Morgunblaðið - 08.07.1975, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.07.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULI 1975 33 VELVAKANDI Velvakandi svarar í sima 10-100 kl. 2—3, frá mánudegi til föstu- dags. 0 Þunglamalegt kerfi Einn, sem segist ætla að fara að sólunda gjaldeyri, skrifar: „Velvakandi. Þegar þessar línur birtast verð ég víst farinn af landi burt,' en það gerir ekkert til. Þegar ég fór að undirbúa þessa ferð mína þurfti ég að eiga við- skipti við lögguna í fyrsta sinn síðan ég fékk ökuskírteini fyrir nokkrum árum. Ég þurfti nefni- lega að verða mér úti um alþjóð- legt ökuskírteini og vegabréf. Ég var nú bara satt að segja búinn að steingleyma því hvað gangur mála er hægfara hjá þessari á- gætu skrifstofu, en þegar til átti að taka fór ég fyrst á skrifstofuna til að fá mér passa og skírteini og var svo barnalegur að halda, að þetta gæti ég afgreitt í einni ferð. En það var nú ekki þvi að heilsa. Mér var tjáð, að í fyrsta umgartg skyldi ég fylla út eyðublað þar sem sótt er um passann. Síðan skyldi ég skilja þetta eyðublað eftir ásamt tveimur myndum, en fyrst að tveimur virkum dögum liðnum yrði svo passinn tilbúinn. Þetta var nú tiltölulega einfalt mál og auðskilið, en þá var komið að hinu alþjóðlega ökuskírteini. Skrifstofa lögreglustjóraembætt- isins gefur út alþjóðlegt ökuskir- teini, en bæklingurinn, sem vott- orð um það, að viðkomandi megi stýra ökutæki á erlendri grund, fæst hins vegar ekki hjá löggunni. Þann bækling fer hver og einn og kaupir hjá Félagi islenzkra bif- reiðaeigenda, sem hefur aðsetur sitt inni í Ármúla. Félagið hefu tekjur af þvi að selja þessi hefti og þangað verður að fara. Nú vill bara svo til að ég skil þetta ekki almennilega. Mér skilst, að það sé lögregian, sem veitir samþykki sitt til þess að menn megi aka á erlendri grund, en nú er ég farinn að velta því fyrir mér, hvað FtB hefur með málið að gera. Ef eitt félag á að fara að hafa hagnað af því að selja eyðublöð fyrir vottorð og skír- teini, sem opinberir aðilar gefa út, eins og i þessu tilviki, þá finnst mér athugandi fyrir félög, eins og t.d. góðgerðarfélög, hvort þau geti ekki farið að hafa góðan hagnað af því að taka toll af ýmiss konar eyðublöðum. Þannig gæti Lions-klúbburinn minn t.d. grætt gras af seðlum með þvi að selja þeim, sem ætla sér til útlanda, bæklinga fyrir vegabréf. Ég ætla að stinga þessu að fjáröflunar- nefndinni á næsta fundi. Það verður nóg eftir handa öðrum fél- ögum, þótt við fáum söluréttindi Jk pfpuna milli varanna. Þegar hann sneri sér við sá hann að ijósið var slökkt f bókaherberginu og ljós var kveikt f öðru herbergi á næstu hæð fyrir ofan. Hann gekk ekki gegnum bæinn heidur meðfram ströndinni eins og tollvörðurinn hafði gert og staðnæmdist stundarkorn á horn- inu, þar sem skotið hafði verið á vörðinn. AHt var rólegt. t stöku glugga var ljós. Bærinn Concarneau var í svefni. Þcgar hann kom að torginu sá hann að enn var ijós í kaffitúsinu, vont, grænt Ijós sem truflaði frið næturinnar. Hann hratt upp dyrunum og gekk inn. Blaðamað- ur var að lesa fyrir frétt sfna f sfmann: „Enginn veit lengur hvern skal gruna. Vegfarendur líla tor- tryggnir hver á annan á götunni. Kannski er þessi þarna morðing- inn? Kannski hinn? Ladrei hefur fólk kynnst slfku andrúmslofti ótta og dulúðar...“ Vertinn stóð alvarlegur við af- greiðsluborðið. Þcgar hann kom auga á lögregluforingjann var eins og hann ætlaði að segja eitt- hvað. Maigret þóttist vita hvaða umkvartanir hann hefði hug á að bera fram. af vegabréfsbæklingum, þvi að skirteini og opinber plögg eru, eins og allir vita, ófá. En svo að þetta lendi ekki allt i fégræðgi hjá mér, þá skýri ég frá því hér með, að þessar reddingar fyrir utanlandsferðina sælu, kost- uðu mig fjórar heimsóknir í skrif- stofu lögreglustjóra og FÍB. Hvers vegna má aldrei gera langa sögu stutta og viðhafa svo- litla hagræðingu? Af hverju er hið opinbera aldrei ánægt nema það geti þvælt manni um i marga daga út af einföldustu og ómerki- legustu málum? Það vill nú svo til að ég er minn eigin herra — rek lítið heildsölufyrirtæki — en það mætti segja mér að ég hefði ekki verið ánægður með það, að missa vinnukraft i svona reddingar, ef strákurinn, sem vinnur hjá mér, hefði átt í hlut. Það hefði þurft að gerast á vinnutíma, því að stofnanirnar eru ekki opnar nema á almennum vinnutima. Með þökk fyrir birtinguna, „Sólundari". £ Trúarbrögðin margvísleg Húsmóðir skrifar: „Það þykir sjálfsagt dirfska af mátulega guðhræddri húsmóður að fetta fingur út í nýafstaðna prestastefnu. Allir hljóta að gleðj- ast yfir þvi hvað reisn Skálholts- staðar er orðin mikil. Nú er hægt að halda þar prestastefnu, en af þvi svo vel hittist á, að i ár er ártjð meistara Brynjólfs biskups, þá langar mig til að segja mina mein- ingu. Meistari Brynjólfur var há- lærður maður og fylgdist vel með því, sem var að gerast á hans tíma og fátt lét hann afskiptalaust hér á landi. Hefur mörgum prestum á hans tíð ekki þótt hann taka nógu hart á göldrum, þvi að flestir þeirra, trúðu á galdra og vildu miskunnarlaust láta brenna fólk. Þess vegna held ég, að nú mundi meistari Brynjólfur berjast hart á móti nýjustu trúarbrögðum, sem þenja sig út um allar jarðir. Kommúnistar um allan heim trúa á marx-leninismann, sem ofsækir allt fólk, sem hefur aðrar trúar- skoðanir. Þar sem kommúnistar ráða, eru trúarofsóknir slíkar, að galdrabrennur I gamla daga blikna og verða nánast að engu. Kommúnistar segja sem svo: „Einn guð er marx-leninisminn, og Stalin, eða hverju nafni, sem æðsti maður Rússlands nefnist, er hans spámaður." Allt fram á sið- ustu daga Stalíns, var Rússland lokað og fregnir þaðan óljósar, en ef einhver lét i ljós þá skoðun, að allt mundi nú ekki vera I sóman- um þar, þá ærðust allir kommún- istar, hvar sem var, og efasemda- maðurinn var tafarlaust brenni- merktur sem nasisti eða fasisti. Síðan Krúsjóff komst til valdaog sagði söguna af dýrlingnum, hafa menn ágætar fregnir af þvi, sem gerist i Rússlandi og öðrum lönd- um, sem svikin hafa verið undir kommúníska stjórn. I dag er kommúnisminn versta plága ver- aldarinnar og aldrei verður friður i heiminum fyrr en sigrazt verður á þeim trúarbrögðum. Þegar menn eru hættir að trúa á komm- únismann þá verður hægara að bæta hlutina. Þess vegna eru send mótmæli til Rússlands hvaðanæva að úr heiminum, og er skemrp'st að minnast þegar héðan var sent bænarskjalið til þess að faðir Ashkenasis fengi að koma hingað. Ef andi meistara Brynjólfs hefði svifið yfir Skálholti á prestastefnunni, þá hefði verið sent plagg til þess að mótmæla trúarofsóknum í Rússlandi. Húsmóðir". HÖGNI HREKKVÍSI Heyrðu? Er það ekki bara ein nótt, sem Högni verður að heiman? — (vandervell) BENSÍNVÉLAR Austin Bedford Vauxhall Volvo Volga Moskvitch Ford Cortina Ford Zephyr Ford Transit Ford Taunus 12M, 17M, 20M, Renault, flestar gerðir Rover Singer Hilman Simca Tékkneskar bifreiðar, flestar gerðir. Willys Dodge Chevrolet DIESELVÉLAR Austin Gipsy Bedford 4—6 cyl. Leyland 400, 500, 680. Landrover Volvo Perkins 3, 4, 6 cyl. Trader4, 6 cyl. Ford D, 800 K. 300 Benz, flestar gerðir Scania Vabis Þ. Jónsson & Co. Skeifan 1 7. Sími 84515 —16. I EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU HÖGGDEYFAURVAL FJAÐRIR KÚPLINGSDISKAR KÚPLINGSPRESSUR SPINDILKÚLUR STÝRISENDAR VIFTUREIMAR KVEIKJUHLUTIR FLESTÍ RAFKERFIÐ HELLA aðalluktir, lukta- gler luktaspeglar og margs konar rafmagns- vörur BOSCH luktiro.fi. S.E.V. MARCHALL luktir CIBIE luktir LJÓSASAMLOKUR BÍLAPERUR allar gerðir RAFMAGNSVÍR FLAUTUR 6 — 24 volt ÞURRKUMÓTOR 6—24 v ÞURRKUBLÖÐ ÞURRKUARMAR BREMSUBORÐAR BREMSUKLOSSAR ÚTVARPSSTENGUR HÁTALARAR SPEGLAR í úrvali MOTTUR HJÓLKOPPAR FELGUHRINGIR AURHLÍFAR MÆLAR alls konar ÞÉTTIGÚMMI OG LÍM HOSUR HOSUKLEMMUR RÚÐUSPRAUTUR FELGULYKLAR LOFTPUMPUR STÝRISHLÍFAR KRÓMILISTAR BENSÍNLOK TJAKKAR 1Yz—30 T VERKSTÆÐISTJAKKAR FARANGURSGRINDUR BÖGGLABÖND ÞOKULJÓS DEKKJAHRINGIR RÚÐUKÍTTI ÞVOTTAKÚSTAR BARNAÖRYGGIS- STÓLAR 4 tegundir BARNABÍ LBELTI BÍLBELTI HNAKKAPÚÐAR ÖSKUBAKKAR MÆLITÆKI f. rafgeyma SWEBA sænskir úrvals rafgeymar. ISOPON OG P 38 beztu viðgerða- og fylliefnin PLASTI-KOTE spray lökkin til blettunar o.fl. Athugið allt úrvalið (^^lnaust h.f Síðumúla 7 Simi 82722 PLÖTUJÁRN Höfum fyrirliggjandi plötujárn i þykktunum 3,4,5og6mm. Klippum nidur eftir máli ef óskad er. Sendum um allt land STÁLVER HF FUNHÖFÐA17 REYKJAVÍK SÍMI 83444.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.