Morgunblaðið - 08.07.1975, Page 13

Morgunblaðið - 08.07.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULl 1975 13 Reikningar Reykjavíkurborgar 1974: Rekstrarútgjöld 13% umfram fjárhagsáætlvm TEKJUR Reykjavíkurborgar á sl. ári námu 3.947.3 m.kr., þ.e. 78 m.kr. og 2% umfram fjárhags- áætlun (3.869.3 m.kr.). Rekstrar- gjöld námu hinsvegar 3.087.5 m.kr. eda 355.3 m.kr. umfram áætlun (2.732. m.kr.) þ.e. 13% yfir áætlun, sem er mun minna en almennum verð- hækkunum nam, en innlend verð- bólga á sl. ári jókst um 54% sam- kvæmt opinberum gögnum. Tekjuafgangur til framkvæmda og greiðslna reyndist 859.8 m.kr. eða 277.3 m.kr. undir áætlun (1.137.1 m.kr.). Þessi lækkun á tekjuafgangi frá rekstri hafði ekki í för með sér lækkun fjár- framlaga til eignabreytinga, en hinsvegar varð að fresta nokkrum framkvæmdum. Framangreindar upplýsingar komu fram í ræðu borgarstjóra, Birgis Isl. Gunnarssonar, er hann mælti fyrir reikningum Reykja- víkurborgar fyrir liðið ár. Fjár- hagsáætlun ársins var samþykkt í borgarstjórn í desember 1973. Tekinn var inn í áætlunina útgjaldaauki vegna hækkunar vísitölu síðla árs 1973 (um 10.35 stig) og nýrra samninga við BSRB (15. des. 1973), er hafði í för með sér hækkun áætlaðs launakostn- aðar um 149 m.kr. Áætlun annars kostnaðar á rekstri var byggð á RAFVEITA Vestmanna- eyja hefur að undanförnu sett upp nokkrar spenni- stöðvar, sem eru allnýstár- legar. Ekki er um að ræða, að byggt sé utan um stöðvarnar, heldur eru þær verðlagi eins og það var í nóvem- ber 1973. Með hliðsjón af 54% verðbólgu á árinu 1974 verður 13% hækkun heildarrekstrar- kostnaðar borgarsjóðs að teljast vottur réttra viðbragða af hálfu borgarstjórnar. • Tekjuhlið borgarreikninga. Svo sem að framan greinir fóru heildartekjur borgarsjóðs 78.0 m.kr. fram úr áætlun og vó sú fjárhæð lítið til að mæta umfram- greiðslum í rekstri. I stórum dráttum komu tekjuliðir borgar- sjóðs þannig út: 0 — Utsvör reyndust 82.0 m.kr. undir áætlun. • — Gjaldársútsvör fóru liðlega 1.0 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Fasteignagjöld, sem komu til innheimtu, vóru 37.2 m.kr. undir fjárhagsáætlun. 0 — Ýmsir skattar (s.s. byggingarleyfi og leyfi fyrir kvik- myndasýningar) fóru 5.0 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Arður af eignum fór röskar 19.0 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Arður af fyrirtækjum stóðst nákvæmlega, skv. áætlun. 0 — Framlag frá Jöfnunarsjóði fór tæplega 107.0 m.kr. fram úr áætlun, en framlag sjóðsins bygg- ist á fjárlagaupphæðum og kemur í þar til gerðum kössum úr plasti. Um er að ræða sænska uppfinningu, sem bæði sparar tíma og fé við uppbyggingu rafkerfisins í Eyjum eftir gos. ekki i ljós fyrr en eftir á, í lok hvers árs. 0 — Aðstöðugjöld fóru 25.9 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Tekjur af benzinfé fóru um l. 0 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Dráttarvextir frá Gjald- heimtu, sem komu í hlut borgar- sjóðs, fóru 86.8 m.kr. fram úr áætlun. Útreikningur dráttar- vaxta fer ekki að fullu frarr fyrr- en í desembermánuði, þannig að ekki er vitað fyrr en í lokaupp- gjöri árs hve háa upphæð aðilar að gjaldheimtunni fá í sinn hlut í vöxtum. • Gjaldahiið borgarsjððs. 0 — Stjórn borgarinnar fór 42.2 m. kr. fram úr áætlun. Þar veldur nokkrú hækkun launakostnaðar en þó meir skýrsluvélavinna vegna taxtahækkana og aukinnar forritunarvinnu fyrir bókhald og launadeild. 0 — Brunamál urðu 18.3 m. kr. hærri en áætlun, nær eingöngu vegna launakostnaðar. 0 — Fræðslumál fóru rösklega 64.0 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Listir, íþróttir og útivera fóru 30.0 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Heilbrigðis og hreinlætismál fóru 46.0 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Fjárveitingar til félagsmála urðu 636.0 m.kr. eða 20.8 m.kr. hærri en áætlun. 0 — Rekstur fasteigna fór 16.6 m.kr. fram úr áætlun. 0 — Önnur útgjöld fóru 88.5 m.kr. fram úr áætlun, þar af 74.7 m.kr. vegna vaxtagjalda, sem er afleiðing erfiðrar greiðslustöðu borgarsjóðs á árinu, vegna mikilla verðhækkana, útlags kostnaðar, inneigna hjá viðskiptamönnum og fremur tregrar innheimtu opin- berra gjalda. % Gatnagerð, holræsafram- kvæmdir o.fl. Malbikunarframkvæmdir borgarinnar urðu mestar í nýju borgarhverfunum. Á árinu var malbikaður 11.1 km gatna eða 107.500 ferm. Malargötur, sem eftir er að malbika, eru 14.9 km en vóru árið áður 18.0 km. Þá vóru alls steyptir 22.377 ferm. af gangstéttum. Holræsaframkvæmdir vóru einkum í nýju hverfunum. I árs- lok 1973 var lengd holræsa i borg- inni samtals 308.0 km en i árslok 1974 323.9 km. Ný holræsi vóru því lögð sem nemur 15.9 km. að lengd. Til gatna- og umferðarmála var varið 903.4 m.kr. eða 29.4 m.kr. umfram áætlun. I þvi sambandi er þó skylt að geta þess að gatna- gerðin var látin bera kóstnað við fasteignakaup vegna skipulags að upphæð 31.5 m. kr. % Eignabreytingar og framkvæmdir Heildarkostnaður við skóla- byggingar varð 432.3 m.kr. og fór 57 m.kr. fram úr áætlun. Engu að síður urðu framkvæmdir minni en fyrirhugað var, enda hefði áætlunarfjárhæð þurft að hækka um 100 m.kr. til að fylgja verð- lagi. Til leikvallagerðar fóru 16.7 m. kr. Til barnaheimila var varið 93.0 m.kr. (þar af frá rikissjóði 22.5 m.kr.). Skuld Bæjarútgerðar Reykja- vikur við Framkvæmdasjóð borg- arinnar, sem stóð i rösklega 209 m.kr. í árslok 1974, var afskrifuð að fullu skv. ákvörðun borgar- ráðs. Skuld Strætisvagna Reykja- vikur við borgarsjóð jókst um 31.8 m.kr., en afskrifað framlag borgarsjóðs til fyrirtækisins nam 155.3 m.kr. Tap á rekstri vagn- anna varð 180.6 m.kr. eða um 150 m.kr. að frádregnum afskriftum. Rétt er að vekja athygli á þvi, sagði borgarstjóri, að athuganir innlendra og erlendra sérfræð- inga hafa leitt i ljós, að fyllstu hagkvæmni er gætt í rekstri fyrir- tækisins og verða orsakir rekstrartapsins því ekki raktar til stjórnunar þess. Er raunar sér- stök ástæða til að þakka forstjóra SVR, Eiríki Ásgeirssyni, góðan árangur við erfið skilyrði, sem eiga rætur i ytri aðstæðum, þ.e. auknum rekstrarkostnaði, aukn- um vegalengdum leiðakerfis, far- þegafækkun o.fl., en verðlagsyfir- völd stóðu gegn eðlilegri far- gjaldahækkun til samræmis við aukinn rekstrarkostnað. Á Efnahagsreikningi borgar- sjóðs kemur fram, að skuldir borgarsjóðs hafa aukizt um 650 m.kr. og vegur þar mest lán við Landsbanka íslands (600 m.kr.) sem tekið var vegna erfiðrar greiðslustöðu á árinu, enda kemur fram á eignahlið reikningsins, að eftirstöðvar gjalda og skuldunauta hafa aukizt um 500 m.kr. vegnaútlagðskostn- aðar og versnandi innheimtu opinberra gjalda. Eigið fé borgar- sjóðs jókst hinsvegar um 2,3 milljarða á árinu. Borgarstjóri gerði síðan grein fyrir starfsemi einstakra fyrir- tækja borgarsjóðs s.s.: grjótnáms, pipugerðar, Vatnsveitu Reykja- víkur, byggingarsjóðs, Rafmagns- veitu Reykjavikur, Bæjarút- gerðar Reykjavíkur, Reykjavíkur- hafnar og Hitaveitu Reykjavikur. % 54% verðbólga 1 lok ræðu sinnar sagði borgar- stjóri m.a.: „Tekjur sveitarfélaganna eru nokkuð fast bundnar í krónutölu í upphafi ársins, en hreyfast ekki með verðbólgunni, nema framlag úr Jöfnunarsjóði. Aðrar tekjur, sem um munar eins og útsvör og aðstöðugjald, miðast hins vegar við efnahagsástand ársins á und- an, og ljóst er, að verðbólgan leikur sveitarsjóðina grátt, þegar hún geisar jafn ört, eins og reynd- ist á s.l. ári. Ég vil sérstaklega vekja athygli borgarfulltrúa á því, að rekstrSý- gjöld borgarsjóðs fóru aðeins 13% fram úr áætlun, þrátt fyrir það að verðbólgan er talin hafa numið 54% á árinu, eins og ég gat um áðan. Þessi tala sýnir ótvirætt, að mikils aðhalds var gætt í rekstri borgarsjóðs á árinu 1974, og reyndar endra nær. Framlag á rekstri til fram- kvæmda reyndist lægra sem nemur þessum auknu rekstrar- gjöldum eða um 277 millj. kr. Þessi lækkun á tekjuafgangi frá rekstri hafði þó ekki i för með sér lækkun fjárframlaga til eigna- breytinga, en fresta varð þó nokkrum framkvæmdum. Um horfur á þessu ári vil ég einungis segja það, að ýmsar blikur eru á lofti varðandi aukinn kostnað borgarsjóðs á árinu. Ég hef áður getið þess hér i borgar- stjórn að nýgerðir kjarasamning- ar muni kosta borgarsjóð 45 millj. kr. umfram það, sem áætlað hafði verið til launahækkana við endur- skoðun fjárhagsáætlunar I aprll- mánuði s.l. Ýmis annar kostnaður fer nokkuð fram úr áætlun, og má m.a. nefna Vinnuskóla borgar- innar, sem er mun meir sóttur í ár en hefur verið undanfarin ár. Þá er ljóst að sérstakar aðgerðir til að reyna að útvega skólafólki I Reykjavík atvinnu í sumar muni kosta borgarsjóð meira en áætlað hafði verið. Þessi atriði þarf að sjálfsögðu öll að kanna, þegar út- svarsálagning liggur fyrir, en ljóst er, að itrasta aðhalds þarf að gæta, bæði í rekstri og fram- kvæmdum, og mjög verður að fara hægt i að setja nýjar fram- kvæmdir af stað, þótt áætlað sé fyrir þeim i fjárhagsáætlun þessa árs.“ 7* ffpkkwrt 9 ú 1.000,000 kr 9 ~ 5OO.Ó0O ™ 9 - 200.000 —. 3)5 - 50.000 — 2.520 - 10.000 6,570 - 5.000 — 9.000,000 kr 4.500.000 — 1.800.000 — 15.750.000 — 25.200.000 — 32.050,000 — 89.100.000 Atfkavinníngar: 10 6 50,000 kr 90.000.000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.