Morgunblaðið - 08.07.1975, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULl 1975
21
Óvænt úrslit á Húsavík
REYNIR FORÐAÐI
SÉR AF BOTNINUM
EFTIR leiki helgarinnar I 2.
deild sitja Vfkingar úr Ólafsvík
einir og yfirgefnir á botninum, án
stiga. Næst á undan koma liðin
tvö af Norðurlandi, Völsungar og
Reynir, og hafa bæði liðin hlotið
4 stig, eftir að Reynir sigraði
Völsung á Húsavfk á laugardag
með 2 mörkum gegn einu.
Það var fjölmenni á Húsavfkur-
velli f blfðunni á laugardag. Það
kom og á daginn að hart var bar-
izt, enda hefur báðum liðum
vegnað heldur illa það sem af er
leiktímabilinu.
Leikmenn Reynis byrjuðu leik-
inn af miklu fjöri og sóttu í byrj-
un all stíft að marki heimamanna,
þó án þess að skora. Þegar á leið
jafnaðist leikurinn nokkuð, en þó
voru Reynismenn öllu ágengari.
Það var sfðan á 20. min. sem
fyrsta markið var staðreynd.
Varnarmaður Völsunga var að
dúlla með knöttinn inni í eigin
Þróttarar unnu
Ólafsvíkinga
í miklum rokleik
Þrátt fyrir ágætan leik tókst
Vfkingunum frá Ólafsvfk ekki
að ná stigi f leik sfnum gegn
Þrótti f Ólafsvfk á laugardag-
inn. Var ef til vill ekki við þvf
að búast þar sem Þróttur er f
einu af efstu sætum deildar-
innar en Vfkingarnir berjast á
botninum og hafa enn ekkert
stig hlotið. (Jrslit leiksins urðu
2:0, sigur Þróttar, og voru bæði
mörkin skoruð í fyrri hálf-
leiknum.
Fyrsta markið skoraði Hall-
dór Bragason með góðum
skalla og hið síðara skoraði
Þorvaldur I. Þorvaldsson litlu
síðar. Höfðu Þróttararnir
undirtökin í leiknum allan
fyrri hálfleikinn og áttu þá
meðal annars tvö hörkuskot í
þverslá Víkingsmarksins. I
síðari hálfleiknum snerist
dæmið við og nú voru það Vík-
ingarnir sem sóttn grimmt,
enda höfðu þeir sterkan vind-
inn í bakið. Ekki tókst þeim þó
að skora, enda vörn Þróttara
þétt fyrir.
Ekki þótti leikur liðanna
góður, enda erfiðar aðstæður,
mikið rok og slæmur völlur.
Víkingarnir léku nú í fyrsta
skipti í 2. deildinni með full-
skipað lið og þó svo að enn hafi
Víkingarnir ekkert stig hlotið
þá er ólíklegt annað en að stig-
in komi f næstu leikjum. Leik-
menn liðsins börðust vel allan
tímann og eiga hrós skilið fyrir
dugnaðinn. Þróttararnir léku
hins vegar ekki vel að þessu
sinni og hætt er við að leikur
eins og þeir sýndú á laugar-
daginn hefði dugað skammt
gegn toppliðum deildarinnar.
vítateig, þegar Felix Jósafatsson
kom aðvífandi, náði knettinum og
skoraði án þess að Ólafur Magnús-
son í marki Völsunga kæmi vörn-
um við. Eftir markið áttuðu Völs-
ungar sig nokkuð og tóku leikinn
smám saman fastari tökum. Þrátt
fyrir það var það Reynir sem næst
skoraði. Á 35. mín. var dæmd
aukaspyrna á Völsunga á miðjum
vallarhelmingi þeirra. Gunnar
Valversson spyrnti háum bolta
inn i teiginn þar sem þvaga
myndaðist og Björgvin Gunn-
laugsson var fyrstur að átta sig og
skoraði af stuttu færi. Þannig var
staðan í leikhléi, 2 mörk gegn
engu.
I síðari hálfleiknum voru
heimamenn mun aðsópsmeiri
heldur en gestirnir og sköpuðu
sér nokkur tækifæri, sem þó ekki
nýttust, mest vegna góðrar
frammistöðu Eiríks markvarðar
Reynis. Það var ekki fyrr en um
miðbik hálfleiksins sem Völsung-
um tókst að lagfæra stöðuna
þegar Magnús Torfason skoraði
örugglega úr vítaspyrnu, sem
dæmd var réttilega á varnarmann
Reynis sem handlék knöttinn
innan vitateigs. Það sem eftir lifði
leiksins sköpuðu bæði liðin sér
nokkur færi sem þó ekki nýttust.
Það hefir lfkast til verið Völs-
ungum nokkurt áfall að tapa báð-
um stigunum f viðureigninni
gegn Reyni á laugardag. Flestir
höfðu reiknað með sigri heima-
manna, en það fór á annan veg,
eins og svo oft þegar knattspyrnu-
keppni á i hlut. Eftir úrslit þessa
leiks eykst spennan á botninum,
, þó svo að staða Víkinga sé þar
lökust. Það er skarð fyrir skildi f
liði Völsunga þegar Hreinn
Elliðason getur ekki leikið með,
en hann á við meiðsli í ökkla að
stríða. Hreinn kom þó i«n á þegar
um tuttugu mín. voru til leiks-
loka, en fékk engu um þokað.
Beztur Völsunga var tvímælalaust
Magnús Torfason.
Leikmönnum Reynis fer fram
með hverjum leik, og er greini-
legt að Duncan MacDowell hefir
unnið gott starf þann stutta tfma
sem hann hefir verið með liðið. Ef
fram heldur sem horfir þurfa
Reynismenn alls ekki að óttast að
botnsætið verði þeirra.
Beztir leikmanna Reynis i
leiknum á laugardag voru bræð-
urnir Ragnar og Elfar Reykjalín
ásamt Eiríki markverði.
Dómari var Rafn Hjaltalín og
fórst honum hlutverkið vel úr
hendi.
Sigb.G.
Ólafur Friðriksson skorar þriðja mark Breiðabliks f leiknum við Selfoss.
Blikarnir í forystu eftir
4-1 sigur yfir Selfyssingum
Að loknum 7 umferðum f 2.
deild halda Blikarnir úr Kópa-
vogi enn forystu, þvf þeir sigruðu
Selfyssinga með 4—1 á nýja gras-
vellinum f Kópavogi á sunnudags-
kvöldið.
Hafa Blikarnir nú hlotið 12 stig
eftir fyrri umferðina, en Þróttur
fylgir fast á eftir með 11 stig og
Ármann með 10 stig.
Þessi þrjú félög eru hvað lík-
legust til að hljóta tvö efstu sætin
í 2. deild, en efsta sætið gefur
sæti í 1. deild á næsta ári, en
annað sætið möguleika á því að
leika við það félag, sem verður á
botninum f 1. deild, vegna fyrir-
hugaðrar fjölgunar í 1. deild á
næsta ári, úr 8 liðum i 9 lið. —
Það er því til nokkurs að vinna að
hljóta 2. sætið f 2. deild að þessu
sinni.
Þótt Bliknarnir hafi lengst af
haft undirtökin í fyrri hálfleik f
leiknum við Selfoss á sunnudags-
kvöldið, gekk þeim að sama skapi
ekki eins vel, að finna leiðina í
mark þeirra.
Strax á 1. mín. leiksins
björguðu Selfyssingar á linu,
skoti frá Þór Hreiðarssyni og 10.
mín. síðar varði Örn Grétarsson
markvörður Selfyssinga gott skot
frá Ólafi Friðrikssyni.
Á 35. og 36. mín. áttu Selfyss-
ingar góð tækifæri, sem ekki nýtt-
ust, en á 42. mín. var dæmd horn-
spyrna á Selfoss og var knöttur-
inn sendur beint á Einar Þór-
hallsson, sem skoraði fyrsta mark
leiksins með glæsilegum skalla
undir þverslá.
Blikarnir héldu enn upptekn-
um hætti i síðari hálfleik og höfðu
enn undirtökin í leiknum. A 55.
mín. átti Gísli hörkuskot i þverslá,
en þaðan hrökk knötturinn fyrir
fætur markakóngi Blikanna,
Hinrik Þórhallssyni, sem ekki var
á skotskónum að þessu sinni og
hitti ekki markið í dauðafæri.
Mín. síðar átti Gísli hörkuskot
framhjá i góðu færi.
Á 81. mín. bætti Gisli úr þessu
með því að skora með skoti frá
vítateig, sem mér fannst Örn
hefði átt að verja.
Þrem mfn. síðar komust Sel-
fyssingar á blað, en Sumarliði
Guðbjartsson tók til sinna ráða og
lék upp allan völlinn og á nokkra
varnarmenn og afgreiddi knött-
inn í netið með glæsilegu skoti af
30 m færi.
Undir lokin lögðu Selfyssingar
allt kapp á að jafna og gættu sin
ekki sem skyldi í vörninni.
Kostaði það tvö mörk á loka-
mínútum leiksins. Fyrra markið
skoraði Ólafur Friðriksson á 88.
mín. og á 89. mín. bætti Einar
Þórhallsson öðru við.
Leiknum lauk þvi með öruggum
sigri Blikanna, sem var að visu
full stór, en sanngjarn eftir gangi
leiksins.
I heildina tekið var leikurinn
þokkalega leikinn af báðum lið-
um og mátti oft sjá góðan samleik
og drengilega baráttu.
Blikarnir voru sterkari aðilinn
allan tímann með Einar Þórhalls-
son og Gisla Sigurðsson sem bezta
menn.
Það er margt efnilegra leik-
manna hjá Selfyssingum, en trú-
lega háir þeim reynsluleysi og
kom það oft fram í leiknum, að
þeir léku ekki nægilega yfirvegað
og gáfu oft knöttinn frá sér of
fljótt. Annars er liðið efnílegt og
ætti að geta náð langt. Dómari var
Eysteinn Guðmundsson og dæmdi
hann vel, nema hvað mér fannst
hann sleppa vitaspyrnu á Blikana
í fyrri hálfleik.
Hdan
Yfirburðir ungu mannanna
islandsmðllð 2. delld
SAMTALS 80 keppendur tóku
þátt f opna mótinu á Akranesi nú
um helgina, en Sementsverk-
smiðjan gefur verðlaunin svo sem
kunnugt er. Svo margir hafa
aldrei tekið þátt f keppni á golf-
velli Leynis, en mótið fór vel
fram og veður var allsæmilegt.
Sigurður Thorarensen var mað-
ur mótsins og vann glæsilegan
HAIKARMR AÐ MISSA AF LESTINNI
—TÖPLÐU14 GEGN ÁRMENNINGIJM
Ármannsliðið hafði ekki mikið
fyrir þvf að sigra Hauka f 2. deild-
inni á laugardaginn. Urslitin
urðu 4:1, eftir að staðan hafði
verið 1:0 fyrir Ármann í leikhléi.
Voru Ármenningarnir mun bar-
áttuglaðari f þessum leik en í
Haukaliðið vantaði þann neista
sem svo oft hefur gefið liðinu
dýrmæt stig. Það var ekki eins og
Haukarnir væru þarna að berjast
fyrir einu af efstu sætunum f 2.
deild og möguleika á 1. deildar-
sæti næsta sumar. Ahugaleysið
var mikið og á móti hörkuliði eins
og Ármanni þýðir ekki annað en
að taka á móti og berjast.
Með þessum sigri sínum eru
Ármenningar í þriðia sæti í 2.
deild á eftir Þrótti og Breiðabliki
og ætti liðið að eiga talsverða
möguleika á að ná að minnsta
kosti öðru sætinu i deilöinni og
tryggja sér þar með aukaleik um
réttinn til að leika i 1. deild næsta
ár, Haukarnir eru með 7 stig,
fimm stigum á eftir Blikunum og
þó svo að staða þeirra sé engan
veginn vonlaus þá hafa mögu-
leikar liðsins farið ört minnkandi.
Leikur Ármanns og Hauka á
laugardaginn var alls ekki leikur
tveggja nettra samleiksliða, mikið
var um langspyrnur, sem oft
sköpuðu hættu, en á milli brá þó
fyrir laglega uppbyggðum sóknar-
lotum. Mikið var um tækifæri í
leiknum’og áttu Ármenningarnir
mun fleiri þeirra, en Hörður Sig-
marsson varði vel í leiknum.
Fyrsta mark leiksins skoraði
bakvörðurinn Sveinn Guðnason
eftir hornspyrnu Jóns Hermanns-
sonar. Skallaði hann knöttinn lag-
lega í mark Haukanna. Fyrsta
mark seinni hálfleiksins skoraði
Smári Jónsson eftir að Viggó
hafði gefið góða sendingu á hann.
Skot Smára sneiddi framhjá sof-
andi varnarmönnum Haukaliðs-
ins og i netið.
Tvö síðustu mörk Ármenning-
anna skoraði Viggó Sigurðsson.
Það fyrra eftir góðan undirbún-
ing Jóns, Jóhanns og Viggós og
síðara markið eftir að Ingi
Stefánsson hafði skallað knöttinn
fyrir fætur honum og skot Viggós
var hnitmiðað í slá og inn. Eina
mark Haukanna var jafnframt
siðasta mark leiksins. Eftir mis-
skilning á milli Kristins Petersen
og Ögmundar náði Guðjón að
senda boltann á Loft Eyjólfsson
sem skoraði auðveldlega.
Beztu menn Haukanna í þess-
um leik voru þeir Loftur Eyjölfs-
son og Hörður Sigmarsson, en
yfirleitt léku Haukarnir þennan
leik undir getu. Af Ármenningun-
um stóðu þeir sig einna bezt
nafnarnir Jón Ástvaldsson og Jón
Hermannsson á miðjunni, sá fyrr-
nefndi barðist mjög vel, en hinn
byggði upp flestar sóknarlotur’
Ármannsliðsins. Smári tók góða
spretti og Viggó Sigurðsson varð
mjög ógnandi eftir þvi sem leið á
leikinn.
sigur, bæði með og án forgjafar.
Hann virðist koma sterkari frá
hverri raun nú um stundir og
kórónar ágætan árangur i Irlands-
ferðinni með þessum sigri. Loftur
Olafsson er að sækja sig, en eins
og oft áður uppá síðkastið, er Þor-
björn Kjærbo eini maðurinn, á
fullorðnisaldri, sem veitir ungu
mönnunum keppni og varð nú i
3.—4. sæti. Úrslit urðu þessi:
An forgjafar: (36 hofur)
1. Sigurður Thorarensen GK
71+75, samt. á 146 höggum.
2. Loftur Olafsson NK samt. á 153
höggum
3. —4. Þorbjörn Kjærbo GS samt.
á 156 höggum
Geir Svansson GR samt á 156
höggum
Með forgjöf: (18. holur)
1. Sigurður Thörarensen GK
nettó á 67 höggum
2. —3. Atli Arason GR nettó á 70
höggum
Loftur Ólafsson NK nettó á 70
höggum.
Þeir léku um röðina og Atli
vann.
2. og 3. flokkur: An forgjafar:
1. Eggert Isfeld NK81
2. Sigurður Gestsson, G. Borgar-
ness 85
3. Björn Þórhallsson GL 89
Með forgjöf:
1. Eggert ísfeld NK nettó á 65
höggum
2. Sigurður Gestsson GB nettó á
70 höggum
3. Guðjón Sigurðsson GL nettó á
71 höggi.