Morgunblaðið - 15.06.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.06.1975, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNl 1975 ■MEGRUNARFÆÐI—' Nýtt sex daga námskeið (dag og kvöldtimar) hefst fimmtudaginn 19. júni. Kennt verður: 1. Grundvallaratriði næringarfræði. 2. Gerð matseðla. Ahersla er lögð á næringarrikt, Ijúffengt og hitaeiningarýrt fæðí. 3. Sýndir verða grænmetis-, ávaxta- og baunaréttir. Forðist skaðlegar megrunaraðferðir Innritun og upplýsingar í sima 86347 Kristrún Jóhannsdóttir manneldisfræðingur. ■ SÝNIKENNSLA *** Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar Vonai^tmet^^ím^5500 ^^^^^l ' Félagsstarf eldri borgara Dagskrá f. ferðir í júní og júlí 1975. Fimmtudagur 19. júní Akranesferð Fimmtudagur 26. júní Skoðunarferð að Kjar- valsstöðum Fimmtudagur 3. júlí Keflavíkurferð Mánudagur 7. júlí Skoðunarferð í Norræna húsið Fimmtudagur 10. júlí Skoðunarferð í kirkjur t Hafnarfirði og Kópavogi Mánudagur 14. júlí Skoðunarferð í Þjóðminjasafnið Fimmtudagur 17. júlí Kjós, hringferð um Kjósarskarð að Meðalfellsvatni Mánudagur 21. júlí Ferð um Heiðmörk og Álftanes Fimmtudagur 24. júlí Laugarvatn, hringferð um Mosfellsheiði, Grimsnes Mánudagur 28. júli Skoðunarferð um Vinsamlegast ath. Reykjavík Lagt verður af stað frá Alþingishúsinu í allar ferðir. Nauðsynlegt er að panta far með góðum fyrirvara, í síðasta lagi 2 dögum fyrir hverja ferð. Þátttaka tilkynnist og upplýsingar veittar í síma 18800 hjá Félagsstarfi eldri borgara, kl. 10.00—12.00 alla virka daga. Geymið auglýsinguna. Samfestingar — Mussur — Kjólar — Buxur — Pils — Jakkar. Nýjar vörur daglega. Miðbæjarmarkaðurinn, Austurstræti 9, sími 14470. FRÁ BORGAR- r Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri: Framkvæmdir geta hafist við 760íbúðir STJORN VIÐ umræður í borgarstjórn si. fimmtudag um tillögu Björgvins Guðmundssonar um úthlutun fjölbýlishúsalóða upplýsti Birgir lsleifur Gunnarsson borgarstjóri, að á þessu ári yrði sennilega unnt FÉLAGSFUNDUR Félag íslenzkra stórkaupmanna heldur almenn- an félagsfund mánudaginn 16. júní kl. 12 að Hótel Sögu, hliðarsal. Dagskrá: Samningarnir. Félagsmenn fjölmennið. Stjórn F.Í.S. Húsbyggjendur Einangrunar- plast Getum afpreitt einangrunarplast á Stór- Reykjavikursvæðið með stuttum fyrirvara. Afhending á byggingarstað. HAGKVÆM VERÐ. > GREIÐSLUSKILMÁLAR Borgarplast hf. Borgarnesi sími: 93-7370 Kvöldsími 93-7355. Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar, skemmdar eftir árekstur: Fiat 127 1974 Ford Cortina 1 971 Bifreiðarnar verða til sýnis að Trönuhrauni 1, Hafnarfirði mánudaginn 1 6. júní 1975. Tilboð skilast á skrifstofu Almennra Trygginga fyrir kl. 5 miðvikudaginn 1 8. júní 1 975. að hefja byggingarframkvæmdir við 760 íbúðir I Reykjavík. Hér væri um mjög svipaðan fjölda að ræða eins og á sfðasta ári. Þá sagði borgarstjóri, aó sú stefnu- breyting hefði orðið, að reynt hefði verið að úthluta meira af lóðum undir einbýlishús og rað- hús en gerl hefði verið á undan- förnum árum. Björgvin Guðmundsson mælti fyrir tillögu sinni, en þar segir, að með því að fyrirsjáanlegt sé, að mikill skortur verði á lóðum und- ir sambýlishús i Reykjavík á þessu ári, samþykkti borgarstjórn að hraða sem mest öllum undir- buningi að úthlutun sambýlis- húsalóða, einkum þeirra, sem unnt verður að úthluta i sumar án mikils kostnaðar. Sérstaklega er lagt til, að borgarstjórn samþykki að flýta undirbúningi að uthlutun lóða undir fjölbýlishús á Eiðs- granda. Birgir tsleifur Gunnarsson upp- lýsti, að hann hefði þegar ritað skipulagsnefnd bréf, þar sem hann hefði óskað eftir því, að undirbúningi við Eiðsgranda- svæðið yrði hraðað. Þá tók borgar- stjóri fram, að sá niðurskurður á útgjöldum borgarinnar, sem ný- lega hefði verið samþykktur, hefði ekki i för með sér fækkun fjölbýlishúsalóða frá því, sem reiknað hefði verið með. Borgarstjóri sagði ennfremur, að á árinu 1970 hefði verið úthlut- að 739 íbúðum, árið 1971 hefði verið úthlutað 1017 ibúðum, árið 1972 hefði verið úthlutað 1366 íbúðum, árið 1973 1146 ibúðum og árið 1974 hefði verið úthlutað 756 ibúðum. Lóðir sem úthlutað yrði í ár, væru heldur færri en í fyrra. En þar kæmi á móti, að verulegur hluti þeirra lóða, sem úthlutað hefði verið 1974 yrði fyrst tilbú- inn á þessu ári. Borgarstjóri sagði, að á árinu 1970 hefðu verið hafnar framkvæmdir við 685 íbúðir, árið 1971 við 664 ibúðir, árið 1972 við 895 íbúðir, árið 1973 við 1133 íbúðir, árið 1974 við 786 ibúðir og á þessu ári yrði væntan- lega unnt að hefja framkvæmdir við 760 íbúðir. Á árunum 1972 og 1973 hefði um 80 til 90% af íbúðunum verið i fjölbýlishúsum. Sú stefna hefði komið niður á einbýlishúsum og raðhúsum. Borgin hefði verið gagnrýnd fyrir þetta. Af þeim sökum hefði verið reynt að snúa þessari þróun við. Tillögunni var vísað til borgar- ráðs með 13 samhljóða atkvæðum. Könnun á flugvallargerð Á FUNDI borgarstjórnar sl. fimmtudag var til umræðu tillaga frá borgarfulltrúum Framsóknar- flokksins um að mælast til þess við Alþingi, að það veitti þings- ályktunartillögu um könnun á flugvallargerð á svonefndum lönguskerjum i Skerjafirði jákvæða afgreiðslu. Kristján Benediktsson mælti fyrir tillögunni. Einnig tók til máls Markús Örn Antonsson. Til- lögunni var með samhljóða atkvæðum vísað til athugunar skipulagsnefndar og borgarráðs. • • Okukennsliisvæði Á FUNDI borgarstjórnar sl. fimmtudag var til umræðu tillaga frá Kristjáni Benediktssyni um úthlutun á athafnasvæði fyrir ökukennarafélag Islands til nota við kennslu byrjenda í bifreiða- akstri. Auk flutningsmanns tók Davíð Oddsson til máls um tillöguna, sem vísað var til athugunar borgarráðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.