Morgunblaðið - 08.07.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.07.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JtJLl 1975 Séra Úlfar Guðmundsson, Ólafsfirði: Nokkrar skýringar Ólafsfirði 3. júli 1975 Hr. ritstjóri. Er ég kom heim úr ferðalagi í gærkvöldi og tók að fletta blaða- bunkanum er beið mín við dyrn- ar, sá ég mig tilneyddan að setjast niður og skrifa nokkrar skýring- ar. Þar sem tillaga sú, er ég flutti á nýafstaðinni prestastefnu, hef- ur verið nokkuð til umræðu í dag- blöðum, vil ég biðja yður að birta þessar skýringar minar og at- hugasemdir í blaði yðar. Sr. Þórir Stephensen telur frá- leitt að viðvörun sé gefin án út- skýringa. (Vísir 28/6) Ég vil því benda á að síðari hluti tillögunnar er hugsaður sefri útskýring og við- miðun fyrir fólk, er það sjálft í sínum huga vill gera upp afstöðu sína til þeirra dultrúarfyrirbrigða sem varað er við. Ég get því ekki fallizt á að viðvörunin hafi verið gefin útskýringarlaust. Þessi stað- reynd brcytir þó ekki því, að æskilegt væri að gera þessum málum öllum ítarleg skil. Presta- stefna er að mínu viti betri vett- vangur fyrir slíkar umræður milli okkar starfsbræðranna en greinar í dagblöðum og mun ég reyna að verða þeirri skoðun minni trúr áfram, þótt ég finni mig knúinn til að rita þennan pistil. Þar fyrir utan kemur og til greina að ræða þessi mál á safnaðar- og héraðs- fundum eins og sr. Þórir Stephensen stingur upp á. (Mbl. 27/6). Þvi fagnaði cg og studdi þá viðaukatillögu er óskaði eftir því að prestastefna tæki þessi mál til nánari og viðameiri umfjöllunar síðar. Til þess gafst enginn tími að þessu sinni, auk þess sem ég er þeirrar skoðunar að málið sé viða- meira en svo að æskilegt sé að brjóta það til mergjar i neinu fljótræði. Því var það látið nægja að hvetja fólk, til þess að bera framandi {rúarstefnur saman við grundvöll kirkjunnar, sem er Jes- ús Kristur einn, eins og honum er borið vitni i Nýja testamentinu. Persónulega tel ég það allt í senn, eðlilega, hóflega og hæfilega á- bendingu. Nauðsynlegt var þvi að bera tillöguna upp í einu lagi, ella hefði merking hennar ekki kom- izt eins vel til skila. Að sjálfsögðu verður hver og einn að gera upp sinn hug í þess- um efnum. Enginn dómur er felldur og ekki stendur til að „þrengja dyr“ kirkjunnar frá því sem verið hefur. Dyr islenzku þjóðkirkjunnar hafa hingað til staðið opnar öllum þeim er þang- að hafa leitað. Mun svo áfram verða. Sr. Þórir Stephensen tekur að sér að túlka huga minn á opinber- um vettvangi er hann segir í Vísi þann 28/6: „Á hinn bóginn er það fullljóst, að tillögumaður er, út frá þeim umræðum, sem að undanförnu hafa fram farið í blöðum, að reyna að þrengja mjög leyfilegt skoðanasvið þeirra, sem hingað til hafa viljað vera inn- an íslenzku þjóðkirkjunnar sem undanfarna áratugi hefur verið frjálshuga stofnun." Hér er um hreinar dylgjur að ræða, nánast illkvittni, enda veit ég ekki til þess, að ég hafi látið neitt það frá mér fara, hvorki á opinberum vettvangi né í samtölum við sr. Þóri Stephensen, er gefi honum tilefni til að álykta þannig. Að ég ætli mér „að ýta út úr kirkjunni" einum eða öðrum eru orð sr. Þóris Stephensens en ekki mín og mun ég aldrei gera þau að mínum, enda hefur engin hugsun í þá átt nokkru sinni fæðzt í mínum huga. I blaðaskrifum hafa menn fyrst og fremst gert spíritismann að umtalsefni. Sr. Þórir Stephensen og sr. Ólafur Skúlason vitna báðir til tillögu er ég hvorki flutti né mæli fyrir. Rétt er það eigi að síður að ég hafi upphaflega lagt aðra tillögu fyrir allsherjarnefnd og ætti því sr. Ólafi Skúlasyni að vera fullkunnugt um efni hennar. Hvorugur þeirra sýnir mér þó þá sanngirni i sínum vinnubrögðum að vitna rétt til þessarar upphafs- tillögu. I minni upphafstillögu vék ég beinlínis að spíritisma, en orðið stóð þar ekki í svo víðri merkingu, heldur er það að finna orðin „spíritismi sem trúarleg hreyfing." Þar sem að þessu er opinberlega vikið, langar mig að gera örlítið nánari grein fyrir per- sónulegri afstöðu minni til spírit- isma, enda er hún mér síður en svo neitt launungarmál. Ég kom raunar nokkuð inná spíritisma sem trúarlega hreyfingu, er ég mælti fyrir þeirri tillögu, er ég flutti og samþykkt var mótat- kvæðalaust. Ég vil þó sérstaklega taka það fram að ekki vék ég þar einu orði að blaðaskrifum sr. Þór- is Stephensen og sr. Heimis Steinssonar. Hins vegar vék ég að tveim atriðum er vörðuðu spírit- isma. Þau voru miðilsfundur í sjónvarpi í vetur og nýútkomin bók sem ber nafnið Jesús Kristur í dálestrum Edgars Cayce. I þeirri bók er fjallað um mörg grundvall- aratriði Nýja testamentisins og vakti hún því strax athygli mína. Afstaða mín til þessara mála er i grundvallaratriðum þessi: Spírit- ismi er fjölskrúðugur en í minum huga reyni ég ætið að draga skýr mörk milli spíritsima sem sálar- rannsókna og spíritsima sem trúarbragða eða trúarhreyfingar. Öll rannsóknarstörf, og þar með taldar sálarrannsóknir, sem undir því nafni fá staðið, vildi ég gjarn- an efla. Slíkar rannsóknir hafa að undanförnu verið stundaðar víða um lönd m.a. við háskóla og vísir að þeim er nú að ganga sín fyrstu spor við Háskóla tslands undir forustu dr. Erlends Haraldssonar, sem ég þekki af góðu einu frá fornu fari. Engum hnútum vildi ég kasta að þessum störfum án tilefnis. Aðeins vildi ég leggja á- herzlu á að fullrar nákvæmni sé jafnan gætt í vinnubrögðum og um það eru væntanlega allir á einu máli. Eins vonast ég til að allir séu sammála um að okkur prestum beri að gæta fullrar ná- kvæmni i okkar vinnubrögðum, ekki síður en öðrum háskóla- gengnum embættismönnum sem og reyndar öllum hvar í stétt sem þeir standa. Þegar þvi kemur að spíritisma sem trúarlegri hreyf- ingu eða jafnvel sjálfstæðum trúarbrögðum vandast málið verulega og ýmsar spurningar vakna. Til dæmis þessi: Getur prestur í sinni prédikun tekið mið af upplýsingum, sem fram hafa komið á miðilsfundi? Ef ég ætti að svara þessari spurningu fyrir mig persónulega, væri svar mitt á þessa leið: Nei, það get ég ekki samvizku minnar og trúar minnar vegna. Hér tel ég vera komið að kjarna þessa vandamáls og þar með er jafnframt komið að tillögu þeirri er ég ber fram, ekki hvað sízt síðari hluta hennar, sem allir gátu auðvitað samþykkt, svo vitn- að sé enn til sr. Þóris Stephensen, en í tillögu minni sagði m.a. „Kristin kirkja byggir boðun sína og líf á Jesú Kristi einum eins og honum er vitni borið i Nýja testa- mentinu“. Geti allir samþykkt þetta er væntanlega ekki um neinn alvarlegan ágreining að ræða þar að lútandi. Ekkert ann- að hef ég heldur gert að á- greiningsefni. Samt kemur ein greinin fram af annarri og vekur það sifellt meiri og meiri furðu mína hve háreistar byggingar menn reisa allt í kring um þessa spurningu án þess að glíma bein- línis við hana. Auðvitað vakna miklu fleiri spurningar en sú, hvort hægt sé að leggja trúnað á upplýsingar frá dásvefni miðla. Hvað er að baki því sem fram kemur á miðilsfundum? Ég skal fúslega játa að ég veit það ekki. Það sé fjarri mér að væna miðla um svik almennt, þótt dæmi séu til slíks. Ég er sjálfur sannfærður um að einhver öfl eru hér að ferð, hugsanlega gætu það verið jarð- nesk öfl, okkur óþekkt, komin frá þátttakendum sjálfum, en ég tel mig ekki hafa neina frambæri- lega skýringu. Mér er heldur ekki kunnugt um að slík skýring hafi verið sett fram og hlotið almenna viðurkenningu vísindamanna né heldur að almennt viðurkenndar biblíurannsóknir mæli með því að menn leggi trúnað á upplýsingar sem fram koma á miðilsfundum. Meðan svo er finnst mér eðlilegt að gæta fullrar varúðar hvað þetta snertir. Takist einhverjum hins vegar með ljósum rökum, er almennt yrðu viðurkennd af fær- ustu mönnum, að höggva á þenn- an hnút, þá mundu eflaust aðrir hnútar þessu tengdir rakna að miklu leyti af sjálfu sér. Þá mætti spyrja hvort ekki væri óhætt að trúa einhverju af því sem fram kæmi. Persónulega treysti ég mér ekki til þess að taka neitt mið af þessum upplýsingum, að því er varðar mína trú og lífsviðhorf. Ég treysti mér t.d. ekk.i til að leggja neinn trúnað á þær upplýsingar sem dálestrar miðilsins Edgars Cayce flytja til útskýringa og upp- bótar við Nýja testamenntið. Síð- ari hluti þeirrar tillögu sem sam- þykkt var nægir mér í þessum efnum. Þá mætti spyrja hvort ég teldi mögulegt að sálarrannsóknir séu stundaðar, án þess að rann- sóknaraðilar gjöri þau að ein- hverju marki að átrúnaði sínum. Það tel ég vera mögulegt gjöri menn sér far um að sýna fulla aðgát í þeim efnum. Ég hef nú gre.int frá því hver eru aðalatriði þessa máls í mínum huga. Fyrir mér vakir fyrst og fremst að fólk taki þessi mál til íhugunar og jafnframt að undir- strika á hverju við prestar byggj- um okkar boðun og að við erum þar í grundvallaratriðum sam- mála. Fyrir skoðunum annarra ber ég fulla virðingu, hvaða trúar- brögðum sem þeir tilheyra og mun að ég ætla fremur þekktur af því en hinu. Jafnan hef ég viljað láta önnur trúarbrögð njóta sann- mælis. Um það gætu margir borið vitni, t.d. gamlir skólabræður mínir úr guðfræðideildinni, því oft fann ég hvöt hjá mér að rétta hlut annarra trúarbragða, væri á þau hallað í umræðum. Að ég hugsi til þess að dæma nokkurn lifandi mann til glötunar eða ég veit ekki til hvers, er svo fráleit hugsun og framandi mér, að það er eiginlega með herkjum að ég get pikkað þessa setningu á ritvélina mfna. Dómsvald er ekk- ert í okkar höndum, sem betur fer. Þar get ég af heilum huga tekið undir varnaðarorð míns > vígsluvotts sr. Björns O. Björns- sonar i Mbl. í gær enda var ég grein hans að flestu leyti sam- mála. Með kristnum spíritista get ég átt góða samleið um margt og velkominn skal hann í minn söfn- uð. Jafnframt tel ég heiðarlegt af mér og raunar skylt að koma til dyranna eins og ég er klæddur og tjá honum viðhorf mitt af fullri hreinskilni. Einhverjum stóryrðum mun hafa verið að mér sneitt í blöðum. Læt ég þau viljandi liggja milli hluta. Gengur það eiginlega alveg fram af mér hve stóryrtir leikir og lærðir eru I garð sinna and- stæðinga í trúmálum. Hefur svo verið árum saman. Sveiflast þessi makalausi orðaforði milli svart- asta miðaldamyrkurs, ofsókna og niðurlægingar annars vegar og víst allt að djöfladýrkun hins veg- ar. Ekki fæ ég með nokkru móti séð hvaða vanda slíkur orðaforði leysir. Að endingu vildi ég taka fram að trú mín á eilíft líf er hafin yfir allan efa í mínum huga og hefur eiginlega aldrei verið neitt vanda- mál fyrir mér persónulega Með þökk fyrir birtinguna (Jlfar Guðmundsson, sóknarprest- ur, Ölafsfirði. PROF VIÐ HI VORIÐ 1975 I LOK vormisseris luku eftirtald- ir stúdentar, 132 að tölu, prófum við Háskóla Islands: Embættispróf f guðfræði Svavar Stefánsson Vigfús Þór Árnason Þorvaldur Karl llclRason Embættispróf f læknisfræði Arnar Hauksson Ásbjörn Sigfússon Björn S. Johnsen Björn MárÓlafsson Börkur Aðalsteinsson Einar Thoroddsen Friðrik Elvar Yngvason Gestur Þorgeirsson Grétar Sigurbergsson Gunnar II. Guðmundsson Hannes Pétursson Helga M. Ögmundsdóttir Helgi Kristbjarnarson Hilmar Þór Hálfdánarson Jóhann Ágúst Sigurósson Jón övvar Geirsson Jón Bjarni Þorsteinsson Jónas II. Franklín Kristinn P. Benediktsson Kristjana S. Kjartansdóttir Leifur Bárðarson Magnús Ölason Nils Oskar Gustavii Öttarr Guðmundsson Sigurður Guðmundsson Sigurður Ingi Sigurðsson Sigurjón Sigurðsson Skúli Bjarnason Stefán Þórarinsson Þórir Þórhallsson Kandfdatspróf f tannlækningum Karl örn Karlsson Pétur Svavarsson Bagnar ömar Steinarsson Hagnar Magnús Traustason Skúli Ottesen Kristjánsson Embættispróf í lögfrædi Bjarni Asgeirsson Björn Jósef Arnviðarson Einar S. Ingólfsson Eiríkur Tómasson Finnbogi H. Alexandersson Gestur Jónsson Guðmundur S. Alfreðsson llallgrfmur B. Geirsson Ingibjörg Benediktsdóttir Ingibjörg Rafnar Jón Kr. Sólnes Júlfus B. Georgsson Kristinn Björnsson Ölöf Pétursdóttir Kfkarður Másson Sigmundur Stefánsson Sigurgeir A. Jónsson Steinþór Haraldsson Sveinn Sveinsson Þórður S. Gunnarsson Þórunn Wathne örlygur Þórðar.son Kandfdatspróf f viðskiptafræðum Ari Hálfdánarson Arni Siemsen Gísli Pétursson Guðmundur Krist jánsson Gunnar Svavarsson Haukur Sigurðsson Helga Viðarsdóttir John Fenger Jón Hermann Karlsson Magnús Skúlason Páll Guðjónsson Sigurður R. Jónmundsson Snorri Tómasson Sævar Jónsson Valgerður Bjarnadóttir Vilmundur Jósefsson Kandfdatspróf í sagnfræði Gfsli Magnússon B.A.-próf f heimspekideild Erla K. Jónasdóttir Guðrún B. Guðmannsdóttir Jenný Matthfasdóttir Jón Baldvin Georgsson Leifur Agnarsson Margrét Jónsdóttir B.A.-próf í sálarfræði Arni Blandon Einarsson Guðrún Pétursdóttir B.A.-próf í almennum þjóðfélags- fræðum Elfas Jón Héðinsson Esther R. Guðmundsdóttir Guðmundur Bjarnason Guðrfður Sigurðardóttir Haukur ölafsson Ingi Valur Jóhannsson Sigríður Stefánsdóttir Stefán Pétur ólafsson Verkfræði, lokapróf Byggingarverkfræði Arni Kjartansson Brynjar Brjánsson Einar Bjarndal Jónsson Helgi Hjaltason Jón Ingimarsson Jón Guðni Óskarsson Jónas Vignir Karlesson Runólfur Ingólfsson Vélaverkfræði Heimir Fannar Rafmagnsverkfræði Ágúst A. Þórhallsson Einar Sfmonarson Jóhann Bjarnason Jón Steindór Ingason ÓskarJónsson B.S.-próf f verkfræði- og raunvfs- indadeild Stærðfræði Helgi Þórsson Markús K. Möller Eðlisfræði Brynjólfur Eyjólfsson Gunnlaugur Pétursson Gylfi Páll Hersir Knútur Árnason Efnafræði Ágúst Kvaran Gunnar Þórðarson. Líffræði Alexander Valdemarsson Bjarni Ásgeirsson Björn Björnsson Hannes Magnússon Ingileif Jónsdóttir Kristbjörn Egilsson Kristfn Einarsdóttir Kristfn Halla Traustadóttir Signý Bjarnadóttir Sigurður Hjalti Magnússon Þórður Júlfusson Jarðfræði Ásgrfmur Guðmundsson Elías Ólafsson Þóroddur Þóroddsson Jarðeðlisfræði Freyr Þórarinsson Karl Gunnarsson Magnús Guðmundsson. Ungmennafélag Hveragerðis hefur að undanförnu unnið að því að hreinsa Varmá. Myndin er tekin af ánni og var send Mbl. með þeirri ósk að blaðið kæmi þeim tilmælum unga fólksins á framfæri, að Hvergerðingar köstuðu ckki rusli f ána. Er það gert hér með.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.