Morgunblaðið - 08.07.1975, Síða 2

Morgunblaðið - 08.07.1975, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULI 1975 Gestir á hinni „Iokuðu“sýningu Kristjáns Davíðssonar. „Lokuð ”sýning tilheiðurs Ragnari Jónssgni í Smára KRISTJAN Davíðsson list- málari hélt um helgina lokaða svningu á um 20 málverkum sfnum og nokkrum teikning- um. Alls sóttu milli 80 og 90 manns sýninguna sem haldin var sérslaklega (il heiðurs Ragnari Jónssyni. Sérstök tón- list var ieikin eftir Leif Þór- arinsson. Kristján hélt þessa lokuðu sýningu til heiðurs Ragnari Jónssyni forstjóra, sem var heiðursgestur dagsins. Dag- skráin stóð f 2 klukkustundir. Kristján hélt þessa sýningu aó Barðavogi 13, þar sem hann býr ig hefur vinnustofu sína. Ætlar hann í framtfðinni að halda sýningar á verkum sínum í vinnustofunni. Margeir Pétursson á heimsmeistaramót unglinga í skák 1 ágúst UNGLINGARNIR fá á ný vinnu, er togararnir, hafa hafið veiðar eftir verkfallið. Ljósmyndarar Mbl. tóku þessar myndir í gær, Ólafur K. Magnússon af stúlkum við lestarborðaþvott um borð í Ögra og Sveinn Þórmóðsson af unglingspilti við fiskverkun í Sæbjörgu. FYRIRHUGAÐ hafði verið að heimsmeistaramót unglinga f skák yrði haldið í Puerto Rico, en einhverra hluta vegna hafa Puerto Rico-menn nú horfið frá þvf. Hefur því verið ákveðið að heimsmeistaramótið verði haldið I Júgóslavfu f borginni Tjentiste. Mótið hefst 16. ágúst og lýkur 2. september. Margeir Pétursson mun tefla fyrir Islands hönd á heimsmeistaramótinu og fer hann utan á vegum Taflfélags Reykja- víkur. Margeir mun fara utan 14. ágúst og verður aðstoðarmaður hans sennilega Bragi Kristjáns- son. Yfirfiskmats- menn skipaðir 1 LÖGBIRTINGARBLAÐINU Margeir Pétursson Sýning Eyfells framlengd MJÖG góð aðsókn hefur verið að yfirlitssýningu Eyjólfs J. Eyfells listmálara, sem staðið hefur yfir að Kjarvalsstöðum s.l. viku. Munu um 5000 manns hafa séð sýninguna, sem ljúka átti s.l. sunnudagskvöld, en þá átti að loka sýningarsalnum vegna sumarleyfa. Fjöldi óska hefur borizt um að sýningin verði framlengd og hef- ur stjórn Kjarvalsstaða sýnt hin- um aldna listamanni þá vinsemd að leyfa honum afnot af sýningar- salnum til næsta sunnudags- kvölds. Sýningin verður því opin áfram út þessa viku, kl. 16.—22 alla virka daga og kl. 14 til 22 um helgina. nýlega er greint frá því að sjávarútvegsráðherra hafi skipað 12 menn til að vera yfirmatsmenn við Framleiðslueftirlit sjávar- afurða frá 1. júlí sl. Ráðherra skipaði cftirtalda menn: Jón Guðleif Olafsson yfirfi.sk- matsmann, Vestmanneyjum, Sig- urð Gunnarsson yfirfiskmats- mann, Vestm.eyjum, Guðmund Agústsson yfirfiskmatsmann, Hafnarfirði, Kolbein Gunnarsson yfirfiskmatsmann, Hafnarfirði, Jón Helgason yfirfiskmatsmann, Rvík, Jón Magnússon yfireftirlits- mann, Rvík, Karl Magnússon yfir- eftirlitsmann, Rvík, Pétur Guðmundsson yfirfiskmatsmann, Seltj. nesi, Jón Ákason yfirfisk- matsmann, Akranesi, Jens Hjör- leifsson yfirfiskmatsmann, Hnífs- dal, Karl Friðriksson yfirfisk- matsmann, Akureyri, Jón Björns- son yfirfiskmatsmann, Reyðar- firði. 2 prófessorar fá lausn frá r embætti við HI Tveimur prófessorum hefur verið veitt lausn frá embætti. Annar er Guðmundur Björnsson, sem veitt er lausn frá prófessors- embætti við verkfræði- og raun- vísindadeild Háskóla Islands frá 15. ágúst nk. að hans eigin ósk, og einnig hefur Júlíusi Sigurjóns- syni verði veitt lausn frá prófessorsembætti í læknadeild frá 1. október nk. fyrir aldurs sakir. togvindu togarans. Þá er Vigri væntanlegur inn I dag og fleiri togarar í vikunni, að því er Ingi Magnússon hjá Togaraafgreiðsl- unni tjáði Mbl. f gær. r * * * Urgangurinn í rannsókn GRlMUR Jónsson, héraðslæknir I Hafnarfirði, tjáði Mbl. I gær að tslenzka álfélagið hefði aðfara- nótt sunnudags fjarlægt allan þann úrgang, sem mokað hafði verið I sjó, svo sem skýrt var frá í Mbl. fyrir helgi. Hefur þvf allur úrgangurinn verið fjarlægður þaðan sem honum var varpað af misgáningi að sögn forráðamanna ISALS. Grímur sagði jafnframt að starfsmenn ÍSALS teldu efnin algjörlega óskaðleg, en hann kvaðst hafa sent sýni í efnagrein- ingu til Rannsóknastofnunar iðnaðarins. Er því ekki vitað hvaða efni um er að ræða fyrr en sýnið kemur þaðan úr rannsókn, sem verður eftir nokkra daga. Rannsóknastofn- un fiskiðnaðarins vill losna við matvælaeftirlitið ÁFORM eru nú uppi um, að mat- vælaeftirlit rfkisins verði eftir- leiðis starfrækt f tengslum við rannsóknastofu Landspftalans en hingað til hefur Rannsóknastofn- un fiskiðnaðarins haft með það að gera. Sú stofnun hefur nú óskað eftir því að vera losuð undan þvf að annast þennan þátt, sem einkum er fólginn f að hafa eftirlit með neyzluvatni og matvælafram- leiðslu. Á vegum Heilbrigðiseftir- litsins er nú verið að kanna hvar matvælaeftirlitinu verði bezt fyrir komið og hugmyndir verið uppi um að fela rannsóknastofu Landspitalans að annast það, en eftir er að ganga endanlega frá þessum málum. Baldur John- sen hættir BALDUR Johnsen hefur sagt lausu starfi sínu sem forstöðu- maður Heilbrigðiseftirlits ríkis- ins frá og með 1. október að telja. Baldur hefur ekki náð aldurs- hámarki opinberra starfsmanna en mun hafa í hyggju að snúa sér að öðrum störfum. Umsóknar- frestur um_ starf forstöðumanns Heilbrigðiséftirlitsins er til 15. ágúst næstkomandi, að því er heilbrigðisráðuneytið hefur aug- lýst. TOGARARNIR eru nú að koma til hafnar úr fyrstu veiðiferð eftir verkfall. Koma sumir hverjir inn I fyrra lagi og er það vegna þess að kappkostað er að koma frysti- húsunum og atvinnu þar í gang. 1 gær var verið að landa úr tveimur togurum í Reykjavík, Þormóði goða 150 lestum og úr Ögra 80 lestum. Ögri kom inn um helgina, þar sem bilunar hafði orðið vart í r Oánœgja birtist í ýmsu: Leynivínsali tekinn LÖGREGLAN f Reykjavlk hand- tók um helgina mann, sem býr við Lindargötu, en þar hafði hann um nokkurt skeið starfrækt eins konar vfnútsölu á þeim tfmum sólarhringsins, þegar hin löglega vfnútsala annars staðar við Lindargötuna var lokuð. Maður- inn játaði við yfirheyrslur að hafa selt tvær áfengisflöskur um helgina og einnig að hafa áður selt áfengi af og til — til að halda f sér Iffinu. Vasatölvum stolið UM helgina var brotizt inn hjá heildverzlun á Tunguhálsi og stolið tveimur litlum vasatölvum. ÁÆTLUNARFLUG Fiugleiða til og frá landinu og yfir landinu og yfir Norður-Atlantshaf er nú komið aftur f samt lag eftir skæruverkfall flugvirkja nú fyrir helgi. Samkvæmt upplýsingum Sveins Sæmundssonar hefur tjón félagsins vegna þessa verkfalls ekki verið tekið saman, en hann kvað ljóst að félagið hefði orðið fyrir álitshnekki, þegar það spyrðist út á meðal farþega að verkfall væri hugsanlegt, forðust þeir það félag, sem slfkt ætti yfir höfði sér. Yfirleitt tóku farþegar þessum töfum mjög vel, — sagði Sveinn, nema hvað í þeim var mjög megn óánægja — bæði meðal þeirra far- þega sem biðu á Keflavíkurflug- velli og þeirra, sem biðu erlendis í flughöfnum. Einn farþegi á Kefla víkurflugvelli sýndi þó fremur leiðinlega framkomu, er hann komst ekki leiðar sinnar og varð strandaglópur hér i 8 klukku- stundir, — hann hrækti á af- greiðslumann Flugleiða um leið og hann för loks út i flugvélina. Maðurinn var Japani. TOGARAR LANDA EINN AF ÖÐRUM F arþeginn hrækti á afgreiðslumanninn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.