 52%.
0 Laun: Fram kemur i skýrslunni að
þrátt fyrir launajafnréttislög frá árinu
1961 er margvislegt launamisrétti en
við lýði. T.d kemur fram að laun
kvenna i fiskvinnu voru árið 1966
95,9% af launum karla, en 1971 var
hlutfallið 97,5%. Timakaup kvenna i
verksmiðjuvinnu var 1966 80,3% af
karlakaupinu 1972 var hlutfallið
82,7%. Laun kvenna við afgreiðslu-
störf voru 1967 73,8% af launum
karla. 1971 var hlutfallið óbreytt
Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær
að lagalegur réttur, sami starfsaldur
eða lengri, jöfn menntun og sams-
konar starfsheiti duga konum ekki i
reynd til sömu launa og karlar.
0 Forysta: Forystuhlutverkíð í
Islenzku þjóðfélagi er nær eingöngu i
höndum karla. Konur hafa á undan-
förnum árum skipað um 1/5 allra
sæta á framboðslistum stjórnmála-
flokkanna við þingkosningar, og flestar
hafa verið í svokölluðum uppfyllingar-
sætum. Siðustu tvö kjörtimabil hafa
konur verið aðeins 5% alþingismanna
Á siðasta kjörtlmabili voru konur 2,4%
allra sveitarstjórnarmanna, en við
kosningar 1974 hækkaði hlutfallið i
3,6%. Stjórnendur embættiskerfisins
eru allir karlar, nema hvað tvær konur
eru deildarstjórar í ráðuneytum f mikl-
um fjölda stjórna, nefnda og ráða á
vegum ríkisins eru konur aðeins 3,2%.
Mun færri konur en karlar eru félagar í
stjórnmálaflokkunum og örfáar eiga
sæti í yfirstjórnum þeirra.
0 Litlar likur á skjótum breytingum:
I skýrslunni kemur fram að litlar líkur
eru á meginbreytingum þessa ástands
innan tveggja áratuga miðað við nú
verandi þróun. Aðstandendur rann-
sóknarinnar sögðu á blaðamannafund-
inum að það hefði komið þeim einna
mest á óvart að þrátt fyrir allt tal um
aukið jafnrétti kynja undanfarið þá virt-
ist breytingin vera afskaplega lítil,
þróunin hæg. Veruleg breytíng krefðist
kennski fyrst og fremst uppstokkunar
hefðbundinna viðhorfa almennings
Megin gildi skýrslunnar ætti að vera
umræðugrundvöllur fyrir opinbera að-
ila og áhugafólk um þessi mál, en
einnig væri þörf á að fylgja henni eftir
með framhaldsrannsókn, —könnun á
Framhald á bls. 24
I NÆSTU viku er væntanlegur
hingað til lands dr. Erich Arnulf
Stegmann, en hann er forseti og
stofnandi einstæðs hóps lista-
manna, er allir eiga það sameigin-
legt að geta ekki notað hendur
eða handleggi sfna en hafa til-
einkað sér að nota pensil með þvf
að halda honum milli tanna sér
eða með tánum. Sumt af þessu
fólki fæddist bæklað en annað er
fórnarlömb lömunarveiki,
styrjalda eða slysa.
Núna eiga listamenn frá 29
löndum aðild að samtökum fót- og
munnmálara, en það var stofnað
árið 1956 í Liechtenstein í Sviss.
Einungis þeir sem mála með tönn-
um eða tám geta orðió félagar í
samtökunum, en sérstök dóm-
nefnd listgagnrýnenda sker úr
um hvort umsækjendur ráði yfir
nægilegu listfengi til að geta orð-
ið félagar að samtökunum.
Stegmann sjálfur lamaðist 3ja
ára að aldri og missti allt afl í
handleggjum. Mjög snemma
kenndu foreldrar hans honum að
skrifa með því að halda á penna
mjlli tannanna. Stegmann stund-
aði síðan nám í ýmsum skólum en
lauk námi frá myndlistarskóla.
Allt síðan hefur hann helgað líf
sitt málaralistinni og jafnframt
haft það að leiðarljósi að aðstoða
aðra sem álíka er komið fyrir til
að endurheimta trú, hugrekki og
nægan styrk til að komast í raðir
skapandi listamanna. Þess vegna
skipulagði hann árið 1955
Association of Mouth and Foot
Painting Artist á alþjóðlegum
grundvelli.
Hingað kemúr Stegmann til að
kynna samtök sín fyrir íslending-
um með fundi að Hótel Loftleið-
um hinn 19. júní, en þar mun
hann m.a. sýna hvernig hann mál-
ar með því að halda á pennslinum
milli tannanna. Isamtökunum eru
ýmsir þekktir listamenn, en hér-
lendis er þó liklega þekktastur
írski rithöfundurinn Christy
Brown, sem reit fræga skáldsögu
— My Left Foot“ með tánum á
ritvél sina en upp á siðkastið hef-
ur hann einnig fengizt við list-
málun með umtalsverðum
árangri.
Paul Keres
látinn
Paul Keres er látinn. Fyrir
nokkrum dögum barst þessi
fregn um allan heim, og hvar-
vetna hörmuðu skákmenn og
skákáhugamenn hinn horfna
snilling. Með Paul Keres er
genginn einn mesti skáksnill-
ingur allra tíma. Hann varð
aldrei heimsmeistari, tefldi
ekki einu sinni um titilinn. Því
olli óheppni og tilviljun. Hér er
hvorki staður né stund til þess
að rita minningargrein um
Paul Keres, en engu að siður
skulu talin upp helztu atriðin í
löngum skákferli hans. Paul
Keres fæddist í borginni Narva
í Eistlandi hinn7. janúar 1916
og var þvi á sextugasta aldurs-
ári er hann lézt. Hann lærði
barnungur að tefla, en vakti
fyrst athygli í heimaborg sinni,
sem þá var Párnu, er hann sigr-
aði I hraðskákmóti borgarinnar
árið 1929. A næstu árum tefldi
Keres mikið á heimavettvangi,
og sömuleiðis tefldi hann bréf-
skákir í stórum stíl. Er sagt, að
hann hafi stundum teflt allt að
150 bréfskákir i einu.
Arið 1934 varð Keres skák-
meistari Eistlands i fyrsta
skipti og árið eftir tefldi hann á
1. borði fyrir Eistland á Ólym-
píumótinu í Varsjá. Þar vakti
hann heimsathygli fyrir mjög
skemmtilega taflmennsku og
frábæra frammistöðu. Hann
hlaut 66% vinninga. Á næstu
árum tefldi Keres feikimikið og
árið 1938 vann hann glæsilegan
sigur á AVRO-mótinu svo-
nefnda í HoIIandi. Þá þótti
hann sjálfsagður áskorandi
heimsmeistarans, A. Aljekín.
Aljekín samþykkti að tefla við
Keres u-m titilinn, en áður en
frekari ákvarðanir voru teknar
brauzt síðari heimsstyrjöldin út
og ekkert varð af einviginu.
Styrjaldarárin léku Paul Ker
es grátt. Föðurland hans, Eist-
land var mjög illa úti í stríðinu
og sjálfur flæktist hann um
Evrópu og tefldi í þeim mótum
sem haldin voru. Eftir styrjöld-
ina var Keres orðinn sovézkur
þegn, og þá kom í ljós, að hann
var ekki samur og áður. Hann
hóf fljótlega þátttöku í skák-
mótum innan Sovétríkjanna, en
árangurinn lét á sér standa. Ár-
ið 1948 tók Keres þátt í keppn-
inni um heimsmeistaratitilinn,
en náði „aðeins“ 3.—4. sæti.
Eftir 1950 fór Keres að ganga
betur. Þá sigraði hann í mörg-
um öflugum skákmótum innan
Sovétrikjanna og utan. Árið
1959 stóð Keres sennilega á há-
tindi frægðar sinnar, er hann
varð 1 öðru sæti á eftir Tal i
áskorendamótinu í Júgóslaviu,
aðeins hársbreidd frá sigri. Eft-
ir þetta fór heldur að halla und-
an fæti hjá honum, þótt enn
ætti hann eftir að vinna marga
glæsta sigra. Siðasta stórmótið,
sem Keres sigraði á, var skák-
þingið í Tallinn í vetur sem
leið.
Keres tefldi á fleiri Ölympíu-
skákmótum en nokkur annar,
eða alls 10, og hin siðari árin
var hann stundum fyrirliði sov-
ézku sveitarinnar. Hann var af-
kastamikill rithöfundur um
skák og skrifaði m.a. bækur um
spánska leikinn og franska
vörn. Með Paul Keres er mikill
snillingur horfinn af sjónar-
sviðinu, en minning hans mun
Skák
eftir JÓN
Þ. ÞÓR
lifa í fjölmörgum meistaraskák-
um, sem hann tefldi um ævina.
Þegar velja skal skák frá
hendi Keresar til birtingar er
manni nokkur vandi á höndum.
Fjölmargar skákir koma til
greina. Sjáifur hef ég lengi haft
mikið dálæti á skákinni, sem
hér fer á eftir. Hún var tefld á
skákmóti í Noordwijk í Hol-
landi árið 1938.
Hvítt: P. Keres
Svart?JH. Euwe.
Réti-byrjun
1. Rf3 — d5, 2. c4 — d4, 3. e3 —
Rc6, 4. exd4 — Rxd4, 5. Rxd4
— Dxd4, 6. Rc3 — Bg4(?), 7.
Da4 — c6, 8. d3 — Rf6, 9. Be3
— Dd7, 10. d4 — e6, 11. f3 —
Bf5, 12. 0-0-0 — Bd6, 13. g4! —
Bg6, 14. h4 — h5, 15. g5 — Rh7,
16. c5 — Be7, 17. d5! — 0-0, 18.
dxc6 — Dxc6, 19. Dxc6 — bxc6,
20. Hd7 — Hfe8, 21. Ba6 — e5,
22. Hc7 — Rf8, 23. Bb7 —
Hab8, 24. Bxc6 — Re6, 25. Bxe8
— Rxc7, 26. Bd7 — a5, 27. c6 —
Hb4, 28. b3 — f6, 29. Kb2 —
fxg5, 30. hxg5 — Bf7, 31. Hdl
— Ilh4, 32. IId2 — Hhl, 33. f4!
— Bb4, 34. fxe5 — Bg6, 35. a3
— Bxc3, 36. Kxc3 — h4, 37. e6
— Hel, 38. Kd4 — Kf8, 39. Bf2
— Rxe6+, 40. Kd5 — Rc7+, 41.
Kc5 — gefið.