Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNl 1975
17
„Listiðja í dagsins önn —
kvennavinna" nefnist sýningin,
sem opnuð var í gær í Bogasal
Þjóðminjasafnsins í tilefni hins
alþjóðlega kvennaárs. Þar eru
hefðbundnir nytjamunir, unnir af
konum á svokölluðum útjaðar-
svæðum Norðurlantla, þ.e. á
Grænlandi, Færeyjum, Álands-
eyjum, Islandi og meðal Sama.
Eru hingað komnar í tilefni sýn-
ingar ■ fulltrúar þessara þjóða,
Olevina Joensen frá Torshavn,
Marianne Nilsson frá Vilhelmina,
Mona Sundberg frá Álandseyjum,
en grænlenzku fulltrúunum varð
að snúa við vegna yfirvofandi
verkfalla. Þeir koma væntanlega
um næstu helgi. Hérlendis völdu
sýningarmuni Elsa E. Guðjónsson
safnvörður og Gerður Hjörleifs-
dóttir verzlunarstjóri.
Sýningin verður sett upp á
nokkrum stöðum utan Reykja-
víkur og fer siðan til hinna land-
anna. Því varð hún að vera með-
færileg og var miðað við að frá
hverjú landi yrðu ekki nema
20—30 sýningarmunir, sem ekki
vægju nema 10 kg og kæmist hver
sýning í eina tösku. Norræni
menningarsjóðurinn veitti styrk
Gestirnir þrfr, sem komnir eru á kvennasýninguna f þjóðbúningum
landa sinna. Þær eru Olevina Joensen frá Thorshavn (fyrir miðju),
Marianne Nilsson frá Vilhelmina (t.h.) og Mona Sundberg frá Álands-
eyjum (til vinstri). Grænlenzki fulltrúinn kom ekki f tæka tíð.
Kvennavinna;
Listiðja frá Sömum, Færeyjum
Grænlandi, Álandseyjum, íslandi
IJngtemplarar tyrfa í Eyjum
FÓLK úr ungtemplarafélaginu Flakkarinn í Vestmanna-
eyjum hefur unnið að þvf að undanförnu að tyrfa 1000
fm. lóð Breiðabliks í Eyjum en lóðin var mjög skemmd af
ösku. Um 20 krakkar hafa unnið við þetta verk að
undanförnu, en þau fóru m.a. með Herjólfi til Þorláks-
hafnar og hlóðu torfinu á 23 bretti þar á einum klukku-
tíma meðan Herjólfur beið. Vestmannaeyjakaupstaður
borgar torfið, en krakkarnir leggja til vinnuna.
til sýningarinnar og einnig veitti
islenzka menntamálaráðuneytið
nokkurn styrk. Þjóðminjasafnið
lagði til húsnæði en sýningin
verður þar opin 14.—22. júní kl.
14—19 virka daga og 14—22 um
helgar. Uppsetningu önnuðust
Asgerður Höskuldsdóttir og
Lovísa Christiansen.
Þjóðleg skreytilist er grunn-
tónn sýningarinnar, enda hafa
konur í afskekktum landshlutum
löngum átt fáa aðra kosti list-
rænnar tjáningar en að skreyta
fatnað og annan búnað heimilis-
ins. Þar eru margir fallegir og
forvitnilegir munir. Samar sýna
t.d. tinsaum, sem mikið var notað-
ur þar allt frá 15.—16. öld og
kominn aftur og einnig rótartága-
muni, Grænlendingar sýna sinn
skrautlega perlusaum og skinn-
muni, Færeyingar sýna t.d. fugls-
vængjasópa og margskonar út-
prjónaða ullarvinnu, Álandsey-
ingar sýna hörvinnu, sínar sér-
stöku tuskumóttur og brúðar-
kistil, sem nú er þar farið að nota
aftur. En á islenzku sýningunni
m.a.d. sjá roðskó, ask sem kona
hefur skorið út, og margskonar
ullarvinnu. A öllum sýningar-
deildunum eru sýndir þjóðbún-
ingar.
A myndinni sést hvernig hin fyrirhugaða Norðfjarðarhöfn mun lfta út.
Norðfjarðarhöfn hönnuð
í straumfræðistöðinni
Að undanförnu hefur verið
unnið að því í straumfræðistöð-
inni i Keldnaholti að hanna hina
nýju Norðfjarðarhöfn, en eftir
snjóflóðin i des. sl. var ákveðið að
endurrreisa mannvirki Síldar-
vinnslunnar h.f. á ytri hluta nú-
verandi hafnarbakka við nýju
höfnina. Tíminn til þessara rann-
sókna hefur verið mjög naumur
og þar sem hönnunarforsendur
voru lftt þekktar, var ákveðið að
rannsóknir færu bæði fram i
höfninni og með líkantilraun-
unum. Framkvæmdar hafa verið
vindmælingar, öldumælingar og
sjávarfallamælingar, sem og mæl-
ingar á sogum í höfninni í vetur.
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var f Straumfræðistöðinni
fyrir helgina kom fram hjá Gisla
Viggóssyni verkfræðingi, að á
Norðfirði hagaði þannig til, að
grafa þyrfti höfnina inn í landið.
Brátt myndi notkun hafnarbakk-
ans stóraukast og leiddi það af
sér, að byggja þyrfti viðlegukanta
fyrir bátaflotann, þannig að
hafnarbakkinn yrði eingöngu
notaður fyrir löndun og útskipun.
I Straumfræðistöðinni voru nýja
höfnin ogumhverfi hennarbyggð
á mælikvarða 1:60, þ.e. hæðir og
lengdir eru minnkaðar 60 sinn-
um. Hlutverk þessara líkantil-
rauna er margþætt. I fyrsta lagi
þarf að gera sér sem bezta grein
fyrir vandamálum hafnarinnar
eins og hún er í dag, og hefur
þessi þáttur verið unninn með
aðstoð heimamanna, en meðal
annars hafa forráðamenn í Nes-
kaupstað og sjómenn komið suður
og liðsinnt eftir megni. Þá hafa
verið mældar úthafsöldur,
fjarðaröldur og sog, sem eru lang-
ar öldur með sveiflutíðni milli 2
og 4 mínútur. Þessar löngu öldur
geta valdið miklum straumum í
höfninni þrátt fyrir það að þær
eru aðeins 10 til 20 cm háar utan
hafnar. Hafa tvær aðal-tillögur
verið rannsakaðar I þessu skyni.
Niðurstöður likantilraunanna
urðu þær, að höfninni hefur nú
ITamhald á bls. 43
.. "r,
n
> -j
LÆKJARGÖTU 2
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155 ~
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
f flUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20»
L_
SIMI FA SKIPTIBORÐI 28155