Morgunblaðið - 15.06.1975, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.06.1975, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNl 1975 Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen Jú, það er því betra sem fleiri eru, og ég hef líka mikla trú á, að þér munduð gefa einhver góð ráð; og látum okkur þá halda af stað eða má ég ekki vænta þess, að þér veitið mér þá ánægju? Það sýnist mér, sagði Guðrún og hvísl- aði um leið að Sigríði: Æ, hvað á nú þessi tepruskapur lengur að þýða, að láta hann vera allajafna að ganga á eftir sér um svo lítið? Er það nú skjótt af að segja, að þær stallsystur gengu af stað með Möller. Hús það, sem Möller átti heima í, var ekki mjög stórt, en allsnoturt, að því sem gjöra var í Reykjavík. Því var skipt í tvo hluti; I öðrum endanum var sölubúðin, það var allur nyrðri helmingur hússins. Á ny'rðri húshliðinni voru dyr og anddyri inn af, næstum því svo langt sem húsið var breitt til. Til hægri handar úr and- dyrinu var gengið til gestastofu Möllers; stofan var ekki breiðari en svaraði hálfri breidd hússins, en svo löng sem vestari húsendinn var til. Aðrar dyr lágu úr anddyrinu, samsíðis við stofudyrnar; þessar dyr Voru að skrifstofu Möllers. Innar af skrifstofunni var aftur herbergi það, sem Möller svaf í, og mátti úr því bæði ganga í skrifstofuna og fram í gesta- stofuna, og sneru gluggarnir á því og skrifstofunni út að dálitlum kálgarði, er lá baka til við húsið og skildur frá stræt- inu austanverðu með rimagarði. Yfir þessum enda hússins var og loft og nokkur herbergi f, en ekki voru þau notuð til annars en að Kristján búðar- maður Möllers svaf í einu þeirra og pilt- ur einn, sem Möller hafði sér við hönd til smávika; og ekki voru þar fleiri í húsinu en þeir þrír, því Möller fékk að mat og alla þjónustu. Möller leiddi þær stall- systur inn í stofuna, og stóð þar ljós á borði. Hérna sjáið þér nú híbýlin, jómfrú góð! Ég vildi óska þess, að yður litist vel á yður; sjáið þér, þetta er gestastofan; hérna innar af er herbergi, sem ég hef haft til að sofa í; en nú hef ég hugsað mér það svona: Hérna á hliðinni, sem snýr út til kálgarðsins, læt ég gjöra dyr og setja þar fram af dálítið trébyrgi og læt svo Stúfur litli tröllið, en ekki var hann nú eins hugaður og hann hafði sagt, því þegar niður í hvamminn kom, klifraði Rauður riddari strax upp í tré eitt, sem stóð uppi í brekkunni, og faldi sig þar á milli grein- anna, eins vel og hann gat. Konungsdótt- ir grét og bað hann að hjálpa sér, en Rauður var nú ekki að láta það á sig fá. „Það er betra að einn missi lífið, en tveir“, sagði hann. Meðan þessu fór fram, bað Stúfur litli eldabuskuna um að lofa sér að skreppa út og leika sér svolítið. „Æ, ég held þú hafir ekki mikið út að gera svona seint“, sagði eldabuskan. „Ó, góða, bezta, lofaðu mér að skreppa snöggvast“, sagði Stúfur þá, og gerði sig eins blíðan og hann gat. „Heldurðu ekki að mig langi til að skemmta mér svolítið með hinum piltunum“. „Æ, farðu þá“, sagði eldabuskan, „en mundu mig um það, að koma með fullt fangið af eldiviði, þegar þú kemur aftur“. Þessu lofaði Stúfur litli, og hljóp svo niður í hvamminn. En um leið og hann kom þar að, sem konungsdóttir sat, kom tröllið þjótandi svo hvein og brakaði í öllu. Það var svo stórt og digurt, að það var ógurlegt að sjá, og fimm hausa hafði það. „Eldur og brennisteinn", æpti tröllið. Maigret og guli hundurinn Eftir Georges Simenon Þýðandi Jóhanna Kristjönsdóttir 12 aó boróinu. Gestgjafinn kom úr eldhúsinu, en Maigret var enn tregur til aó hlusta á umkvartanir hans. Um háiffimmleytið kom Ernst Miehoux nióur, f inniskónum. Silkiklútur um háisinn var votur af svita. — Svo að þér eruð enn hérna. iögregluforingi. Þaó virtist hafa sefandi áhrif á hann. — Og aðstoðarmaður yðar? — £g sendi hann út f bæinn... — Og hundurinn? — Hann hefur enginn séð sfð- an f morgun... Gólfið var grátt, hvftar marmaraplöturnar höfðu bláar æðar. Út um gluggana sást f upp- lýsta bæjarklukkuna sem vantaði tfu mínútur f fimm. — Er enn ekkert vitað um hver skrifaði greinina? Greinin lá á borðinu og að iok- um sáu þeir aðeins þessi orð: „Hver verður næsta fórnar- lambið?" Sfminn hringdi. Emma tók tól- ið. — Nei. Ekkert... Ég veit ekk- ert... — Hver var það? spurði Maigret. — Aftur eitthvert blað í Parfs... Blaðamennirnir fara vfst að koma f strfðum straumum. Hún hafði varla sleppt orðinu, þegar aftur var hringt. — Það er til yðar, lögreglu- foringi. Doktorinn var náföiur og fylgdi Maigret með augunum. — Maigret lögregiu- foringi... Við hvern tala ég? — Það er ég. Leroy. Ég er í ferjustaðnum f gamla bænum. Það var skothrfð. Skósmiður hafði séð gula hundinn út um gluggann og skaut... — Er hann dauður? — Nei, en særður. Hann dregst varla áfram. ..fólk þorir ekki að koma í námunda við hann... Ég hringi frá kaffistofu... hundur- inn liggur úti á miðri göt- unni... ég sé hann út um glugg- ann... hann ýlfrar og kveinkar sér af sársauka... Hvað á ég að gera? Leroy reyndi að hafa vald á rödd sinni, en hann var óstyrkur hvort sem það stafaði af þvf sem hafði komið fyrir hundinn eða af því að hann leit á hann sem yfirnáttúrlega veru. — Það er fólk að glápa f hverj- um glugga. Eigum við að skjóta hann, lögregluforingi? Að baki Maigrets stóð iæknir- inn fölur sem lfk og spurði með andköfum: — Hvað er að? Hvað segir hann... ? Lögregluforinginn sá Emmu standa við afgreiðsluboiðið með f jarrænan glampa í augum. 4. kafli LIÐI SAFNAÐ Maigret gekk yfir vindubrúna og áfram milli kastaiamúranna. kom sfðan inn í bugðótta og illa lýsta götu. Og lögregluforinginn, kom inn f svo djúpa þögn að það var engu lfkara en allir hefðu verið slegnir sprota og gætu hvorki hrært legg né lið. Einstakar raddir heyrðust þó frá unglingum, sem töluðu digur- barkalega. Maigret ruddist gegnum mann- þröngina. Þarna voru aðaliega unglingar. Tveir þeirra héldu áfram að kasta steinvöium að hundinum. Félagar þeirra reyndu að fá þá tii að hætta. En geta mátti sér til um hvað sagt var: — Gættu þfn nú. Einn þeirra, sem hafði verið að kasta steinum, roðnaði út að eyr- um, þegar Maigret ýtti honum til liliðar og gekk að helsærðu dýr- inu. Þögnin hafði breytzt. Sú óhugnanlega æsing sem hafói rfkt hjá viðstöddum fyrir augnabliki hafði breytzt. Gömul kona hrópaði úr giugganum sfnum: — Þetta er viðbjóðslegt... Þér ættuð að handtaka þá alla. lögregluforingi... Þeir kvelja veslings dýrið.. Og ég veit fullvel hvers vegna... Þeir eru hrædd- ir... skítlogandi hræddir. Skósmiðurinn sem hafði skotið á hundinn hvarf vandræðalegur inn f vinnustofu sfna. Maigret beygði sig niður og klappaði hundinum vinalega og dýrið leit á hann og virtist undrandi að fá blíðuhót. Leroy lögreglumaður kom út úr kaffistofu. þar sem hann hafði fengið lánaðan síma. Fólk hörfaði frá staðnum en ekki fúst. — Við verðum að ná f vagn til að fl.vtja hann á... Gluggarnir lokuðust hver af öðrum, en bak við gluggatjöldin mátti greina forvitin andlit. Hundurinn var skftugur og feld- urinn ataður blóði. Þegar hann fann nú umhyggju á ný varð hann rólegur og fullur af trausti og reyndi ekki að dragast áfram eftir jörðinni, þar sem voru ótal steinar, sem að honum hafði verið kastað. — Hvert eigum við að fara með hann, lögregluforingi? — Til gistihússins... Farið var- lega... setjið voð undir hann... 1 aðra röndina var þessi skrúð- ganga hlægileg, en yfir henni hvfldi einhver dularfullur blær sem kannski mátti Ifkja við helgi, vegna þeirrar hræðslu sem hafði skotið rótum í allra hugum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.