Morgunblaðið - 13.08.1975, Page 5

Morgunblaðið - 13.08.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGUST 1975 5 Lokið við varanlegan veg að Þjórsá 1976 UM ÞESSAR mundir er verið að leggja olfumöl á vegarkaflann austan við Selfoss og austur undir Skeið. Þessu verki á að ljúka á þessu sumri, en áætlað er að halda áfram með hann á næsta ári og ætti þá að vera kominn vegur með varanlegu slitlagi austur að Þjórsá. Þetta kom m.a. fram þeg- ar Morgunblaðið ræddi f gær við Sigurð Jóhannsson, vegamála- stjóra. Sigurður sagði, að sú vegaáætl- un, sem alþingi samþykkti s.l. vor, næði yfir 2 ár, en yrði endurskoð- uð næsta vetur, og þá yrði samin ný vegaáætlun fyrir árin 1977 og 1978. Hvað vegi með varanlegu slitlagi snerti, þá ætti á næsta ári að halda áfram og ljúka við veg- inn austur að Þjórsá og ef haldið yrði I vesturátt frá Reykjavík, þá ætti að leggja slitlag á Vestur- landsveg að Kiðafelli og byggja brú þar. Ennfremur yrði haldið áfram með veginn í gegnum Kópavog. Uti á landi stæði til að leggja olíumöl á vegi I nánd við Akureyri og Blönduós, og væri þar um 10—20 km. langan kafla að ræða. Á Suðurnesjum yrði svo haldið áfram með veginn út í Garðinn. A hestum um Hornstrandir Bæjum, 3. ágúst 1975 AF ALLRI þeirri mergð bíla, sem um veginn fóru hér um verzlunar- mannahelgina, skar sig einn úr að stærð og lögun, og er hann renndi í hlaðið í Bæjum, I Snæfjalla- hreppi, kom I ljós að hér var á ferðinni fágætur flutningur hér um slóðir, en þetta var gripaflutn- ingabíll með 12 valda gæðinga innanborðs, á leið með eigendum sínum um Hornstrandir. Voru hrossin flutt allar götur frá Reykjavík á bfl þessum. Hér voru á ferðinni Ölafur Hólmgeir Páls- son múrarameistari með sonu sína tvo, annan aðeins 14 ára*, og var auðséð á tilburðum hans, að ekki var það í fyrsta skipti, að hann hefði á hestbak komið, svo létt fór honum »meðhöndlun hrossa sinna, annar sonur Ölafs, Flosi, var meðal þeirra félaga, og sá fjórði: Geir Þorsteinsson verk- fræðingur, forstjóri Ræsis h.f. Rvik. Þetta eru samvaldir ferða- garpar, búnir að ferðast vfðast um hálendi landsins mörg undan- farin ár, og ætla nú að kanna og njóta heillandi hrikaleikaog feg- urðar Hornstranda, alla leið að Hornbjargsvita, og þaðan austur strandir yfir fjöll og einstfgi, allt austur í Húnaþing, en þar á Ölafur jörð, þar sem hann geymir hesta sína í viðlögum. Er ekki að efa, að margur hefði viljað eiga þess kost að verða þeim félögum samferða og skoða þetta heillandi og hrikalega landslag, og alla þá margbreytilegu fegurð, sem Hornstrandir hafa upp á að bjóða. Átthagafélag Snæfjallahrepps hélt sfna árlegu skemmtun í félagsheimili sínu að Árbæ, hér í sveit, nú um verzlunarmanna- helgina, og munu þar hafa saman komið upp undir 200 manns. Hyggst félagið nú ráðast f stækk- Þrír Islendingar á rit- höfundamót á Skáni ÞRtR Islendingar munu taka þátt I Þriðja alþjóð- lega rithöfundamótinu í Mölle f Svfþjóð dagana 13.—17. ágúst nk. og er aðalviðfangsefnið þar „Rit- höfundurinn og les- andinn“. íslenzku fulltrú- arnir eru Jenna Jóns- dóttir, Jóhann Hjálmars- son og Þorvarður Helga- son. Alls taka 49 rithöfundar, bókaútgefendur og rit- stjórar bókmenntarita frá 11 löndum þátt í mótinu. Hefur verið Iögð áherzla á að fá rithöfunda frá Aust- ur-Evrópulöndum til móts- ins og taka t.d. austur- þýzkir rithöfundar nú þátt í mótinu í fyrsta skipti. Til stóð, að þeir tækju þátt í síðasta Mölle-mótinu, en á síðustu stundu kom fram, að þeir fengju ekki farar- leyfi úr heimalandi sínu. Auk þeirra taka nú þátt nokkrir aðrir rithöfundar frá A-Evrópulöndum. Á mótinu verður til- kynnt um veitingu vestur- þýzku bókmenntaverðlaun- anna, sem kennd eru við „Kreis der Freunde“, og einnig verða veitt öðru sinni hin svonefndu Al- þjóðlegu Mölle- bókmenntaverðlaun. 1 tengslum við mótið verður efnt til bókmenntavöku hinum megin við Eyrar- sundið, þ.e. í Helsingör í Danmörku, þar sem ýmsir rithöfundar munu lesa úr verkum sfnum. Fyrir rithöfundamótinu í Mölle standa Bókasafnið í Höganás-umdæmi, Banda- lag listamanna á Skáni, Rit- höfundafélag Skánar og nokkur erlend rithöfunda- félög. un félagsheimilis sfns í næstu framtíð. Voru þarna tjaldborgir stórar og bílaraðir, og dans- skemmtun tvö kvöld I röð. Oþurrkar hafa hamlað heyskap hér við Djúp að undanförnu, er því grasspretta orðin sæmileg víða, en nokkuð misjöfn, en tals- vert kal I túnum, enda spretta sein, og almennt ekki byrjaður sláttur að marki fyrr en seinni hluta júnimánaðar, og veltur því algerlega á veðráttu ágúst- mánaðar hversu heyskapur nýt- ist. Jens I Kaldalóni. I.Jósm. Mhl. ÖI.K.Mag. Sprakk mœlirinn...? 1 fyrradag var sæmilegur hiti f Reykjavfk, aldrei þessu vant, og var óvenju fjölmennt f miðbænum. Þeir ráku Ifka flestir upp stór augu þegar þeir sáu að unnið var að viðgerð á hitamælinum stóra hjá Almcnnum f Pósthússtræti. „Hann skyldi þó ekki hafa sprungið f „hitanum“,“ spurðu menn sjálfa sig. En það var að sjálfsögðu ekki ástæðan enda útilokað eins og veðráttan hefur verið. Þarna var bara verið að gera við gamla bilun og flikka upp á mælinn f leiðinni. Mjólkurframleiðsla dregst saman en neyrfa eykst um 8% ALLT bendir til þess, að innvegið mjólkurmagn f mjólkurbúum landsins ætli að verða minna á þessu ári en f fyrra og má rekja þennan samdrátt til mikilla kulda f júnfmánuði og lélegrar sprettu f túnum. Þetta kemur fram f fréttabréfi Upplýsinga- þjónustu landbúnaðarins. 1 fréttabréfinu segir, að fyrstu sex mánuði ársins hafi mjólkur- búin tekið á móti 54.2 millj. kg. af mjólk og sé það 920 þús. kg. minna en á sama tíma 1974 eða 1.67%. — Þá segir að reikna megi með að innvegin mjólk verði mun minni í sumar og haust en var í fyrra, bæði er það að útlit fyrir háarsprettu er lélegt, þar sem svo seint er slegið, og svo hefur græn- fóður sprottið illa vfðast hvar á landinu. Fyrstu 6 mánuði ársins seldust 24.6 millj. lítrar af mjólk, sem er 8.1% aukning miðað við sama tíma f fyrra. Sala á rjóma var 7.1% meiri, en heldur hefur dregið úr sölu á skyri eða um tæp 2%. Söluaukning á undanrennu hefur hinsvegar orðið um 10%. Framleiðsla á ostum hefur minnkað um tæp 8% og á smjöri um 12%, eða 647 tonn. Birgðir af smjöri 1. júlí s.l. voru 246 tonn. Seld voru 709 tonn af smjöri fyrri hluta þessa árs á móti 1060 tonnum f fyrra. Mest munar þar um söluna í júnímánuði f fyrra, þá seldust hvorki meira né minna en 345 tonn en í sama mánuði í ár seldust 106 tonn. Sölusýning á „Loftinu” „LOFTIÐ" á Skólavörðustíg 4 hefur opnað sölusýningu á mál- verkum eftir 10 íslenzka list- málara. Verður sýningin opin á venjulegum verzlunartfma fram til áramóta, en gengið er upp á „Loftið“ úr listmunaverzlun Helga Einarssonar. Sýningin hefur verið opin í viku og hafa margir skoðað hana og nokkur verk selzt. Námskeið á vegum KHI Á VEGUM Kennaraháskóla Is- lands verða i ágúst námskeið í ýmsum greinum, t.d. lfffræði, eðl- isfræði, tónmennt, íþróttum, mynd- og handmennt og dönsku. Aðalkennari á dönskunámskeið- inu er Carl Sörensen kennari við Kennaraskólann í Silkeborg og eru fyrirlestrar hans opnir fyrir dönskukennara á öllum skólastig- um. I fyrirlestrum sínum mun hann f jalla um ný viðhorf f tungu- málakennslu, möguleika og tak- markanir kennslubókarinnar, málakennslustofuna, einstaklings- bundna kennslu o.fl. Fyrirlestrarnir fara fram í Æf- ingaskóla KHÍ vikuna 11.—16. ág- úst, byrja kl. 9 og standa ýmist eina eða tvær kennslustundir. Vagn Lundbye heldur fyrirlestur í N.H. UM ÞESSAR mundir dvelst hér á landi danski rithöfundurinn VAGN LUNDBYE. Hefur hann hlotið styrk danska manntamála- ráðuneytisins til dvalar á Islandi og býr f Norræna húsinu meðan á dvölinni stendur. Miðvikudaginn 13. ágúst kl. 20.30 heldur Vagn Lundbye fyrir- iestur í samkomusal Norræna hússins. Þar verður einnig sýnd kvikmynd um kollega hans, danska rithöfundinn Albert Dam, sem Lundbye hefur gert, og flyt- ur hann jafnframt skýringar. Er- ik Skyum-Nielsen, lektor i dönsku, flytur inngangsorð um Vagn Lundbye, I fyrirlestrinum á miðvikudag segir Vagn Lundbye frá því, sem á daga hans hefur drifið meðal Indíána og Eskimóa í Norður- Ameríku og lýsir sambandinu milli Indfánamenningarinnar og hinnar pólitfsku frelsisbaráttu Indfánanna nú, og ennfremur gerir hann nokkra grein fyrir þvi hvert erindi hugsunarháttur Indf- ána á til Evrópubúa. Stirð tíð á Snæfellsnesi Stykkishólmi 10. 8. 1975 EINS OG víðar á landinu hefir tíðarfar verið hér afar stirt það sem af er sumri. Aldrei stöðug tfð og mikið hefir verið um úrfelli. Vorið var kalt og eins og komið hefir fram áður var júnfmánuður einna kaldastur um fjölda ára. Allt þetta hefir haft sfn áhrif á gróður. Þó má segja að gras- spretta sé sæmileg, en þá er nýtingin slæm sökum óþurrka og þvf sláttur Iftið á veg kominn. Um sprettu f görðum er það að segja að grasvöxtur er ærinn. Ber sjást harla lftil og verður þetta varla berjaár hér um slóðir. Ferðamannastraumur hefir verið mikill hér í júlf og það sem af er ágúst og hefir Flóabáturinn Baldur haft ærin verkefni. Farið 4 sinnum f viku yfir Breiðafjörð með viðkomu f Flatey og einnig farið aukaferðir. Miki’ð hefir verið af erlendu ferðafólki hér í sumar bæði í náttúruskoðun o.fl. Sumarhótelið hefir því haft mikið umleikis og sú þjónusta sem þáð hefir veitt er ágæt í alla staði og Stykkishólmi til sóma. Mörg íbúðarhús eru í byggingu en þrátt fyrir það eru hér sem annarsstaðar húsnæðisvandræði, enda vex ibúatala bæjarins jafnt og þétt. Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.